Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991 9 Rökræðufundur um Evrópumál Stjórnmálafélagið Birting, Samband ungra framsóknar- manna og Samband ungra jafn- aðarmanna gangast fyrir opnum rökræðufundi í kvöld, miðviku- dagskvöld kl. 20.30, um afstöðu Islendinga til samrunaþrónar og breytinga á viðskiptaháttum í Evrópulöndum. Fundurinn verð- ur haldinn á Kornhlöðuloftinu á Bernhöftstorfu. Málhefjendur eru þrír, Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, Steingrímur Hermannsson, alþing- ismaður og Þröstur Ólafsson, hag- fræðingur. Fundarstjóri er Kjartan Valgarðson, formaður Birtingar, en fyrirspurnum og umræðum á palli stjórnar Óskar Guðmundsson, rit- stjóri Þjóðlífs. Hugaðu að sparnaðinum þegar þú gerir innkaupin. Þjónustu- miðstöð ríkisverðbréfa er líka 1 Kringlunni Hringdu eða komdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og fáðu nánari upplýsingar um áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Þjónustumiðstöðin er fyrir fólkið í landinu. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, 2. hæö, sími 91- 626040 og Kringlunni, sími 91- 689797 Hækkun hús- næðisvaxta í ágústmánuði 1988, þegar Þorsteinn Pálsson var forsætisráðherra, bar Morgunblaðið undir hann hugmyndir um hækkun vaxta á lánum Húsnæöisstofnunar, sem þá voru á ferðinni. I frétt Morgunblaðsins um þetta efni sagði: „Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra segir að ekki komi til greina að hækka vexti af hús- næðislánum við núver- andi aðstæður þegar allir þurfi að taka á sig byrðar til að treysta afkomu út- flutmngsatvinnuveg- anna. Hækkun vaxta á lánúm Byggingarsjóðs ríkisins var ein af tillög- um ráðgefandi nefndar um efnahagsmál sem skilaði tillögum til ríkis- stjórnarinnar í gær. I samtali við Morgun- blaðið sagði Þorsteinn Pálsson að óeðlilegt væri að hafa of mikiim mun á milli almennra vaxta og niðurgreiddra vaxta i húsnæðislánakerfinu. „Munurinn er núna meiri en memi miðuðu við þeg- ar kerfinu var hleypt af stokkunum en það var alltaf reiknað með ákveð- hmi niðurgreiðslu vaxta úr ríkissjóði. Ég er hins vegar þeirr- ar skoðunar að við núver- andi aðstæður, þegar all- ir þurfa að taka á sig byrðar til þess að treysta afkomu útflutningsat- vinnuvegaima, þá komi ekki til greina að ákvörð- un verði tekin um að hækka vexti af hús- næðislánunum. Við hljót- um að miða að þvi að almennt vaxtastig í kjöl- far aðgerða í efnahags- málum lækki og bilið minnki þar af leiðandi," sagði Þorsteimi Pálsson". „Þenslumerk- in voru að koma í ljós“ Steingrímur Her- mannsson, fyrrverandi foi'sætisráðherra, segir í viðtali við Þjóðviljann sl. Iaugardag: „Það fór ekkert á milli mála að þenslumcrki voru að koma í ljós (þeg- ar fyrrv. stjórn fór frá]. Ég sagði til dæmis iðu- lega í rainni kosningabar- áttu. Það er alveg Ijóst að hvaða ríkisstjóm sem hefði tekið við hefði orð- ið að taka á þenslunni. Þetta er ekkert nýtt fyrir okkur Islendinga. Við höfum átt við sífelldar sveiflur i okkar efna- hagslífi og ætið þegar uppsveiflan hefur byijað þá hefur þensla hafizt í þessu litla efnahagsum- hverfi okkar. Okkur lief- ur oft mistekizt að taka á því. Ég