Morgunblaðið - 15.09.1991, Page 6
6 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991
Bemharður Guðmundsson fer til starfa hjá Lútherska heimssambandinu:
Starfíð felst í að finna leiðir til að
koma boðskap kirkjunnar til skila
SÉRA Bernharður Guðmundsson mun um næstu mánaðamót taka
við starfi forstöðumanns ráðgjafarþjónustu Lútherska heimssam-
bandsins í Genf, en það eru samtök lútherskra kirkna með 103
aðildarkirkjur og 70 milljón meðlima. Innan þess fer fram starf að
samhæfingu og stuðningi við kirkjur víðs vegar í veröldinni. Morgun-
blaðið ræddi við séra Bemharð um væntanlegt starf hans á erlend-
um vettvangi og starf hans að fræðslumálum innan kirkjunnar
hérlendis á undanföraum misserum, en hann hefur gegnt starfi
fræðslu- og þjónustustjóra frá því að það embætti var sett á laggira-
ar fyrir tæplega þremur áram.
Sr. Bemharður Guðmundsson er
fyrsti íslendingurinn sem kallaður
er til starfa í aðalstöðvum alþjóða-
samtaka kirknanna í Genf og hefur
hann fengið leyfi frá störfum hjá
Biskupsstofu íslands til að sinna
því næstu fjögur árin.
Meginverkefni ráðgjafarþjón-
ustu heimssambandsins, sem hann
mun veita forstöðu, er fólgið í því
að aðstoða kirkjur við að fínna
boðleiðir innan eigin menningar-
heildar þannig að boðskapur þeirra
komist til skila, hvort sem um þró-
unarhjálp eða kristniboð er að
ræða. „Mikill fjöldí -jarðarbúa er
ólæs og talar tungumál sem fáir
aðrir skilja. í sumum löndum eru
töluð fjöldamörg mál þannig að
brýnt er að fínna leiðir til þess að
koma boðskapnum til skila,“ sagði
Bemharður, í samtali við Morgnn-
blaðið og nefndi sem dæmi að á
Indlandi gæti boðleiðin verið fólgin
í dansi og drama og í ýmsum Afrík-
uríkjum væri hún fólgin í trommu-
söng.
„I hinum vestræna heimi og
annars staðar þar sem tæknileg
þróun hefur átt sér stað, sérstak-
lega í Austur-Evrópu, er starf
deildarinnar fólgið í því að aðstoða
kirkjur við að nýta fjölmiðla í starfí
sínu á sem fjölbreyttastan hátt og
stuðla að því að koma á framfæri
boðskap kirkjunnar sem snertir
heildarvelferð mannsins," sagði
Bemharður.
Undanfarið hefur Bemharður
veitt forstöðu Fræðslu- og þjón-
ustudeild kirkjunnar en sú deild var
sett á laggimar er starfsemi Bisk-
upsstofu Islands var endurskipu-
lögð fyrir rúmlega tveimur ámm.
Á þessum tíma hefur verið unnið
að fjölbreyttara fræðslustarfí innan
kirkjunnar og beinist það nú að
öllum þáttum lífslínunnar þar sem
samfundir verða á milli kirkju og
manns, að hans sögn.
„Starf kirkjunnar á vettvangi
fræðslumála hefur lengst af beinst
að bömum frá því að þau byijuðu
í sunnudagaskóla og þangað til þau
hættu í unglingastarfí. Á þessu var
hins vegar gerð breyting við endur-
skipulagninguna og nú er lögð
Morgunblaðið/Þorkell
Sr. Bernharður Guðmundsson
áhersla á að sinna fræðslu allt frá
unga aldri og fram á efri ár,“ sagði
Bemharður.
Aðspurður að því hvaða breyt-
ingar hefðu verið gerðar á hefð-
bundnu fræðslustarfí kirkjunnar,
eins og fermingarfræðslunni, sagði
hann að allt námsefni fyrir hana
væri í endurskoðun. „Skilningurinn
á inntaki fermingarinnar er auk
þess að breytast. í vaxandi mæli
er lögð áhersla á að ekki eigi ein-
ungis að vera um fræðslu að ræða
heldur líka upplifun og þess vegna
hafa verið haldin námskeið í Skál-
holti og á Löngumýri í Skagafírði
þar sem fermingarbömum er gef-
inn kostur á að kynnast h'fí kirkj-
unnar og öðlast dýrmætar minn-
ingar sem tengjast henni,“ sagði
Bemharður.
