Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991 21 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 100 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar í skugga morðsins á Rajiv Gandhi Þj óðleikhúsráð: Engar athugasemdir við upp- sagnirnar á fundum ráðsins Hvarvetna um heimsbyggð- ina leitar sú spurning á fólk, sem hefur áhuga á sam- tímanum, hvort morðið á Rajiv Gandhi, foræstisráðherra Ind- lands 1984-1989, marki þátta- skil í sögu Indlands, sem stund- um er kallað fjölmennasta lýð- ræðisríki heims og telur um 850 milljónir íbúa. Menn spyija sem svo, hvort Indveijar geti varðveitt lýðræði og samstöðu í víðfeðmu landi sínu, sem er í raun samsett af sautján ríkjum, vegna vaxandi trúardeilna, gamals og rótgróins stéttarígs og baráttu aðskilnaðarsinna, einkum í fylkjunum Punjab, Kasmír og Assam. Ofbeldi hefur lengi verið snar þáttur í indverskum stjórnmálum. Mahatma Gandhi, sem stjórnaði frelsis- baráttu Indveija, var myrtur skömmu eftir að landið hlaut sjálfstæði. Indíra Gandhi, for- sætisráðherra, móðir Rajivs Gandhis, var ráðin af dögum árið 1984. Sanjay, bróðir Rajivs, sem litið var á sem pólitískan arftaka móður sinnar, Indíru, fórst í flugslysi árið 1980, en sumir frétta- skýrendur töldu að hann hafi verið myrtur. Fyrir fáum dög- um féll síðan höfuð Nehru- Gandhi-ættarinnar, Rajiv Gandhi, forsætisráðherra 1984-1989, fyrir morðingja- hendi. Kongressflokkurinn var lengi eins konar sameiningarafl í indverskum stjórnmálum og Nehru-Gandhi-ættin samein- ingartákn í flokknum, eða allar götur síðan afi Rajivs Gandhis, Jawaharlal Nehru, gekk í hann fyrir 70 árum. Sjálfstæði Ind- lands var meginmarkmið flokksins, sem sameinaði þorra landsmanna, þjóðir og hópa með annars ólík lífs- og trúar- viðhorf, í eina fylkingu. En all- ar götur síðan Indland varð fullvalda ríki, 1947, hefur sam- staðan í flokknum verið að trosna milli hindúa og múslima, milli fólks af hinum ýmsu erfðastéttum og milli hægri-, miðju- og vinstrimanna í flokknum. Raunar var Nehru-Gandhi- ættin, sem er af kyni brahm- ína, æðstu erfðastéttar hindúa [faðir Ravjis var þó Persi], sam- einingartákn í indverskum stjórnmálum, ekkert síður en í Kongressflokknum. En margt hefur breytzt í þessu íjölmenna ríki frá því fullveldið vannst, 1947, bæði innan Kongress- flokksins og utan hans, þar sem fjölmennir og sterkir stjórn- málaflokkar keppa um kjós- endafylgi, meðal annarra hinn hægrisinnaði Janata-flokkur hindúa (BJP). Og morðið á Rajiv Gandhi, sem fréttaskýr- endur tengja aðskilnaðarbar- áttu Tamíla á Shri-Lanka [„Frel'sistígrum Tamíla“], vek- ur ekki aðeins óhug um heim allan, heldur áleitnar spurning- ar um framvindu mála í þessu gamalgróna, íjölmenna og söguríka landi. í skugga morðsins á Rajiv Gandhi líta menn ekki aðeins átök innan Kongressflokksins, heldur margs konar og margslunginn annan indverskan vanda, harðnandi trúardeilur milli hindúa og múslima, gamalgró- inn stéttaríg hins indverska samfélags, aðskilnaðarhreyf- ingar í einstökum fylkjum þessa sundurleita ríkis sem og sambúðina við Pakistan. í fyrra lá við að styijöld brytist út milli Indveija og Pakistana í fjórða sinn síðan Indland hlaut sjálfstæði, í þetta skiptið í tengslum við uppreisnir að- skilnaðarsinna