Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 36
36 V MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991 * Ast er... ... hrein ögrun. TM Reg. U.S. Pat OH. — all rightsreserved ® 1991 LosAngeles Times Syndicate Einasta sem hann þarf eru nokkur kerti. Herrar minir. Við getum ekki verið hér til eilífðar- nóns. HOGNI HREKKVISI I fylgd með einmana sál Gamall maður. Þarna gekk hann niður Bankastrætið, sín taktföstu spor, og sveif um sem vofa á gang- stéttum miðbæjarins. Öll þekktum við þennan ólánsama mann, sem sum okkar kölluðu róna, en aðrir kenndu í bijósti um. Litlu krakkarn- ir hlupu á eftir honum og kölluðu: Fyllibytta, fyllibytta, og höfðu aldr- ei heyrt • þau viskuorð að enginn viti sína ævi fyrr en öll er. Alltaf virti ég hann fyrir mér þennan óhamingjusama gamla mann sem allir þekktu en enginn vissi hver var, eða hefði verið. Hann var okk- ur öllum eins vel kunnugur og Tóm- as í Tomma og Geir í Valhöll, en þó vissu fáir hvað hann hét. Oft hafði ég spurt Guð í hljóði hvers Þegar um er að ræða barna- verndarmál eða óleyst forsjármál skilnaðarbarna reynast vegir kerfis- ins oft krókóttir og óskiljanlegir þeim sem í hlut eiga. Með einstök- um dramatískum undantekningum liggja stjórnsýsluaðgerðir hins opin- bera í þagnargildi. Innan frá kerfinu sjálfu heyrast þó öðru hvoru hjá- róma raddir um fullkomin lagarugl- ing, vonda starfsaðstöðu og faglega vanhæfni þeirra stjórnvalda, sem æðstu ábyrgð bera á lausn mál- efna, sem oft varðar heill og ham- ingju barna mestu. Dómsmálaráðu- neytið fer með formlegt alræðisvald um skipan forsjármála skilnaðar- barna, en lætur barnaverndarstofn- anir um að skapa sér leynilegar forsendur í umsagnarformi. Laga- lega er óljóst hver ábyrgð ber á málsmeðferðinni og niðurstöðum. Málsaðilum er neitað um aðgang að málsgögnum og fá oftast engan Týndur köttur Svört læða sem gengur undir nafninu Cordelía tapaðist frá Keilu- granda 19. júní s.l. Hún var með græna.hálsól og merkisspjald. Þeir sem kynnu að hafa séð Cordelíu eða vita af svörtum ketti á flækingi vinsamlegast hafi samband í síma 17363 eða 19986. vegna barn fæddist í þennan heim til þess að verða úthýstur róni og ráfa um göturnar í öllum veðrum, klæddur í sama ullarfrakkann frá Álafossi árum saman og gömlu skóræflunum frá Geljun sem fylgdu honum hvert sem hann fór. Eitt sinn hafði Guð þó svarað bænum mínum um að reisa hann upp til betra lífs og það gladdi mig meir en orð fá lýst. En svo sá ég hann eftir nokkrar vikur eins og við öll þekktum hann og vissum hvað hann var, skjögrandi um, reik- ull í spori, sviplaus gamall maður, fullur. Ó hvað ég kenndi í bijósti um hann. Hann átti marga yini sem heim- sóttu hann í húsasundin og sögðu rökstuðning fyrir örlagaríkum ákvörðunum, sem börn þeirra varða. Iðulega bíða þeir frá tveimur og allt upp í fimm ar eftir endaleg- um niðurstöðum. Á þeim tíma eru viðkomandi börn og foreldrar leik- soppar kerfisins, sem deilir og drottnar og umbreytir lífi þeirra í martraðarlíki spennu og óvissu. Slík reynsla veldur börnum og ungling- um óbætanlegu tjóni! Fyrirmæli barnalaganna um for- sjármál skilnaðarbarna eru mun eldri en lögin sjálf. Þar er lögð áhersla á óvefengjanlegan rétt emb- ættismanna til að ráðskast einhliða með börn í slíkri stöðu. Börnum og unglingum er hins vegar ekki ætl- aður réttur samkvæmt þeim. Barnaverndarkerfið, sem starfar á grundvelli lagafomeskju sem á ræt- ur meira en hálfa öld aftur í tímann, starfar af hroka en þó fálmandi að lausn forsjártnála að beiðni dóms- málaráðuneytisins, án þess að styðj- ast við sérstök lagafyrirmæli eða reglugerð, eða nokkuð eftirlit með nærgöngulli og langvarandi um- sagnargerð. Niðurlæging barna og foreldra er botnlaus gagnvart þessu kerfi, réttarstaða engin, aðildarrétt- ur enginn, mannréttindin stórskert. Til eru þeir, sem telja, að mál sem snerta grundvallarrétt barna á sviði einkamála eigi að fá úrlausn óháðs dómsvalds ef um er deilt. Slíkt er í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar um hlutverk dómstóla og alþjóðafyrirmæli um vernd mannréttinda. Slíkt er án vafa í þágu barna og unglinga þess- arar þjóðar, sem telur sig siðmennt- aða. Þá yrði von til að hráskinna- leik kerfisins linni með börn. S.G. mjá og þegar hann strauk þeim yfir