Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991
Morgunblaðið/Frímann
Verið að undirbúa að koma sanddæluprammanum á réttan kjöl.
Sanddælupramminn Mjölnir:
Náðist upp eftir
níu mánuði í sjó
SANDDÆLUPRAMMINN Mjölnir, sem sökk við hafnargarðinn í
Keflavík 25. september 1990, náðist á flot s.l. þriðjudag og var dreg-
inn upp í fjöruna skammt frá höfninni á síðdegisflóði á miðvikudag.
Afríkuflugið hjá Atlanta
gengur framar vonum
- segir yfirflugstjóri félagsins
Jeddah, Saudi-Arabíu, frá Gunnari Þorsieinssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA flugfélagið Atlanta hefur annast flug fyrir ríkisflugfé-
lag Súdans, Sudan Airways, í rúman mánuð. Samkvæmt upphafleg-
um samningi flugfélaganna er verkefnið nú rúmlega hálfnað.
Þotan sem Atlanta notar er af gerðinni Lockheed Tristar L-1011,
rúmar 345 farþega og er stærsta flugvél íslendinga. Fjórtán íslend-
ingar starfa hjá Atlanta í Afríku og við Persaflóa.
Verið var að draga prammann
frá ísafírði til Voga þegar honum
hvolfdi út af Garðskaga og var hann
dreginn til hafnar í Keflavík. Þar
sökk hann daginn eftir þegar reynt
var að koma honum á réttan kjöl.
Pramminn var á töluverðu dýpi,
14-18 metrum, og um sex metrar
voru niður á hann. Hann náðist á
flot með því að dælt var lofti inn í
loftheld rými. Áður höfðu kafarar
losað gröfu prammans frá. Það eru
þrír kafarar frá Reykjavík sem tóku
verkið að sér, Gunnar Ágústsson,
Sigurður Klein og Björn Bjarnason,
en pramminn er í eigu Vátrygginga-
félags íslands.
Að sögn hafnsögumannsins í
Keflavík voru allar aðstæður til
verksins ákjósanlegar, það hreyfði
ekki vind og sjórinn var sléttur.
Unnið hafði verið að því að ná
prammanum á flot hátt í eina viku.
Bjöm sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þyngd prammans væri
150-170 tonn. Hann sagði að þeir
hefðu fyllt prammann Iofti þar sem
því hefði verið hægt að koma við
auk þess sem 20 tonn af lyftipokum
hefði verið festar á hann. Hann
væri nokkuð heillegur að því undan-
skildu að önnur hliðin væri rifin og
yfirbyggingin væri skemmd. Ekki
væri vitað um ástand vélanna sem
eru tvær. Bjöm vildi ekki upplýsa
hve mikið þeir félagar bæru úr být-
um, en hann bjóst við að þeir fengju
einhveijar prósentur af verðmæti
prammans. Talið er að verðmæti
prammans sé á bilinu 60-70 milljón-
ir kr.
í október á síðasta ári vom gerð-
ar nokkrar tilraunir tii að ná
prammanum á flot og voru í því
skyni festir fjórir tankar við pramm-
ann sem fylltir voru lofti. Þá var
einnig 10 þúsund lítrum af gasolíu
dælt af tönkum prammans.
Könnun var gerð í máímánuði.
Úrtak var valið úr þjóðskrá meðal
landsmanna 15-70 ára og fengust
884 svör. Andstaða við kvótasölu
er samkvæmt mest í elstu hópunum.
Þannig voru 80% svarenda 55-70
ára andvíg kvótasölu og 76% á aldr-
inum 45-54 ára, 68% 35-44 ára, 66%
25-34 ára en 42% fólks 15-24 ára.
í könnuninni var einnig spurt
hvort svarendur fylgdust með um-
ræðum um kvótakerfi og sjávarút-
veg. 15% sögðust alltaf fylgjast
Starfsmenn Atlanta við Afríku-
flugið eru alls 27, þar af 14 íslend-
ingar en aðrir eru Bandaríkjamenn
og einn er frá Finnlandi. Ásgeir
Christiansen er yfirflugstjóri Atl-
anta í Afríku. Áð sögn Ásgeirs
hefur þotan flogið 10 klst. á dag
að jafnaði og fyrsta mánuðinn
flutti Atlanta um tuttugu þúsund
farþega i Afríku. „Flugið hefur
gengið framar öllum vonum og
allir starfsmenn félagsins leggjast
á eitt um að láta hjólin snúast.
