Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991 Japanskir bændur mótmæla Reuter Japanskir bændur mótmæla hér hugmyndum um að leyfa innflutning á hrísgijónum til Japans. Þeir hafa efnt til mótmælasveltis fyrir framan landbúnaðarráðuneytið í Tókýó til að krefjast þess að banni við slík- um innflutningi verði ekki aflétt. Heittrúarmenn í Alsír yfirbugaðir Algeirsborg. Reuters. ALSÍRSKA lögreglan handtók á mánudag um 800 heittrúarmenn um allt landið, um sólarhring eftir að leiðtogar Islömsku freisishreyf- ingarinnar (FIS) voru handteknir. Sama dag réðust öryggissveitir alsírsku lögreglunnar á höfuðaðsetur heittrúarmanna innan FIS í Algeirsborg og náðu því á sitt vald eftir snarpan skotbardaga. Þess- ar aðgerðir benda til þess að alsirska lögreglan ætli sér að taka á heittrúarmönnum af aukinni hörku en síðustu sólarhringa hafa átök geisað á milli lögreglu og liðsmanna FIS. Fjórir menn féllu og 15 særðust í átökum sem brutust út eftir hand- töku Madanis og Belhadjs, en þeim er gefið að sök að hafa skipulagt og haft forystu um samsæri gegn stjórnvöldum. Sid Ahmed Ghozali, forsætisráðherra Alsírs, sagði frétt- amönnum að tvímenningarnir myndu bráðlega verða leiddir fyrir rétt. Alsírski herinn dró úr umsvifum sínum í höfuðborginni í gær og voru bæði hermenn og skriðdrekar kallaðir til bækistöðva sinna. Aðfar- anótt þriðjudags voru skriðdrekar á ferð í borginni og skothvellir og vélbyssuskothríðir heyrðust annað veifið en undir morgun var allt með kyrrum kjörum og flestir skriðdre- kanna horfnir af götunum. Her- menn og óeirðalögreglumenn voru þó í viðbragðsstöðu í Algeirsborg í gær. Síðan Chadli Benjedid, forseti Alsírs, lýsti yfir umsátursástandi í kjölfar mótmæla heittrúaðra músl- ima gegn stjórnvöldum, hefur her- inn beitt ýmsum aðferðum í viður- eign sinni við heittrúarmenn, t.d. minnkað og aukið umsvif sín í höf- uðborginni til skiptis. ♦ ♦ ♦ Edúard Shevardnadze um myndun nýrra stjórnmálasamtaka: Okkar helsta markmið að varðveita perestrojkuna H LOS ANGELES - Sjónvarps- leikarinn Michael Landon, lést á mánudag úr krabbameini í lifur og brisi, að sögn fréttafulltrúa Moskvu. Reuter. EDÚARD Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði í viðtali við sovéska sjónvarpsstöð að myndun hinna nýju' sljórnmálasamtaka, Lýðræðislegu umbótahreyfingarinnar, væri ekki aðför að perestrojkunni, umbótastefnu Míkhails Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna. „Þvert á móti. Okkar helsta markmið er að bjarga perestrojkunni, bjarga lýðræðinu, bjarga lýðræðisþróun- inni og tryggja að ekki verði aftur snúið til fortíðarinnar, til alræð- isstjórnar,“ sagði Shevardnadze meðal annars. • Níu sovéskir frammámenn, sem misserum og á síðasta flokksþingi allir eru fyrrum samstarfsmenn Gorbatsjovs, undirrituðu á mánu- dag sjö blaðsíðna yfirlýsingu um stofnun samtak- anna. Meðal þeirra eru, auk Edúards She- vardnadzes, hag- fræðingurinn Staníslav Shat- alín, Alexander Jakovlev, sem um árabil var helsti batsjovs, Gavríl hans, í júlí á síðasta ári, sagði einn helsti talsmaður umbótasinna, Boris Jeltsín, sig úr flokknum. Glæsilegur