Morgunblaðið - 18.09.1991, Page 4
janu
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
Sigurður Bergsteinsson
VEÐUR
VEÐURHORFUR íDAG, 18. SEPTEMBER
YFIRLIT: Búist er við stormi á norðaustur-, austur-, Austfjarða-
og suðausturmiðum. Um 400 km vestur af Reykjanesi er 995 mb.
lægð að eyðast en um 500 km suðsuðaustur af Dyrhóley er vax-
andi 985 mb. lægð á hreyfingu norðnorðaustur.
SPÁ Norðlæg og síðar norðvestlæg átt, hvassviðrí eða stormur
um landið austanvert, en lítiö eitt hægari vestantil. Rigning éða
skúrir víðast hvar, einkum á Norðaustur- og Austurlandi. Kólnandi
veður, sérstaklega um landið norðanvert.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDÁG: Minnkandi norðan og norðvestan átt
og svalt í veðri. Slydduél um landið norðanvert en líklega þurrt syðra.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustan strekkingur og rigning sunnan-
lands og vestan, en hægari sunnanátt á Norður- og Austurlandi
og úrkomulítið, hlýnandi veður.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / ./
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 7 skýjað
Reykjavfk 8 rigning
Bergen 12 rigning
Helsinki 13 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Narssarssuaq 26 mistur
Nuuk 2 léttskýjað
Osló 12 rlgning
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 11 rigning
Algarve 32 heiðskírt
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 26 mistur
Berlín 20 skúr
Chicago 10 léttskýjað
Feneyjar 25 þokumóða
Frankfurt 22 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 18 skúr
London 21 léttskýjað
Los Angeles 16 þoka
Lúxemborg 18 skýjað
Madrid 31 heiðskirt
Malaga vantar
Mallorca 32 léttskýjað
Montreal 20 léttskýjað
NewYork 26 mistur
Orlando 24 þokumóða
París 20 léttskýjað
Madeira 26 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Vfn 17 rigning
Washlngton 25 þokumóða
Winnipeg 6 skýjað
Bessastaðir:
Leifar um mann-
vist frá því á 9. öld
FORNLEIFAUPPGREFTRI á Bessastöðum, vegna framkvæmda sem
þar eiga að fara fram, er nú senn að ljúka. Verkið hefur staðið í tvö
ár með hléum og hafa fundist leifar um mannvist undir gjóskulagi
frá því seint á 9,öld. Fornleifafræðingarnir Sigurður Bergsteinsson
og Guðmundur Ólafsson hafa stýrt rannsóknunum.
Fomleifarannsóknir hófust á
Bessastöðum árið 1987 þegar verk-
amenn sem unnu við viðgerðir á
gólfi Bessastaðastofu komu niður á.
húsarústir. Leiddi rannsókn í ljós
að hér væri um konungsgarð að
ræða, þ.e.a.s. bústað æðsta emb-
ættismanns konungs, og voru rúst-
irnar varðveittar í kjallara Bessa-
staðastofu þar sem þær eru almenn-
ingi til sýnis.
Tveimur árum seinna var ákveðið
að endurbyggja staðinn en í kjölfar
þeirrar ákvörðunar var Þjóðminja-
safninu falið að rannsaka þann
hluta lóðarinnar sem yrði fyrir
hnjaski vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda. Hafa þessar rannsóknir
að sögn Sigurðar Bergsteinssonar
staðið með hléum frá árinu 1989
en þeim lýkur sennilega eftir tvo
til þrjá mánuði. Sigurður segir að
komið hafi verið niður á rústir alls
staðar þar sem borið hefði verið
niður. Væru þær elstu frá því
snemma á miðöldum (lO.öld) en
leifar hefðu fundist allt til dagsins
í dag. Þá sagði hann að leifar eftir
mannvist hefðu fundist undir svo-
kölluð landnámslagi sem er gjósku-
lag frá því seint á 9. öld. Væri um
að ræða móösku og torfusnepla en
hvorki hefðu fundist hlutir né leifar
af byggingum. Af þeim sökum
væri ekki hægt að slá neinu föstu
um búsetu fólks á staðnum enda
væri ekki getið um landnámsbæ á
Bessastöðum í Landnámu. Leifar
hafa fundist undir landnámslagi í
Suðurgötu í Reykjavík og Vest-
mannaeyjum.
