Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 38
38 töm FOLK ■ VÉSTEINN Hafsteinsson varð í fimmta sæti í kringlukasti á stigamóti í San Jose í Banda- Vésteinn. Þorvaldur. ríkjunum um helgina. Hann kast- aði kringlunni 62,34 m, en sigur- vegari var Mike Buncvic með 67,02 m. ■ VÉSTEINN keppir næst á móti í Sevilla um næstu helgi, ásamt Sigurði Einarssyni, spjót- kastara og hlauparanum Einari Þ. Einarassyni. ■ ÞORVALDUR Örlygsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, kem- ur til landsins um helgina. Hann mun byrja að æfa með Fram eftir iandsleikinn gegn Tékkóslóvakíu í næstu viku. "> ■ PALINA Björnsdóttir, sund- kona frá Isafirði, er komin til liðs við sundlandsliðið, sem keppti í Andorra. Jón Helgason, liðsstjóri iandsliðsins, sótti hana og Martin, þjálfara SFS, til Barcelona og keyrði þau á bílaleigubifreið til Canet í S-Frakklandi. Þar verður landsliðið í æfingabúðum í þrjár vikur. ■ SIGRÍÐUR Jónsdóttir var endurkjörin formaður Badminton- sambands íslands á 25. ársþingi ^sambandsins um síðustu helgi. Aðr- ír í stjórn BSÍ eru: Sigfús Ægir Arnason, Sigríður María Jóns- dóttir, Friðrik Þór Halldórsson og Jóhannes Egilsson. ■ PALL Hreinsson hefur verið ráðið til starfa hjá Siglingasam- bandi Islands og verður hann með fasta viðtalstíma á skrifstofu sam- bandsins á mánu-, miðviku- og föstudögum kl. 11-12. ■ SIGURJÓN Kristinsson, leik- maður Þróttar Nes. í 3. deild, var úrskurðaður í eins leiks bann vegna brottvísunar - á fundi hjá aganefnd KSÍ í gærkvöldi. ■ JOZEF Venglos hefur hætt sem framkvæmdastjóri Aston ^Villa, eftir eitt keppnistímabil. Venglos. IMierlich. Vengles, sem var landsliðsþjálfari Tékkóslóvakíu, hefur verið orðað- ur sem næsti landsliðsþjálfari Möltu. I RUDOLF Nierlich frá Aust- j^rríki, sem er heimsmeistari í stórsvigi, lést í umferðarslysi í Þýskalandi fyrir sköminu. Ni- erlich var 25 ára og var mjög sigur- sæll í heimsbikarnum síðustu fimm árin. Hann varð tvöfaldur heims- meistari 1988 í svigi og stórsvigi. ■ GERRY Francis, fyrrum fyrir- liði enska landsliðsins og Q.P.R, var í gær ráðinn framkvæmdastjóri Q.P.R. ■ STANISLAW Cenbrzynski frá Póllandi sigraði í Kaupmanna- hafnar-maraþoninu sem fram fór á sunnudaginn. Hann hljóp á ^:21.59 klst. og landi hans, Czslaw Lamch, varð annar á 2:24.19. Marianne Stenbak frá Noregi sigraði í kvennaflokki, hljóp á 2:53.00 klst. Antette Hansen frá Danmörku varð önnur á 3:01.19. Alls voru um 3.500 hlauparar sem tóku þátt. Elsti keppandinn var Daninn Aksel Frandsen, 82 ára, ^sem hljóp á 6:39.17 klst. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991 KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD Njarðvík gerir samninga við leikmenn til tveggja ára Fyrstu opinberu leikmannasamningarnir í körfuknattleiknum staðreynd NJARÐVÍKINGAR hafa riðið á vaðið og ákveðið að gera samninga við leikmenn til tveggja ára. Samningarnir eru með svipuðu sniði og við- gangast hjá Knattspyrnusam- bandi íslands og hafa ís- landsmeistararnir þegar gengið f rá málum við nokkra leikmenn, en fyrirhugað er að semja við alla í hópnum, að sögn Inga Gunnarssonar, formanns