Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 2
EFNI 2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991 Yfirvinnu- bann raskai* áætlunum YFIRVINNUBANN Sjómannafé- lags Reykjavíkur hjá hásetum á kaupskipum hefst á morgun, mánudag. Það gildir í höfnum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og hef- ur í för með sér að skip geta ekki látið úr höfn á tímabilinu frá kl. 17 til kl. 8 árdegis né um helgar. Þórður Sverrisson, framkvæmda- stjóri hjá Eimskipafélagi íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að yfirvinnubannið raskaði verulega brottfarartíma þeirra skipa sem eru í reglulegum áætlanasiglingum, þar sem þau hafi yfirleitt lagt úr höfn síðla kvölds. Um er að ræða skip sem eru í föstum áætlanasiglingum til Norðurlandanna, Evrópu, Ameríku og á ströndina, samtals átta skip. Ahrif á áætlanir stórflutningaskipa eru verulega minni. Þórður sagði að nokkurt svigrúm væri í áætlununum og reynt yrði að nota það til að mæta þessum aðgerð- um. Hins vegar væri þetta mjög bagalegt og vonandi leystist þessi deila sem fyrst. # Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Olafur Eggertsson á hafraakrinum, í baksýn er Þorvaldseyri. Góð kornuppskera á Suðurlandi: Hef ekki séð akrana svona bleika * - segir Olafur Eggertsson á Þorvaldseyri Selfossi. UPPSKERA á korni verður mjög góð í ár á Suðurlandi, um 3 tonn á hektara af mjög vel þroskuðu korni. A góðum blettum fer upp- skeran í 4-5 tonn á hektara. „Eg hef ekki séð akrana svona bleika, Uppsagnir starfsfólks á Tímanum STARFSFÓLKI Tímans var skýrt frá því á föstudag að til uppsagna þess kynni að koma vegna erfið- leika í rekstri blaðsins og þær tækju gildi um áramót. Steingrím- ur Hermannsson formaður Fram- sóknarflokksins og útgáfustjórnar Tímans segir uppsagnirnar ná til alls starfsfólks blaðsins. Vel komi til greina að aðrir en Framsóknar- flokkurinn taki við rekstri Tímans. Erfíðleikar Þjóðviljans valda mikl- um vandræðum í rekstri Tímans, að sögn Steingríms, þar sem þessi blöð hafa haft sameiginlega prentun, pökkun og dreifingu. „Sú ákvörðun ríksins að hætta að kaupa 500 blöð veldur okkur miklum erfiðleikum. Þetta er um sjö milljóna króna áfall og stefnir í verulegt tap á rekstri blaðsins." sem er vísbending um góðan þroska kornsins. Kornið i axinu er vel hart sem þýðir að fljýtlegt er að þurrka það,“ sagði Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Hann þurrkar kornið fyrir sig og aðra og þar á meðal sáðkorn með góðum árangri en ólíklegt hefur verið talið að hægt væri að ná sáð- korni af íslenskum ökrum og fá sama árangur og með erlendu komi. Tilraunir með ræktun á höfr- um gefa góðar vonir um ræktunar- möguleika. í fyna þurrkaði Ólafur 25 tonn af sáðkomi fyrir sig og aðra bænd- ur. Rannsóknarstofnun landbúnað- arins hefur fylgst með þessu starfí Ólafs og rannsakað spírun sáð- komsins. Einnig stundar stofnunin tilraunir með ýmis komafbrigði á ökrum Ólafs. Sáðkomið sem tekið er af íslenskum kornökrum gefur ekkert eftir því sáðkomi sem flutt er inn. í ár gerir Ólafur ráð fyrir að þurrka 35 tonn af sáðkorni fyrir sig og um 10 tonn fyrir aðra bænd- ur sem koma með korn af eigin ökrum til hans. „Þó svo maður þurrki útsæðiskom þarf alltaf að flytja inn kom svo ekki komi upp rýmun í stofninum auk þess sem erlendis eru aðilar sem bókstaflega rækta þetta fyrir íslenska markað- inn,“ sagði Ólafur Eggertsson. Gera má ráð fyrir að bóndi, sem tekur sáðkorn af eigin akri og fær það þurrkað hjá