í samtali við Sigurð kom fram
að fáir hlutir hefðu fundist í rústun-
um. Þó nefndi hann sem dæmi að
fundist hefði snældusnúður frá því
á miðöldum og fjögur sáför (stór
matarílát grafin í gólf). Árið 1987
fundust á Bessastöðum meðalaglös
frá því á 18. ö!d þegar Apótek ís-
lands var staðsett þar um tíma.
Leifar frá skólahaldi hafa einnig
fundist á Bessastsöðum, meðal ann-
ars skriftarspjöld skólapilta.
5 manns vinna nú við fomleif-
auppgröft á Bessastöðum.
Austur-Skafta-
fellssýsla:
Tíu bændur
hætta sauð-
fjárbúskap
HSfn.
2.500 ÆR verða skornar niður
í Austur-Skaftafellsýslu í haust
og þar með hætta tíu bændur
sauðfjárbúskap. Slátrað verður
ámóta fjölda og fyrir ári, eða
um 31.000 fjár, að meðtöldu því
er skorið er niður og hefst
slátrun á morgun, þriðjudag.
Fé til slátrunar hjá Kaupfélagi
Austur-Skaftfellinga kemur af
svæðinu frá Oræfum í vestri
austur um í Alftafjörð. Að auki
er slátrað fyrir einhverja aðila
úr Berufirði.
Að sögn Einars Karlssonar
sláturhússtjóra vantar enn um tíu
til fimmtán manns til að full-
manna húsið, en þar hafa starfað
50-55 manns í sláturtíðinni. Helst
er að vanti menn við fláningu.
Lokið er við endurbætur á slátur-
húsinu á Höfn og stefnt er að því
að fá viðurkenningu Evrópuband-
alagsins á því.
Slátrun mun standa út október.
- JGG.
------♦ ♦ ♦
Breiðholt:
Borg-in greiðir
15% af stofn-
kostnaði við
heilsugæslustöð
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka þátt í stofnkostnaði
vegna heilsugæslustöðvar að
Þönglabakka 6 í Breiðholti.
Áætlaður stofnkostnaður er 90
milljónir króna og greiðir borg-
in 15%, eða um 13,5 milljónir.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í byijun næsta
árs og að heilsugæslustöðin
taki til starfa um mitt næsta ár.
í bréfi fjármálaráðuneytisins,
sem lagt var fram í borgarráði
kemur fram að keypt hafi verið
2. hæð í húsinu við Þönglabakka
6 til nota fyrir heilsugæslustöð í
Mjódd fyrir íbúa í Breiðholti.
Kaupverð er rúmar 42,1 milljón
króna sem ríkissjóður hefur greitt
að fuilu. Byggingarnefnd heilsu-
gæslustöðva í Reykjavík hefur
látið vinna frumtillögur að inn-
réttingu húsnæðisins og er kostn-
aður áætlaður um 50 milljónir án
búnaðar. „Á þessu stigi er stofn-
kostnaður heislugæslustöðvar í
Mjódd því áætlaður um 90 milljón-
ir króna án búnaðar," segir í bréf-
inu.
------♦_♦_♦----
Réttarháls 2:
Ófullnægjandi
brunavarnir
hjá tveimur
fyrirtækjum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
bókun byggingarnefndar
Reykjavíkur um að tveimur
fyrirtækjum, Efnaver hf. og
Hús og lagnir hf. að Réttar-
hálsi 2, verði veittur frestur til
10. október til að ljúka fram-
kvæmdum vegna brunavarna.
Ella verði beitt dagsektum
5.000 krónum á dag frá þeim
tíma.
í bókun byggingarnefndar seg-
ir, að undanfarin ár hafi á vegum
byggingarfulltrúa og slökkviliðs-
stjóra verið gerðar úttektir á
brunavörnum stærri iðnaðarhúsa
og farið fram á úrbætur, þar sem
þurfa þykir. „Húseigendur hafa
brugðist misjafnt við og stundum
hefur verið nauðsynlegt að sam-
þykkja dagsektir til að knýja fram
úrbætur. Varðandi Réttarháls 2,
samþykkti byggingarnefnd 13.
júní sl., dagsektir fyrir húsið í
heild og voru þær staðfestar í
borgarráði 18. s.m. Nú hafa verið
gerðar þær úrbætur sem krafist
var hjá öllum fyrirtækjum í hús-
inu, nema þessum tveimur, Efna-
ver hf., og Hús og lagnir hf. Það
er því nú lagt til að samþykkja
eingöngu dagsektir á þessi fyrir-
tæki.“