Morgunblaðið - 03.07.1991, Blaðsíða 40
RISC SYSTEM/6000 % ir ir jk* é&l — svo vel
KEYRIR UNIX ujfíl sétryggt j
FRAMTÍÐARINNAR: IIÍIl IIMlllölllMI Híli
IBM AIX SJÚVáðluMENNAB
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
25 flótta-
menn koma
til landsins
á morgnn
TUTTUGU og fimm víetnamskir
flóttamenn koma til landsins
fimmtudaginn 4. júlí. I hópnum
eru 15 fullorðnir og 10 börn en 9
þeirra eru á aldrinum 1 til 5 ára.
Bára Snæfeld, starfsmaður Rauða
krossins, segir að búið sé að út-
vega Víetnömunum húsnæði en
enn vanti nokkuð af húsbúnaði,
meðal annars rúm fyrir yngstu
börnin, sófasett, kommóður og
skápa. Víetnamarnir hafa að und-
anförnu dvalið í flóttamannabúð-
um í Hong Kong.
Bára sagði að fyrsta vika flótta-
-*mannanna á íslandi færi í að kynn-
ast landi og þjóð en reiknað er með
að íslenskunámskeið fyrir flótta-
mennina hefjist um miðjan mánuðinn
og standi yfír fram á næsta vor.
Sennilega fara einhveijir úr hópnum
í hálfsdagsvinnu strax í haust, að
sögn Báru. Fólkið var valið úr hópi
flóttamanna í flóttamannabúðum í
Hong Kong í lok apríl.
Fyrstu víetnömsku flóttamennirn-
ir komu til íslands árið 1979. í þeim
hópi voru 34 einstaklingar, fullorðnir
-^og börn. í hitteðfyrra tókst sam-
komulag um að taka við 60 Víetnöm-
um til viðbótar og kom helmingurinn
í fyrra. I ár var ætlunin að taka á
móti 30 flóttamönnum en ein fjöl-
skylda féll úr.
Um 90 víetnamskir fíóttamenn eru
nú búsettir á íslandi. í þessum hópi
eru þeir Víetnamar sem tekið var á
móti 1979 og 1990 auk ættingja
þeirra sem flutt hafa til landsins.
--------------------
Hveragerði:
Hálsbrotnaði
er dekksprakk
■J* Vörubifreiðastjóri slasaðist illa
er hann var að bæta lofti í fram-
dekk bíls síns í Hveragerði á
mánudagskvöld. Dekkið sprakk,
maðurinn kastaðist til þannig að
hálsliðir brotndðu, hann fór úr liði
á olnboga og marðist nokkuð.
Að sögn lögreglu sprakk sjálfur
hjólbarðinn, sem var slöngulaus og
því ekki gjarðir á felgunni. Við loft-
þrýstinginn af sprengingunni kastað-
ist maðurinn frá hjóli bílsins með
fyrrgreindum afleiðingum.
Atburðurinn átti sér stað um
kvöldmatarleytið á mánudag. Maður-
inn var fluttur á slysadeild Borg-
arspítalans. Þar var hann enn í gær
og að sögn lögreglu var hann ekki
^alinn í lífshættu, þótt hann væri
mikið meiddur.
------t-4-t----
Hitametið var
í hættu í gær
MIKILL hiti mældist víða um land
í gær og munaði mjóu að gamalt
hitamet frá því í júní árið 1939
yrði slegið en þá mældist hiti 30,2
stig á Kirkjubæjarklaustri. I gær
komst hitinn mest í 29,2 stig, einn-
ig á Klaustri og er það heitasti
^dagurinn það sem af er sumri.
\ Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu íslands var úrkoma vart telj-
anleg í gær. Hiti varð mestur á þeim
svæðum þar sem blés af landi eða
vel, yfir 20 gráður.
í nýliðnum júnímánuði mældust
295 sólskinsstundir í Reykjavík og
hafa ekki mælst fleiri í 63 ár. A
Hveravöllum mældust 308,4 stundir
‘ Og hafa ekki orðið fleiri í júní þar
síðan mælingar hófust 1964.