í ríkjunum Jammu og Kasmír, en þar eru múhameðstrúarmenn í meiri- hluta. Morðið á Rajiv Gandhi, leið- toga indverska Kongress- flokksins, er sorgaratburður, sem snertir heipisbyggðina alla. Það speglar ekki aðeins viðamikinn vanda hins ind- verska samfélags. Það er jafn- framt tákn þeirra tíma sem mannkynið lifir nú, þrátt fyrir allar framfarir í aðbúð og sam- búð þjóða og einstaklinga. Það leiðir hugann að stöðu mála í þeim heimshlutum, sem enn eiga undir högg að sækja í framvindu til lýðræðis, mann- réttinda og viðunandi aðbúðar fólks. Það leiðir og hugann að öfga- og hryðjuverkahópum, sem hvarvetna geta skotið upp kolli — og oft hafa reitt til höggs á Vesturlöndum. Vonandi tekst Indlandi, ijöl- mennasta lýðræðisríki heims, að leiða farsællega til lykta erfið innbyrðis átök, trúarleg og þjóðfélagsleg, og treysta friðinn við grannríki sín. Von- andi tekst leiðtogum lýðræð- isríkjanna að byggja upp frið- samleg samskipti þjóða heims, þar sem hryðjuverk og ofbeldi heyra fortíðinni til. Forsenda þess er sterkt fjölþjóðlegt al- menningsálit, byggt á góðvild og sanngirni í garð náungans. Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi greinargerð þjóð- leikhúsráðs vegna uppsagna Stefáns Baldurssonar á nokkrum starfsmönnum Þjóðleikhússins: I. Hlutverk þjóðleikhúsráðs lögum samkvæmt er að hafa eftirlit með starfsemi og rekstri Þjóðleikhúss- ins, sbr. 2. mgr. 5. gr. 1. nr. 58/1978 um Þjóðleikhús. Starfs- og fjár- hagsáætlun hvers leikárs og reikn- inga liðins leikárs skal bera upp í þjóðleikhúsráði til samþykktar, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 549/1982 um Þjóðleikhús. Tillagna þjóðleikhús- ráðs skal leita m.a. varðandi allar fastráðningar listamanna og aðrar meiriháttar mannaráðningar. Samkvæmt 6. gr. þjóðleikhús- laga ræður menntamálaráðherra þjóðleikhússtjóra að fenginni um- sögn þjóðleikhúsráðs. Samkvæmt 4. mgr. 11. gr. reglu- gerðar um Þjóðleikhús skal öllum ákvörðunum, svo og gerð starfs- og fjárhagsáætlunar allra viðfangs- efna fram að jólaverkefni, skilyrðis- laust vera lokið fyrir 11. maí. Þjóðleikhúsráð telur að í gerð starfsáætlunar felist m.a. ákvarð- anir um hvaða verkefni skuli sýnd og hveijir skuli standa að hveiju verkefni. Þjóðleikhúsráð álítur að tilgangurinn með 2. mgr. 13. gr. þjóðleikhúslaga um að nýr þjóðleik- hússtjóri starfi frá 1. janúar til 1. september með fráfarandi leikhús- stjóra, sé að nýr þjóðleikhússtjóri hafi m.a. ráðrúm til að undirbúa næsta leikár, sem hefst 1. septem- ber, þ.m.t. mannaráðningar og upp- sagnir. Hér verður að hafa í huga, svo sam áður segir, að öllum ákvörðunum um viðfangsefni fram að jólaverkefni skuli vera lokið fyr- ir 11. maí. II. Þjóðleikhúsráð telur rétt að rekja atburðarás þessa máls, eins og það snýr að ráðinu. Síðastliðið haust var auglýst eft- ir nýjum þjóðleikhússtjóra. Fimm umsóknir bárust. Niðurstaðan varð sú að þjóðleikhúsráð mælti einróma með Stefáni Baldurssyni og var hann ráðinn. Stefán Baldursson hóf störf í Þjóðleikhúsinu 1. janúar 1991. Á fundi þjóðleikhúsráðs 13. febr- úar sl., en þann fund sat m.a. Gísli eftirGunimr Pálsson Hvaða tilgangi þjónar það fyrir ísland að taka þátt í viðræðum á alþjóðavettvangi um takmörkun víg- búnaðar? Við fyrstu sýn kann