Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
19
Komið með hjörðina niður hlíðarnar í Álsey.
V estmannaeyjar:
Eyiabændur rétta
Vestmannaeyjum.
FJÁRBÆNDUR í Eyjum réttuðu margir um helgina. Á sunnu-
dag var réttað í þremur úteyjum og fé flutt til lands. Bændurn-
ir voru ánægðir með féð sem þeir sögðu vera vænt og fallegt.
Fjárbændur í Eyjum eru allir
fristundabændur. Margir þeirra
hafa fé á beit í úteyjunum allan
ársins hring. Á sunnudag var
réttaðj þremur eyjanna, Bjarna-
rey, Álsey og Suðurey. Áður
hafði verið réttað í Elliðaey og
þaðan flutt 240 Qár til lands,
bæði lömb og fullorðið fé. Þá er
búið að rétta í Ystakletti en rétt-
ir á heimalandinu og i Heima-
kletti verða næstu daga.
Suðureyingar fluttu til lands
á sunnudag 35 lömb og sauði
en eftir í eynni urðu 30 til 40
sém ganga munu þar úti í vetur.
Bjarnareyingar fluttu 25 lömb
og fjórar fullorðnar rollur til
lands en skildu eftir milli 30 og
40 Jfjár til vetursetu.
Úr Álsey voru flutt 70 lömb
og nokkrar fullorðnar rollur. Þá
voru hrútarnir teknir í land en
þeir munu þó verða fluttir út á
ný í desember til þess að sinna
kalli náttúrunnar þegar feng-
itíminn fer í hönd. 40 ær voru
settar á vetrarsetu í Álsey.
Gunnar Árnason, bóndi í Áls-
ey, var ánægður með lömb sín
eftir sumarið og sagði þau feit
og falleg. Gunnar hefur stundað
fjárbúskap í Álsey síðustu 12
árin og ávallt fengið falleg lömb.
„Þetta var vel í meðallagi hjá
mér núna. Ég hef þó séð þau
fallegri eftir sumarið en ég er
ánægður með minn hlut því
strákarnir sögðu að lömbin úr
Suðurey hefðu verið bölvaðir
kettlingar miðað við mín,“ sagði
Gunnar. Hann segist stunda bú-
skapinn sér til skemmtunar enda
sé þetta bara tómstundagaman.
„Blessaður, ég er ánægður ef ég
slepp fyrir horn með kostnaðinn
af þessu og fæ í soðið. Þetta er
mikil vinna og það þarf mann-
skajp við þessa flutninga.
Eg setti 40 hraustar og falleg-
ar rollur á til vetrarsetu nú sem
er svipað og síðast,“ sagði Gunn-
ar.
Gunnar og smalar hans höfðu
í nógu að snúast í réttinni við
að tína lömbin út en þau voru
síðan sett.í net og slakað niður
í báta sem biðu fyrir neðan og
fluttu féð til lands. Gunnar gældi
við hrút sinn áður en honum var
slakað niður, sem hann sagði
sitt uppáhald. Hann talaði til
hans og sagði við hann að þeir
ættu eftir að eiga góðar stundir
saman í íjárhúsinu í vetur áður
en honum yrði hleypt út á ný til
að sinna jólaverkunum í Álsey.
Grímur
Lömbin hengd í blökkina sem rann með þau niður vírinn.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Gunnar Árnason, stórbóndi í Álsey, með eitt lamba sinna.
Dekkið á Lóðsinum fullt af fé úr Álsey og Suðurey.
J ÞAÐ ER BARA HÆJARLEIÐ í BORGARNES V
Komið við í einni glæsilegustu
þjónustumiðstöð landsins.
Opið frá kl. 8-23.30 alla daga.
Kjörbúð með miklu matvöruúrvali - Veitingasalur -
Greiðasala - Olíu- og bensínsala - Útibú Spárisjóðs
Mýrasýslu - Upplýsingamiðstöð ferðamanna - Úrvals
snyrtiaðstaða með skiptiborði fyrir kornabörn.
KAUPFELAG BORGFIRÐINGA - OLIUFELAGIÐ HF.