Morgunblaðið - 15.09.1991, Side 17
rO(MOEG»NIBIiAiÐI£J.íSUNNUID'A'GKHVl5ÍIgEprreMBERiY991
þá sem fá gistingu, leigubíla, risnu
og símtöl greidd að fullu framhjá
dagpeningakerfinu. Því virðist sem
persónulegar tekjur af þessu tagi
séu aðeins skattaðar til hálfs fyrir
ákveðinn hóp fólks.
Vissulega eiga þeir sem ferðast
á vegum ríkisins að fá greiddan
allan þann beina kostað sem af ferð-
inni hlýst, og ber alls ekki að skatta
menn fyrir það. Hitt er annað, að
þegar allur beinn ferðakostnaður
hefur þegar verið greiddur af ríkinu
verða dagpeningarnir að eins konar
launauppbót og ættu því skilyrðis-
laust að koma til sköttunar eins og
önnur laun.
Samanburður
Bandaríkin:
Laun forseta Bandaríkjanna eru
um 1.030 þúsund krónur á mánuði
og hafa verið óbreytt í dollurum frá
janúar 1969. Auk þessa fær forset-
inn 520.000 krónur á mánuði í
fastan ferðastyrk sem ekki kemur
til skatts, en einnig 260.000 á mán-
uði fyrir risnukostnaði og öðrum
opinberum kostnaðarliðum, og telst
sá hluti fram til skatts eins og hjá
dönsku ráðherrunum.
Ef þetta er borið saman við ut-
anríkisráðherra íslands, er heildar-
dagpeningagreiðsla til forseta
Bandaríkjanna um 3.120 þúsund
fyrir skatt, en árið 1989 var ut-
anríkisráðherra erlendis í 114 daga
og hefði samkvæmt núgildandi
töxtum fengið fyrir það 1.630 þús-
und ef hann hefði verið einn á ferð,
en 2.440 þúsund fyrir hjónin.
Tölur þessar eru þó ekki fullkom-
lega sambærilegar þó í báðum til-
fellum hafí verið tekið tillit til beins
ferðakostnaðar. Bandaríkjaforseti
fær nefnilega engar aukagreiðslur
þegar maki er með í förinni auk
þess sem hann verður að greiða
risnu og annan kostnað opinbers
eðlis af þessari upphæð, öfugt við
íslenska ráðherrann.
Varaforseti, sem hefur sem sam-
svarar um 830.000 íslenskum krón-
um í mánaðarlaun, fær að auki
52.000 krónur á mánuði til að
mæta kostnaði á vegum embættis
síns. Kemur sú upphæð til sköttun-
ar. — .
Ráðherrar hafa hins vegar jafn-
gildi um 720.000 króna í mánaðar-
laun og fá enga fasta kostnaðar-
uppbót eins og forseti og varafor-
seti fá. Þeir taka því allan almenn-
an kostnað í ferðum í embættis-
erindum af eigin föstu iaunum, að
undanskildum beinum ferðakostaði.
Um almenna starfsmenn alríkis-
yfirvalda gilda hins vegar venjuleg-
ar reglur um dagpeninga og
greiðslu ferðakostnaðar. Reglan er
sú, að samanlagður kostnaður fyrir
gistingu og uppihald má ekki yf-
irstíga ákveðna upphæð sem ákveð-
in er fyrir hvern stað. Dæmi um
slík hámörk eru 8.100 krónur á dag
fyrir Washington DC, 7.700 fyrir
Los Angeles og 4.300 krónur á dag
fyrir ferðir til Port Huron, Michig-
an.
Af þessari heildarupphæð eru
beinir dagpeningar annaðhvort,
1.600 eða 2.100 krónur, eftir stöð-
um. Við útreikninga dagpeninga er
sólarhringum skipt í fernt, og að-
eins greitt fyrir þá fjórðunga sem
viðkomandi starfsmaður er á ferða-
lagi.
Almennt gildir að ekki skuli ferð-
ast á fyrsta farrými, en allur ferða-
kostnaður skuli greiddur — einnig
leigubílar til og frá flugvelli svo
dæmi sé tekið. Reglurnar eru á
heildina litið nokkuð strangar; til
dæmis fær starfsmaður lægra kíló-
metragjald, 11 kr/km, ef hann kýs
að nota eigin bíl í stað bíls í eigu
ríkisins á móti 15 kr/km sem hann
fengi ef ríkið óskaði eftir að hann
notaði eigin bfl.
Danmörk:
Um opinbera starfsmenn gilda
svipaðar reglur og á íslandi. Þeir
fá dagpeninga sem ráðast af
ákvörðunarstað, auk þess sem allur
ferðakostnaður er greiddur. Dag-
peningar eru samningsatriði milli
fjármálaráðuneytis og starfsmann-
afélaga ríkisstofnanna, og eru eins
og stendur 6.000 íslenskar krónur
plús allt að 5.600 fyrir hótelkostn-
aði, fyrir heimsóknir hingað til
lands. Samtals eru þetta 11.600
krónur fyrir skatt.
