Morgunblaðið - 14.04.1991, Page 27
MORGU NBLAÐIÐ'
ATVINNA/RAÐ/SIVIÁ n\
IAUGLYSINGAR
Bókagerðarfólk
Óskum eftir að ráða í eftirfarandi störf:
Offsetprentara, vanan litprentun, í 1 ár eða
jafnvel lengur.
Prentsmið, vanan litskeytingu, framtíðar-
starf.
Vinsamlega hafið samband við verkstjóra á
staðnum.
Með allar fyrirspurnir verður farið sem trún-
aðarmál.
&
ísafoldarprentsmiðja hf.
Pingholtsstrati 5 ■ Slmi 17165 Telefax 17226
Forstöðumaður
Starf forstoðumanns félagsheimilis Patreks-
fjarðar er laust til umsóknar. Um er að ræða
100% starf. Laun samkvæmt kjarasamning-
um opinberra starfsmanna.
Umsóknum um aldur, menntun og fyrri störf
skal skila á skrifstofu Patrekshrepps fyrir 23.
apríl nk.
Nánari upplysingar um starfið veitir sveitar-
stjóri Patrekshrepps í síma 94-1221.
Hrafnista, Hafnarfirði
Skrifstofustarf
Óskum að ráða starfsmann til ýmissa skrif-
stofustarfa. Vinnutími frá kl. 8.00-12.00 virka
daga.
Leggjum áherslu á að viðkomandi geti unnið
sjálfstætt, sé nákvæmur og lipur í samskipt-
um. Kunnátta á tölvu æskileg.
Umsóknir ásamt meðmælum sendist Hrafn-
istu, Hafnarfirði, merktar skrifstofustjóra eigi
síðar en 17. apríl.
Verkstæðismóttaka
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða mann
vanan bílaviðgerðum í starf við verkstæðis-
móttöku.
Skilyrði fyrir ráðningu er:
1. Þjónustulund.
2. Samstarfsvilji.
3. Reglusemi og góð umgengni.
4. Meðmæli.
Skriflegar umsóknir, ásamt meðmælum,
sendist til okkar fyrir 19. apríl nk. merktar:
„Starfsumsókn, verkstæðismóttaka".
Upplýsingar um ofangreint starf eru ekki
gefnar í síma.
Öllum umsóknum verður svarað.
Toyota,
P. Samúelsson hf.,
Nýbýlavegi 8,
Kópavogi.
Fjölbrautaskóli Suóumesja
Kennarar
Lausar eru til umsóknar fyrir næsta skólaár
kennarastöður í eftirtöldum greinum:
íslensku, sögu, viðskiptagreinum, líffræði,
tréiðnum, listgreinum, málmiðnum, stærð-
fræði, dönsku, ensku, rafiðnum, tölfufræð-
um, háriðnum og vélritun.
Góð vinnuaðstaða fyrir hendi.
Umsóknir berist undirrituðum fyrir 30. apríl
nk. Nánari upplýsingar veittar í síma
92-13100 eða 92-14160.
Skóiameistari.
Bifreiðaverkstæði
í borginni vantar fólk í eftirtalin störf:
A. Starfskraft til að annast móttöku við-
skiptavina. Æskilegir kostir: Snyrti-
mennska, þjónustulund og góðir skipu-
lagshæfileikar.
B. Bifvélavirkja til almennra viðgerða á
bílum.
Góð laun í boði. Fullum trúnaði heitið.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
20. apríl merktar: „B - 7834“.
Egilsstaðir
Kennarar
-sérkennarar
Nokkra kennara vantar að Egilsstaðaskóla
næsta skólaár m.a. sérkennara, tónmennta-
kennara, mynd- og handmenntakennara.
Einnig vantar kennara til kennslu í stærð-
fræði og dönsku auk almennrar kennslu.
Útvegum húsnæði.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-11146.
Fasteignasala
Rótgróin og öflug fasteignasala óskar að
ráða starfsmann til sölumennsku og skjala
frágngs. Við löitum að manni með viðskipta-
fræðimenntun (ekki skilyrði) eða góða undir-
stöðumenntun.