sigur hans í forseta- kosningunum í Rússlandi í síðasta mánuði var þvi mikið áfall fyrir kommúnistaflokkinn. Enn eru þó flestir þeir sem teljast til umbóta- sinna enn félagar í kommúnista- flokknum, þar með taldir flestir þeir sem rituðu undir stofnyfirlýs- ingu hinna nýju samtaka á mánu- dag. Öðrum flokkum en kommún- istaflokknum var ekki leyft að starfa fyrr en á síðasta ári. Þó að margir nýir flokkar hafi verið myndaðir síðan er fylgi flestra þeirra enn óverulegt. Vegna þess hversu þekktir menn standa að stofnun hinna nýju stjórnmála- samtaka er þó talið líklegt að nú kunni að verða breyting á því. hans. Hann var 54 .ára gamall er hann lést. Landon öðl- aðist fyrst frægð fyrir að leika Jóa Michael Landon litla í Bonanza- sjónvarpsmynda- flokknum og síðar lék hann m.a. eitt aðalhlutverkið í þáttaröðinni „Húsinu á sléttunni“ sem sýnd var í ríkissjónvarpinu fyrir nokkrum árum, tilkynnti í apríl að hann þjáð- ist af krabbameini en sagðist vona að hann gæti unnið bug á sjúkdómi sínum. ■ LOS ANGELES - Leikkonan Lee Remick Iést í gær úr krabba- meini á heimili sínu í Los Angeles. Hún var 55 ára gömul og hafði átt við veikindi að stríða í tvö ár. Með- al kvikmynda sem Remick lék í var „Dagar víns og rósa“, en þar lék hún áfengissjúka konu á móti Jack Lemmon. Edúard Shevardnadze ráðgjafi Gor- Popov, borgar- stjóri Moskvu, og Anatolíj Sobt- sjak, borgarstjóri Leníngrad. Hið róttæka dagblað Nezav- ísímaja Gazeta benti á að með því að stofna stjórnmálasamtök, en ekki stjórnmálaflokk, eins og upp- haflega hefði verið ætlunin, þá væri þeim sem undirrituðu yfirlýs- inguna gefinn kostur á að vera áfram félagar í kommúnista- flokknum. í september ættí svo að halda stofnfund þar sem ákveð- ið yrði hvort stofnaður yrði nýr flokkur. Fram að því gætu fijáls- lyndir menn unnið að því að kljúfa kommúnistaflokkinn með því að fá umbótasinna þar til að láta af samstarfi við harðlínumenn af lífi og sál, kerfiskarla og stalínista, sagði blaðið. Sumir stjórnmálaskýrendur eru samt þeirrar skoðunar að hin nýju samtök eigi á hættu að tengjast kommúnistaflokknum um of í huga almennings þar sem ekki sé skorið endanlega á tengslin við hann. Það er hins vegar almenn túlkun að með stofnun samtakanna hafi líkurnar aukist verulega á því að kommúnistaflokkurinn klofni. Flokkurinn hefur átt í alvarlegri tilvistarkreppu á undanförnum Stöðugar skærur á milli Kró- ata og Serba í Júgóslavíu Tugir manna hafa látið lífið á síðustu mánuðum Knin. Reuter. The Daily Telegraph. Á MEÐAN átök geisa í Slóveníu á milli Júgóslavíuhers og vopn- aðra sveita Slóvena eiga sífelldar skærur sér stað í Króatíu á milli Króata og Serba sem þar búa. Rígurinn á milli þessara þjóðernishópa er mjög djúpstæður og á sér rætur langt aftur í aldir. Tugir manna úr báðum flokkum hafa verið drepnir átökum síðustu mánuði. Ástandið í Króatíu er mun flóknara en í Slóveníu, þar sem í lýðveldinu býr minnihlutahópur um 600.000 Serba, en Króatar eru um 4,5 milljónir talsins. Flestir þessara Serba búa í suð- urhluta Króatíu, nálægt landa- mærum Serbíu. Þar búa báðir þjóðernishóparnir saman í þorp- um og