Morgunblaðið/Ingvar
Vegagerð í Laugardal mótmælt
Um það bil 10 manna hópur efndi í gær til mót-
mælaaðgerða gegn vegagerð í Laugardal. Fólkið
tjaldaði fyrir framan vinnuvélar og neitaði að víkja
og hafði að auki mótmælaspjöld á lofti. Verkstjóri
vinnuflokksins ákvað að hætta vinnu dagsins fyrr
en áætlað hafði verið og lét fólkið þá af aðgerðum
sínum að ósk lögreglu, sem tók niður tjaldið.
Mótmælendur fóru af staðnum við svo búið.
Náttúruverndarráð:
Geysisgos
selt á 120
þúsund kr.
Náttúruverndarráð hefur
ákveðið að gefa allt að fjórum
aðilum kost á að standa fyrir
gosi í Geysi í sumar. Gjald fyrir
hvert gos er 120 þús. kr. og mun
renna til uppbyggingar svæðisins.
Náttúruverndarráð hefurtekið við
umsjón Geysissvæðisins úr höndum
Geysisnefndar. Hefur verið ákveðið
að heimila að komið verði af stað,
með sápu, allt að sex gosum í Geysi
í sumar. Mun ráðið sjálft sjá um tvö
gosanna, laugardaginn 13. júlí og
laugardaginn 3. ágúst kl. 15.
Að sögn Guðríðar Þorvarðardótt-
ur hjá Náttúruverndarráði verður
að líða ákveðinn tími milli gosa.
Verða þeir sem vilja kaupa gos að
hafa samband við skrifstofu Nátt-
úruverndarráðs með fímm daga fyr-
irvara. „Ég býst ekki við að hægt
verði að koma fyrir gosi milli gps-
anna sem Náttúruverndarráð hyggst
standa að. Það veltur á hvemig til
tekst 13. júlí,“ sagði hún.
Skýrsla Enskilda um íslenskan hlutabréfamarkað:
Eitt verðbréfaþing' skrái öll
viðskipti o g verð á niarkaði
Hertar reglur um innherja og yfirtöku
MIÐLÆGUR hlutabréfamarkað-
ur, þar sem viðskipti og verð eru
skráð á einum stað, er eitt af
skilyrðum þess að þróun isiensks
fjármagnsmarkaðar geti orðið
með eðiilegum hætti. Herða þarf
eftirlit með viðskiptum innherja,
banna kaup fyrirtækja á eigin
hlutabréfum og setja reglur um
yfirtöku. Þetta er hluti af tillög-
um Enskilda ráðgjafafyrirtækis-
ins í skýrslu sem það hefur unnið
að beiðni Seðlabanka íslands,
Iðnþróunarsjóðs og Verslunar-
ráðs Islands. Skýrslan verður birt
á fundi á Hótel Sögu í dag.
Ráðgjafarnir vilja láta banna
hlutafélögum að kaupa eigin bréf
og skerða svigrúm stjórnenda til
viðskipta með hluti í eigin fyrirtækj-
um. Einnig verði hertar reglur um
yfirtöku fyrirtækja og kaup stofn-
ana eða stærri aðila á hlutabréfum.
Enskilda telur rétt að skylda að-
ila sem hefur eignast 33,3% hlut í
fyrirtæki að gera bindandi tilboð í
bréf allra hluthafa. Jafnframt telja
ráðgjafarnir að fyrirtæki, sjóðir eða
stofnanir eigi ekki að skipa fulltrúa
í stjórn hlutafélaga.
I skýrslunni kemur fram gagn-
rýni á þá viðskiptahætti að verð-
bréfafyrirtæki skrái verð hluta-
bréfa, án tillits til þess hvort bréf
eru boðin til sölu eða ekki. Ráðgjaf-
arnir leggja til að verðbréfasölum
verði skylt að skrá aðeins kaup og
sölutilboð ef spurt er eftir bréfum
eða þau boðin fram. Jafnframt verði
þeir skyldaðir til þess að eiga við-
skipti með öll bréf á því verði sem
þeir skrá á markaðnum.