Öldmnarstarfið er annar þáttur
sem hefur verið lengi innan kirkj-
unnar en tekið breytingum að und-
anfömu. Fræðsludeildin hefur látið
vinna efni sem ætlað er til nota sem
umræðuefni fyrir fólk á efri ámm,
þar sem tekið er á ýmsum aðstæð-
um sem þessi aldurshópur býr við.
„Markmiðið með þessu er að auð-
velda öldmðu fólki að loka hringn-
um, en það hefur, að mínu mati,
stundum verið of mikið um beina
skemmtistarfsemi í starfí aldraðra
að ræða. Þetta gáfaða, lífsreynda
fólk vill fá að fást við annað líka,“
sagði Bemharður.
Margs konar tilraunastarfsemi
hefur einnig verið í gangi á vegum
Fræðslu-og þjónusturdeildarinnar
að undanfömu í samvinnu við próf-
astsdæmin. „Við höfum verið að
þreifa fyrir okkur með það hvar
þörfin fyrir fræðslu sé,“ sagði
Bemharður. Haldin hafa verið
námskeið fyrir fóstmr og starfs-
menn leikskóla sem og dagmæður,
námskeið til að styrkja konur í
forystustörfum innan kirkjunnar
og námskeið fyrir fráskilda for-
eldra og böm þeirra. Starf og þjálf-
un vegna sorgarhópa hefur auk
þess verið áberandi þáttur í starfínu
undanfarin misseri, að sögn Bem-
harðar, en námskeið hafa verið
haldin fyrir leiðbeinendur slíkra
hópa. Nárnskeið hafa jafnframt
verið haldin fyrir kirkjuverði og um
þessar mundir er að hefjast vetrar-
langt nám, í samvinnu við guð-
fræðideild Háskóla íslands og Skál-
holtsskóla, fyrir starfsmenn safn-
aða og aðra áhugamenn, þar sem
kennd . verða undirstöðuatriði um
kristna kenningu, trúfræði, sið-
fræði, helgisiðafræði, táknmál
kirkjunnar, sálgæslu og fleira. Á
vegum fræðsludeildar hefur einnig
byijað starf í þágu fatlaðra, nám-
skeið hafa verið haldin fyrir sókn-
amefndir um allt land og fræðslu-
starf hefur verið hafíð meðal ungra
fanga.
„Ýmsar aðrar nýjungar hafa auk
þess verið í gangi og sem dæmi
má nefna að síðasta vor var gerð
athyglisverð tilraun með athvarf
fyrir böm í tveimur safnaðarheimil-
um. Bömum útivinnandi foreldra
var þá boðið að vera í safnaðar-
heimilunum á morgnana og fá
næringu og stuðning við heimalær-
dóm ef þörf var á. Þetta mæltist
vel fyrir og er að fara af stað aft-
ur víðar á höfuðborgarsvæðinu
nú,“ sagði Bernharður.
Á grunni þessara tilrauna og
ýmissa rannsókna verður síðan
unnin fræðslustefna kirkjunnar.
Að sögn Bernharðar er í vaxandi
mæli kallað eftir samstarfí við
kirkjuna. „Þjóðfélag okkar er orðið
mjög flókið og það er svo víða sem
þörf er á aukinni þjónustu en við
verðum jafnframt að leita uppi
hvar hennar er þörf, því oft heyrist
minnst í þeim sem mest þurfa á
henni að halda,“ sagði Bernharður,
að lokum.
Veiðifélag Miðfirðinga sem
heldur einkum utan um útleigu
og fiskrækt á vatnasvæði Mið-
fjarðarár vígði nýlega stóran og
glæsilegan laxastiga í Kambs-
fossi í Austurá sem er ein af
aðalám svæðisins. Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra
vígði stigann á dögunum. Stiga-
gerðin virðist hafa heppnast
óvenju vel, því lax gekk strax í
töluverðum mæli fram fyrir
stigann, en þar tekur við 10 kíló-
metra langt svæði sem bætist
nú við laxveiðisvæði árinnar. Er
nú laxgengt að svokölluðum
Valsfossi sem er hart nær inni
á Arnarvatnsheiði.
Árið 1980 byijaði veiðifélagið að
sleppa seiðum á umrædd svæði í
Austurá ofan við Kambsfoss og
var það gert til að nýta hin góðu
skilyrði sem þar eru fyrir laxa-
seiði. Hugmyndin þá var fyrst og
fremst að auka laxgengd á svæð-
ið, en síðustu árin hefur verið eftir
því tekið að lax hefur safnast mik-
ið undir Kambsfossi og stokkið
linnulaust í hann, en án árangurs
að sjálfsögðu. Það var því á fundi
veiðifélagsins í apríl 1990 að
ákveðið var að reisa laxastiga við
fossinn.
