Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991 27 Þróunarverkefni í ullarvinnslu á Hvammstanga: Lögð áhersla á nátt- úrulega liti ullarinnar Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Tveir bændur í Miðfirði eru forsvarsmenn ullarverkefnishópsins, f.v.: Friðrik Böðvarsson á Syðsta-Osi og Rafn Benediktsson á Staðar- bakka. Nýliðarnir í umferðinni í Grindavík ásamt lögreglumönnum og fóstr- um Grindavík: Nýliðum í umferðinni lagðar lífsreglur Grindavík. AÐ UNDANFÖRNU hefur Um- Hvammstanga. Á Hvammstanga er hafið þróun- arverkefni í framleiðslu ullar- bands og lopa úr alíslenskri ull. Lögð er áhersla á náttúrulega liti ullarinnai'. Þróunarverkefnið er unnið í samvinnu átaksverkefnis V-Hún. og hópa bænda, með þátt- töku fyrirtækja á Hvammstanga og Búnaðarsambands Vestur- -Húnavatnssýslu. Ull og band hafði „opið hús“ í apríl sl. og var gestum gerð grein fyrir tilgangi og framkvæmd þessa þróunar- starfs, sem þar ec. hafið. íslenska ullin er talin af mörgum afar hentugt og raunar sérstakt hrá- efni handiðnaðar. Á síðastliðnum áratugum hafa eldri vinnubrögð í uilaivinnslu vikið fyrir einskonar stóriðju í ullariðnaði, þar sem sérein- kenni ullarinnar, svo sem litróf henn- ar og ýmsir eðlisþættir týndust í kröfum um „staðlaða vöru“. Meðal margra aðdáenda „gömlu ullarinnar" hefur þó lifað sú ósk, að ullin væri aftur hafin til fyrri vegs og virðing- ar. Með afar lágri verðlagningu á mislitri ull, virðist jafnvel hætta á að mislita féð hverfi að mestu úr fjárstofni bænda. Ull seld til Kanada Hjá Átaksverkefni V-Hún. tók til starfa verkefnishópur bænda haustið 1989. Var þá safnað úrvals ull, hvítri og mislitri, og var ullin þvegin hjá Drífu hf. Nokkurt magn var selt til Kanada og einnig innanlands. Haus- tið 1990 fór af stað mun markviss- ari söfnun á ull, einkum lambsull. Stofnaður var samstarfshópur um Þróunarverkefni í ullarvinnslu og tóku þátt í því auk sauðfjárbænda Búnaðarsamband V-Hún., Kaupfé- lag V-Hún., Ferskar afurðir hf. og Drífa hf., en verkefnið er rekið und- ir nafni þess síðasttalda. Unnið var að samningum um véla- samstæðu, sem Álafoss hf. og Rann- sóknarráð ríkisins áttu og hugmynd- in útfærð. Náðust samningar um, að Framkvæmdasjóður íslands keypti hluta Álafoss og vélarnar síð- an lánaðar án endurgjalds til verk- efnisins í tvö ár. Nokkra leigu þarf þó að greiða, ef verkefnið skilar hagnaði. I byrjun febrúar var búnaðurinn fluttur norður, kaupfélagið hafði lán- að hentugt húsnæði án endurgjalds til tveggja ára og hafist var handa við uppsetningu. Komu menn frá Álafsossi til að setja stöðina upp. Einnig voru fengin þvottavél og þurrkari til ullarþvottar og útbúin með sjálfvirkum stjórnbúnaði. Ýmsir iðnaðarmenn unnu einnig við upp- setningu og frágang. Þá fékk stöðin frá Álafossi hf. gamla spunavél og hesputré, sem nauðsynlegt er að sé til staðar. Nú er ullarvinnslan, sem hlotið hefur heitið UIl og band, orðin allgóð starfsstöð, þar sem húnvetnskri ull er breytt í verðmæta söluvöru. Styrkur framleiðnisjóðs Kostnaður við framkvæmd þessa er ekki allur kominn fram, þó er víst að hann verður allmiklu hærri, en verkefnishópurinn reiknaði með í fyrstu. Munar þar mestu að ráðist var í uppsetningu á þvottastöðinni. En víst um það má telja fullvíst að hér sé uppsett fullkomin ullarvinnslu- stöð fyrir lítinn tilkostnað. Má telja að heildarkostnaður sé nú um kr. 2,5, milljónir króna. Framleiðnisjóður hefur veitt styrk til verkefnisins að fjárhæð kr. 1.500 þúsund krónur. Einnig hafa Ferskar afurðir hf., Búnaðarsamband V-Hún. og Sparisjóður V-Hún. veitt styrki samtals að fjárhæð 500 þús. kr. Ljóst er, að aukið fjármagn þarf að fást, til að greiða upp kostnaðinn og einnig til markaðsstarfa og birgð- akostnaðar. Er nokkur vissa fyrir aðstoð frá sjóðum til þeirra