mjúkan og hlýjan feldinn og heyrði malið í þeim fann hann fyrir örlitlum votti af öryggi og ham- ingju. Það fannst honum góðar stundir, þó fátæklegar virtust þeim sem til sáu. Nóttin kom og ruddi deginum burt og regnskúr féll af himni. Steypiregnið dundi með miklu of- forsi niður á malbikið og einn og annar bíll skutust yfir vatnsflóðið. Þarna sat hann undir nóttinni með kisu í fanginu sem hann hafði stungið undir frakkann og raulað lagstúf sem minnti hann á horfna tíð. Hann seildist í vasa sinn og tók upp sprittglas sem einhver Steini í Hraunbæ hafði keypt fyrir hann í Iðunnarapóteki fyrr um daginn. Hann skrúfaði rautt lokið af og þefaði rólega af sterkum vökvanum og leit augnablik niður í stútinn. Hún var djúp þessi hola, myrk eins og svartasta helvíti. Hann leit stjörfum augum ofaní þetta ógur- lega hyldýpi sem á augabragði gæti bundið endi á ónotalega næð- inginn sem gnauðaði í lífi hans og feykti burt öllu sem hann átti. Kald- ir ósýnilegir fjötrar hertust um hann allan meir og meir og ætluðu að meija hann sundur. Ráðvilltur og ruglaður sökum óvissunnar sem morgundagurinn bæri í skauti sér báru þvalar titrandi hendur hans veigarnar að vörum hans og hann saup af. Hann lagðist á bijóst óraunveruleikans og leið inn í undraheim, þar sem allt nema ekk- ert gat skeð. Mestu skjálftahrinurn- ar, þegar klíjandi fötin límdust við hann, hurfu fljótt, þegar sprittið sendi sína loga um líkamann. Birtan frá götuljósum varpaði daufri skímu á götuna, meðan nátt- myrkrið þrengdi sér inn í öll skúma- skot. Kisa var stofnuð og kariinn í tunglinu leit til þeirra er hann gægðist fram á milli skýjanna. Kyrrðin strauk gamla manninum um kinnina og vaggaði gömlum manni í svefn sem hírðist í húsa- sundi í Þingholtunum með kisu í fanginu og var hvergi til nema í þjóðskrá. Nóttin leið á meðan góðborgar- arnir byltu sér í hlýjum sængurföt- unum. Grámyglulegur morguninn ruddi nóttinni burt og dagurinn rann upp á strönd tímans. Kisa var farin. Uti var þornað á steini og iðandi mannlíf leið um götur bæjar- ins. Gamli maðurinn reisti sig upp og ól hugarfóstur sitt í heiminn: Þar ertu dagur. Hvar verður þú þegar nóttin kemur aftur? Einar Ingvi Magnússon Réttur baraa og unglinga Víkverji skrifar ýskur kunningi Víkveija, sem hafði verið við útför ættmenn- is síns hér í Reykjavík, hafði orð á því, að honum þætti mikils til þess koma hvernig íslendingar stæðu þar að verki. Væri það ósambæri- Iegt við venjur í heimaborg hans, Hamborg. Þar væru að jafnaði 10-20 manns við útförina en hér hefðu hundruð manna sýnt hinum látna virðingu sína. Sjálfur sagði. Þjóðveijinn að hann myndi láta brenna sig og gefa fyrir- mæli um að öskunni yrði varpað í Atlantshaf. Væri unnt að kaupa slíka þjónustu í Hamborg. Flestir, er veldu hafið sem sinn hinsta reit, kysu að vísu Eystrasalt, enda væri það ódýrara en að sigla með öskuna út á Atlantshaf. xxx Isama mund og þetta umræðuefni var á döfinni barst í hendur Víkveija danskt dagblað, þar sem sagt var frá deilum í Kaupmanna- höfn vegna ágreinings um verð- lagningu á bálfararþjónustu Kaup- mannahafnarborgar. Þar kostar 605 danskar krónur (6.000 ísk.) að láta brenna sig. Er þjónustan niður- greidd af borgarsjóði, sem er bund- inn af samningum við bálfararfélag. Danska bálfararfélagið var stofnað fyrir 110 árum. Ein af ástæðunum fyrir stofnun þess var að mönnum óx í augum hve mikið landrými fór undir kirkjugarða. Nú er svo komið að miklu meira en 90% Kaupmannahafnarbúa láta brenna sig eftir dauðann. xxx Fyrr á þessari öld urðu töluverð- ar umræður um bálfarir hér á landi og stofnað félag til þess að stuðla að upptöku þeirra. Á sínum tíma voru lík send héðan til brennslu í Kaupmannahöfn en eftir að Foss- vogskapella reis varð aðstaða til líkbrennslu hér og er duftreitur framan við kapelluna. Fyrir nokkrum árum var hætt að jarða í Fossvogskirkjugarði og stofnað til nýs kirkjugarðs í Gufu- nesi. Síðan var brotið nýtt land í Fossvogi og aftur tekið til við að greftra þar, jafnframt er þrengt að Gufunesgarði með nýrri byggð, þótt augljóst sé að land í Fossvogi sé takmarkað. Hver er framtíðarstefnan í þess- um málum? Eigum við ef til vill eftir að feta í fótspor annarra og stórfjölga bálförum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.