tel jafnframt að ríkisfjármálin hafi verið veikasta hlið fyrr- verandi ríkisstjómar þegar þenslumerkin vom að byrja að sjást. Ég get tekið undir það að marg- ar samþykktir í lánsfjár- lögum rétt áður en Al- þingi lauk hafi ekki verið skynsamlegar Ekki horft á heildarmyiid- ina í efnahags- búskapnum Þjóðviljinn spyr hvort lánsfjárlögin í vor hafi verið kosningavíxlar. Steingrimur svarar: „Ég vil nú ekki kalla þetta endilega kosn- ingavíxla, eins og þetta sem ég nefndi áðan með [Vestmannaejja]feijuna. Það var löngu búið að samþykkja þetta á Al- þingi. Ég held að þama komi emi í ljós sú stað- reynd að þegar við göngum frá fjárlöguin og ýmsum heimildum á Alþingi er ekki nægilega höfð í huga heildarmynd af efnahagslífi þjóðariim- ar.“ Þjóðviljinn setur hér fram þijár þungar stað- hæfingar fyrrverandi forsætisráðherra, sem styðja meginþætti i gagn- rýninni á fyrrverandi stjórn: * 1) Rikisfjármálin vom „veikasta hlið fyrri ríkis- stjórnar". * 2) „Margar samþykktir í lánsfjárlögum" fráfar- innar sljórnar „vom ekki skynsamlegar" og við afgreiðslu þeirra var „ekki nægilega höfð í huga heildarmynd efna- hagslífs þjóðarinnar". * 3) Þegar rikissljómin fór frá voru þenslumerk- in þegar auðsæ og „hvaða ríkissljóm sem hefði tekið við hefði orð- ið að taka á þenslunni“. „Eg hef aldrei hikað við að viðurkenna mistök“ Forsætisráðherra kemst svo að orði um húsbréfakerfið: „Ég hef aldrei hikað við að viðurkenna ef mér hafa orðið á mistök og það ættu fleiri að taka upp. Þetta húsbréfakerfi var viðleitni nýrrar ríkis- sljómar til þess að lag- færa ýmsa annmai-ka sem höfðu komið í ijós á 86-kerfinu — og ég tel að það sé núna að koma í þ’ós að þessi litli fjár- magnsmarkaður okkar þolir ekki svona mikið innstreymi af ríkis- tryggðum bréfum sem húsbréfin bjóða upp á. Staðreyndin er hins veg- ar sú að 86-kerfið var aldrei framkvæmt eins og þurft hefði að gera. Það var aldrei takmark- að nógu mikið. Ég er í vaxandi mæli þeirrar skoðunar að í raun geti stjómvöld ekki tryggt öðmm lán með hag- kvæmum kjörum en þeim sem em að byggja eða kaupa í fyrsta sinn.“ Þannig talar fyrrv. forsætisráðherra eftir 20 ára stjómaraðild Fram- sóknarflokksins. „Ríkisfjármálin veikasta hlið fyrri ríkisstjórnar" Steingrímur Hermannsson, fráfarinn for- sætisráðherra, segir í yiðtali við Þjóðvilj- ann sl. laugardag: „Það er alveg Ijóst að hvaða ríkisstjórn sem tekið hefði við hefði orðið að taka á þenslunni ... Ég tel jafn- framt að ríkisfjármálin hafi verið veikasta hlið fyrri ríkisstjórnar." Staksteinar glugga í þetta viðtal í dag, sem og við- horf Þorsteins Pálssonar til hækkunar vaxta á húsnæðislánum, þegar hann var forsætisráðherra 1988. VERÐBRÉF HJÁ VÍB Hækkandi vextir á sparifé Með hækkandi vöxtum er raunávöxtun verðbréfa nú orðin hærri en oftast áður. Algengir vextir af öruggum verðbréfum eru 7,0-9,2%. Sparifé sem ávaxtað er á 7% vöxtum tvöfaldast á rúmum tíu árum, en á tæpum átta árum ef vextir eru 9,2%. VIB býður upp á verðbréf við allra hæfi, bæði með föstum vöxtum og breytilegum. Ráðgjafar VIB veita persónulega þjónustu við val á verðbréfum. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.