Verkinu er nú lokið. Hönnuður
stigans var Guðmundur Gunnars-
son, sem lét ekki þar við sitja,
heldur dró hann einnig fyrsta lax-
inn ofan stigans, 12 punda hiygnu.
Loftorka var verktaki og verkstjóri
Gylfí Hallgrímsson. Eftirlitsmaður
af hálfu heimamanna var Guð-
mundur Karlsson á Mýrum. Böðvar
Sigvaldason bóndi á Barði, formað-
ur Veiðifélags Miðfírðinga, sagði í
samtali við Morgunblaðið að kostn-
aður við verkið hefði verið um eða
yfír 20 milljónir króna, en lokaupp-
gjör lægi ekki fyrir enn sem kom-
ið væri. Hvernig félagið ætlaði að
standa straum af kostnaði sagði
Böðvar að hitt og þetta væri í at-
hugun, en fjölgun stanga væri
ekki eitt af þvi, að minnsta kosti
ekki að svo stöddu.
Það má segja um laxastigann
að lokum, að hann er rúmlega 17
metra hár og er hæsti laxastigi
sem hefur verið byggður í einum
hluta við laxveiðiá á íslandi. Þá
segja þeir sem hafa séð hann, að
hann sé ákaflega „umhverfís-
vænn“, þ.e.a.s. hann falli vel inn
Rupari Food fær góð meðmæli
frá bæði sendiráði og bönkum
Landbúnaðarráðuneytinu hefur verið tjáð af bandariska sendiráðinu
að Rupari Food, sem hefur samið um kaup á 800 tonnum af ærkjöti
frá íslandi, hafi fulla heimild til að stunda alþjóðleg viðskipti með kjöt,
og viðskiptabanki fyrirtækisins í Flórída hafi allt gott um viðskipti við
fyrirtækið að segja. Erlendur Garðarsson, umboðsmaður Rupari Food
á íslandi, segir að eiganda fyrirtækisins, Steven Mintz, hafi orðið á
fyrir mörgum árum að komast lítillega í kast við bandarísk lög, en
fréttir Stöðvar 2 sl. fímmtudagskvöld hafí dregið upp ýkta mynd af
málinu.
Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra, sagði
að strax og hreyfíng komst á samn-
inga við Rupari Food um kjötsöluna
hefði ráðuneytið hafíð könnun á
áreiðanleika þess og dótturfyrirtækja
þess - hvað bankar þeirra telji þá
örugga viðskiptavini. Landsbankinn
hefur þegar sent ráðuneytinu niður-
stöðu varðandi dótturfyrirtækið í
Danmörku, sem heitir Mayfair og
gefur því bestu einkunn. Viðskipta-
banki fyrirtækisins í Kanada, sem
mun veita greiðsluábyrgðir, gefur
góða umsögn um dótturfyrirtæki
þar, Unifood, sem verður kaupandi
kjötsins ef til kemur. „Hins vegar
höfum við ekki fengið svar frá Lands-
bankanum varðandi Rupari Food,
von á því á hverri stundu. Við höfum
hins vegar fengið bréf frá viðskipta-
banka þess í Flórída sem staðfestir
að hann eigi góð og örugg viðskipti
og geti ábyrgst allt upp í 6,5 milljón-
ir dollara fyrir þá. Það stóð aldrei
til að landbúnaðarráðuneytið gengi
frá viðskiptasamningi við ókunnugt
erlent fyrirtæki án þess að fram
færi könnun á áreiðanleika þess og
grundvöllur þessara viðskipta verður
að sjálfsögðu sá að fyrir liggi 100
prósent fullnægjandi greiðslutrygg-
ingar. Varðandi þessar ásakanir sem
komu fram á Stöð 2 í gær er það
að segja að við höfum enn engar
upplýsingar sem benda til þess að
þessi maður hafi ekki fullkomin rétt-
indi til að stunda þau viðskipti sem
sem er móðurfyrirtækið,, en eigum. yið ætlum að eiga við hann,“ sagði
Sigurgeir.
I bréfi sem bandaríska sendiráðið
sendi ráðuneytinu kemur fram að
þó Mintz hafí verið sakfelldur árið
1982 fyrir brot í viðskiptum sem
varðaði kjötskoðun hafí það ekki
áhrif á leyfí hans til að stunda alþjóð-
lega viðskipti með kjöt. Sigurgeir
sagði að ráðuneytið hefði undir hönd-
um afrit af innflutningsskýrslum
bandaríska viðskiptaráðuneytinu
sem sýndu að Rupari Food væri stór
innflytjandi á kjöti frá Skandinavíu.
