Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991
ATVINNUÁ/ ir^l
JP % ■ ■!! %P/\U'wL / ^J>// N/v_J7AA/\
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í leik-
fangaverslun nú þegar. Um heilsdagsstarf
er að ræða.
Umsóknir, merktar: „Gott starf - 3965“,
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. júlí nk.
Kennarar
Kennara vantar að grunnskólanum í Breið-
dalshreppi. Æskilegar kennslugreinar:
Almenn kennsla og íþróttakennsla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-56696 eða formaður skólanefndar í síma
97-56628.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða stúlku til skrifstofustarfa.
Aðalstarf við nótuskrif.
Ásbjörn Ólafsson hf.,
Borgartúni 33,
sími 24440.
Lagermenn óskast
Duglega lagermenn vantar strax í vörumót-
töku. Framtíðarvinna.
Upplýsingar í síma 678522 í dag, miðviku-
dag, kl. 08.00-10.30.
Húsavík
Vantar blaðbera í Suðurbæ.
Upplýsingar í síma 41559.
Póstur og sími
óskar að ráða
umdæmistæknifræðing, með þekkingu á
veikstraum, til afleysinga.
Verður að hafa aðsetur á Akureyri.
Upplýsingar gefur umdæmisstjórinn á Akur-
eyri í síma 96-26000.
Póstur og sími
Deildarstjóri
í kennslumiðstöð
Námsgagnastofnun auglýsir starf deildar-
stjóra í kennslumiðstöð laust til umsóknar.
Starfið felst í umsjón með rekstri og starf-
semi kennslumiðstöðvar, þ.m.t. skipulagn-
ingu á dagskrám, ráðstefnum, kynningar-
fundum o.s.frv.
Leitað er að vel menntuðum starfsmanni
með skipulags- og stjórnunarhæfileika.
Skilyrði er að viðkomandi hafi kennsluréttindi
svo og kennslureynslu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi framhalds-
menntun er tengist kennslu- og skólastarfi
og reynslu af skipulags- og stjórnunarstörfum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, berist Námsgagnastofnun, Lauga-
vegi 166, 105 Reykjavík, eða í pósthólf 5192,
125 Reykjavík, eigi síðar en 12. júlí nk.
Nánari upplýsingar veittar í síma 2 80 88.
AUGLYSINGAR
TILKYNNINGAR
Höfum flutt
Viðskiptavinir athugið!
Höfum flutt í Sundaborg 9. Óbreytt síma-
númer 91-674690/674691, fax 91-674696.
Bláberg hf. (ModulexA.S. umboðið),
skiltagerð,
Sundaborg 9, 104 Reykjavík.
Símar 91-674690/674691,
fax 91-674696.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Hafnarfjörður
Hjón utan af landi óska eftir að leigja 4ra
herbergja íbúð í Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 53657 eftir kl. 22.00 á
kvöldin.
TIL SÖLU
Bleikjuseiði
Til sölu bleikjuseiði til áframeldis eða slepp-
ingar í vötn og tjarnir.
Stærðir 50-150 grömm.
Vantar einnig eldisker, 10-30 m3.
Upplýsingar í síma 98-68863.
Myndbandaleiga
Stór og glæsileg myndbandaleiga til sölu.
Einstakt tækifæri fyrir dugmikið og skapandi
fólk. Gott verð ef samið er strax.
Viljir þú athuga málið sendu þá upplýsingar
um þig á auglýsingadeild Mbl. fyrir kl.17.00
þann 4. júlí merktar: „XYZ- 91 “.
Til sölu aðeins í dag
Til sölu úr þrotabúi Jóns og Einars sf. raf-
suðuvélar, varahlutir í rafsuðuvélar o.fl.
Hlutirnir eru allir ónotaðir og verða seldir
aðeins í dag í Kaplahrauni 11, Hafnarfirði,
frá kl. 9 18. Helgi Jóhannesson hdl.,
Lágmúla 7, Reykjavík,
sími 812622.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Útboð
Tilboð óskast í vinnu og efnisliði í uppsteypu
og þakfrágang vegna viðbyggingar við fé-
lagsheimilið Hlaðir á Hvalfjarðarströnd.
Einnig uppsteypu á útisundlaug.
Jarðvinna er undanskilin.
Tilboðsgögn afhendist frá og með miðviku-
degi 3. júlí á Arkitektastofunni við Austur-
völl, Pósthússtræti 17, Reykjavík, gegn kr.
5.000,- skilatryggingu.
SJÁLPSTJEÐISFLOKKURIHN
F É L A G S S T A R F
Reykjanes ^
Þórsmerkurferð
Farin verður Þórsmerkurferð uppí Húsadal
helgina 5.-7. júlí á vegum Kjördæmissam-
taka ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesi.
Þeir, sem hafa áhuga, hafi samband við
Börk í símum 41204 og 621080 eða Valdi-
mar í símum 53884 og 690312.
Stjórnin.
Þórsmerkurferð
iifimimu.uk
F U S
Heimdallur, félag ungra sjálfstaeðismanna í Reykjavík, efnir til ferðar
í Þórsmörk dagana 5.-7. júlí. Haldið verður af stað frá Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, föstudaginn 5. kl. 18 og komið til baka síðdegis sunnu-
daginn 7.
