Morgunblaðið - 15.09.1991, Side 24
AUK/SlA k624-2
MOEGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991
±24
HEFUR ÞÚ ÁHUGA ?
Viö erum ab leita ab söngmönnum.
Hafðu samband við Ernst í síma: 621010 milli kl.
9.00-17.00
eða Böðvar í síma 32584 eftir kl. 19.00
Skáldskapur eftir konur
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
HENDING. 1. tbl. 1. árg. Ritstjór-
ar: Berglind Gunnarsdóttir,
Elísabet Jökuisdóttir, Margrét
Lóa Jónsdóttir og Valgerður
Benediktsdóttir.
Svokallaður femínismi eða andóf
kvenna (h'ka í bókmenntum), bók-
menntafræði kvenna og fleira slíkt
hefur verið áberandi, en skemmtir
ekki öllum, allra síst takmörkuðum
körlum. Það er aftur á móti unnt að
taka undir með ritstjórum Hendingar
og „óska eftir skáldskap eftir konur“.
Hending flytur skáldskap kvenna
(og karla), einnig greinar um konur
og skáldskap. Það má byija með að
lýsa því yfir að þetta er hið athyglis-
verðasta tímarit, yfir því ferskur blær
og framtakið lofsvert.
Meðal þess sem forvitni vekur er
viðamikil umfjöllun Soffiu Auðar
Birgisdóttur um franska mynd-
höggvarann Camille Claudel og
bandarísku skáldkonuna Susan Lud-
vigson. Sú síðarnefnda hefur ort
ljóðaflokk um hina fyrmefndu og fá
Hin grátbiðjandi eftir Camille
Claudel.
. >
«
NO PRIMER,t
toOUNDERCOAT,
huma ummmm
HAMMERITE er ryðbindandi lakk, sem
bindur fast og þurrt ryð og stöðvar
ryðmyndun. Það er sjálfgrunnandi
og fljótþornandi háglanslakk, borið á
án undanfarandi grunnmálunar.
HAMMERITE hefur mjög háan
yfirborðsstyrk, þ.e. höggþol, skrapþol,
hitaþol og veðrunarþol. Ýtarlegri upp-
lýsingar fást hjá söluaðilum og í bækl-
ingnum „Beint á rydid“ og einblöðungnum
„Nú má lakka yfir ryðið“sem eru fáanlegir
hjá þeim.
HAMMERITE FÆST ( MÁLNINGAR-
OG BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
HAMMERITE lakkið fæst
í fjölda lita. Skoðaðu litakort
hjá söluaðila.
lesendur að kynnast nokkrum Ijóð-
anna í þýðingu Soffíu Auðar.
Camille Claudel var systir skálds-
ins Paul Claudels og var nemandi,
aðstoðarmaður og ástkona mynd-
höggvarans Auguste Rodins. Að lo-
knu tímabili sköpunar eftir að slitn-
aði upp úr sambandi hennar við
meistarann eyddi hún ævi sinni á
geðveikrahæli. Það eru þessi harm-
sögulegu örlög sem Susan Ludvigson
yrkir um á sannfærandi hátt og hef-
ur Soffíu Auði tekist mjög þokkalega
að miðla ákafa ljóðanna.
í Ijóðinu Bréf til Rodins frá Tour-
aine, 1893, segir m.a.:
Hvílík gleði að vakna uppaf draumi um þig
og þrá þig ekki! Allan þennan tíma,
hendur mínar iðnar í gifsinu, bjóstu í
líkama mínum einsog leigjandi. Hvert
sem ég sneri sá ég konur með þínu auga,
hold þeirra roðna undan opinskáu augna-
ráði mínu.
Það er annars konar „uppreisn“
sem við blasir í grein Geirs Svansson-
ar um bandarísku skáldkonuna Kat-
hy Acker, en meðal þeirra titla sem
Geir heiðrar hana með eru ritsóði,
ritþjófur og klámkjaftur. Acker svífst
einskis við að svipta hulunni af karl-
veldinu og birta hugarheim kvenna,
en eins og Geir bendir á er hætta
hennar fólgin í því að verða hluti af
markaðinum. Hún er að verða tísku-
höfundur. Acker er afsprengi menn-
ingarhefðar stórborganna þar sem
afbrigðileikinn er eftirsóknarverður,
daglegt líf og venjulegt fólk ekki
ákjósanlegt söguefni. Hún hefur lært
af höfundum á borð við William
Burroughs.
Skáldskapur innlendra höfunda í
Hendingu er með ýmsu móti. Líklega
kemst Nína Björk Amadóttir næst
því að draga upp líka mynd örvænt-
ingar og Susan Ludvigson. Nína
Björk yrkir um guðinn Savage, hinn
alræmda guð sjálfsmorða og sjálf-
seyðileggingar.
Það er nóg af þjáningu, dauðabeyg
og hvers kyns kvölum i Hendingu,
vissulega eins og lífinu sjálfu. Helst
er að fínna bjartsýni í Ljóðabréfi til
bemskunnar eftir Þóm Elfu Bjöms-
son. „Manstu dagana bjarta/ og
sífellda?" spyr Þóra Elfa. En það
vom auðvitað liðnir dagar.
Ég hafði gaman af að lesa fleira
í Hendingu, m.a. einlægt viðtal Elísa-
betar Jökulsdóttur við Lindu Vil-
hjálmsdóttur og líka upprifjun Berg-
lindar Gunnarsdóttur á framlagi
Unnar Eiríksdóttur til skáldskapar-
ins. Ljóðasýnishomin sanna að Unn-
ur hafði margt að segja og gerði það
á listrænan hátt, ekki síst í ljóðinu
um tréð sem óx í skjóli háskans.
Þakstál
með stfl
Plannja
stallað efni
svart og tígulsteinsrautt.
ISVOR BYGGINGAREFNI
Srhi 641255