Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991 5 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Allsheijargoðinn les upp lögin og setur þingið. Þingvellir: Forn þingsetning í Almannagjá Selfossi. FORN þingsetning átti sér stað á Þingvöllum, í Almannagjá, á sunnudag. Þá söfnuðust norrænir tónlistarkennarar saman í þing- brekkunni og Sveinbjörn Beinteinson allsherjargoði las lögin og setti þingið. Tónlistarkennararnir voru á námskeiði á Laugarvatni og luku því með kvöldverði á Þingvöllum. Aður en þeir gengu til kvöldverðar var gengið til þings undir fánum þjóðanna. Að þingsetningu lokinni kváðu nokkrir fulltrúar þjóðlegar vísur og lúðrablásarar léku af krafti. í lokin var svo sungið lag eftir Jón Ásgeirsson við texta eftir Heimi Pálsson en þeir höfðu umsjón með þingsetningunni. í lokin var svo þinginu slitið og gengið til kvöldverðar. Þingsetningin sýndi mjög vel hversu góður hljómburður er í Al- mannagjá. Allt sem sagt var hljóm- aði um gjána og heyrðist ótrúlega vel langt að. Söngurinn ómaði fag- urlega um gjána endilanga og greinilegt er að þar er góður staður til tónleikahalds. — Sig. Jóns. Isafjarðarkirkja: Nefnd kanni möguleika á nýrri tillögu að byggingu SÓKNARNEFND ísafjarðar hefur skipað þriggja manna nefnd til að kanna möguleika á að fela þremur óháðum aðilum að vinna tillögur að nýrri sóknarkirkju á Isafirði. Jafnframt er ákveðið að kalla til sameiginlegs fundar með sóknar- nefndum í prestakallinu en enginn Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Bifreiðin sem valt og í bakgrunni má sjá krossinn. Bolungarvík: Bílvelta á Oshlíðarvegi Bolungarvík. GÓÐUR Guð verndi vegfarendur, er áletrunin á krossi þeim sem er við veginn um Óshlíð. Það má víst örugglega kalla það mikla mildi að ekki fór verr er bifreið valt á Óshlíðarvegi síðdegis á sunnudag. Tvö ungmenni voru í bifreiðinni og sluppu þau með skrámur. Ekki er vitað um orsök óhappsins en af einhveijum sökum missti ökumaður stjórn á bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum. Bifreiðin er gerónýt eins og sjá má og víst að einhver verndarhönd var yfir þeim sem í bifreiðinni voru. - Gunnar. prestur er nú starfandi á ísafirði og enginn umsækjandi að brauð- inu. Að sögn Björns Teitssonar, for- manns sóknarnefndar ísaijarðar- kirkju, eru tæp fjögur ár liðin síðan kirkjan á ísafirði brann og á þeim tíma hafa tveir prestar látið af störf- um og nú er svo komið að enginn sótti um starfið þegar það var laust til umsóknar. Ljóst væri að kirkju- leysið hefði þessi áhrif. „Hér er bæði kirkjulaust og prestslaust og hefur verið ákveðið að halda fund með sóknarnefndum í prestakallinu í prestsmálinu," sagði Björn. „Við samþykktum eirínig að fela þremur mönnum úr sóknarnefndinni að kanna möguleika á að fá tillögur frá þremur innbyrðis óháðum arkitekt- um, þar sem hver fyrir sig gerði til- lögu að frumhönnun nýrrar kirkju í stað samkeppni, sem áður hafði ver- ið samþykkt að fram færi en sú leið hefur strandað á mótþróa Arkitekta- félags íslands, sem átti að tilnefna mann í dómnefnd á móti okkur. Það hafa þeir ekki gert. Þetta yrði ekki bein samkeppni heldur leitað til þriggja aðila um tillögur sem við gætum síðan valið úr.“ Nokkuð er um liðið síðan tillaga kom fram að nýrri kirkju á lóð fram- an við nýja súkrahúsið en lóðin lá ekki á lausu. Auk þess samþykktu 85% bæjarbúa í almennum kosning- um að ný kirkja yrði reist á gömlu kirkjulóðinni, sem er mun minni. Sagði Björn að oftar en einu sinni hefði verið tekin ákvörðun um að taka niður gömlu kirkjuna sem brann. „Það hefur staðið reipdráttur við húsfriðunarnefnd ríkisins um framkvæmd þess máls og nú hillir undir einhveija lausn á því máli en ég get ekki fullyrt nákvæmlega hvernig hún verður,“ sagði hann. Þann 1. júlí streymdu milljónir inn á Kjörbækur landsmanna, bæöi í formi vaxta og verðbóta. Veröbætur fyrri hluta ársins reyndust vera tvö hundruö sextíu og ein milljón. Og áfram munu innstæöur dafna því nú hækka bæði vextirnir og verðtryggingin. Þannig hækkuöu grunnvextir nú í 13%, vextir á 1. þrepi í 14,4% og vextir á 2. þrepi í 15%. Verðtryggingarákvæðið tryggir a.m.k. 3,5% raunávöxtun á grunnþrepi, 4,9% á 1. þrepi og 5,5% á 2. þrepi. Kjörbókin er góð ávöxtunarleið meö háum vöxtum og verötryggingarákvæöi. Þeir sem vilja geyma fé sitt lengi njóta þess sérstaklega og fá afturvirka vaxtahækkun, fyrst eftir 16 mánuði og aftur eftir 24 mánuði. Samt er Kjörbókin óbundin bók. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.