körfuknattleiks- deildar Njarðvíkur. Um er að ræða fyrstu opinberu leik- mannasamningana í íslensk- um körfuknattleik. Ingi sagði við Morgunblaðið að æ erfiðara væri að halda í leik- menn vegna ýmissa gylliboða ann- ars staðar frá. „Við höfum verið eins konar uppeldisstöð fyrir önnur félög án þess að fá nokkuð fyrir. Það hef- ur oft verið rætt um að gera leik- mannasamninga, en við höfum aldrei verið tilbúnir að stíga skref- ið. Blaðran sprakk hins vegar í vor, þegar boðið var í níu leik- menn hjá okkur. Sveiflan kom að norðan og það var erfitt að standa í vegi fyrir henni með öðrum hætti.“ Önnur félög hafa verið að kanna möguleika á að gera ámóta samninga og má gera ráð fyrir að einhver fylgi í kjölfar Njarðvík- inga fyrir næsta keppnistímabil. Njarðvík í Evrópukeppni Formaðurinn sagði að hópur Njarðvíkur yrði sennilega óbreytt- ur á næsta tímabili, nema hvað Gunnar Örlygsson færi sennilega til Þórs á Akureyri og Jóhannes Kristbjörnsson kæmi aftur heim frá Grindavík. Njarðvíkingar hafa ákveðiað taka þátt í Evrópukeppni meist- araliða í haust, en vegna mikils kostnaðar hafa þeir ekki verið með í Evrópukeppni í fjögur ár. „Það er fullur vilji að vera með að þessu sinni, þó kostnaðurinn sé mikill,“ sagði Ingi. KENDO Morgunblaöið / Bjarni Tryggvi Sigurðsson í miðið varð íslandsmeistari í japönsku skylmingaríþróttinni Kendo um síðustu heigi. Vinstra megin við hann er Björn Hákonarson sem varð í 3. sæti og hægra megin er Þórólf- ur Beck sem varð í 2. sæti. Tryggvi Sigurðsson fyrsti meistarínn FYRSTA íslandsmótið í jap- önsku skylmingaríþróttinni Kendo var haldið um helgina í íþróttahúsi Hagaskólans. Tryggvi Sigurðsson, sem er formaður Kendosambandsins varðfyrsti ísiandsmeistarinn i íþróttinni, Þórólfur Beck varð í öðru sæti og Björn Hákonar- son íþvíþriðja. Kendo felst í því að tveir kepp- endur sækja að hvor öðrum og reyna að koma höggi á andstæð- ing sinn með bambussverði og eru gefin stig fyrir. Um fjöitíu manns æfa Kendo hér á landi. Flestir iðkendur eru á aldr- inum 20-30 ára en Kendo þarf ekki að vera bundin við aldur. Þess má reyndar geta að íslandsmeistarinn er fertugur að aldri en þeir sem næst komu er sautján og átján ára. Kendo er sérstaklega vinsæl íþrótt í Japan þar sem tólf milljónir stunda hana. Hún er einnig nokkuð stunduð í Kóreu og í Bandaríkjun- um og Kanada en enn sem komið er stunda fáir Evrópubúar íþróttina. íþróttin er ung hér á landi. Byrjað var að stunda Kendo árið 1983 en Kendo sambandið var stofnað þremur árum síðar. Tvær aðrar japanskar skylm- ingaíþróttir eru stundaðar innan Kendosambandsins en það eru Ia- ido, þar sem að einn keppandi sýn- ir æfingar með sverð, og Jodo. Keppt var í Iaido á mótinu um helgina. Guðjón Þór Baldursson varð Íslandsmeistari, Halldór Ax- elsson varð í 2. sæti og Embla Ýr Bárudóttir í 3. sæti. Kendo sambandið hefur undan- farið haft hjá sér franskan kenn- ara, Jean Pierre Reniez, sem meðal annars hefur unnið það sér til frægðar að vera eini maðurinn utan Japan sem orðið hefur Japansmeist- ari í Jodo. FELAGSLIF íþróttaskóli ÍR Handknattleiksdeild ÍR starf- rækir í sumar íþrótta- og leikjaskóla fyrir stráka og stelpur á aldrinum 6-12 ára. