Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 31
OÍBl
- I
AUGLYSINGAR
Útboð
Hvammstangahreppur býður hér með út
gatnagerð ársins 1991.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 8900 m3
Fylling 7650 m3
Frárennslislagnir 1087 m
Sprengingar 300 m3
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hvammstangahrepps, Klapparstíg 4, 530
Hvammstanga, s. 95-12353, gegn 5000 kr.
skilatryggingu.
Tilboð skulu berast skrifstofunni fyrir kl.
11.00 laugardaginn 20. apríl 1991 og verða
þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðend-
um er þess óska.
Ath. breyttan skilatíma tilboða.
Sveitarstjóri Hvammstangahrepps.
Verktakar
Byggingamefnd Laugarþakkaskóla í Miðfirði,
V-Húnavatnssýslu, óskar eftir tilboðum í að
byggja íþróttahús og stækkun á kennsluhús-
næði, samtals um 6500 m3. Húsið skal full-
gera að utanverðu.
Utboðsgögn verða afhent, gegn 15.000,- kr.
skilatryggingu, hjá Bárði Daníelssyni, arki-
tekt, Skipholti 51, Reykjavík, sími 84711 og
á skrifstofu Laugarbakkaskóla, sími
95-12901. Skilafrestur er til 26. apríl nk.
Shell
Útboð - malbikun
Skeljungur hf. óskar eftir tilboðum í malbikun
á lóð félagsins við Brúartorg, Borgarnesi.
Verktími er frá 27. apríl nk. til 25. maí nk.
Útboðsgögn verða afhent á eftirtöldun stöð-
um:
a) Bensínstöð Skejungs hf. við Brúartorg,
Borgarnesi.
b) Verkfræðistofan Ferill hf., Suðurlands-
braut 4, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á báðum stöðunum kl.
11.00 þriðjudaginn 23. apríl nk.
Skeijungur hf.
Útboð - gervigras
Knattspyrnufélagið Haukar, Hafnarfirði, óskar
eftir tilboðum í gervigras á knattspyrnuvöll á
svæði félagsins að Ásvöllum, Hafnarfirði.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tækniþjónustu
Sigurðar Þorleifssonar, Strandgötu 11, Hafnar-
firði, frá og með miðvikudeginum 17. apríl
1991.
Tilboðum skal skila eigi síðar en miðvikudag-
inn 22. maí 1991 ífélagsheimili Hauka, Flata-
hrauni, Hafnarfirði, þar sem þau verða opnuð
kl. 18.00 að viðstöddum þeim þjóðendum
er þess óska.
Knattspyrnufélagið Haukar.
'W'álZZÞ&Q}
Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd Ríkisspít-
ala óskar eftir tilboðum í unnið dilkakjöt.
Gerður verður samningur til eins árs um
sölu á dilkakjöti til eldhúsa Ríkisspítala. Á
árinu 1990 keyptu eldhús Ríkisspítala um
32,2 tonn af dilkakjöti þar af 13,0 tonn af
úrbeinuðum lærum, 9,4 tonn af smásteik og
3,0 tonn af úrbeinuðu hangikjöti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 5000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
30. apríl 1991 kl. 11.00.
IIMNKAUPASTOFIMUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftir-
talin verk:
1. Vatnsnesvegur 1991. Lengd kafla 2,65
km., heildarmagn 13.000 rúmmetrar.
2. Skagafjarðarvegur 1991. Lengd kafla 4
km., heildarmagn 16.00 rúmmetrar.
Verkum þessum skal lokið 30. september
1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 16. þ.m. Tilboðum skal
skila á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 29.
apríl 1991.
Vegamálastjóri.
Mosfellsbær
- útboð
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í lagningu
bundinna slitlaga sumarið 1991.
Helstu magntölur eru: Malbik 7500 fm,
klæðning 1800 fm.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Mosfells-
bæjar, Hlégarði, frá og með mánudeginum
15. apríl nk. gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00
þriðjudaginn 23. apríl nk.
Tæknifræðingur Mosfellsbæjar.
ra
Utboð - sorppokar
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum
í sorppoka. Útboðsgögn verða afhent á
tæknideild Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð,
frá og með þriðjudeginum 16. apríl nk. gegn
7000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað 2. maí 1991 kl. 11.00
og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóð-
enda er þar mæta.
