Morgunblaðið - 03.07.1991, Page 21

Morgunblaðið - 03.07.1991, Page 21
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991 21 ffcripiitiM&Mfo Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjðra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakurh.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstraeti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Sameiginlegir hagsmunir Athyglisvert viðtal birtist við Willy Brandt, fyrrum kanslara Vestur-Þýzkalands, í Morgunblaðinu í gær, en Brandt hefur verið hér í heim- sókn undanfarna daga. í við- tali þessu er þýzki stjórnmála- leiðtoginn spurður, hvort eitt- hvað sé til, sem kalla mætti heimspeki Brandts. Svar Willy Brandts var svohljóðandi: „Ég komst að því mjög snemma, að í fyrsta lagi eru aðstæður í pólitík nánast aldrei slíkar, að engra kosta sé völ. í öðru lagi, að það er árangursríkt að leggja áherzlu á sameigin- lega hagsmuni. Þeir eru til, jafnvel í þeim tilvikum, þegar maður efast um það.“ Þessi ummæli hins lífs- reynda þýzka stjórnmála- manns eru íhugunarefni fyrir okkur íslendinga. Sundurlyndi hefur löngum einkennt þetta litla þjóðfélag. Nú eru á döf- inni óvenju mörg málefni, sem geta skipt sköpum fyrir fram- tíð þjóðarinnar og hörð átök standa um eða eiga eftir að standa um. Við getum ekki hörfað undan þeim verkefnum og viðfangsefnum, sem við okkur blasa. Meirihlutinn hveiju sinni má heldur ekki ryðjast áfram án þess að taka sanngjarnt tillit til minnihlut- ans. Þetta er þjóðfélag, sem framar öðru hlýtur að byggj- ast á málamiðlun. Átökin um fiskveiðistefn- una eiga eftir að harðna mjög o g deilurnar eiga eftir að verða illvígari. Samt er kjarni máls- ins sá, að ágreiningur um þetta grundvallarmál verður ekki leystur nema með málam- iðlun. Það verður engri skyn- samlegri fiskveiðistefnu komið í framkvæmd, nema hún njóti stuðnings útgerðarmanna og sjómanna en útgerðarmenn komast aldrei upp með óbreytt kerfi. í þessu stóra máli eigum við að leggja áherzlu á sam- eiginlega hagsmuni okkar og leita að þeim leiðum til málam- iðlunar, sem áreiðanlega eru fyrir hendi. Átökin milli þéttbýlis og dreifbýlis eiga eftir að verða erfiðari en þau eru í dag. Landsbyggðinni finnst á sig hallað. Skattgreiðendur í þétt- býli telja sig bera of þunga skattbyrði vegna landsbyggð- arinnar. Það eru sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar að byggja landið allt en um leið að byggðinni verði komið fyrir á hagkvæmari hátt en nú er. Einnig í þessu máli eigum við að leggja áherzlu á sameigin- lega hagsmuni, þegar við leit- um leiða til sátta milli dreifbýl- is og þéttbýlis. Átökin um ríkisíjármálin eiga eftir að verða mikil, ef og þegar núverandi ríkisstjórn leggur fram __ niðurskurðartil- lögur sínar. Átökin um land- búnaðarstefnuna eiga eftir að verða hörð, þegar og ef núver- andi ríkisstjórn horfist í augu við óhjákvæmilegan niður- skurð á íjármunum til land- búnaðarins. Það er að draga til úrslita í svo mörgum stórum málum, hvort sem er í atvinnu- málum eða í öðrum málaflokk- um, að þessi áratugur hlýtur óhjákvæmilega að einkennast af harðari deilum á vettvangi stjórnmálanna en við höfum verið vitni að í langan tíma. Þá er hollt að hafa í huga ráðleggingar Willy Brandts að í stjórnmálum séu aðstæður „nánast aldrei slíkar að engra kosta sé völ“ og að það sé „árangursríkt að leggja áherzlu á sameiginlega hags- muni“. Vel má vera, að í mörg- um þeim málaflokkum, sem á döfinni verða á næstu árum sé óhjákvæmilegt að skerist í