Ráðuneytið hefði bréf frá þremur
viðskiptafyrirtækjum þeirra í Dan-
mörku og Finnlandi sem staðfesti
örugg og góð viðskipti. „Við höfum
í sjálfu sér á þessari stundu enga
ástæðu til að ætla annað en að þetta
sé í góðu lagi en við bíðum hins veg-
ar eftir endanlegu svari sem utanrík-
isráðuneytið gengur eftir frá banda-
ríska landbúnaðarráðuneytinu til að
allt liggi ljóst fyrir. Fyrr verður ekki
gengið frá þessum samningum,"
sagði Sigurgeir.
Erlendur Garðarsson, umboðs-
maður Rupari Food, sagðLað. Stevan.
Mintz hefði verið sakfelldur fyrir
mútur fyrir mörgum árum er hann
starfaði sem aðstoðarforstjóri Verm-
ont Packing. í raun hefði atvikið
gerst á þann hátt að Mintz var að
leysa út gáma með kjöti og opinber
embættismaður hefði verið honum
innan handar. Að verkinu loknu hefði
Mintz rétt manninum 100 dollara og
sagt honum að bjóða konu sinni í
mat í þakklætisskyni fyrir vel unnin
störf. Maðurinn var búinn upptöku-
tækjum og reyndist vera lögreglu-
maður þegar til kom. Síðar hefði
komið upp annað atvik og var Mintz
þá sakfelldur fyrir smygl á kjöti.
Forsaga þess var sú að fyrirtæki
Mintz keypti kjöt frá fyrirtæki í
Danmörku og starfsmaður þess hafði
sett sýnishom af svínahálsum í gám
án þess að skrá það í farmskrá.
Gámurinn átti upphaflega að fara til
Kanada en síðar fannst kaupandi að
kjötinu í Bandaríkjunum og þangað
var gámurinn fluttur. Þar var inni-
hald borið saman við farmskrá og
reyndist þá svínahálsunum ofaukið,
að sögn Erlends.
Morgunblaðið/Einar Hannesson
Kambsfoss í gilinu, en laxastig-
inn blasir við. Myndin var tekin
er stiginn var vígður.
í umhverfið og spilli því lítið eða
ekkert.
Laxveiði lauk í Miðfjarðará 9.
september síðastliðinn. Það veidd-
ust 1.118 laxar á svæðinu sem er
mun betra en í fyrra. Og útkoman
í ánum í sumar er sú besta af öll-
um ám í Húnavatnssýslunum í
sumar, sem dæmi hafa Vatnsdalsá
og Víðidalsá aðeins gefíð rúmlega
600 laxa hvor, en það er langt frá
þeirra besta og lítill fiskur hefur
verið í þeim ám í sumar.
gg
Landsvirkjun:
hjá við af-
greiðslu
um lántöku
Gæsluvarð-
hald fyrir
nauðgun
Tveir stjórn-
ar menn sátu
ALFREÐ Þorsteinsson og Finn-
bogi Jónsson stjórnarmenn í
Landsvirkjun sátu hjá við af-
greiðslu stjómarinnar á heimild
til 400 milljóna króna lántöku.
Stjómin heimilaði lántökuna á
fundi sinum í fyrradag.
Alfreð lét bóka eftirfarandi: „Ég
vek athygli á því að hvorki eignar-
aðilar né stjórn Landsvirkjunar
hafa enn samþykkt raforkuverð í
fyrirhuguðum samningi við Atl-
antsál. Meðan svo er treysti ég
mér ekki til að samþykkja fjárfrek-
ar framkvæmdir.“ Finnbogi tók
undir bókunina. Alfreð segist einn-
ig hafa látið bóka vegna hækkun-
ar á töxtum að hún kæmi á mjög
óheppilegum tíma vegna fram-
halds þjóðarsáttar en íjárhagur
Landsvirkjunar væri það slæmur,
aðallega vegna Blönduvirkjunar,
að ekki væri hægt annað en að
hækka.
TVEIR varnarliðsmenn á
Keflavíkurflugvelli hafa verið
kærðir fyrir meinta nauðgun
konu á þrítugsaldri og úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar átti atburðurinn sér stað á
vallarsvæðinu fyrri hluta vikunnar.
Rannsókn málsins er í höndum
Rannsóknarlögreglu ríkisins.