ávinn- ingur af slíkri þátttöku fyrir ríki, sem sjálft hefur engan her, að virðast óljós í samanburði við ýmis önnur utanríkismál, sem snerta lífshags- muni þjóðarinnar beinlínis. Þátttaka í viðræðum um takmörkun vígbúnað- ar skipar engu að síður ákveðinn sess í íslenskri utanríkisstefnu. Straumhvörf þau, sem átt hafa sér stað í öryggismálum Evrópu að und- anförnu, gera að verkum að þýðing slíkrar þátttöku kann jafnvel að hafa aukist. Á síðasta ári tóku Islendingar þátt í tveimur mikilvægum samning- um um takmörkun vígbúnaðar. Samningar þessir voru fullgerðir um sama leyti og leiðtogar þátttökuríkja ráðstefnunnar um öryggi og sam- vinnu í Evrópu (CSCE) komu-saman í París í nóvember til að binda endi á kalda stríðið og innleiða nýtt tíma- Alfreðsson, kynnti Stefán Baldurs- son að hann hygðist gera breyting- ar á mannahaldi leikhússins. Á fundinum kom ekki fram hveijum Stefán Baldursson væri að íhuga að segja upp né heldur kom fram um hversu marga einstaklinga væri að ræða. Engin athugasemd var gerð við þetta á fundi ráðsins. Hinn 21. febrúar 1991 var þetta mál aftur á dagskrá og skýrði Stef- án Baldursson þá frá því að hann hygðist gera áherslubreytingar á mannahaldi í húsinu samfara leik- hússtjóraskiptunum. Stefán til- kynnti að hann myndi segja upp 10 starfsmönnum, þar af tveimur leikstjórasamningum og allt að 7 leikarasamningum. Aðspurður kvaðst Stefán Baldursson hafa gengið úr skugga um að löglegt væri að segja viðkomandi starfs- mönnum upp miðað við gildandi kjarasamninga. Þjóðleikhúsráð taldi þessar ráð- stafanir eðlilegar enda höfðu flestir reiknað með einhveijum breyting- um á mannahaldi. Gísli Alfreðsson fráfarandi þjóðleikhússtjóri gerði engar athugasemdir. Hinn 27. febrú.ar 1991 var enn haldinn fundur í þjóðleikhúsráði. Stefán Baldursson skýrði þá frá því að hann hefði þegar sagt upp fimm leikurum og einum leikstjóra, sem hann nafngreindi. Stefán skýrði jafnframt frá því að hann hefði sjálfur afhent viðkomandi einstakl- ingum uppsagnarbréfin. Þeim hefði verið sagt upp miðað við 1. sept- ember 1991 eða með 6 mánaða fyrirvara, enda þótt flestir starfs- manna ættu aðeins 3 mánaða upp- sagnarfrest. Stefán gerði einnig gi-ein fyrir því að fjórum öðrum yrði sagt upp. Gísli Álfreðsson sat þennan fund og gerði enn engar athugasemdir. Á þjóðleikhúsráðsfundi 13. mars 1991 voru uppsagnarmálin enn á dagskrá. Gísli Álfreðsson fráfarandi þjóðleikhússtjori lét þá bóka eftir- farandi: „Ég vil að fram komi að ég hef hvorki skilning né samúð með þeim uppsögnum, sem fram hafa komið nú og ég er hneykslaður á aðgerðar- leysi þjóðleikhúsráðs í þessu máli.“ Á næsta fundi ráðsins sem hald- inn var 10. apríl lét þjóðleikhúsráð bóka eftirfarandi: „Bókun I. bil lýðræðis, friðar og samvinnu í samskiptum Evrópuríkja. Hornsteinn nýrrar Evrópu Með aðild sinni að hinum fyrri þessara samninga, „Samningi um niðurskurð hefðbundinna vopna í Evrópu“ (CFE), sem sextán ríki Atl- antshafsbandalagsins og sex ríki er áður voru í Varsjárbandalaginu stóðu að, varð Island í fyrsta sinn aðili að samningi um niðurskurð víg- búnaðar. CFE-samningurinn er tímamótasamningur. Hernaðarleg þýðing hans er einkum í því fólgin að honum er ætlað að útrýma þvl gífurlega misvægi á sviði hefðbund- inna