mála. Framleiðsla og markaður í Ull og bandi verður framleidd kemba, lopi og band úr úrvals ís- lenskri ull í náttúrulegum litum. Lögð verður áhersla á að fá sem mest af lambsull og að ullin sé klippt á haust- in. Einnig verður reynt að framleiða vörur úr þeli, en afar tímafrekt er að taka ofan af ullinni. Bandið verð- ur einspunnið og einnig tvinnað eða þrinnað. Tveir starfsmenn vinna í verksmiðjunni, annar við flokkun ull- ar og þvott en hinn við kembi- og spunavélar. Mikil umræða fer nú fram víða um land um handiðnað og smávöi-ur hvers konar m.a. til ferðamanna- verslunar. Ullin er afar hentug til slíkrar framleiðslu og hlýtur að vera eitt af þjóðlegustu hráefnum sem völ er á. Vonast er til, að þannig megi finna markað víða um land og einnig verður leitað markaða erlendis. Einnig verður þvegin uli í sauðalit- um boðin í neytendaumbúðum og má telja víst að slík markaðssetning hafi ekki verið reynd fyn- á íslandi. Víst er, að ýmsum þykir hér í mikið ráðist og ekki síst, vegna er- fiðrar stöðu í ullariðnaði. Á það skal því bent, að hér verður framleidd vara, sem fer alls ekki í sama farveg og iðnaðarbandið. Verkefnishópurinn hefur sett markið hátt og verðlagt framleiðsluvöruna með djörfung. Reynslan verður svo að skera úr um, hvort framtíð er í þessum rekstri. Það er ljóst að þessari tilraun verður að fylgja eftir með einurð og natni, allt frá söfnun ullar til sölu fullunn- innar vöru. - Karl ferðan’áð, í samvinnu við sveit- arfélögin á Suðurnesjum og lög- regluna, verið með námskeið í umferðarfræðslu fyrir börn á aldrinum 5-6 ára. Þar er farið yfir nokkrar mikilvægar um- ferðarreglur og sagðar sögur og fleira tengt umferð. María Ingvadóttir fóstra hjá Umferðarráði sagði við Morgun- blaðið að þetta væri 24. árið sem farið væri í skólana með þessa fræðslu. „Nú þegar útivera er meiri með hækkandi sól teljum við þörf á að minna á umferðarregl- urnar sem allir verða að fara eftir í umferðinni. Nú eru börnin farin að vera á tvíhjólum mun yngri en áður og við Ieggjum einnig áhei'slu á að þau séu ekki á götunum, nú ÚRVALSBÆKUR senda nú frá sér nýja spennusögu, þá þriðju á þessu ári en þá sjöttu frá því að útgáfa Úrvalsbóka hófst. í fréttatilkynningu frá Úi-vals- bókum segir m.a.: „Sporlaust heit- ir þessi nýja bók og er eftir K.K. Beck, bandaríska konu af norskum uppruna. Bókin ber þess að vissu leyti merki, þar sem aðalsöguhetj- an er bandarísk kona af norskum uppruna. Hún heitir Sunny Sincla- ir og þegar sagan hefst býr hún við góð efni í tilbreytingarlausu ekkjustandi. En hið óvænta gerist oftast snögglega. Allt í einu er hún í þeirri aðstöðu að þurfa að hafa og svo náttúrulega að allir noti hjólahjálma sem sanna gildi sitt aftur og aftur. Böm detta mikið á hjólunum og höfuðið er einn við- kvæmasti hluti líkamans á þessum aldri.“ Lögregluþjónarnir Guðmundur Sæmundsson og Guðmundur Sig- hvatsson eru einnig með í förinni og aðstoða Maríu og Lenu Hreins- dóttur fóstru og þeir gefa börnun- um viðurkenningu fyrir teikningar sem þau teikna á verkefnablöð heima og þeir tala einnig við börn- in um umferðarreglur og gildi þess að þær séu haldnar. Það var ekki annað að sjá eftir tveggja daga námskeið en börnin væru tilbúin að fara eftir umferðarregl- um og gæta sin vel í hinum mikla^ hraða sem er á umferðinni í dag. FÓ upp á ástmanni sínum frá því á sokkabandsárunum, sem hún hef- ur ekki séð áratugum saman. Markmið hennar er að vara hann við hættu er að honum steðjar, en með þessu tiltæki sínu kallar hún yfir sig hættu. Leikurinn berst vítt um heim — um Bandaríkin, England, Noreg, Kanada. Sunny Sinclair lendir í æsilegri ævintýrum en hana óraði nokkurn tíma fyrir. Þetta er leikur upp á líf og dauða, sannkölluð spennusaga." Sporlaust er 256 blaðsíður. Einnig er hægt að kaupa