odda vegna þess, að ella náist enginn árangur. En þegar upp er staðið hlýtur þetta fámenna samfélag þó að byggjast á raunhæfri málamiðlun á milli hinna ólíku hagsmuna. Að undanförnu hafa birzt hér í blaðinu eftirtektarverðar greinar, sem m.a. hafa snúizt um hlutverk Sjálfstæðis- flokksins í íslenzku þjóðlífi. Greinarhöfundar sjá það frá mismunandi sjónarhornum. En veigamesta hlutverk Sjálf- stæðisflokksins hlýtur að vera að skapa vettvang fyrir þessa málamiðlun. Innan þess stjórnmálaflokks er að finna alla helztu hagsmunahópa í samfélagi okkar. Þess vegna m.a. beinist athygli manna í mjög ríkum mæli að Sjálf- stæðisflokknum og því, sem gerist innan hans. Þar er að finna lykilinn að lausn margra helztu viðfangsefna næstu ára - ef vilji er fyrir hendi. Annríki hjá Tryggingastofnun vegna nýrra reglna um lyfjakostnað: Áður útgefin lyfjaskírteini gilda allt til loka þessa árs ÝMISLEGS misskilnings virðist hafa gætt hjá almeiiningi vegna gildistöku nýrrar reglugerðar um þátttöku almannatrygginga í lyfjakostnaði, sem tók gildi á mánudag. Að sögn Astu Ragn- heiðar Jóhannesdóttur, deildar- stjóra hjá Tryggingastofnun, hefur borið á því að fólk heldur sig eiga að koma í Trygginga- stofnun til að fá útgefin lyfjaskír- teini. Þess er ekki þörf að sögn Astu. Læknar sjá um að sækja Ráðstefnugestir í skoðunarferð í skógræktinni í Haukadal. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Laugarvatn: Skógrækt í köldu loftslagi rædd á alþjóðlegri vísindaráðstefnu Selfossi. „VIÐ teljum þetta mesta viðburð hingað til að fá svo marga heims- þekkta vísindamenn hingað til að fjalla um grundvallarspurningar varð- andi skógrækt," sagði Sigurður Blöndal fyrrum skógræktarstjóri um ráðstefnu sem fram fór á Laugarvatni og fjallaði um skógrækt í köldu loftslagi. Ráðstefnuna sóttu þekktir vísindamenn víða að úr heiminum. Að sögn skipuleggjenda ráðstefnunnar er þetta fyrsta ráðstefnan sem fjallar um málefnið, ræktun tijáa í köldu loftslagi. Ráðstefnan var haldin að frum- kvæði Frank H. Lockyear og samtak- anna Ree tree International sem hafa að markmiði að auka skógrækt í heiminum. Ráðstefnan fékk styrki frá vísindasjóði NATO og samstarfs- nefnd um norrænar skógræktarrann- sóknir. Ráðstefnan stóð yfir dagana 18.-23. júní og á henni fluttu vísinda- mennirnir erindi um rannsóknir sínar og ræddu grundvallarspurningar varðandi skógrækt frá mörgum sjón- arhomum. Reynsla hvers og eins nýtist öðrum „Verkefnið var að ræða vandamál varðandi ræktun skóga í köldu lofts- lagi, hátt yfír sjávarmáli," sagði Robert Weelon einn skipuleggjenda ráðstefnunnar og starfsmaður Ree Tree-samtakanna. „Við reynum að fínna lausn á vandanum varðandi ræktun, hvaða tegundir geta þrifist og hvemig má þróa fram tegundir sem það geta. Vísindamennirnir á ráðstefnunni hafa allir mismunandi sérgreinar og voru boðnir til hennar vegna þessarar sérþekkingar. Þeir kynntu rannsóknir sínar á ráðstefn- unni, hver í sinni grein, og einnig áform sín um áframhaldandi rann- sóknir. Markmið NATO með því að styrkja þessa ráðstefnu er að sam- eina þessa vísindamenn og fá þá til að skiptast á skoðunum með það í huga að reynsla hvers og eins nýtist öðrum í þeirra vinnu og dreifa þann- ig þekkingunni um heiminn," sagði Robert Weelon. Kynni leiða til lausna Max Hagman frá Finnlandi sem starfaði í undirbúningsnefndinni sagði menn hitta fólk með sömu áhugamál og fá upplýsingar sem ekki hefðu fengist áður. „Maður kynnist nýju fólki, eignast vini og getur spurt þá um ýmis