bæjum og miklar skærur og ofbeldi hafa sett sinn svip á samskipti þeirra síðustu vikur. Króatar lýstu yfír sjálfstæði sínu í vikunni sem leið og Serbar í Króatíu vilja ekki una við að búa utan ríkjasambandsins, án tengsla við Serbíu. Þeir óttast að verða ofsóttir og strádrepnir ef Króatía fær fullt sjálfstæði. Króatar hins vegar saka Serba um að vilja halda dauðahaldi í kommúnismann og standa í vegi fyrir framförum og eðlilegri þró- un innan lýðveldanna. Þessi ágreiningur á sér reynd- ar miklu dýpri rætur og skerpt- ist í síðustu heimsstyijöld, en Serbar hafa sakað Króata þá sem hlynntir voru fasisma um fjöldamorð. Að vísu lifðu þjóðirn- ar í sátt og samlyndi á yfírborð- inu á meðan Tító var við völd í Júgóslavíu, en eijurnar sem brot- ist hafa út upp á síðkastið sanna að grunnt hefur verið á hatrinu. Skothríð á hverri nóttu Hersveitir frá sambandshern- um hafa verið sendar til þeirra þorpa þar sem ólgan hefur verið hvað mest. Eitt þessara þorpa nefnist Glina. Þar voru fjórir menn drepnir í þjóðernisátökum í síðustu viku í skotbardögum sem hófust þegar króatíska lög- reglan hugðist afvopna herskáa Serba. Að sögn Króata í bænum voru 16 lögreglumenn teknir í gíslingu af Serbum. Serbar segja hins vegar að átökin hafi byijað þegar fjórar bifreiðar mannaðar lögreglumönnum óku í gegnum serbíska bæjarhlutann og skutu á allt sem fyrir varð. Byggingar báru þess merki að mikil skot- hríð hefði átt sér stað og svipaða sögu er að segja frá króatíska bæjarhlutanum. Skothríð gellur við í bænum á hverri nóttu. Að sögn króatískra embættis- manna var lögreglustjórinn í bænum Osijek skotinn til bana af manni sem misst hafði hús sitt í sprengjuárás herskárra Serba. Tveir aðrir lögreglumenn voru drepnir í bænum. Að sögn króatíska útvarpsins færast sprengjuárásir á hús og járn- brautalínur sífellt í aukana og mannrán verða tíðari. Skotbar- dagar geisuðu á sunnudag í bænum Borovo Selo þar sem sextán manns fórust í átökum á milli þjóðernishópa 2. maí síðastliðinn. Herinn stendur álengdar Ólíkt því sem gerðist í Sló- veníu stendur herinn aðeins álengdar og fylgist með hildar- leiknum þegar Serbar og Króatar berast á banaspjótum. Samt eru Serbar uggandi um að herinn hverfi á brott á næstunni ef Króatar og Slóvenar ná sinu fram. „Fari herinn erum við búin að vera. Króatar munu gera út af við okkur“, hefur breska dag- blaðið The Daily Telegraph eftir Branko, 35 ára Serba sem býr í bænum Glina. „Herinn hefur hins vegar fullvissað okkur um að hann fari hvergi.“ Króatinn Gordan telur einnig að herinn verði um kyrrt, en viðhorf hans eru allt önnur: „Ég held að her- inn verið áfram. Hann er að vernda hermdarverkamennina. Gamla fyrirkomulagið getur ekki haldist lengur, en ég sé enga lausn á málinu. Þetta ástand mun vara í marga mánuði a.m.k." Hinn djúpstæði ágreiningur á milli Serba og Króata lýsir sér e.t.v. best í orðum sem Reuters- fréttastofan hefur eftir gömlum Króata: „Allir Serbar eru komm- únistar og þeir vilja ekki sleppa tökum á fortíðinni. Þess vegna telja þeir. það ekki eftir sér að drepa okkur.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.