Úrvals- bækur í áskrift og þannig verður fjórða hver bók ókeypis. (Frcttatilkynning) Ný Urvalsbók komin út FÉLAGSLÍF Ljósgeislinn Vegna óviðráðanlegra orsaka þarf félagið að aflýsa öllum fund- um með miðlinum Terry Evans í júnimánuði. Stjórnin. SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssamkoma á Háaieit- isbraut 58 í kvöld kl. 20.30. Ræðumaöur: Ólafur Jóhanns- son. Ath. kristniboðsþingið hefst föstudaginn 31. maí kl. 15.00. Almennar samkomur á kristni- boðsþingi: Laugardagurinn 1. júní kl. 20.30: Kristniboðssamkoma. Ræðu- menn: Vilborg Jóhannesdóttir og Baldvin Steindórsson. Sunnudagurinn 2. júní kl. 20.30: Almenn samkoma. Ræðumaður: Skúli Svavarsson. Vitnisburðir. Allir veikomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. FERÐAfELAG m ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Búrfellsgjá - Helgadalur Kl. 20.00 miðvikudaginn 29. maí verður kvöldganga um Búrfells- gjá að Búrfelli, þaðan verður gengið um Helgadal að Kaldér- seli. Ekið verður meðfram Vífils- staðahlíð að Hjöllum og þar hefst gangan, en lýkur við Kald- ársel þar sem ' bíllinn bíður. Þægileg kvöldganga í fjölbreyttu landslagi. Verð kr. 800,-. Brott- för frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Við minnum á kvöldferð til Við- eyjar og siglingu til þess að skoða lundabyggð 4, júní nk. Ferðafélag íslands. ÚTIVIST jRÓFIHH11 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI 14606 Kvöldganga í kvöld, 29/5. Gengið verður um Seljadal. Sérkennilegar stuðla- bergsmyndanir skoðaðar í leið- inni og fallegar tjarnir. Brottför kl. 20.00 frá BSÍ - bensínsölu. Um næstu helgi hefjast regluiegar ferðir í Bása á Goðalandi og verður boðiö upp á ferðir á þetta friðsæla og fagra svæði um hverja helgi út októ- ber. Farið verður að jafnaði á föstudagskvöldum, þó verður við og við boðið upp á styttri ferðir með brottför á laugar- dagsmorgni. Miöar og bókanir á skrifstofu. Munið Póstgönguna á sunnu- daginn, 2/6. Sjáumst. Útivist. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Sumarleyfisferðir F.í. 21 .-23. júní (3 dagar): Sólstöðuferð til Grímseyjar Flogið frá Reykjavík til Akureyrar og áfram með Flugfélagi Norður- lands til Grímseyjar og gist þar. Næsta dag með Hríseyjarferj- unni til Hríseyjar og gist þar. Á sunnudag er haldið til Reykjavik- ur með flugi. Farþegar geta einn- ig byrjað þessa ferð á Akureyri. 29. júní-3. júlí: Strandir - ísafjarðardjúp Ekið norður Strandir til Trékyli- isvíkur. Gist að Finnbogastöðum og Laugahóli í Bjarnarfirði. Ekið yfir Steingrimsfjarðarheiði að Djúpi og þar verður gist i Reykja- nesi. Ekið í Kaldalón og siglt til Æðeyjar. 11.-20. júlí: Mt. Blanc í Frakklandi Farin algengasta gönguleiðin á fjallið og tekur gangan tvo daga (gist i skála). Áður en gengið verður á fjallið verður gengið á lægri fjöll í nágrenninu til þess að aðlagast hæðinni. Fararstjóri verður Páll Sveinsson. Ótrúleg fjölbreytni í Islandsferð- um Ferðafélagsins. Kannið mál- ið og hringið til okkar á skrifstof- una. Ferðafélag íslands. NÝ-UNG Samvera fyrir fólk á aldrinum 20-40 ára i kvöld í Suðurhólum 35. Bænastund kl. 20.10. Sam- veran hefst kl. 20.30. „Förum í ratleik". Hugleiðing: Friðrik Hilmarsson. Eftirsamvera: „Merkileg lífsreynsla á kristni- boðsakrinum". Kristniboðinn Constance Nash kemur i heim- sókn. Athugið að fundirnir verða á miðvikudögum í sumar. Ungt fólk á öllum aldri er velkomið. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Allir hjartaniega velkomnir. Aðalfundur skíðadeildar Víkings verður haldinn mánudaginn 3. júni ki. 20.30 í fundarherbergi Bústaðakirkju. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. KENNSLA Vélritunarnámskeið Notið sumarið og lærið vélritun. Vélritunarskólinn, s. 28040.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.