atriði og kemst að því að aðrir eru líka að fást við sams konar vandamál og maður sjálfur og það getur leitt til lausna," sagði Max Hagman. John Alden frá Bandaríkjunum sem var höfundur dagskrár ráðstefn- unnar sagði að reynt hefði verið að stefna saman mikilli þekkingu og einangra þá þætti sem takmörkuðu vöxt tijáa á köldum svæðum hátt yfir sjávarmáli. Hann kvaðst mjög ánægður með ráðstefnuna, fyrirhug- að hefði verið að fá fleiri þátttakend- ur en náðst hefði að fylla fjóra daga með fyrirlestrum sem væri mjög gott. Sören Odum frá Danmörku og Laugarvatn: Hér vaxa tré til framtíðar Selfossi. „ÍSLENDINGAR hafa veið áhuga- samir um að endurnýja skóga sína. Það var fyrir 12-13 árum sem við fengum áhuga á Islandi varðandi skógrækt,“ sagði Frank Lockyear forseti Ree Tree-samtakanna sem eru alþjóðleg og hafa endurheimt skóga heimsins að markmiði. Eitt af kjörorðum þeirra er: Framtíðin er í þínum höndum. Innan samtakanna er lögð mikil áhersla á að börn og unglingar fái að kynnast ræktunarstarfi og hversu það sé mikilvægt að skógar fái að vaxa. i Frank Loekyear sagði að það væri ánægjulegt hversu langt íslendingar hefðu náð í plöntun trjáa. „Hér vaxa tré til framtíðarinnar til hagsbóta fyrir allan heiminn,“ sagði Frank. Robert Weelon starfaði að skipu- lagningu ráðstefnunnar fyrir Frank Lockyear og Ree Tree-samtökin. Hann sagði það stefnumið samtak- anna að auka áhuga barna og ungl- inga fyrir gróðursetningu tijáa. Ree Tree væri alþjóðleg stofnun sem ekki væri rekin í ágóðaskyni en einbeitti sér að því að fá fólk, einkum ungt fólk, til að rækta skóg og hugsa um hann. Mikið væri unnið með skátum og skólabömum í þessum efnum. Börnin fengju fræðslu um trén og hvernig ætti að planta þeim. Útplönt- un færi svo fram í nágrenni við heim- ili þeirra þannig að þau gætu fylgst með tijánum sem sinni eign. „Þetta hjálpar framtíðarfólki að skilja gildi skóga.“ Morgunblaðið/Sig. Jóns. Frank Lockyear og Vigdís forseti ásamt börnunum að lokinni gróður- setningu. Robert sagði mikinn áhuga meðal fólks um ræktun tijáa en það tæki oft nokkurn tíma að koma á hugarf- arsbreytingum og svo væri einnig í þessu efni en það kæmi smátt og smátt. Hann sagði Lionshreyfinguna hafa sýnt þessu verkefni mikinn áhuga. „Við lítum svo á að þessi ráðstefna hér á íslandi sé sáðkom hreyfingar- innar og að framhaldið ráðist síðan’ af því hver áhrif hennar verða,“ sagði Robert. í lok ráðstefnunnar plöntuðu börn á Laugarvatni tvö þúsund tijám ásamt vísindamönnunum á ráðstefn- unni og Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands heimsótti staðinn og tók þátt í gróðursetningunni. Áður en gróðursetningin hófst sagði Frank Lockyear meðal ann- ars:„Við plöntum ttjám í nafni alls þess fólks sem lifað hefur á íslandi. Við plöntum ttjánum fyrir framtíðina og það er fátt jafn stórt og mikil- vægt og aðgerð sem þessi, að gróður- setja tré.“ Sig. Jóns. einn skipuleggjenda ráðstefnunnar sagði að fagfólk fengi með henni tækifæri til að hitta hvert annað. Það hefði rnikla þýðingu að geta skipst á skoðunum og fengið að kynnast nýjum hugmyndum. Hann sagði að skógræktin á íslandi væri það ung að hér væri unnt að sjá hvernig hún hefði gengið frá upp- hafi og hans skoðun væri sú að rétt skógræktarstefna hefði verið sett fram af skógræktarmönnum. Kemur okkur inn á kortið „Þessi _ ráðstefna getur orðið til þess að ísland komist inn á skóg- ræktarkortið,“ sagði Sigurður Blönd- al fyrrum skógræktarstjóri og for- maður íslensku nefndarinnar sem skipulagði