vopna, sem ógnað hefur stöð- ugleika í Evrópu á hernaðarsviðinu frá víþ seinni heimsstyijöldinni lauk. Til að ná þessu markmiði kveður samningurinn m.a. á um stórfelldan niðurskurð helstu sóknarvopna á meginlandinu. I eðli sínu er CFE-samningurinn þó annað og meira en samningur um að skera niður vopn. Hann er öðru fremur pólitísk vísbending um staðfastan vilja tuttugu og tveggja ríkja til að snúa baki við hugsunar- Þjóðleikhúsráð óskar að koma eftirfarandi á framfæri: Við undir- búning að ráðningu þjóðleikhús- stjóra sl. haust kom skýrt fram í viðtölum við alla umsækjendur og þar á meðal Stefán Baldursson, að þeir teldu nauðsynlegt að gera ein- hveijar breytingar á starfsliði leik- hússins, meðal annars með upp- sögnum á listamönnum og ráðningu annarra í þeirra stað. Á fundi þjóðleikhúsráðs 21. febr- úar sl. tilkynnti síðan Stefán Bald- ursson ráðsmeðlimum að hann hefði tekið ákvörðun varðandi uppsagnir nokkurra starfandi leikara og leik- stjóra við húsið og tilgreindi fjölda þeirra og jafnframt að hann gerði ráð fyrir að ræða persónulega við hvern og einn og afhenda sjálfur uppsagnarbréfið. Stefán bað um stuðning þjóðleikhúsráðs til þessara framkvæmda, sem hann fékk. ítreka verður að nöfn viðkomandi listamanna voru ekki nefnd og þjóð- leikhúsráð hefur ekki á neinu stigi þessa máls talið sér skylt að ræða um persónur viðkomandi lista- manna eða réttmæti þess að segja einum frekar upp en öðrum. Þjóð- leikhúsráð hefur fullan skilning á nauðsyn þess að nýráðinn þjóðleik- hússtjóri hafi svigrúm til að gera þær breytingar sem hann telur mik- ilvægar og nauðsynlegar og treyst- ir hans dómgreind og listrænu yfir- sýn til að hafa heill Þjóðleikhússins sem listastofnunar að leiðarljósi." „Bókun II. Þjóðleikhúsráð vill að fram komi að á fundum ráðsins, þar sem upp- sagnir listamanna hafa verið til umfjöllunar hefur fráfarandi þjóð- leikhússtjóri Gísli Alfreðsson ekki gert athugasemd eða sýnt nein þau viðbrögð sem túlka hefði mátt sem andstöðu hans við væntanlegar uppsagnir eða að hann teldi þær rangar eða ósiðlegar. Þjóðleikhús- ráðs vill lýsa undrun sinni á bókun Gísla Alfreðssonar frá síðasta fundi. Þjóðleikhúsráð telur Gísla Alfreðs- son samábyrgan um stjórnun ieik- hússins svo lengi sem hann ^r í starfi þjóðleikhússtjóra og vísar at- hugasemd hans um aðgerðarleysi þjóðleikhúsráðs á bug, enda er hann sá einn aðili sem hefði getað gripið inn í framkvæmd þessa máls hefði hann kært sig um að láta vita af andstöðu sinni í tíma.“ „Þýðing þess fyrir ís- land að taka þátt í við- ræðum um traustvekj- andi aðgerðir kann þó að breytast með tilkomu sérstakrar stofnunar til að koma í veg fyrir átök á hernaðarsviðinu, sem ákveðið var að koma á fót á leiðtogafundinum í París.“ hætti kalda stríðsins og leggja grunninn að nýju fyrirkomulagi ör- yggismála í Evrópu byggðu á lág- marks herafla, sem nauðsynlegur er til að tryggja öryggi hvers og eins. CFE-samningnum hefur því verið rétt lýst sem hornsteini nýrrar Evr- ópu. Samningurinn öðlast lagagildi eftir að allir aðilar hans hafa fullgilt hann. Ágreiningur um túlkun ákveð- inna ákvæða samningsins hefur hins vegar tafið fyrir því að aðildarríki létu fullgilda hann. Vinnubrögð þau sem þjóðleik- húsráð hefur viðhaft í