Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991 Niðurskurðarlisti samgönguráðherra: Lítil áhrif á meiri- hluta framkvæmda HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra hefur sent alþingismönnum yfirlit Vegagerðarinnar yfir skiptingu á 150 milljóna króna niður- skurði á fjárframlögum til vegamála á einstök verkefni. Auk þess er gert ráð fyrir 100 milljóna króna sparnaði við snjómokstur vegna siy'ó- létts vetrar og 100 milljóna króna frestun á grciðslum vegna Vestfjarða- ganga en það vonast hann til að geta gert án þess að það fresti verk- lokum. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um niðurskurð fjárframlaga í bréfi sem sent var þingmönnum í fyrradag. Hæstu fjárhæðimar á niðurskurðar- lista Vegagerðarinnar eru fram- kvæmda við Borgarfjarðarbraut, frá Deildartungu að Hvítá (17 milljónir kr.), tenging Inn-Djúps á Djúpvegi (15 milljónir kr.) og framlag til lagn- ingar Eyjafjarðarbrautar um Þverá. Aðrar fjárhæðir eru innan við tíu miiljónir hver. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar er búið áð bjóða út stór- an hluta framkvæmda sumarsins og hefur það takmarkað möguleika til lækkunar fjárframlaga. Niðurskurð- ur til margra liða er hlutfallslega smávægilegur og dregur lítið eða. ekkert úr framkvæmdum, í sumum tilvikum er fyrirsjáanlegt að öll nið- urskurðarupphæðir hafi þegar spar- VEÐUR ast í hagstæðum útboðum. I sumum öðrum tilvikum erum það að ræða að ákveðið er að fresta greiðslu á skuld Vegagerðarinnar vegna fram- kvæmda sem þegar hafa farið fram. Einstaka framkvæmdum er frestað til næsta árs. Samgönguráðuneytið hefur látið vinna álitsgerð um heimild sína til niðurskurðar á fjárframlögum sem gert er ráð fyrir í fjárlögum Aiþing- is. Ólafur Steinar Valdimarsson, ráðuneytisstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrir því væru mörg fordæmi að framkvæmdir væru skornar niður, og vitnaði m.a. til hafnaframkvæmda í því efni. Þá væri það grundvallaratriði að fjárlög Alþingis væru heimildarlög og þyrfti að leita heimildar Alþingis til að fara fram úr þeim en ekki þó heimildin væri ekki nýtt að fullu. Hugmyndir Vegagerðarinnar að niðurskurði á útgjöldum til vegamála 1991 milljónir kr. VESTFIRÐIR Djúpvegur (Seljl.ós) 2 Djúpvegur (Óshlíð) 2 Barðastrandanregur (Hlaðseyri) 1 Bíldudalsvegur (Hálfdán) 1 Djúpvegur (Tenging Inn-Djúps) 15 Vatnsfjarðarvegur SAMTALS Vestfjarðagöng VESTURLAND Ólafvíkurvegur (Hítará) 14 Borgarfjarðarbraut (Deildartunga) 7 SAMTALS 21 SSSgiBÍ Norðurlandsvegur (Grjótá) T Vatnsnesvegur (Skarð) Svínvetningabraut (Hnjúkahlíð) 1 Hialtadalsá 3 NORÐURL. EYSTRA Eyjafjarðarbraut (Þverá) 14 Hjalteyrarvegur 5 SAMTALS 19 Reykjavík (Sæbraut) 4 Reykjavík (Kringlumýrarbraut) 7 Garðabær (Vífllsstaðavegur) 2 SAMTALS 13 ;)|ÍM REYKJANES Vesturtandsvegur v/ Vikurveg 4 Reykjanesbraut (landbætur) 8 Amarnesvegur 4 Nesvegur (Islandslax) 3 SAMTALS 19 Suðurtandsvegur (Markarfljót) 9 Hrunamannavegur (Brúarhlöð) 4 Búrfellslækur 7 SAMTALS 20 NIDURSKURÐURINN er alls: 350 millj. kr. Hugmyndir Vegagerðarinnar 150 Vestfjarðagöng 100 Útgjöld sem sparast vegna snjólétts vetrar 100 Matthías Bjamason: VEÐURHORFUR I DAG, 29. MAI YFIRLIT: Um 500 km SSA af Hornafirði er víðáttumikil 1035 mb hæð sem þokast NNV en mínnkandi lægðardrag á Grænlandshafi. SPÁ: Suðvestlæg eða breytileg átt, víðast gola eða kaldi. Bjart veður að mestu og mjög hlýtt norðanlands og austan og einnig á SA-landi en heldur svalara, skýjað að mestu og víða mistur í lofti eða þokumóða suðvestantil á landinu. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt. Víða þokubakkar við ströndina, en sums staðar bjart til landsins. Hlýtt verður áfram, einkum inn til sveita. Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600. TAKNt Q ► Heiðskírt Lettskyiað Halfskyjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * ■* * * * Snjókoma -J0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða » , ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur |T Þrumuveður / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 17 skýjað Reykjavík 11 þokumóða Bergen 12 léttskýjað Helslnki 14e úrkomatgr. Kaupmannahöfn 16 léttskýjað Narssarssuaq 5 skýjað Nuuk 1 skýjað Osló 18 léttskýjað Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 14 léttskýjað Algarve 21 léttskýjað Amsterdam 11 alskýjað Barcelona 18 rykmistur Berlin 17 skýjað Chicago 24 iéttskýjað Feneyjar 20 heiðskfrt Frankfurt 18 hálfskýjað Glasgow 16 skýjað Hamborg 16 skýjað London 12 alskýjað Los Angeles 13 alskýjað Lúxemborg 19 hálfskýjað Madríd 24 léttskýjað Maiaga 22 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Montreal 24 léttskýjað NewYork 24 hálfskýjað Orlando 26 heiðskirt París 19 hálfskýjað Madeira 19 rykmistur Róm 18 léttskýjað Vln 16 skýjað Washíngton 26 alskýjað Winnipeg 11 skýjað Helmlld: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá ki. 16.15 f gær) Ekki ráðuneytis eða Vegagerðar að taka sér þetta bessaleyfi MATTHÍAS Bjamason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða- kjördæmi, segist ekki styðja þann niðurskurð fjárveitinga til vega- mála sem ríkisstjórnin hefur boðað. Hann segir að það sé ekki ráðu- neytis eða Vegagerðar að skera niður fjárveitingar sem Alþingi hafi ákveðið. „Astandið í atvinnumálum víða um land er langt frá því að vera gott eftir viðskilnað fyrri ríkisstjórnar. Og það er ekki á bætandi þegar ný ríkisstjórn, sem maður vill af heilum hug styðja, kemur og ræðst á garðinn þar sem hann er lægstur," sagði Matthías. Ríkisstjórnin hyggst skera niður fjárframlög til vegaframkvæmda á þessu ári um 350 milljónir kr. Þar af er ætlunin að minnka framlög til jarðganga á Vestfjörðum um 100 milljónir kr. Það hyggst samgöngu- ráðherra reyna að gera án þess að fresta verklokum. Aðspurður um álit á lækkun fjár- framlaga til Vestfjarðaganga sagði Matthías: „Mér er sagt að þetta eigi ekki að hafa nein áhrif, en áður en ég samþykki nokkurn hlut í þeim efnum vii ég sjá að það verði að öllu leyti staðið við áætlaða framkvæmd. Stjórnvöld og Alþingi geta ekki ákveðið eitt árið að flýta framkvæmd og koma svo árið eftir og draga úr framkvæmdahraðanum á ný.“ Matthías sagði að þingmenn hefðu fengið tilkynningu um niður- skurð framlaga til vegagerðar og sagðist telja að ráðherrar væru að fara út fyrir verksvið sitt með því. „Ég tel að það sé ekki ráðuneytis eða Vegagerðar að taka sér það bessaleyfi að skera niður fram- kvæmdir. Alþingi hefur samþykkt vegaáætlun og þingmenn viðkom- andi kjördæma skipt framkvæmda- fénu á milli verkefna og ég tel að Alþingi eitt geti breytt þeirri ákvörðun. Ég er reiðubúinn að standa við bakið á ríkisstjórninni við niður- skurð, sérstaklega í rekstri, en ég sætti mig ekki við þau vinnubrögð að menn í ráðuneytunum ákveði að skera hitt og þetta niður án þess að tala nokkuð við viðkomandi stofnun. Mér finnst það skjóta skökku við að á sama tíma og verið er að leggja ríka áherslu á byggingu ál- vers á Keilisnesi og hraða þeirri framkvæmd þegar samningar nást. fara út í stórauknar virkjanafram- kvæmdir og heimila Landsvirkjun að taka á fjórða milljarð í lán á þessu ári, skuli ríkisvaldið vera með þann tittlingaskít að draga úr þeim litlu framkvæmdum sem eru úti á landi. Ég er ekki og verð ekki stuðn- ingsmaður þeirra ráðstafana,“ sagði Matthías. * Af engi og tóbak dýrara VERÐ á áfengi og tóbaki breyttist í gær. Meðaltals- hækkun á áfengi, öðru en bjór, er 3,4% en meðaltals- hækkunin á bjór er 0,7%. Tób- ak hækkar að meðaltali um 3% og algengar vindlingateg- undir kosta nú 216 kr. pakk- inn. Sem dæmi um verðbreytingar á nokkrum algengum tegundum má nefna að flaska af St. Emili- on rauðvíni lækkar um 0,9% úr 1.070 í 1.060 krónur. Verð á beaujolais-rauðvíni frá Piat hækkar um 1% eða úr 990 krón- um í 1.000 krónur. Þá hækkar verð á Red Label-viskýi um 1,6% úr 2.490 krónum í 2.530 krón- ur, brennivín hækkar um 2,5% úr 1.590 krónum í 1.630 krónur og Smirnoff-vodka hækkar um 4,5% úr 2.010 krónum í 2.100 krónur. Þá má nefna að verð á sex flöskum af þýskum Becks-bjór lækkar um 1,1% úr 990 krónum í 910 krónur og verð á sex dós- um af íslenskum Egils guli-bjór hækkar úr 740 krónum í 760 krónur. ^ Hjá ÁTVR fengust þær upp- lýsingar að verð á áfengi og tó- baki hafi síðast verið hækkað í nóvember 1990. Síðan hefðu orðið breytingar á gengi sem nú væri verið að aðlaga verðskrá fyrirtækisins að. Bandaríkjadoll- ar hefði hækkað en gengi margra Evrópumynta lækkað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.