ráðstefnuna. „Þetta eykur skilning okkar og það er ómetanlegt að komast í samband við þessa menn og slík sambönd eru varanleg og mikils virði. Við eigum Frank Lockyear ráðstefnuna að þakka. Hann skrifaði landbúnaðarráðherra 1986 varðandi þetta og síðan feng- ust styrkir frá vísindasjóði NATO og samstarfsnefnd um norrænar skóg- ræktarrannsóknir." Sigurður sagði að allir fyrirlestr- arnir yrðu gefnir út óg að áhrif ráð- stefnunnar myndu koma fram síðar þegar menn færu að tileinka sér þekkinguna og nýta sér samböndin við vísindamennina. Sameinast gegn sitkalús Guðmundur Halldórsson doktor í skordýrafræðum glímir við vandamál vegna sitkagrenilúsarinnar. Á ráð- stefnunni hitti hann Don Durcan prófessor í efnafræði frá Kaliforníu í Bandaríkjunum sem vann að lausn svipaðra vandamála. Guðmundur sagði rannsóknir Don Durcans koma inn á sitt svið því sitkalúsin væri háð efnasamsetningunni í tijánum. „Það er gaman að geta orðið að liði, þetta er flókið vandamál sem þarf marga til að leysa. Það er þýðingarmikið að geta rætt málið og fundið lausn,“ sagði Don Durcan prófessor. Hér er lagt í púkkið með okkur Jón Loftsson skógræktarstjóri sagði að á ráðstefnunni væru vísinda- menn sem væru í forystu í heiminum hver á sínu sviði. „Og þeir koma okkur kyrfilega inn á kortið í þessum efnum. Við höfum verið í samstarfi við Norðurlöndin í skógræktarmálum en komumst nú í víðara samhengi. Hér leggja menn í púkkið með okkar tilraunaáformum. Það hafa margar nýjar tilraunir verið kynntai' á ráð- stefnunni í fyrsta skipti þannig að hún hefur mikið gildi. Þetta er vítamínsprauta fyrir skógræktar- menn,“ sagði Jón. Vísindamennirnir fóru í skoðunar- ferðir um Suðurland og Borgarfjörð þar sem þeir skoðuðu skógræktar- svæði sem ræktuð eru við mismun- andi aðstæður. — Sig. Jóns. um lyfjaskírteini fyrir fólk, sem þarf á þeim að halda, og þau eru send heim. Áður útgefin lyfja- skírteini, sem renna áttu út 1. júlí 1991 eða síðar, gilda til árs- loka. Mikið annríki var hjá Trygginga- stofnun ríkisins og hjá læknum á mánudag vegna gildistöku nýju reglugerðarinnar. Einnig var mikið um fyrirspurnir í apótekum. Að sögn Ástu Ragnheiðar hringdi fjöldi manns í Tryggingastofnun og spurði út í ýmis atriði hinnar nýju reglugerðar. Þá kom margt fólk einnig á skrifstofur stofnunarinnar, þar sem það hélt að því bæri að sækja þangað lyíjaskírteini. Ásta Ragnheiður sagði að marg- ir virtust líka halda að allir ættu að fá lyfjaskírteini í hendur. Svo væri alls ekki, heldur væru nýju skírteinin aðeins ætluð fólki með hjartasjúkdóma, astma og skjald- kirtilssjúkdóma. Nýja reglugerðin er nokkuð flók- in, og til þess að skýra hana nánar fyrir starfsfólki í heilbrigðisstéttum var því fenginn í hendur bæklingur frá Ti-yggingastofnun í gær. Starfs- fólk í apótekum fær einnig einfald- aða útgáfu reglugerðarinnar í hend- ur. Bæklingur fyrir almenning ligg- ur nú þegar frammi í apótekum, heilsugæzlustöðvum, á sjúkrahús- um og læknastofnum. Þá hefur Tryggingastofnun gefið út vegg- spjald, sem bendir fólki á bækling- inn og upplýsingar í honum. Apótekarafélag íslands, sem andmælt hefur hinni nýju reglu- gerð, dreifði á mánudag bréfmiða með öllum lyfjum, sem keypt voru í lyfjabúðum. Á honum segir meðal annars: „Heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytið hefur sett þessa reglu- gerð án samráðs við lækna, lyíja- fræðinga eða samtök sjúklinga. Við vísum því á ráðuneytið, sími 609700, um svör við almennum spurningum um ástæður þessara víðtæku breytinga. Apótekin munu að sjálfsögðu veita upplýsingar um rétt einstaklinga samkvæmt þessari nýju reglugerð." Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra sagði á blaða- mannafundi í gær að sér kæmu þessi viðbrögð apótekara á óvart, þar sem starfshópurinn, er samdi reglugerðina, hefði óskað tillagna frá bæði læknum og lyfsölum. Auk- inheldur hefðu fjórir lyfjafræðingar og tveir læknar setið í starfshópn- um. Sighvatur sagði að reglugerðin væri fyrsta skrefíð til þess að lækka lyfjakostnað, sem væri mun meiri á Islandi en í nágrannalöndunum. Næst yrði almannatryggingalögum breytt þannig að almenningur greiddi ákveðið hlutfall lyfjaverðs, en ekki fasta greiðslu eins og nú tíðkast. Þá þyrfti einnig að breyta fyrikomulagi lyfsölu. Sighvatur sagðist ekki hafa trú á að ríkissam- lag,' sem sæi um innkaup á lyfjum, myndi gefast vel. Kerfi fijálsrai' samkeppni hlyti að leiða til sömu niðurstöðu og annars staðar; að fólk keypti þau lyf, sem fengjust á hagstæðustu verði, og slíkt myndi leiða til almennrar verðlækkunar. Morgunblaðið/Þorkell Par Stenback. Hér hefur hann meðal annars rætt við Vigdísi Finnboga- dóttur, forseta Islands, og Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra. Framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka Rauða krossins: Yill að Islendingar auki framlag til hjálparstarfs PÁR Stenback, franikvæmdastjóri Alþjóðasambands félaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans, er hingað kominn til þess að hvetja Islendinga til að halda áfram að auka framlag sitt til hjálparstarfs á vegum samtakanna. Islendingar hafa gefið 240 miljónir til stríðshijáðra á Persaflóasvæðinu í vetur en sú upphæð er mun hærri en fjárframlög íslendinga hafa verið á undangengnum árum. í Iögum Rauða krossins segir að stefnt skuli að því að framlag landa nemi 1% af landsframleiðslu en íslendingar hafa látið 0.03% til 0.06% til hjálp- arstarfs á vegum Rauða krossins. Finnar hafa látið 1% af landsfram- leiðslu en Norðmenn og Svíar rúmlega 1%. Á blaðamannafundi, sem haldinn meðal annars vegna óvissu í efna- var í tilefni af komu framkvæmda- stjórans, kom fram að ijárþörf Rauða krossins hefði sjaldan verið meiri en einmitt nú. Sagði Pár Stenbáck að neyðaraðstoðar væri þörf á þremur svæðum. Fyrst er að telja Suður-Afríku þar sem hungursneyð er yfirvofandi í mörg- um löndum. Nefndi hann sérstak- lega Eþíópíu þar sem veitt hefur verið 2 miljarða króna aðstoð vegna hungursneyðar. í öðru og þriðja lagi nefndi hann ástandið við Persa- flóa og náttúruhamfarir í Bangla- desh. Kemur þessi þörf fyrir neyðarað- stoð á sama tíma og Alþjóðasam- bandið er að hrinda í framkvæmd tíu ára starfsáætlun fyrir tíunda áratuginn sem kallar á aukin út- gjöld sambandsins. Áætlunin felst meðal annars í því að aðstoða lands- félög Rauða krossins í mörgum þróunarlöndum við að leysa vanda á sviði heilbrigðis- og félagsmála sem skapast vegna náttúruhamfara og styijalda, hungursneyðar eða fátæktar. Áætlunina á að fram- kvæma fyrir fjárframlög frá lands- félögunum en að sögn Párs Stenbácks bendir ýmislegt til að þau séu að dragast saman í heildina, hagsmálum Austur-Evrópulanda sem undanfarin ár hafa lagt fram 15 af hundraði framlaga til rekst- urs sambandsins. í ljósi þessa hefur Stenbáck farið á fundi íslenskra stjórnvalda og hvatt þau til að halda áfram auknum stuðningi við þróun- arstarf Rauða krossins. Þá sagði hann stjórnmálamönnum frá auk- afjárveitingu ríkisstjórna