Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 40
Bögglapóstur
um ollt lond
PÓSTUR OG SlMI
MORGUNBLAÐIfí, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Visa-Island
boðar hert-
ar aðgerðir
KAUPMENN, sem auglýsa að
úttektartímabil greiðslukorta
hefjist nokkrum dögum fyrr hjá
þeim en reglur Visa-ísland
kveða á um, mega búast við að
fyrirtækið líti svo á að þeir
hafi sagt upp greiðslukorta-
samningum sínum.
Einar S. Einarsson, forstjóri
Visa-ísland, segir að fyrirtækið sjái
sig knúið til að beita þessum ráðum
vegna síendurtekinna brota á regl-
um um greiðslukortaviðskipti varð-
andi upphaf nýrra úttektartímabila.
_ „Kaupmenn, sem auglýsa opinber-
^lega að nýtt úttektartímabil hefjist
í verslúnum þeirra fyrr en reglur
kveða á um, mega eiga von á að
við lítum svo á að þeir hafi sagt
upp samstarfssamningi sínum við
Visa-ísland og viðskiptum við þá
verði hætt tafarlaust," sagði Einar
í samtali við Morgunblaðið.
Olíufélagið hf.;
Hagnaður
í fyrra 207
milljónir
HAGNAÐUR Olíufélagsins hf.
nam á síðasta ári 207 milljónum
króna að frádregnum sköttum.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn nk. þriðjudag.
Að sögn Vilhjálms Jónssonar,
forstjóra félagsins, gekk rekstur
^a»»félagsins vel á síðasta ári og var
afkoman mjög þokkaleg. Eigið fé
Olíufélagsins og dótturfélaga þess
nemur 3,4 milljörðum króna og er
eigið fé nú 62% af heildarfjármagni
félaganna. Markaðshlutdeild fé-
lagsins í öllum olíuvörum er um
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stórbruni á Selfossi
Selfossi
BRAUÐGERÐ og kjötvinnsla Kaupfélags Árnesinga á Selfossi
eyðiiögðust af völdum elds í gærmorgun. Sprenging varð í bakar-
ofni í brauðgerðinni og varð hún alelda á skammri stundu. Starfs-
fólki tókst að forða sér og slapp án meiðsla.
Slökkvilið Selfoss kom á staðinn skömmu eftir að sprengingin varð
kl. 06.50 en þá var mikill eldur í húsinu og gífurlegur hiti. Önnur
sprenging varð síðan á meðan þrír slökkviliðsmenn voru inni í húsinu
en þeir sluppu ómeiddir.
Kjötvinnsla KA er í sama húsi og barst eldurinn eftir þaki hússins,
sem féll niður að hluta yfir kjötvinnslunni. Rjúfa þurfti þak hússins til
að komast að eldinum en allt kom fyrir ekki þrátt fyrir að slökkvilið-
inu bærist aðstoð frá Hveragerði. Sig.Jóns. Sjá nánar bls. 6
Aliugi innau EB á orku-
samstarfí við Islendinga
43%.
Að sögn Vilhjálms er afkoman á
síðasta ári ein sú besta í sögu fé-
lagsins. Þar hafi hjálpast að stöðug-
leiki í efnahagslífí landsins, hjaðn-
andi verðbólga og hóflegir vextir.
Þá hefðu hlutabréf félagsins verið
mjög eftirsótt á hlutabréfamarkaði
og hefðu á árinu 1990 hækkað
meira en hlutabréf í öðrum almenn-
ingshlutafélögum.‘I ársbyrjun 1990
:var skráð söluverð bréfanna 3,18
en er nú 6,90. Þannig hafí þeir, sem
lagt hafa tjármagn í hlutabréf í
Olíufélaginu, hlotið óvenju góða
ávöxtun á fé sínu að undanförnu,
en hluthafar voru um sl. áramót
1.102 talsins.
Sjá viðtal við Vilhjálm Jónsson
á bls. 4C.
AUKINN áhilgi virðist vera inn-
an Evrópubandalagsins á sam-
starfi við íslendinga í orkumál-
um, m.a. um að fá raforku um
sæstreng frá Islandi til Evrópu.
Verið er að kanna hvort hægt,
sé að fiármagna slíkt samstarf
innan fjárlaga EB fyrir yfir-
standandi ár. Þá er von á full-
trúum franska fyrirtækisins
ALCATEL hingað til lands til
skrafs og ráðagerða í byrjun
júní, en það fyrirtæki hefur
lýst áhuga á að leggja rafstreng
milli íslands og Skotlands.
Samstarf þetta snýst annars
vegar um mögulega sölu á raforku
um sæstreng og hins vegar um
að finna fyrirtæki innan EB sem
hefðu áhuga á samvinnu við ís-
lendinga um orkufrekan iðnað.
Mál þetta fór af stað eftir viðræð-
ur Jóns Sigurðssonar iðnaðarráð-
herra og Martins Bangemanns úr
framkvæmdastjórn EB á síðasta
ári. í upphafi þótti framkvæmda-
stjórninni verkefnið í heild of
kostnaðarsamt en að sögn emb-
ættismanns innan EB, breytti
Persaflóastríðið reikningsdæmum
um þessi efni. Nú hafí Bangemann
lagt fyrir starfsmenn sína, að
kanna leiðir til að fjármagna sam-
starfið innan fjárlaga EB fyrir
yfirstandandi ár, en árangur þeirr-
ar könnunar er ekki kominn í ljós.
Að sögn Björns Friðfinnssonar
ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðu-
neytinu hefur enn ekki fengist
niðurstaða í málinu en því væri
haldið gangandi með óformlegum
viðræðum. Þá sagði hann það
flækja málið að ágreiningur er um
það innan Evrópubandalagsins
hver eigi að fara með það. Þannig
eru orkumál í verkahring annars
en Bangemanns, sem fer með iðn-
aðarmál í framkvæmdastjórninni.
Mögulegur særafstrengur milli
íslands og Evrópu hefur vakið
áhuga framleiðenda . slíkra
strengja. Franska fyrirtækið AL-
CATEL, sem m.a. lagði rafstreng
yfir Ermarsund, hefur sýnt áhuga
á að semja um að leggja streng
milli íslands og Skotlands. Halldór
Jónatansson forstjóri Landsvirkj-
unar sagði að von væri á fulltrúum
franska fyrirtækisins í júní til
skrafs og ráðagerða um málið.
Þjóðarþotan
flytur hesta
Flugfélagið Atlanta hf. flutti í
gær 35 íslenska hesta til Krist-
jansands í Noregi með Þjóðarþot-
unni.
Útflutningurinn er á vegum Sig-
urðar Ragnarssonar. Þjóðarþotan
er um þessar mundir leigð til frakt-
flutninga í Evrópu.
Gripinn eftir árás
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í fyrrinótt mann, sem hafði
slegið kunningjakonu sína til jarðar, gripið af henni veski og
hlaupið á brott. Konan var flutt á slysadeild, en í gær var
ekki hægt að fá upplýsingar um meiðsli hennar.
Maður, sem var á ferð í bíl fylgdi árásarmanninum eftir og
um Öldugötuna, sá hvar karl- hafði samband við lögreglu um
maður sló konu, svo hún féll í bílasíma. Lögreglan handtók
götuna. Að því búnu tók maður- manninn á Hávallagötu. Konan
inn til fótanna og hafði með sér Var flutt á slysadeild.
veski konunnar. Ökumaðurinn