Ólafi, spari um 50 þúsund krónur á hvert tonn af sáð- korni. Ólafur og faðir hans Eggert eru brautryðjendur í komrækt á Suður- landi. Ólafur sáði höfmm í nokkra hektara og vel lítur út með upp- skem af þeim og jafnvel er mögu- legt að hægt sé að fá sáðkorn af þeim. Hafrarnir em mikið notaðir í fóður fyrir hross og þessi tilraun því áhugaverð. Kornræktin á Suðurlandi er í stöðugum vexti. Bygg er nú ræktað í Mýrdalnum, undir Eyjafjöllum, í Landeyjum og síðan hafa bændur í uppsveitum Árnessýslu verið að þreifa fyrir sér með kornrækt og gengið vel. - Sig. Jóns. Laugarvatn: HSK skilar umboði til landsmótshalds Laugarvatni. LANDSMÓTSNEFND Héraðs- sambandsins Skarphéðins hefur sagt af sér og stjórn HSK skilað til Ungmennafélags íslands um- boði sínu til landsmótshalds 1993. Stjóm UMFÍ heldur þó enn í þá von að geta haldið mótið á Laugar- vatni á tilskildum tíma. Landsmótsnefnd HSK tókst ekki að fá samning sem tryggir aðstöðu til landsmótshalds á Laugarvatni sumarið 1993. Eftir viðræður við bæjarstjóm Selfoss í sumar varð ljóst að tími til nauðsynlegra fram- kvæmda á Selfossi er of stuttur. Þar sem nefndin taldi undirbúnings- tímann of skamman og enn óljóst með aðstöðu til mótshaldsins skilaði hún af sér til stjómar HSK. Stjómin tekur undir álit nefndarinnar og hef- ur afhent stjóm UMFÍ umboð sitt til iandsmótshaldsins. Að sögn Jóns Jónssonar formanns HSK er stjóm sambandsins tilbúin til að endurskoða afstöðu sína komi fram einhver trygging alveg á næst- unni um að aðstaðan verði tilbúin. Þórir Haraldsson varaformaður UMFI segir enn unnið að því hjá stjóm UMFÍ að mótið verði haldið á Laugarvatni og ekki farið að skoða aðra möguleika. Hann segir afstöðu stjómvalda mjög jákvæða en tryggja verði fjármagn svo nauðsynlegar framkvæmdir geti hafist á Laugar- vatni. Kári Spítalarnir í Stykkishólmi og Hafnarfirði ekki ríkisspítalar HUGMYNDIR heilbrigðisráðuneytisins um að leggja niður skurðdeildir við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og St. Fransiskuspítala í Stykkis- hólmi hafa mælst illa fyrir hjá þingmönnum í kjördæmunum. Árni Mathiesen og Sturla Böðvarsson alþingismenn leggja álierslu á að spít- alarnir séu ekki rikisspitalar og því nauðsynlegt að ná samkomulagi um rekstur þeirra. Árni Mathiesen þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi leggur áherslu á, að einungis sé um hugmyndir heilbrigðisráðuneytisins að ræða og að þær hafi verið kynnt- ar þannig en ekki ræddar efnislega. „Spítalinn er ekki ríkisspítali og því verður að ræða allar breytingar við og í stjórn spítalans áður en þær koma til framkvæmda," sagði hann. „Endanleg ákvörðun er síðan tekin á Alþingi við afgreiðslu fjárlaganna um þáð hver fjárveiting til sþítaláns verður og þar með hver reksturinn getur orðið. Það er því ótímabært af ráðuneytinu að kynna þessar til- lögur fyrir ráðamönnum spítalans sem endanlega ákvörðun." Sagði hann að spítalinn væri mikil- vægur hiekkur í heilbrigðiskerfí Hafnarfjarðar. Hann þjónaði heilsu- gæslustöðvum og dvalarheimilum aldraðra auk þess sem hann væri vel rekinn. Það væri vitnað til þess hvað hann væri rekinn af mikilli hagsýni. „Ég mun 'þvf stánda vörðUmTíágK- muni spítalans og þeirra sem hann þjónar í dag, þegar umræðan verður tekin upp á Álþingi,“ sagði Árni. Sturla Böðvarsson fyrsti þingmað- ur Vesturlandskjördæmis sagðist eiga von á að ákvörðun heilbrigðis- ráðuneytisins verði endurskoðuð, hér væri ekki um hugmynd að ræða, heldur ákvörðun eins og stjórn