Morgunblaðið - 21.07.1991, Page 14

Morgunblaðið - 21.07.1991, Page 14
14 MORGUNÐLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1991 eftir Guómund Löve UMFANG verslunar meó hross hér á landi er meira en flestir gera sér grein fyrir eóa vilja vióurkenna. Heim- ildarmenn fullyróa aó langstærsti hluti innanlandssölu á hrossum sé aldrei gefinn upp til skatts, og aó þau hross sem flutt eru út séu gjarnan skráó á mun lægra verói en i raun fékkst fyrir þau. Þaó er þvi óhætt aó segja aó hestamarkaóurinn sé svartur, en hversu svartur hann er veit enginn. íðastliðin ár höfum við orðið vitni að örri þróun í hrossarækt og viðskiptum með hross. Eftir að útflutningsmarkaðirnir opnuðust á ný kring- um 1970 jukust umsvifín mjög, og nú er svo komið að álíka mikið er flutt út af hrossum og selt er innanlands. Skuggahliðin á málinu er hins vegar sú að stefnt hefur í ógæfuátt hvað varðar eðli við- skiptanna, og svo virðist sem harðnandi sam- keppni og offramboð verði þess valdandi að í síauknum mæli er gripið til vafasamra leiða til að standa vörð um afkomuna. Hér á eftir fer lausleg áætlun um hvert hið raunverulega umfang hrossaviðskiptanna gæti verið, en töl- ur þær sem hvergi eru skjalfestar eru áætlað- ar samkvæmt mati fjölmargra fagmanna úr hrossabransanum. Það er ástæða til að taka skýrt fram að hér er aðeins um matstölur og ágiskanir að ræða. Svarl Samkvæmt talningu í fyrra eru á íslandi alls um 72.000 hross. Þau eru auðvitað eins misjöfn og þau eru mörg, en meðal þeirra er að fínna ófáa gæðinga á 0,5-1,5 milljónir auk úrvals stóðhesta á allt að 25 milljónir stykkið, ef marka má kviksögumar. Verð á góðum stóð- hestum er hins vegar í kringum 3-7 milljónir. Ef hestakaup eru meðtalin má áætla að um 2.000 hestar skipti um eigendur á hverju ári Útflutningur hefur stóraukið veltu hrossaræktenda. hér innanlands, eftir því sem næst verður kom- ist. Þegar dýrustu hrossin eru tekin með í reikn- inginn má gera ráð fyrir að meðalverð þeirra sé 300.000 krónur, svo heildarveltan í hrossa- sölu landsmanna verður um 600 milljónir króna. Svo til ekkert af þessu er gefíð upp til skatts, enda hefur hið opinbera hvorki yfirlit yfir viðskiptin né möguleika á slíku. Flestir viðmælendur Morgunblaðsins telja að minna en 10% viðskiptanna fari lögformlega fram, og því má að öllum líkindum gera ráð fyrir að umfang svartamarkaðarins sé kringum 550 milljónir árlega ef þær upplýsingar standast. Arið 1990 voru fluttir út tæplega 1.700 ónir króna, samkvæmt útflutningsskýrslum. Raunin er hins vegar sú, að vegna skatta hér- lendis og hárra innflutningstolla erlendis, kem- ur hið raunverulega kaupverð hvergi fram. Þekktur hrossaræktandi hélt því fram að upp- gefíð verð á Þýskalandsmarkað væri oft á tíðum allt að þrjátíu sinnum of lágt, og flestir aðrir giskuðu á að einungis 10% til þriðjungur kaupverðs væri gefínn upp. Þar með má leiða likur að því að aðeins komi fram um fjórðung- ur raunverulegra útflutningstekna, og heildar- salan sé því um 600 milljónir á ári. Hér gætu því um 450 milljónir farið framhjá yfirvöldum á ári hveiju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.