Útreikningur dagpeninga-
greiðslna miðast við hvort viðkom-
andi embættismenn fá fría gistingu
og/eða mat, og kemur ákveðin upp-
hæð til frádráttar ef svo er. Allar
upphæðir eru vísitölubundnar og
endurskoðaðar með reglulegu miili-
bili með tilliti til verðbreytinga í
hinum mismunandi löndum. Auk
þess er tillit tekið til vikulegra heim-
ferða sem menn hafa rétt á sam-
kvæmt samningum og það dregið
frá dagpeningum.
Um ráðherra dönsku ríkisstjórn-
arinnar gilda engar sambærilegar
reglur. Þeir fá afgreidda ákveðna
peningaupphæð þegar þeir leggja
af stað, og þegar þeir snúa aftur
er gerður upp mismunurinn á af-
greiddri upphæð og kostnaði sam-
kvæmt reikningum. Þetta þýðir í
raun að þeir geta eytt eins miklu
og þá lystir, en þess ber að geta
að almenningsálit í Danmörku er
sterkara afl en íslendingar eiga að
venjast auk þess sem hart er tekið
á óráðsíu ráðherra á þinginu, ef
marka má nýlegt dæmi þar sem
utanríkisráðherrann kom við sögu.
Hvað risnu varðar hefur hver
ráðherra eigin risnureikning á veg-
um ráðuneytis síns, sem dregið er
af. Skýr greinarmunur er gerður á
persónulegum kostnaði og risnu-
kostnaði — ef ráðherra nýtur sjálfur
af veittri risnu dregst ákveðin upp-
hæð frá greiðslum til þeirra persón-
ulega.
Laun ráðherra dönsku ríkis-
stjórnarinnar eru þau sömu fyrir
alla ráðherra og einnig fá þeir ráð-
herrar sem ekki sitja á þingi greidda
sömu upphæð og þingmenn fá í
þingfararkaup. Grunnlaunin eru um
3,2 milljónir íslenskra króna á ári,
en að viðbættu þingfararkaupi eða
uppbót um 6,2 milljónir, eða um
515.000 kr á mánuði.
Að auki eru forsætis- og utanrík-
isráðherra með fasta kostnaðarupp-
bót sem nemur 640.000 og 850.000
kr á ári. Upphæðir þessar skatt-
leggjast á sama hátt og launa-
greiðslur.
Noregur:
Enn gilda svipaðar reglur um
vóbreytta“ ríkisstarfsmenn og á
Islandi og í Danmörku, en ráðherr-
arnir eru eftir sem áður sér á báti.
Föst laun forsætisráðherra Noregs
eru frá 1. september sem samsvar-
ar um 330.000 íslenskum krónum
á mánuði, en aðrir ráðherrar fá tæp
310.000.
Svo verðdæmi sé tekið af ferð
til Islands fær norskur ráðherra um
7.000 íslenskar krónur á dag fyrir
hótelkostnaði, en fær endurgreidd-
an muninn ef það reynist dýrara.
Upphæð dagpeninga er um 8.100
krónur, og er það upphæð sú er
óbreyttir opinberir starfsmenn fá
auk 50% álags.
Risna er greidd eftir reikningi,
'en hlutur ráðherra dregst frá dag-
peningum hans eins og í Dan-
mörku. Allir taxtar eru endurskoð-
aðir með vissu millibili með tilliti
til verðlagsþróunar.
Niðurstöður
Miðað við samanburð þann sem
hér hefur verið gerður má vafalítið
segja að íslenska dagpeningakerfið
skýtur fram hjá markinu hvað ráð-
herra og hærra setta embættismenn
varðar — það er orðið að hreinni
launauppbót, því upphaflega ætlun-
in með dagpeningunum, að mæta
kostnaði, er farin forgörðum hjá
þessum hópum. Þeir fá allan kostn-
að greiddan framhjá dagpeninga-
kerfinu en greiða hann ekki af þeim
eins og aðrir opinberir starfsmenn.
Augljóst virðist því að hér sé um
ferðahvetjandi kerfi að ræða sem
að auki eru ýmsir annmarkar á.
Það kemur undarlega fyrir sjónir
að einungis helmingur þessara
tekna skuli vera skattskyldur, þegar
enginn kostnaður annar en persón-
uleg eyðsla liggur að baki.
Vera má að þessi þróun hafi orð-
ið vegna lágra launa hérlendra ráð-
herra miðað við starfsbræður er-
lendis, en dulin launauppbót er engu
ódýrari þjóðarbúinu en hrein launa-
hækkun.
9Í17
Akranes:
Nýr leikskóli í notkun
Akranesi.
TEKIN hefur verið formlega í
notkun nýr leikskóli á Akranesi.,
Með tilkomu hans munu 98 börn
fá þar þjónustu og hefur því veru-
lega saxast á þörf fyrir dagvistun-
arrými á Akranesi.
Hinn nýi leikskóli er við Lerki-
grund 9 og er þriggja deilda skóli
sem allar eru jafnstórar. Bygging
hans hófst í lok ársins 1989 og samn-
ingur um fullnaðarfrágang hússins
var undirritaður í desember 1990.
