Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 21 Reuter. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, og James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að veita Israelum lán til þess að umræða um friðarráðstefnu í Miðausturlönd- um sigli ekki í strand. Miðausturlönd: Bandaríkj astj órn lofar ísraelum láni Kaíró, Túnis. Reuter. STJÓRN Bandaríkjanna hefur gefið Israelum loforð um að hún fari ekki þess á leit við þing landsins að synja í annað sinn beiðni ísraela um lán. Þessi ákvörðun er árangur tveggja daga viðræðna James Bakers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, við Israelsk sljórnvöld. Akvörðunin er liður í sex liða samkomulagi sem ríkin gerðu með sér. Með samkomulaginu hyggst Bandaríkjastjórn koma í veg fyrir að friðarviðræður í Miðausturlönd- um flækist um of. Tilhögun friðar- ráðstefnunar í október var einnig á dagskrá á þessum tveggja daga fundi Bakers og Israela. Þau arabalönd, sem líkleg eru talin til þess að taka þátt í friðarráð- stefnunni, töldu að lánsloforðið hvetti ísraela til þess að flytja fleiri gyðinga inn á hernumdu svæðin og að setja skilyrði fyrir ráðstefnunni sem erfiðara væri fyrir araba að samþykkja. Talsmenn Frelsissamtaka Palest- ínumanna, PLO, segja ísraela gera allt til þess að koma í veg fyrir nokkra þróun í friðarátt. I þessari sjöundu ferð sinni til Miðaustur- landa, frá því að Persaflóastríðinu lauk, ræddi Baker einnig við tals- menn PLO og sagði hann að nokkr- um árangri hefði verið náð en enn væru ýmis vandamál óleyst. Suður-Afríka: Manufall þrátt fyr- ir friðarsamning- Jóhannesarborg. Reuter. íbúar í fátæktarhverfi austur af Jóhannesarborg sögðu lögreglu hafa skotið tvo til bana í átökum í gærmorgun. Óeirðir í Suður-Afríku halda áfram þrátt fyrir friðarsáttmála. Sjö aðrir blökkumenn féllu fyrir hendi annarra blökkumanna í átökum í öðrum bæjum í Suður-Afríku og eru það verstu ofbeldisverkin frá því friðarsáttmálinn var gerður um síð- ustu helgi. Friðarsáttmáli milli ríkis- stjórnarinnar og samtaka blökku- manna var undirritaður á laugardag og var honum ætlað að binda endi á átök sem þessi. Þrátt fyrir mann- fallið í gær eru menn enn bjartsýnir á að friðarsáttmálinn boði friðsælli tíma í Suður-Afríku. Ferðamálaskóli íslands í Menntaskólanum í Kópavogi Ferðamálanám Við hefjum 6. starfsárið hinn 26. september nk. með hinu vinsæla grunnnámskeiði um ferðamál. Veitt er fræðsla og undirbúningur undir hin ýmsu störf innan ferðaþjónustunnar, um markaðssetn- ingu, rekstur, mannleg samskipti o.fl. Kennt verður á þriðjudags- og fimmtudagskvöld- um kl. 18.30-22.30. Aðeins örfá pláss laus. Upplýsingar og innritun í síma 43964 í dag og á morgun kl. 14.00-16.00. Verslunarmannafélag Reykjavíkur greiðir hluta afskólagjaldi fyrir félagsmenn sína. Á vorönn verða sérhæfðari námskeið eins og áður, svo sem um útreikning fargjalda og farseðla- útgáfu, markaðssetningu og ferðalandafræði. Þýska vikuntið Der Spiegel: Innri kreppa hjá Greenpeace Náttúruverndarsamtökin Gr gagnrýni í nýjasta hefti þýska I greininni segir meðal annars að samtökin hafi aldrei velt því mikið fyrir sér hvaða umhverfis- vandamál væru mest aðkallandi heldur einbeitt sér að slíkum sem víst væri að nytu almennrar at- hygli. Samtökin hafi t.d. sérhæft sig í skepnum eins og hvölum og höfrungum. „Á meðan aðrir gáfu út flóknar, vart skiljanlegar yfirlýsingar um fjölbreyttar or- sakir vatnsmengunar drógu „nátturufriðungarnir" einfald- lega gám með dauðum fiski fyrir dyr einhverrar opinberrar stofn- unar — og viti menn, vandamálið varð altalað og þarmeð Green- peace einnig." Tilgangurinn hafi löngum helgað meðalið og stund- um hafi tjónið sem samtökin ollu verið meira en nytsemin af starf- semi þeirra. Enn kvarti frum- byggjar Grænlands yfir því að samtökin hafi með herferð sinni eenpeace verða fyrir harkalegri vikuritsins Der Spiegel. gegn selveiðum svipt þá lífsaf- komu sinni. Og vísindamenn hafi sýnt fram á að herferðin gegn skjaldbökuveiðum á frönsku- Guayana hafi verið misráðin. Þar hafi útsendarar Greenpeace lagt lífshætti heimamanna í rúst. Der Spiegel segir að þrátt fyr- ir góða fjárhagsstöðu samtak- anna, en þau velta nú 141 milljón Bandaríkjadala árlega (8,5 millj- örðum ÍSK), eigi þau við innri vanda að stríða. Margir starfs- menn hafi yfirgefið samtökin vegna óánægju með aðferðir þeirra og það hversu lítil áhrif almennir félagar hafa á ákvarð; anatöku, mun verr gangi að safna fé í Bandaríkjunum en áður og fyrir skemmstu hafi David McTaggart leiðtogi sam- takanna sagt af sér. I stuttu máli sagt hafi velgengnin stigið samtökunum til höfuðs og lítið sé orðið eftir af hugsjónunum sem starfsemin byggðist upphaf- lega á; stjórnendurnir séu hrædd- ir við að fara nýjar leiðir en skipu- leggi þess í stað sífellt umfangs- meiri uppákomur til að halda athygli fjölmiðla. ■ ■ ■ &arwFwrm 18.-28. september Parket k flísar Teppi Mothr Dúkar © Gerið kjarakaup á gólfefnadögum Húsasmiðjunnar. HUSASMIDJAN Skútuvogi 16, Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.