þessu máli hafa helgast af þeim skilningi að ákvarðanir nýs þjóðleikhússtjóra stæðust að lögum enda áttu þær ekki að koma til framkvæmda fyrr en 1. september 1991, þegar hann tæki að fullu einn við starfi. Þjóðleikhúsráð taldi alltaf að fullt samkomulag væri á milli þjóðleik- hússtjóranna tveggja um uppsagn- irnar. Gísli Alfreðsson fráfarandi þjóðleikhússtjóri lýsti sig aldrei and- snúinn uppsögnunum sem slíkum á þeim þremur fundum sem þær voru til umfjöllunar á fyrir 13. mars sl. Hins vegar taldi hann óeðlilegt að hann skrifaði sjálfur undir uppsagn- ir sem hann ætti ekki hlutdeild að. Þegar álit Gunnlaugs Claessen ríkislögmanns lá fyrir um að rétt væri að Stefán Baldursson og Gísli Alfreðsson skrifuðu báðir undir •uppsagnarbréfin hafði Gísii for- göngu um að leita lögfræðilegs álits frá Sigurði Líndal lagaprófessor. Sigurður mat það svo að Stefán Baldursson hefði fullt umboð lögum samkvæmt til að undirrita uppsagn- arbréfin einn. Gísli Alfreðsson var þessu sammála og staðfesti þá skoðun sína í bréfi til Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. dags. 11. apríl 1991, en þat' segir orðrétt: „Nýr þjóðleikhússtjóri er ráðinn frá 1. janúar og fer hann með öll völd, sem hafa með næsta leikár að gera sem hefst þ. 1. september, og þar með taldar mannaráðningar. Haft var samband við lögfræðinga varðandi túlkun á þessu og voru þeir einróma sammála um að sú túlkun væri rétt. Sjálfur tel ég þetta eðlilega túlk- un á lögunum og hef hagað mér samkvæmt því og þar af leiðir, að ég hef ekki haft afskipti af einstök- um uppsögnum og útfærslu þeirra og mun halda mér við það.“ Taka ber fram að þennan skiln- ing sinn á lögunum staðfesti Gísli Alfreðsson m.a. með því að víkja af fundum Þjóðleikhúsráðs þegar verkefnaskrá næsta vetrar var til umljöllunar og samþykktar þar. Þjóðleikhúsráð hafði fullan skiln- ing á þeirri afstöðu Gísla Alfreðs- sonar að vilja ekki skrifa undir uppsagnarbréfin, enda áttu upp- sagnirnar ekki að koma til fram- kvæmda fyrr en hann væri hættur. í framhaldi af CFE-samningnum, sem eingöngu tekur til vígbúnaðar, stefna aðildarríkin að því að gera viðbótarsamning, sem einkum tæki til mannafla. Viðræður um það efni eru nú á dagskrá í Vínarborg. Framtíðarsýn Á Parísarfundinum var ísland einnig í hópi þijátíu og fjögurra þátt- tökuríkja CSCE, sem lögðu fram efnismikla samþykkt um aðgerðir til að skapa traust og öryggi á sviði hermála (CSBM), svonefnt Vínar- skjal um traustvekjandi aðgerðir. Vínarskjalið er verulega frábrugð- ið CFE-samningnum. Ólíkt CFE- samningnum, sem einkum hefur áhrif á uppbyggingu heija, lýtur Vínarskjalið fyrst og fremst að starf- semi ríkja á hernaðarsviðinu. Vínar- skjalið er pólitískt samkomulag, en ekki lagalega bindandi samningur. Vínarskjalið er auk þess ekki hið fyrsta sinnar tegundar, heldur mark- ar það „þriðju kynslóð" traustvekj- andi aðgerða í kjölfar samninga, sem gerðir voru um sama efni á árunum 1975 og 1986. Markmiðið með samningum um III. Þjóðleikhúsráð harmar þá nei- kvæðu umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu í kjölfar upp- sagna Stefáns Baldurssonar þjóð- leikhússtjóra á nokkrum starfs- mönnum Þjóðleikhússins. Á undanförnum árum og áratug- um hefur staða leiklistar á íslandi