Leikskólinn sem er 534,5 fm að stærð
er að fullu frágenginn með öllum
búnaði. Lóðin, sem er alls 2720 fm,
er einnig vel frágengin og mikið úr-
val leiktækja þar. Um er að ræða
glæsilegt mannvirki. Kostnaður við
byggingu leikskólans er tæpar 60
milljónir króna.
Eins og áður segir verður rými
fyrir 98 börn í hinum nýja leikskóla
þegar starfsemi er að fullu komin í
gang. Hið nýja húsnæði leysir af leik-
skólann við Háholt sem rekin hefur
verið undanfarin ár í húsnæði Skáta-
félags Akraness. Aldur barna í skó-
lanum er frá eins árs til sex ára.
Boðið verður upp á breytilegan vist-
unartíma frá fjórum til níu stundum
á dag. Leikskólastjóri hins nýja skóla
verður Brynja Helgadóttir og yfir-
fóstra Guðlaug Sverrisdóttir. Alls
verða starfsmenn í 11,5 stöðugildum.
Hönnun hins nýja skóla var í hönd-
um VT-teiknistofunnar. Tréverk sf.
og Akur hf. önnuðust byggingu fok-
helds húss. Tréverk sf. sá um innrétt-
ingar og fullnaðarfrágang. Skóflan
hf. sá um frágang lóðar. Öll verk
voru leyst vel af hendi og bera meist-
urum sínum fagurt vitni.
- J.G.
Sigurjón Skúlason verktaki afhendir Sigrúnu Gísladóttur formanni
framkvæmdanefndar formlega lykla af leikskólanum.
Fyrirlestur um álag
við barnsfæðingar
HÉR á landi er stödd í boði námsbrautar í hjúkrunarfræði við Há-
skóla íslands dr. Dyanne D. Affonso, prófessor í fjölskylduhjúkrun við
hjúkrunardeild Kaiiforníuháskóla
Dr. Affonso er þekkt víða um heim
fyrir rannsóknir sínar sem einkum
varða streitu og vanlíðan mæðra í
tengslum við meðgöngu og fæðingu.
Hún mun halda tvö námskeið og einn
fyrirlestur meðan á dvöl hennar
stendur.
Fyrirlestur dr. Affonso fjallar um
andlega og félagslega álagsþætti í
tengslum við barnsfæðingu og verður
haldinn miðvikudaginn 18. septemb-
er kl. 16-17.30 i Lögbergi, stofu
101. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Námskeið dr. Affonso eru haldin
í samstarfi námsbrautar í hjúkrunar-
fræði og endurmenntunamefndar
Háskólans og ætluð fagfólki í heil-
San Fransisco.
brigðisþjónustunni. Fyrra námskeið-
ið nefnist „Þverfagleg viðfangsefni
er varða heilsu og atferli" og fer
fram dagana 17., 19. og 20. septemb-
er kl. 13-16 hvern dag. Námskeiðs-
gjald er 5.000 kr.
Síðara námskeiðið nefnist „Hug-
tök og fyrirbæri innan hjúkrunar;
kenningar, notkun í starfí og rann-
sóknir", og fer fram dagana 26. sept.
og 3. okt. kl.. 9-16 báða dagana.
Námskeiðsgjald er 7.500 kr.
Skráningu og upplýsingar um
násmkeiðin annast endurmenntunar-
deild Háskólans.
(Fréttatilkynning)
súrnm
á hreint frábæru verdi, 23.900,- krónur*
FERÐAMIÐSTÖÐIN VERÖLD
býður nú þriggja daga ferð til
þessarar heillandi borgar í Sviss
27. - 29. september nk. Dvalið
verður á hinu stórgóða hóteli
Senator í miðborginni, skammt
frá hinu fræga verslunarhverfi
við Bahnhofstrasse.
Zurich-borg er af mörgum talin ein fallegasta borg heims svo það er vel þess virði
að hoppa með fyrir þær sakir einar.
Njótið ferðar með okkur undir íslenskri fararstjórn, þar sem boðið verður upp á
fjölmargt skemmtilegt. Nægirþar að nefna siglingu um hið ægifagra Zurich-vatn, þar
sem hópurinn getur notið svissneskrar matargerðalystar í ferðinni. Þá verður
kvöldverður með hátíðarmat. Boðið verður upp á skoðunarferð um ægifögur
fjallahéruð mið-Sviss, auk margs annars.
Zurich er mjög lifandi og skemmtileg borg fyrir sælkera, auk þess sem margar af
frægustu verslunum heimsins er þar að
Láttu dekra við þig í þessari háborg
Mið-Evrópu. Það verður enginn
svikinn af því að skella sér með í
þessa frábæru ferð með okkur og á
þessu nánasta hlægilega verði.
‘Innifalið í verði er flug til og frá Zurich, flutningur til og
frá flugvelli ytra, gisting á Senatorhótelinu og íslensk
fararstjórn.
inna.
fmíMIOSIBDIN
rtpcm
AUSTURSTRÆTI17, SIMI62 22 00