Nánari upplýsingar í síma 682900 á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins.
Heimdallur.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533
Helgarferðir 5.-7. júlí
1) Þórsmörk/Langidalur. Gist í
Skagfjörðsskála. Gönguferðir
um Mörkina.
2) Hagavatn - Jarlhettur. Gist
í húsi/tjöldum. Gönguferðir um
Jarlhettudal og að Hagavatni.
3) Hagavatn - Hlöðuvellir -
Geysir, bakpokaferð. Gist í
sæluhúsum Fl v/Hagavatn og
Hlöðuvelli. Gengið á laugardag
til Hlöðuvalla og á sunnudag að
Geysi Forvitnilegt landslag,
þægileg gönguleið.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Helgarferð með Ferðafélaginu
er hvíld frá amstri hversdags-
ins - allir velkolmnir félagar og
aðrir. Ferðafélag islands.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Fjölbreyttar
sumarleyfisferðir
1. 5.-12. júlí (8 dagar) Horn-
strandaganga 1991. Skemmti-
leg bakpokaferð frá Sæbóli um
Jökulfirði í Hornvík.
2. Hornstrandaferðii nar hefj-
ast 3/7. Hús og tjöld í Hornvík
og Hlööuvík. Kynnið ykkur ferða-
tilhögun. Það er aö verða upp-
pantað í gistingu inni.
3. 18.-23. júlí (6 dagar).
Aðaivik. Dvöl að Látrum með
spennandi gönguferðum.
4. 19.-23. júlí (6 dagar). Kjal-
vegur hinn forni: Hvítárnes -
Þverbrekknamúli - Hveravellir.
Biðlisti í skála. Hægt að hafa
með göngutjöld.
5. 20.-28. júlí (9 dagar).
Miðsumarsferð á hálendið.
Sprengisandur, Herðubreiöar-
lindir, Askja, Kverkfjöll, Snæfell.
Fá sæti laus.
6. 26/7-1/8 (7 dagar). Borgar-
fjörður eystri - Loðmundar-
fjörður. Gist í húsum. Skoðunar-
og gönguferðir um þetta fjöl-
skrúðuga landsvæði.
7. 26/7-1/8 (7 dagar). Seyðis-
fjörður - Borgarfjörður eystri.
Bakpokaferð um Loömundar-
fjörð og Víkurnar.
8. 2.-5. ágúst (4 dagar). Þóris-
dalur - Hlöðuvellir. Bakpoka-
ferð um verslunarmannahelgina.
9. 2.-11. ágúst (10 dagar).
Vonarskarð - Kverkfjöll.
Bakpokaferð.
Gönguferðir um „Laugaveginn11
hefjast 5. júlí - í þeim ferðum
er gengið á fjórum dögum milli
gönguskála Ferðafélagsins í
Hrafntinnuskeri við Álftavatn og
á Emstrum. í júlí og ágúst eru
„Laugavegsferöir" alla föstu-
daga og miðvikudaga (5 og 6
daga ferðir). Pantið tímanlega,
aðeins 18 manns komast í hverja
ferð.
Áhugaverðar utanlands-
ferðir fyrir félagsmenn
Ferðafélagsins:
a. Á slóðum Eiríks rauða á
Suður-Grænlandi 22.-29. júlí.
Einstakt tækifæri til að kynnast
þessu nágrannalandi okkar, sem
alltof fáir þekkja til. Hagstætt
verð. Dagskrá liggur frammi á
skrifstofunni. Pantið strax. Fá
sæti laus.
b. Gönguferð um Jötunheima í
Noregi 17.-26. ágúst. Þekkt-
asta fjallasvæöi Noregs. Ferð í
samvínnu við Norska ferðafélag-
ið.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni, Öldugötu 3, símar 19533
og 11798.
,Feröafélag Islands.
FERÐAFEIAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3S11798 19533
Kvöldferð
miðvikudaginn 3. júlí
Kl. 20.00 Almenningur - Gjá-
sel. Ekið um Krýsuvikurveg. Gjá-
sel er gróðurvin í Kapelluhrauni
þar sem haft var í seli.
Verð kr. 900,-
Ferðafélag [slands.
H ÚTIVIST
GRÓFIHNI l • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
( kvöld kl. 20.00
Kvöldganga
Drykkjarsteinn - Mjöltunnuklif.
Gengin gömul þjóðleið bak við
Slögu austan við isólfsskála.
Um næstu helgi 5.-7. júlf
Básar - Goðaland
Vegna mikillar aðsóknar verða
allir sem ætla sér að tjalda við
Þórsmörk sunnan Krossár að
fá leyfi á skrifstofu Útivistar.
Landmannalaugar - Básar
Undirbúningsfundur fyrir ferðina
9.-14. júlí veröur á skrifstofu
Útivistar fimmtud. 4. júlí kl.
17.30. Mikilvægt að allir mæti.
Sjáumst!
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður Hafliði Kristinsson.
Theodór Peterson frá Færeyjum
talar og syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.