Flugvélin hefur reynst einstaklega
vel og við höfum aðeins þurft að
framkvæma hefðbundið daglegt
viðhald,“ sagði Ásgeir Christians-
en í samtali við Morgunblaðið.
í megindráttum skiptist Afríku-
verkefnið í tvennt. Annars vegar
er verið að flytja pílagríma frá
Súdan og nokkrum Afríkuríkjum
til og frá Jeddah í Saudi-Arabíu
og hins vegar er flogið á hinum
ýmsu áætlunarleiðum Sudan Air-
ways. Fyrri hluti pílagrímaflutn-
með, 21% oft, 27% stundum, 24%
sjaldan og 11% aldrei. Andstaða við
kvótasölu er samkvæmt könnuninni
því meiri því betur sem svarendur
fylgjast með umræðum um kvóta-
kerfi og sjávarútveg. 73% þeirra sem
alltaf fylgjast með eru andvígir kvót-
asölu og 70% þeirra sem fylgjast oft
með. 67% þeirra sem stundum fylgj-
ast með eru andvígir, 53% þeirra sem
fylgjast sjaldan með og 55% þeirra
sem aldrei fylgjast með eru andvígir
kvótasölu.
inganna hófst 27. maí sl. en fyrir
fáeinum dögum hófst heimflutn-
ingur pílagrímanna.
Aðeins um fjögur þúsund pfla-
grímar fara frá Súdan í ár en píla-
grímaferðir frá öllum löndum hafa
dregist mikið saman og gætir þar
áhrifa Persaflóastríðsins. Samtals
er búist við 1,5 milljónum píla-
gríma til Mekka í ár, þar af rúm-
lega 500 þúsund með flugvélum.
Til samanburðar má geta þess að
þegar ferðalög af þessu tagi náðu
hámarki á níunda áratugnum kom
um ein milljón pílagríma flugleið-
is. í júnímánuði voru áramót hér
í Saudi-Arabíu sem og hjá múha-
meðstrúarmönnum um allan heim
og gekk árið 1411 í garð.
Afríkuflug Atlanta að þessu
sinni er ólíkt fyrri verkefnum ís-
lendinga í þessum heimshluta
vegna þess hve víða um álfuna og
Persaflóa er flogið. Aðalbæki-
stöðvar Atlanta eru í Kharthoum,
höfuborg Súdans, en flogið hefur
verið til 18 borga sl. mánuð. í
Afríku eru áfangastaðimir orðnir
þessir: Kaíró og Luxor í Egypta-
landi, Tripoli í Líbýu, Lagos, Kano
og Kaduna í Nígeríu, Bandjul í
Gambíu, Accra í Gana og Ndjam-
ena í Tsjad. Eftirtaldir áfangastað-
ir eru við Persaflóa: Jeddah í
Saudi-Arabíu, Sana og Aden í
Jemen og Sameinuðu furstadæm-
in: Abu Dhabi, Dubai, Oman,
Shaijah og Doha. Frá og með 7.
júlí nk. mun þota Atlanta einnig
fljúga áætlunarflug tvisvar í viku
milli Kharthoum í Súdan og Lond-
on með viðkomu í Róm og Kaíró.
Lengsta flugleið þotunnar er tæp-
ar 8 klst. og það er milli Jeddah
í Saudi-Arabíu og Bandjul í Gamb-
íu, eða milli Atlantshafsins og
Rauðahafsins, þvert yfír Afríku.
Lockheed Tristar L-1011 er
stærsta flugvél sem skráð er á
íslandi og jafnframt eina breiðþot-
an í flugflota íslands. Þotan, sem
er þriggja hreyfla, rúmar 345 far-
þega. Hún vegur 195 tonn full-
hlaðin og hefur rúmlega 9 klst.
hámarksflugþol.
Sudan Airways rekur sex flug-
vélar, tvær Boeing 737-200, tvær
Boeing 707 og tvær Fokker 50
skrúfuþotur. Þá á félagið í pöntun
tvær nýjar tveggja hreyfla breið-
þotur af gerðinni Airbus A 310
og er fyrirhugað að taka þær í
notkun á næstu vikum og mánuð-
um. Núna er háannatíminn hjá
Sudan Airways og því var gripið
til þess ráðs að leigja íslenska
þotu frá Atlanta.
Höggmynd
Péturs af-
hjúpuð við
Sæbraut
HÖGGMYNDIN Partnership eft-
ir Pétur Bjarnason listamann
verður afhjúpuð á sjávarbakkan-
um við Sæbraut gegnt Seðla-
bankanum og gamla útvarpshús-
inu 4. júlí næstkomandi.
