Morgunblaðið - 03.07.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991
17
Morgunblaðið/Bjami
Margrét leiðbeinir sundlaugargesti á Seltjarnarnesi.
Selljarnarneslaug:
Leiðsögn í sundi,
hlaupi og göngu
BÆJARSTJÓRN Selljarnarness hefur tekið upp á þeirri nýbreytni
að bjóða sundlaugargestum á Seltjarnarnesi upp á fría leiðsögn í
sundíþróttinni. Sú sem ráðin hefur verið til þessa starfs heitir Margr-
ét Jónsdóttir en hún hefur í sex ár stjórnað klúbbi sem trimmar
þrisvar sinnum á viku í nágrenni laugarinnar. Hún sljórnar einnig
gönguklúbbi sem hittist tvisvar sinnum í viku við Seltjarnarneslaug.
Margrét er íþróttakennari að mennt.
„Ég var búin að ganga með þenn-
an draum í maganum lengi áður
en ég ákvað að skrifa bæjarstjórn-
inni og vita hvernig þeim litist á
þá hugmynd að ráða manneskju til
að aðstoða fólk við laugina og
stjórna trimmklúbbnum og göngu-
klúbbnum. Svarið barst í maímán-
uði og í júní var byijað að veita
leiðsögn við laugina,“ sagði Margr-
ét Jónsdóttir í samtali við Morgun-
blaðið. „Fyrirkomulagið hefur verið
þannig að ég hef útbúið tímatöflu
fyrir hverja viku og hengi hana
frammi svo fólk geti séð hvenær
ég verð til aðstoðar við laugina.
Hingað til hefur ekki verið nein
sérstök regla á viðverunni en ég
reyni að koma á sem flestum tímum
dags, snemma á morgnana, eftirm-
iðdaginn og kvöldin, til þess að ná
sem fiestum. Svona verður þetta í
þá þrjá mánuði sem tilraunin stend-
ur yfir, í júní, júlí, seinni hluta ág-
ústmánuðar og byijun september
en þá verður tekin ákvörðun um
áframhaldandi starfsemi."
„Við höfum ekki farið út í að
auglýsa aðstoðina en segjum stund-
um frá henni hérna í hátalarakerf-
inu. Engu að síður er töluvert um
að fólk leiti aðstoðar og ég reyni
eftir bestu getu að laga sundtök,
kenna ný sundtök og leiðbeina því
í ýmsum málum. Skemmtilegast
finnst mér að fylgjast með eldra
fólkinu. Það tekur ákaflega vel leið-
sögn og fer hratt fram,“ sagði
Margi’ét og bætti við að afar vin-
sælt væri að læra skriðsund. Hún
sagði að Heilsugæslustöðinni hefði
litist mjög vel á tiltækið og vísaði
til hennar fólki sem þyrfti á endur
hæfingu að halda. „Ég leggg líka
áherslu á að hér er um fyrirbyggj-
andi aðstoð að ræða s.s. að hvetja
fólk til að notfæra sér sundið sem
Iíkamsrækt.“
í samtalinu við Margréti kom
fram að hún væri með hugmyndir
um sundleikfimi fyrir eldri borgara
í lauginni en einnig að hleypa af
stokkunum sundnámskeiði fyrir þá
sem ekki kynnu að synda. Ekki
hefur endanlega verið ákveðið hvort
eða hvenær af þessu verður.
40 til 50 manns taka í hverri
viku þátt í trimmklúbbnum sem
hleypur 3 sinnum í viku, á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 17.30
og laugardögum kl. 11.30, í göngu-
hópnum, sem hittist á mánudögum
og fímmtudögum, eru 15 til 20
konur. Eftir hlaupið eða gönguna
fara flestir þátttakendur í laugina.
Þess má geta að þeir sem koma
nýjir í trimmklúbbin fá _ sérstaka
aðstoð hjá Margréti. Á undan
hlaupinu stjórnar hún upphitun en
teygjum á eftir.
-------M-t---------
■ MORGUNBLADINU hefur bo-
rist eftirfarandi ályktun frá Búnað-
arfélagi Auðkúluhrepps. „Aðal-
fundur Búnaðarfélags Auðkúlu-
hrepps, haldinn að Hrafnabjörgum
20. júní 1991, beinir þeim eindregnu
tilmælum til stjórnvalda og sö-
lusamtaka landbúnaðarins að haldið
verði áfram á þeirri braut að upp-
lýsa þjóðina um ágæti og hollustu
íslenskra landbúnaðafurða. Beita
verður markvissum áróðri til að
eyða þeim misskilningi sem alltof
stór hluti þjóðarinnar er haldinn,
að gosdrykkir séu hollari en mjólk.
Jafnframt verði auknu fé varið til
kynningar á lambakjöti innanlands
og vöruþróun aukin á því sviði.
Verði þar höfð hliðsjón af þeim
árangri sem náðst hefur í vöruþróun
mjólkurafurða."
CADILLAC SEDAH DE VILLE, ÁRG. 1990
Þessi einstaki, virðulegi og ríkulega búni eðalvagn er til sölu,
ekinn 25.000 km. Dökkvínrauður. Framhjóladrifinn, leðurinnrétt-
ing, rafmagn í öllu, hraðastýring o.fl. o.fl. Vél V8 4,5 I.
Verðhugmynd kr. 3,6 millj. (kostar nýr 4,5 millj.). Mögul. að taka
bifreið, helst jeppa, að verðmæti 1,5-2,0 millj. upp í kaupverðið.
Nánari upplýsingar í síma 666631.
1. Hjólaskautar, stærðir 29-39 kr. 3.500
Hjólabretti, lausar skrúfur lf. 3.490
2. Hjólabretti, sverð og slanga kr. 2.000
Hjólabretti, San Diego kr. 4.900
Hjólabretti, Edips kr. 4.900
Varahlutir og viðgerOir.
Vandið valið og verslið í Markinu.
Símor 35320 48RRiS0
3. Hjólabrettaplata, Speedent kr. 2.300
Hjólabrettahjólmar, verð fró kr. 990
Hné- og olnbogahlífar, verð fró kr. 400
Stór hjólabretti, Skate Rats kr. 1.990
Skate Rats með músik kr. 2.700
Auk Dess mikið úrval af hjólabrettuui, hlífui,
dekkjum, legum, sandpappír og
öllum hjólabrettavarahlutum.
Hjólabrettabúðin
444R
O
Hvad á
Upplýsingabæklingur liggur frammi í lyfjabúðum,
læknastofum, heilsugæslustöðvum og víðar.
ég að borga
fyrir lyfin?
TRYGGINGASTOFNUN S±7 RÍKISINS
ARGUS/SlA