gjörbreyst með tilkomu mikils ijölda menntaðs leikhúslistafólks. í ljósi breyttra tíma hefur umræðan um endurnýjun í starfsliði listamanna Þjóðleikhússins orðið hávær. Sífelld endurnýjun er öllum list- um nauðsynleg. Þjóðleikhússtjóri er ráðinn í takmarkaðan tíma skv. lögum um Þjóðleikhús og hlýtur það fyrirkomulag að kalla á aðrar breyt- ingar á skipulagi og starfsliði leik- hússins á hvetjum tíma. Stór hópur lausráðinna lista- manna starfar við Þjóðleikhúsið árlega. Þeir eru ráðnir vegna þess að listrænt eru þeir taldir hæfir til að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin. Með rekstrarlega hagræð- ingu að leiðarljósi hlýtur að teljast eðlilegt að sem flestir þeirra lista- manna, sem fyrirsjáanlega verða í mikilli vinnu hjá leikhúsinu miðað við verkefnaskrá á hveijum tíma, séu á föstum samningi. Þjóðleik- húsráð lítur ekki svo á að uppsagn- ir starfsmanna feli í sér mat á hæfni þeirra sem listamanna, enda vill Þjóðleikhúsið geta leitað til þessara einstaklinga í framtíðinni um samstarf við leikhúsið þó svo í öðrij samningsformi sé. Urskurður menntamálaráðherra frá 24. maí sl. um að Gísli Alfreðs- son hafi fullt húsbóndavald til ráðn- inga og uppsagna fram til 1. sept- ember nk. gerir það að verkum að allar aðrar ákvarðanir nýs þjóðleik- hússtjóra varðandi undirbúning næsta leikárs eru í óvissu. Þjóðleikhúsráð lýsir yfir fullum stuðningi við Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóra og beinir því til menntamálaráðherra, sem æðsta yfirmanns stofnunarinnar, að tiyggð verði eðlileg starfsemi Þjóð- leikhússins næsta leikár og að sú starfsáætlun og verkefnaskrá, sem þegar liggur fyrir, standist. Þjóðleikhúsráð axlar að fullu þá ábyrgð sem því ber lögum sam- kvæmt. Tekið skal fram að Haraldur Ólafsson fimmti meðlimur þjóðleik- húsráðs var erlendis á þeim tíma sem fjallað var um þessi mál í ráð- inu, og sat því engan af ofangreind- um fundum. Reykjavík, 28. maí 1991. í þjóðleikhúsráði Þuríður Pálsdóttir formaður, Guðrún Þ. Stephensen, Pálmi Gestsson, Tinna Gunnlaugsdóttir. niðurskurð vígbúnaðar er ekki síst að draga úr getu ríkja til hernaðarað- gerða. Markmiðið með samningum um traustvekjandi aðgerðir er á hinn bóginn einkum að varpa ljósi á fyrir- ætlanir ríkja á hernaðarsviðinu. í Vínarskjalinu er t.a.m. kveðið á um árleg skipti á upplýsingum um hern- aðaiviðbúnað þátttökuríkja og fram- lög til varnamála, samráð um óvenju- lega hernaðarstarfsemi, viðvaranir vegna hættulegra atvika, tilkynning- ar um fyrirhugaðar heræfingar og rétt annarra ríkja til að fylgjast með þeim. Með þessum og öðrum slíkum aðgerðum er dregið úr óvissu og lík- um á að atferli ríkja á hernaðarsvið: inu komi öðrum ríkjum á óvart. í Vínarborg halda nú ríkin þijátíu og fjögur áfram tilraunum til að ná samkomulagi um frekari traustvekj- andi aðgerðir. Það sem þær traustvekjandi að- gerðir, sem samkomulag hefur náðst um, lúta svo til einvörðungu að starf- semi heija á landi, mætti færa fyrir því rök að þátttaka í viðræðunum um traustvekjandi aðgerðir sem slík- ar hafi einungis þjónað hagsmunum Islands óbeint. Þýðing þess fyrir Is- land að taka þátt í viðræðum um traustvekjandi aðgerðir kann þó að breytast með tilkomu sérstakrar stofnunar til að koma í veg fyrir