Danmerk- ur, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs til Austur-Evrópu. Hann sagðist vona að Islendingar.. ættu eftir að halda sæti sínu meðal þessara þjóða með auknum framlögum til hjálpar- starfs á vegum samtakanna. I þessu sambandi sagðist hann ekki skilja í öðru en að íslendingar sem byggðu eitt af fáum löndum nátttúruhamf- ara í Norður-Evrópu fyndu til sam- kenndar með fólki sem ætti um sárt að binda vegna hamfara að þessu tagi víða úti í heimi. Framlag Islendinga til hjálpar- starfs Rauða krossins er þríþætt. I því felst neyðaraðstoð á svæðum þar sem fólk á við sárt að binda og má þar nefna svæði Kúrdista og Afganistan þar sem verið er að byggja gervilimaverksmiðju fyrir íslensk fé sem safnaðist í söfnun- inni Sól úr sorta. í öðru lagi fjár- magna íslendingar dvöl sendifull- trúa á styijaldarsvæðum en í þriðja lagi má nefna aðstoða Islendinga við stríðshijáða við Persaflóa. Upp- haflega átti sú upphæð að vera 90 miljónir en ríkisstjórnin tók ákvörð- un um að hækka hana, fyrst í 130 miljónir og seinna í 240 miljónir. Pár Stenbáck er finnskur og hef- ur gegnt framkvæmdastjórástöðu Alþjóðasambandsins um nokkurra ára skeið. Áður en hann gerðist framkvæmdastjóri finnska Rauða krossins var hann stjórnmálamaður gegndi meðal annars embætti menntamálaráðherra (1979-1982) og utanríkisráðherra (1982-1983) í heimalandi sínu. Hann á einnig langan feril að baki sem blaða- og sjónvarpsfréttamaður. Arneshreppur: Viðgerð á smá- bátabryggju Árneshrepp. í ÁRNESHREPPI stendur nú yfir viðgerð á smábátabryggju við Norðurfjörð og á Gjögri. Að sögn sveitarstjóra Árnes- hrepps eru viðgerðir þessar löngu tímabærar. Bryggjurnar eru notað- ar af smábátaeigendum í hreppnum sem stunda grásleppu og handfæri. Áætlað er að viðgerðin kosti um 6 milljónir króna. - V. Hansen. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Gjöf frá niðjum Jóns E. Bergsveinssonar AFKOMENDURUR Jóns E. Bergsveinssonar, erindreka Slysavarn- arfélags Islands, gáfu andlitsmynd af honum til Listasafns Sigur- jóns Olafssonar í gær. Andlitsmyndin var gefin safninu í tilefni þess að þann 27. júní sl. voru liðin 112 ár frá fæðingu Jóns E Bergsveinssonar en þessi gifsmynd var unnin af Sigurjóni Olafs- syniá árunum 1949 - 1954. Þessi gifsmynd af Jóni E. Berg- sveinssyni er frummyndin og hefur hún til þessa verið heima hjá einum afkomenda Jóns. En bronsafsteypa myndarinnar er geymd á skrifstofu Slysavarnarfélags íslands. Með afhendingu gifsmyndarinnar til Listasafns Siguijóns Ólafssonar telja eftirlifandi börn og tengda- börn Jóns verkið vera komið á þann stað sem því ber, þar sem það kemur fyrir almenningssjónir. Frú Birgitta Spur tók við verkinu fyrir hönd safnsins og þakkaði hún aðstandendum Jóns E Bergsveins- sonar fyrir þessa gjöf og hlýhug til safnsins. Kom fram í rnáli henn- ar að vel færi á því að þessi gjöf bætist við safnið núna þar sem nú standi yfir yfirlitssýning á andlits- myndum Siguijóns. Jón E. Bergsveinsson var fædd- ur 27,'júní 1879 og lést 17. des- ember 1954, 75 ára að aldri. Hann Morgunblaðið/Árni Sæberg Afkomendur Jóns E. Bergsveinssonar og frú Birgitta Spur, forsvars- maður Listasafns Siguijóns Ólafssonar, ásamt gifsmyndinni af Jóni E. Bergsveinssyni. var einn af aðalhvatamönnum að stofnun Slysavarnarfélags Islands og erindreki þess frá upphafi og var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf að björgunarmálum. Jón var kvæntur Ástríð M Eggertsdóttir og eignuðust þau 10 börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.