HÚSNÆÐI íBOÐI \
íbuð í Kaliforníu
í Torrance rétt við Los Angeles í suð-vestur
Kaliforníu ertil leigu íbúð í júlí og ágúst. íbúð-
in er stór 3ja herbergja, 2 baðherbergi og
eldhús. Örstutt á ströndina, Mexíkó innan
seilingar. Möguleiki á nýlegum bíl.
Upplýsingar í síma 72922.
Einbýlishús í Garðabæ
Til leigu er nýlegt einbýlishús í Garðabæ, sem
skiptist þannig: Á neðri hæð er stofa, borð-
stofa, eldhús, þvottahús, geymsla og gesta-
snyrting. Á efri hæð eru 4 svefnherbergi,
sjónvarpshol og bað. Bílskúr fylgir. Leigutími
allt að 4 árum. Laust 1. júní 1991.
Tilboð óskast send á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 19. apríl, merkt: „Garðabær - 6898“.
Til leigu raðhús
í Skerjafirði
Til leigu er raðhús á tveimur hæðum sem
skiptist þannig: Á neðri hæð er stofa, borð-
stofa, eldhús og gestasnyrting. Uppi eru 3
svefnherbergi, sjónvarpshol og bað. Bílskúr
og geymsla á neðri hæð. Leigist fram að
haustdögum 1992. Laust 1. maí 1991.
Tilboð merkt: „Leiga - 8832" sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 20. apríl.
Til leigu á Miami, Flórída
Stúdíóíbúð með rúm fyrir fjóra til leigu á
Miami, Flórída, frá maí til september.
10 mínútna gangur á ströndina.
Upplýsingar í síma 98-21127.
Geymið auglýsinguna.
Raðhústil leigu
Til leigu glæsilegt nýtt 2ja hæða raðhús í
Hafnarfirði, stærð 230 fm. 4-5 svefnher-
bergi, 2 baðherbergi, eldhús og stofur.
Bílskúr. Reglusemi skilyrði. Leigutími eitt ár.
Laus strax.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
19. apríl merkt: „Raðhús - 8837“.
Mjög góð sérhæð
í tvíbýlishúsi með sérinngangi til leigu. Stór-
ar og góðar stofur, sjónvarpshol, 4 svefnher-
bergi, stór sólarverönd og góður garður.
Gardínur og Ijós geta fylgt. Leigutími 1V2 ár.
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „M - 6899“.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu skrifstofuhúsnæði
á 6. hæð í miðborginni ca 150 fm að flatar-
máli. Um er að ræða móttöku, fjögur skrif-
stofuherbergi og snyrtingu. Getur losnað
fljótlega.
Upplýsingar veitir skrifstofa undirritaðs, sími
32110.
Sigurður Georgsson, hrl.,
Lágmúla 7, Reykjavík.
Atvinnuhúsnæði til leigu
Til leigu mjög vel staðsett iðnaðarhúsnæði
rúml. 1000 fm, þar af 600 fm súlulaust með
aðkeyrslu. Leigist til langs tíma. Mjög hag-
kvæm leiga fyrir traustan aðila.
Upplýsingar gefur Friðrik Stefánsson í síma
680666.
Suðurlandsbraut 4a.
Flugskýli
Til leigu er flugskýli nr. 25 á Reykjavíkurflug-
velli. Húsnæðið er einangrað og upphitað,
366 fm salur og 63 fm verkstæði. Malbikuð
aðkeyrsla.
Nánari upplýsingar í símum 44490 og 11922.
Til leigu íKópavogi
Hamraborg 1, skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Auðbrekka 32, iðnaðarhúsnæði.
Nánari upplýsingar veitir Margrét í síma
610666.
300-500 m2víraþjónusta
Leiguhúsnæði óskast fyrir víraþjónustu og
víralager. Staðsetning innan hafnarsvæðis
eða í Vesturbænum.
Æskileg stærð 300-500 m2 á jarðhæð.
Nánari upplýsingar hjá undirrituðum á skrif-
stofutíma í síma 27055 eða 28855.
Ingvar&Arihf
Sérhæfð víraþjónusta
mmmm