Viðkomandi þarf að hafa örugga framkomu,
geta starfað sjálfstætt og hafa bíl til umráða.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar
auglýsingadeild Mbl. merktar: „F - 8880“.
miiimi
BRBISIHB
immuj
1 LiiiiEimiE ElÉIElICeiíl |iHieiiiiiii
Frá Háskóla Islands
Lausar stöður
Rannsóknastofa í lyfjafræði
óskar eftir að ráða afleysingamann í lyfja-
rannsóknadeild í eitt ár frá 1. júlí 1991 að
telja. Starfið er fólgið í ákvörðun lyfja í líkams-
sýnum og hugsanlega matvælum. Æskilegt
er að hlutaðeigandi hafi reynslu í efnagrein-
ingu og hafi lokið háskólaprófi í efnafræði,
lífefnafræði eða lyfjafræði lyfsala. Möguleikar
eru á framtíðarstarfi m.a. við aðferðaþróun.
Upplýsingar um starfið veitir Kristín Magnús-
dóttir, Rannsóknastofu í lyfjafræði, í síma
680866.
Umsóknir um stöðuna skulu sendar starfs-
mannasvið Háskólans, aðalbyggingu Háskól-
ans við Suðurgötu 101, Reykjavík, fyrir 15.
maí 1991.
Bifvélavirkjar
Bifvélavirkjar óskast á vörubifreiðaverkstæði
okkar.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til þjón-
ustustjóra á Bíldshöfða 6, 112 Reykjavík.
(Ath. upplýsingar ekki veittar í síma).
Starfsfólk óskast
til starfa á öldrunarstofnun úti á landi strax.
Um er að ræða 100% stöður og einnig til
sumarafleysinga.'
Upplýsingar gefur Sigrún Magnúsdóttir í
síma 94-7718 eða 94-7759.
BORGARSPÍTALINN
Læknafulltrúi
Starf læknafulltrúa við endurhæfinga- og
taugadeild er laust. Reynsla af tölvum (Mac-
intosh) er æskileg. Starfið veitist frá 1. júní
nk.
Upplýsingar gefur Halla Magnúsdóttir,
læknafulltrúi í síma 696721 milli kl. 8.00-
16.00.
Aðstoðarlæknir
Staða reynds aðstoðarlæknis á endurhæf-
inga- og taugadeild er laus frá 1. júní nk.
Um er að ræða ársstöðu. Hentug fyrir þá,
sem hyggja á nám í taugalækningum eða
þurfa á þessari hliðargrein að halda.
Upplýsingar veitir dr. Ásgeir B. Ellertsson,
yfirlæknir í síma 696710.
!|!
DAGVI8T BARNA
Þroskaþjálfa
Vantar í stuðning fyrir hádegi í leikskólann
Staðarborg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
30345 og Einar Hjörleifsson sálfræðingur í
síma 27277.
Fóstrur þroska-
þjálfar athugið
Við leikskólann í Borgarnesi eru tvær leik-
skóladeildir og í ágúst verður opnuð ný dag-
heimilisdeild. Nú vantar okkur forstöðumann,
fóstrur og þroskaþjálfa til starfa. Væri ekki
heillaráð að flytja til okkar á fallegan stað í
þjóðbraut?
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í
s: 93-71425.
Umsóknir sendist til bæjarskrifstofu Borgar-
ness fyrir 27. apríl n.k.
Félagsmálastjórinn í Borgarnesi.
Vistheimilið íVíðinesi
óskar eftir að ráða starfsfólk til aðhlynning-
ar, þvotta, ræstinga og eldhússtarfa.
Upplýsingar gefnar í Víðinesi í dag og næstu
daga í síma 666331.
Starf í mötuneyti
Óskum eftir röskum og snyrtilegum starfs-
krafti til að sjá um 50 manna mötuneyti okk-
ar (heit máltíð tvisvar í viku). Þarf helst að
byrja strax. 50-60% starf.
Upplýsingar um fyrri störf og launahugmynd-
ir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar:
„S - 11809" fyrir 18. apríl '91.