Enskilda vill auka hlutverk Verð-
bréfaþings íslands á markaðnum til
muna. Oll viðskipti á innlendum
hlutabréfamarkaði á að skrá á þing-
inu, auk kaup- og sölugengis. Þó
verði ekki um að ræða markað í
eiginlegri merkingu, heldur tölvu-
kerfí sem kaupendur, seljendur og
aðrir hlutaðeigandi tengjast. Al-
menningur geti einnig kynnt sér
upplýsingar um viðskipti iiðins dags
í dagblaði að morgni.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
hlutabréfamarkaði verði skipt í tvo
dilka. í þeim fyrri verði hlutabréf
stærri almenningshlutafélaga, sem
uppfylla skilyrði á meginlandi Evr-
ópu um skráningu á markaði. í síð-
ari dilknum verði hlutabréf fyrir-
tækja sem uppfylla ekki framan-
greind skilyrði. Þrátt fyrir þessa
aðgreiningu verði öll hlutabréf og
skuldabréf á innlendum markaði
skráð á sama stað.
Meðal annarra tillagna í skýrsl-
unni er að reistar verði skorður við
samvinnu stjórnenda verðbréfasjóða
og verðbréfasala sem starfa innan
sömu fyrirtækja. Einnig eigi stjóm
Verðbréfaþingsins að gefa út skýrar
reglur um hvað falli undir innheija-
viðskipti. Þar er átt við viðskipti
aðila sem hafa aðgang að betri upp-
lýsingum en almenningur, eins og
til dæmis verðbréfasala sem annast
hlutafjárútboð.
í skýrslunni er einnig að fínna
tillögur um það með hvaða hætti
megi efla Verðbréfaþingið, skipulag
þess og yfirstjóm. Lagt er til að
þingið hafi fyrst um sinn aðsetur í
Seðlabankahúsinu, en flytji þaðan
þegar það hefur náð meiri fótfestu.
Þá verði stofnað hlutafélag sem
annast rekstur miðstöðvar fyrir
verðbréfaskráninguna og heldur
hluthafaskrám fyrirtækja til haga.
Hafís nálgast landið fyrir Vestfjörðum:
Mesti hafís á þessum árs-
tíma í nær aldarfjórðung
- segir Þór Jakobsson veðurfræðingur
HAFIS rekur nú upp að landinu undan vestlægum vindum sem
ríkt hafa undanfarið. í gær kannaði flugvél Landhelgisgæslunnar,
TF-SYN, hafísinn frá Dornbanka fyrir Vestfirði að Húnaflóa og
voru þá ísdreifar um 8 sjómílur norðaustur af Geirólfsgnúp og litl-
ar rastir aðskildar frá meginísnum. Þór Jakobsson veðurfræðingur
segir þetta mjög óvenjulegt í júlímánuði og verði að leita 20 til 25
ár aftur í tímann eftir hafís svo nærri landi í þessum mánuði. Sigl-
ingaleið er talin varasöm vestur fyrir landið, en þó ekki ófær.
Þór sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að samkvæmt fímm
daga spá megi gera ráð fyrir að
vestlæg átt verði áfram á þessum
slóðum og því sé ekki mikil von
til að ísinn fjarlægist á ný. Hann
sagði að hlýr sjór norður af land-
inu, 4-6 gráða heitur, ynni gegn
ísnum.
Snúist vindur til norðanáttar
eftir vestanvindinn næstu daga,
eru líkur á að ísinn verði landfast-
ur við Vestfirði eða Húnaflóann.
Þó sagði Þór að það yrðu væntan-
lega spangir sem losnuðu frá meg-
inísnum, þannig að hægt yrði að
sigla norður fyrir.
Veðurstofan hefur ráðlagt skip-
stjómarmönnum skemmtiferða-
skipa sem hyggjast sigla vestur
um land að fara austur fyrir frá
og með deginum í dag, þar sem
siglingaleiðin er varasöm, einkum
fyrir þau skip sem fara lengra
norður og til Svalbarða. Eitt skip
fór þó í gær vestur fyrir.
Þór Jakobsson sagði að þótt sigl-
ingaleiðin teljist ekki ófær nú fyrir
kunnuga skipstjórnendur, þá sé
hún varasöm og full ástæða til að
fara með gát, þar sem stakir jakar
eru á dreif.
Meginísinn var í gær 57 sjómílur
norðvestur af Bjargtöngum, 33
mílur norðvestur af Barða og næst
25 mílur norðaustur af Horni. í
austri var hann næst landi 35 míl-
ur norður af Skagatá. ísdreifar og
litlar rastir voru utan við 12 sjómíl-
ur austur af Hornbjargi og 8 mílur
norðaustur af Geirólfsgnúp.