St. Fransiskuspítalans voru kynntir málavextir. „Ég á von á að ákvörðun- in verði endurskoðuð," sagði Sturla. „Spítalinn er sjálfseignarstofnun og nauðsynlegt að ná samkomulagi við svona stofnanir áður en gripið er til jafn róttækrar breytingar." Sagðist hann hafa talið að fallið hafi verið frá-hugmyndinnLeftir umræður inn- an þingflokks Sjálfstæðismanna í sumar. Þá var talið að ekki yrði um raunverulegan spamað að ræða ef skurðdeildir minni landsbyggðar- sjúkrahúsa yrðu lagðar niður, vegna kostnaðarins við að flytja sjúkíingana í burtu og að koma upp aðstöðu fyr- ir þá annarS staðar, til dæmis í Reykjavík. „Svona vinnubrögð setja fjárveit- inganefnd í mikinn vanda,“ sagði Sturla, sem á sæti í nefndinni. „Þeg- ar þing kemur saman í haust standa nenfdarmenn frammi fyrir því að ekkert er hægt að gera. Þess vegna er mikilvægt að ráðuneytið vandi til- lögur og ákvarðanir sem þessar svo að fjárlaganefnd leggist ekki gegn hennir^----------:----------------- Lögmál frumskógarins? ►Nýleg aflaskerðing flotans kem- ur misþungt niður á fyrirtækjum og landshlutum. Leitað er álits flölda manna ogþeir meðal annars spurðir um hugsanlegar ráðstafan- ir gegn þeirri tekjurýrnun sem þjóðarbúið verður fyrir svo og framtíð sjávarútvegsins. /10 Sænsku kosningarnar ►Steingrímur Sigurgeirsson blaðamaður skrifar frá Stokk- hólmi. /14 Dagpeningar og risna ráðherra ► Því hefur verið haldið fram að dagpeningakerfí opinberra starfs- manna sé ferðahvetjandi því það gefí álitlega launauppbót í aðra hönd. Samkvæmt niðurstöðum at- hugunar Morgunblaðsins á málinu eru íslenskir ráðherrar í nokkurri sérstöðu hvað varðar hlutfallið milli dagpeningagreiðslna og fastra launa ráðherra. 16 Makedónía stefnir að sjálfstæði ►íbúar syðsta lýðveldis Júgó- slavíu hafa samþýkkt með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu að lýst verði yfir sjálfstæði landsins./22 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-32 Fagurt umhverfi ►Holtasel var valin fegursta gat- an í Reykjavík á þessu sumri. /14 C ► 1-32 Móðir, drós og meyja ►Arlega er fríðum hópi ungra kvenna hópað saman til að keppa innbyrðis um það hver þeirra sé fegurst. Þótt því hafí verið fleygt að fegurðin búi í augum sjáandans hafa allir lært að eitthvað eitt sé fegurra en annað. Þessi viðmið eru meðal annars viðfangsefni þessar- ar greinar og þær hugmyndir um kvenlegt eðli sem þau byggja á. /1 Rómaborg er aldrei of lofuð ►Vala Schopka er ung kona sem undanfarin ár hefur stundað nám í búninga- og tískuhönnun í Róm. Hún hefur náð góðum árangri og hér segir nánar af högum hennar í borginni eilífu. /8 Náttúrubörn í nýju landi ► Svipmyndasyrpa frá Kvik- myndahátíðinni í Montreal. /10 Mikael-fræðin ►Angi af nýöldinni eru Mikael- fræðin svokölluðu sem talið er að á fjórða hundrað manns hafí kynnt sér. Þetta fólk leggur áherslu á að hér sé ekki um trúarbrögð að ræða heldur fremur lífsspeki, sem þó beri að líta gagnrýnum augum. /12 Verð aldrei söm ►Lára Margrét Ragnarsdóttir al- þingismaður segir frá ferð sinni til Eystrasaltsríkjanna./14 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Karlar/Konur 30 Dagbók 8 Útvarp/sjónvarp 32 Hugvekja 9 Mannlífsstr. 7c Leiðari 18 Fjölmiðlar 18c Helgispjall 18 Kvikmyndir 20c Reykjavíkurbréf 18 Dægurtónlist 21c Myndasögur 20 Minningar 24c Brids 20 A fomum vegi 28c Stjömuspá 20 Velvakandi 28c .Skák 20 Samsafnið 30c Bíó/dans 22c Fólk í fréttum 30 INNLENDAR FRETTIR; 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.