átök á hernaðarsviðinu, sem ákveðið var að koma á fót á leiðtogafundin- um í París. ísland og vígbúnaðarmálm Séra Friðriks-kapella: Sýning á svipmyndum úr lífi og starfi sr. Friðriks í SÉRA Friðriks-kapellu að Hlíðarenda við Öskjuhlíð, stend- ur yfir sýning á niyndum úr lífi sr. Friðriks Friðrikssonar, stof- anda KFUM og KFUK, Knatt- spyrnufélagsins Vals, Skátafé- lagsins Væringja og Karlakórs- ins Fóstbræðra. Að auki eru á sýningunni persónulegir niunir sr. Friðriks og sýndar tvær kvik- myndir er færðar hafa verið yfir á myndband og sýna hann í leik og starfi. Sýningin er opin frá kl. 17 til 19 alla virka daga og lengur um helgar fram til 1. júlí næst koinandi. „Hér eru aðallega sýndar mynd- ir frá liðinni tíð, af samstarfsmönn- um sr. Friðriks, auk svipmynda úr þeim félögum sem hann stofn- aði og hafa síðan vaxið og eru stórveldi í félagslífi borgarbúa í dag,“ sagði Árni Siguijónsson, sem hefur samið alla texta með mynd- unum. Sýningin er haldin í tilefni áfanga í byggingu Séra Friðriks- kapellu en hún er að mestu leyti frágengin að utan og sagði Árni að hlé yrði á framkvæmdum innan dyra þar til nægilegt fé hefur safn- ast. Myndum á sýningunni er skipt niður í sex flokka og sýna svip- myndir frá stofnun Knattspyrnufé- lagsins Vals og fyrsta einkennis- búningi félagsins. Þá eru myndir frá fyrstu dögum Væringja en það var félagsskapur ungra manna í KFUM sem myndaði þann hóp. Félagið var stofnað árið 1913 og voru saumaðir sérstakir búningar á félagsmenn í anda víkinganna, með skikkju. Tveimur árum síðar gekk félagið til liðs við Skátahreyf- inguna og tók upp skátabúninga. Þriðji flokkur mynda eru af sr. Friðrik í hópi vina og mektar- manna fyrri tíma, stjómmála- manna og fræðimanna. í flokki mynda frá fyrstu dögum KFUM og KFUK, eru myndir af fundum í félögunum og af ungum félags- mönnum í porti barnaskólans. Þá eru myndir af söngsveit KFUM er síðar tók upp nafnið Karlakórinn Fóstbræður en fyrsti söngstjóri var Jón Halldórsson og gegndi hann því starfi í 30 ár. Loks eru myndir úr lífi sr. Frið- riks en hann fæddist 25. maí 1868. ur lagður á síðasta ári að nýrri skip- an öryggismála í Evrópu. Vonast er til að samkomulag náist í Vínarborg um frekari áfanga til að efla traust og draga úr hernaðarmætti fyrir Helsinki-fund ráðstefnunnar um ör- yggi og samvinnu í Evrópu í mars á næsta ári, en að þeim fundi loknum verða viðræðurnar tvennar felldar saman í sameiginlegar viðræður ríkj- anna þrjátíu og fjögurra um öryggis- mál. Ákvörðun stjórnvalda um að Is- land taki þátt í framangreindum við- ræðum um takmörkun vígbúnaðar er fullkomlega rökrétt. Þátttaka í slíkum viðræðum er áþreifanlegur vottur þess að ísland vilji leggja sitt af mörkum til að efla frið og stöðug- leika í álfunni, auk þess sem hún auðveldar íslendingum sjálfum að meta á yfirgripsmeiri hátt sína eigin hagsmuni í öryggismálum. Síðast en ekki síst tryggir þátttaka í viðræðum um takmörkun vígbúnaðar Islend- inga hlutdeild í byggingu nýrrar Evrópu, en eins og fram kemur í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkis- stjórnar er stefnt að því að „Islend- ingar verði á fordómalausan hátt þátttakendur i hinni miklu umsköpun í átt til frelsis, sem nú setur svip sinn á þróun stjórnmála