Bandarísku sendiherrahjónin á
íslandi, þau Charles E. Cobb Jr. og
Sue Cobb, færa Reykjavíkurborg
höggmyndina að gjöf í tilefni þess
að 50 ár eru liðin síðan formlegu
stjórnmálasambandi var komið á
milli íslands og Bandaríkjanna.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og fráfarandi borgarstjóri veitir
gjöfinni viðtöku fyrir hönd þjóðar-
innar og Reykjavíkurborgar. Stein-
grímur Hermannsson fyrrverandi
forsætisráðherra mun einnig flytja
ávarp en faðir hans, Hermann Jón-
asson, var forsætisráðherra þegar
stjómmálasambandi var komið á
milli íslands og Bandaríkjanna.
Partnership er stærsta bronsaf-
steypa sem gerð hefur verið á ís-
landi og er hún táknræn fyrir vin-
samlegt samband og náið samstarf
þjóðanna tveggja á þessu fímmtíu
ára tímabili, segir í frétt frá Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna.
Athöfnin hefst kl. 16.15 við Sæ-
braut.
Könnun Gallup fyrir Sjávarfréttir:
66% eru andvíg kvóta-
sölu milli útgerðarfélaga
66% ÞEIRRA sem afstöðu tóku í skoðanakönnun sem Gallup á íslandi
gerði fyrir tímaritið Sjávarfréttir reyndust andvígir því að útgerðarfé-
lögum sé heimilt að kaupa og seija kvóta sín á milli. 34% voru því
fylgjandi.
Verð frá kr. 1.095 þús.
GLi-special
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
ÍHONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVlK., SÍMI 689900
Morgunoiaoio/Ldney öiguroaraouir
Hljómsveitin Kokteill á bryggjunni þar sem Þorsteinn GK liggur
bundinn.
Þórshöfn:
Bátur í stað bilaða bílsins
Þórshöfn.
HLJÓMSVEITIN Kokteill frá
Raufarhöfn kallar ekki allt
ömmu sína, þvi þegar hljómsveit-
arbíllinn þeirra bilaði á síðustu
stundu, þá stukku þeir út i bát
og sigldu til Þórshafnar með
hljóðfærin sín.
Hljómsveitin átti að spila á dans-
leik á Þórshöfn um þjóðhátíðarhelg-
ina og þar sem meðlimirnir eru
flestir vanir sjónum, þá lá sú leið
beinast við. Hljóðfærin voru því
drifin úr biluðum bílnum og um
borð í Þorstein GK og var mikill
dansleikur haldinn á Þórshöfn um
kvöldið.
- L.S.
Honda *91
Civic
Sedan
16 ventla
Karls Sighvatssonar
minnst í Þjóðleikhúsinu
FYRIR stuttu fórst tónlistarmað-
urinn Karl Sighvatsson í bílslysi.
Til að heiðra minningu hans
halda nokkrir tónlistarmcnn
minningartónleika í Þjóðleikhús-
inu annað kvöld, fimmtudag.
Ágóða af tónleikunum verður
varið í minningarsjóð um Karl.
Að sögn Jakobs Magnússonar,
sem skipulagði tónleikana, koma
fram á tónleikunum hljómsveitir
sem Karl spilaði með og einnig
hljómsveitir sem leika munu lög
sem Karl gerði með ýmum hljóm-
sveitum. Fram koma Þursaflokkur-
inn, Mannakorn, Bubbi Morthens,
GCD, hljómsveit Bubba og Rúnars
Júlíussonar, Nýdönsk, Ellen Kristj-
ánsdóttir með félögum úr Mezzo-
forte, Spagettíjass og Síðan skein
sól.
Jakob sagði einnig að líklega
myndi Trúbrot koma fram í ein-
hverri mynd, en ekki hefði tekist
að fá til landsins söngkonuna Shady
Ovens til að koma fram með hljóm-
sveitinni. Hilmar Om Hilmarsson
mun flytja hugvekju og ljóðskáld
lesa ljóð.
Jakob sagði að ágóði tónleikanna
rynni í Minningarsjóð um Karl J.
Sighvatsson, en þegar hefðu sjóðn-
Karl Sighvatsson.
um borist nafnlaus framlög upp á
um tvær milljónir króna. Sjóðurinn
mun styrkja efnilega orgelleikara
til náms og orgelkaup, en úr honum
verður veitt fé árlega. Tónleikarnir
í kvöld verða hljóðritaðir til útgáfu
síðar.