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Seljaskóla og hefst 3. júní. Leiðbeinendur við skólann verða Birna Petersen og Ólafur Gylfason. Allar nánari upplýsingar og skrán- ing eru í síma 36027. KNATTSPYRNA Pæjumót Þórs Pæjumót Þórs í knattspyrnu fer fram í Vestmannaeyjum 6. - 9. júní n.k. Leiið verður í 2., 3., 4. og 5. flokki kvenna í a- og b-liðum og er gert ráð fyrir um 550 keppendum. Þetta er í þriðja sinn, sem mótið er haldið. Allir leikirnir fara fram á grasi og er boðið upp á ýmiss konar dag- skrá mótsdagana. RC-Cola er sérstak- ur styrktaraðili mótsins, sem verður sett fimmtudaginn 6. júní og slitið sunnudaginn 9. júní. HLAUP Leiðrétting Nokkur nöfn féllu niður í úrslitum Lands- bankahlaupsins í Reykjavík, sem fram fór á laugardag og greint var fr'aí blaðinu í gær. Hörður Aðalsteinsson var í 3. sæti hjá strákum fæddum 1981 og Gunnar Ólafsson í 9. sæti. Auður ívarsdóttir var í 5. sæti í sama aldursflokki stúlkna. Ragnhildur Pét- ursdóttir var í 5. sæti hjá stúlkum fæddum 1978 og Runólfur Þór Astþórsson í 6. sæti hjá strákum fæddum 1978. Á listanum yfir stúlkur í Hafnarfirði (f. 1978-1979) var eitt rangt nafn; stúlkan heitir Sigurdís Ólafsdóttir en ekki Sigríður. TENNIS Fyrsta mót sumarsins Fyrsta tennismót sumarsins verður haldið á gei-vigrasvöllum Þróttar við Sæviðarsund 29. maí til 2. júní. Keppt verður í öllum flokkum barna og fullorðinna, en keppni hefst kl. 17 í dag. Breytt fyrirkomulag verður á tennismótum sumarsins. íslandsmótið verður með óbreyttu sniði, en í stað margra smærri móta verða þijú stiga- mót og er þetta það fyrsta. FRJALSAR ÍR bætist góður liðsauki IR-ingar hafa fengið góðan liðsauka að undanförnu því þijár fijálsíþrótta- konur framtíðarinnar hafa yfírgefið herbúðir KR og tilkynnt félagaskipti yfir í ÍR. Eru það fjölþrautarkonan Sigrún Jóhannsdóttir, langstökkvarinn Brynja Gísladóttir og hástökkvarinn Linda Siguijónsdóttir, en allar hafa þær sett Is- landsmet í sínum aldursflokkum á undanförnum árum. Þá hefur Unnar Garðarsson, 70 metra spjótkastari og 54 metra kringlukast- ari úr HSK, gengið til liðs við ÍR-inga sem verða því ekki á flæðiskeri staddir með spjótkastara þar sem Einar Vilhjálmsson íslandsmethafi í greininni hefur einnig tilkynnt félagaskipti yfir í ÍR. Loks tilkynnti Guðni Siguijónsson, landsliðsmaður í spretthlaupum og sleggjukasti, félagaskipti úr Breiðabliki í Kópavogi í ÍR. ÞRIÞRAUT Ólympíu-þríþraut í fyrsta skipti á íslandi Þríþrautarnefnd ÍSÍ stendur fyrir Ólympíu-þrfþraut í Laugardalnum á • sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem Ólympíu-þríþraut fer fram hér á iandi. Keppnin hefst með 1.500 m sundi í Sundlaugunum í Laugardal, síðan verður hjólað á lokaðri braut á Kleppsveginum og endað með 10 km hlaupi í Laugardalnum. Fyrstu tvö sætin í keppninni gefa rétt tii þátttöku á Norðurlandamótinu í þríþraut sem fram fer í Svíþjóð í lok júní. Frekari upplýsingar gefa Guðmundur Jakobsson í síma 24256 og Stefán Friðgeirsson í sima 19856._________________

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.