í Evrópu'L Höfundur er sendihcrra. Gunnar Pálsson Átakavarnastöðin (Conflict Pre- vention Center), sem samráðsnefnd allra þátttökuríkjanna hefur yfir- umsjón með, tók til starfa í Vínar- borg 18. mars sl. Höfuðtilgangur Átakavarnastöðvarinnar er að draga úr hættu á ófriði með því að vinna að opnari og greiðari samskiptum þátttökuríkja á sviði hermála. Þessu verkefni mun hún einkum sinna fyrst um sinn með því að greiða fyrir fram- kvæmd traustvekjandi aðgerða. Stöðin er m.a. vettvangur þrjátíu og fjögurra ríkja til að ráða ráðum sín- um ef vart verður óvenjulegrar starf- semi herja í Evrópu og til að fjalla um niðurstöður upplýsingaskipta um hermál. Átakavarnastöðin mun einn- ig halda saman upplýsingabanka, gefa út árbækur og skipuleggja málþing um hernaðarleg og önnur tengd málefni. Starfslýsing stofnun- arinnar útilokar ekki að hún takist einnig á hendur síðar meir að hafa milligöngu um pólitíska lausn deilu- mála. Átakavarnastöðin hefur margvís- legan ávinning í för með sér. Hún veitir smærri ríkjum greiðan aðgang að upplýsingum, sem auðvelda þeim að leggja mat á þróun öryggismála í Evrópu, en slíkra upplýsinga geta stærri ríki að jafnaði aflað sjálf- stætt. Meira er þó um vert að hafa má Átakavarnastöðina til marks um að ný sjónarmið hafi rutt sér til rúms í öryggismálum Evrópu, þar sem meiri áhersla verði lögð á það en áður að stuðla að öryggi allra Evróp- uríkja sameiginlega. Átakavarna- stöðin er þannig partur af framtíðar- sýn þijátíu og fjögurra ríkja, þar sem öryggispólitísk samvinna leysir sam- keppni á hernaðarsviðinu af hólmi. Niðurlag Með Vínarskjalinu — og þó eink- um CFE-samningnum — var grunn- Morgunblaðið/Júlíus Séra Friðriks-kappella að Hlíðarenda við Öskjuhlíð er nú nær fullbúin að utan. Þar stendur yfir sýning á niyndum og munum úr lífi og starfi sr. Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM og framkvæmdastjóra til æviloka. lífshlaup sera frioriks # Morgunbladið/Júlíus Árni Sigurjónsson hefur séð um texta við myndir á sýningunni og er hann hér við flokk mynda úr lífi sr. Friðriks, sem fræði- manns og í hópi kátra sveina í sumarbúðunum í Vatnaskógi. Hann hélt til náms við Kaup- mannahafnarháskóla að loknu stúdentsprófi. Hann lauk cand. phil. prófi þaðan ári síðar en lagði síðan stund á læknisfræði og mál- fræði. Á árunum 1895 til 1897 starfaði hann hjá KFUM í Kaup- mannahöfn. Síðan hélt hánn til íslands og lauk prófi úr prestaskó- lanum árið 1900. Árið áður hafði hann stofnað KFUM í Reykjavík. Sr. Friðrik var skipaður prestur við Laugarnesspítala sama ár og hann lauk guðfræðiprófi og gegndi síðar prestþjónustu í nokkrum prestaköllum. Auk þess dvaldist hann um tíma erlendis, meðal ann- ars í Norður-Ameríku, þar sem hann ferðaðist meðal íslenskra safnaða. Hann dvaldi löngum í Danmörku og var þar öll stríðsár- in. Ilann fékkst nokkuð við kennslu í Menntaskólanum í Reykjavík og við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga. Að auki fékkst hann við ritstörf og skráði ævisögu sína í tveimur bindum, Undirbúningsárin og Starfsárin og samdi skáldsögur, Sölva, Söguna af Hermundi jarls- syni, Drenginn frá Skern og Keppi- nauta. Sr. Friðrik lést 9. mars árið 1961.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.