Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLASIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú verður óvænt ástfanginn í dag og það við fyrstu sýn. Stattu við gefín loforð er varða félagslífíð í kvöld. Þú munt skipuieggja ferðalag. Naut (20. apríl - 20. maí) (fffi Morguninn mun reynast þér erfíður í vinnu en þú bætir það upp þegar á daginn líður. Lausn á viðfangsefni kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Giftir munu gera vitur- legar ráðstafanir í dag með sínum betri helmingi. Tvíburar (21. mai - 20. júní) Bjóðist þér óvænt og fyrir- varalítið-að takast ferð á hend- ur skaltu þiggja það. Nánir vinir reynast ráðagóðir. Stattu við gefín loforð í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >€ Óvænt atvinnutilboð berst og setur þig svolítið úr skorðum. Forðastu deilur um peninga við böm. Góður sjálfsagi þínn að undanfömu mun skila ár- angri í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Til þess að treysta trúnaðar- bönd er skynsamlegt að gera eitthvað óvenjulegt með við- komandi í dag. Ólofaðir kynnsat áhugaverðu fólki. Meyja (23. ágúst - 22. september) Það tekur þig nokkurn tíma að komast í gang í vinnu í dag og þarftu því að vinna Iengi fram eftir. Vog (23. sept. 22. október) Þú verður í þungum þönkum lengst af í dag og nærð ár- angri á sviði tónlistar, ljóða- gerðar eða annarra lista. Tækifærisfundur í kvöld leiðir hugsanlega til ástarasam- bands. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) ^)jj0 Reyndu að koma röð og reglu á hlutina heima fyrir. Dyttaðu að því sem þarfnast lagfær- ingar og láttu ekki frystikist- una tæmast. Þú munt gera afar óvenjuleg kaup í dag. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desembcr) S&O Mikill innblástur opnar þér nýjar dyr í dag en árangurinn ræðst sem fyrr af miklum sjálfsaga. Hættu ekki í hálfn- uðu verki. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú munt reyna að spara fjár- útlát í dag en kaupir samt gjöf sem mun koma mjög á óvart. Hugsanlega gætir þú farið að græða á áhugamáli. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Reyndu ekki að bjóða yfirboð- urum þínum byrginn. Bjódd- ust til að taka að þér verkefni hjá íþróttafélaginu þínu. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú færð verðmæta ábendingu úr óvæntri átt en verður að treysta á eigin dómgreind ef þú vilt hagnast á henni. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradv'ól. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DYRAGLENS LJÓSKA SMÁFÓLK Mér þykir fyrir því að segja þér þetta, en matnum þínum seinkar um fjórar mínútur ... I I S 'c S © Líke all great writers, I have Known suffering. Eins og allir miklir rithöfund- ar, hef ég kynnst þjáningum. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Ekki hlýða makker í blindni" er BOLS-heilræði Hollendings- ins Berry Westra. „Köll makkers í vöminni eru uppástungur og leiðbeiningar en ekki skipanir," segir Westra. Austur gefur; AV á hættu. Norður ♦ G82 V Á95 ♦ D109653 ♦ 10 Vestur ♦ K953 ♦ K643 ♦ 4 + G874 Vestur Norður Austur Suður — — 1 lauf 1 spaði Dobl* 2 lauf’ Pass 4 spaðar Dobl Pass Pass Pass ■ Neikvætt dobl. "Góð hækkun í 2 spaða. Gefum Westra orðið: „Þú spil- ar út tígulfjarka, makker drepur á ás, spilar tvistinum til baka og þú trompar. Sagnhafi lætur kónginn og gosann. Tvistur makkers er auðvitað kall í laufi. En er ástæða til að hlýða því? Ekki ef öll þannig: spilin era til dæmis Norður ♦ G82 ♦ Á95 ♦ D109653 ♦ 10 Vestur Austur ♦ K953 ♦ 7 ¥K643 ¥D107 ♦ 4 a r A ♦ A872 ♦ G874 ♦ KD532 Suður ♦ ÁD1064 ¥G82 ♦ KG ♦ Á96 Sagnhafí getur þá unnið samninginn með því að spila spaða að blindum. Kjami málsins er þessi: Það liggur ekkert á að spila laufí, en hugsanlega þarf að bijóta slag eða slagi strax á hjarta. Þetta sérð þú, en ekki makker. En var þá rangt af makker að vísa á laufið? Alls ekki. Hann vildi sýna þér að óhætt væri að spila undan laufás ef þörf kræfi. Hann var að leiðbeina, ekki skipa.“ SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Þessi stutta skák var tefld á hraðmóti enska Kings Head-fé- iagsins í London í júní. Svartur teflir byrjunina af nákvæmni og vinnur mann eftir alltof bjartsýn- islega sóknartilburði hvíts en þar með er ekki öll sagan sögð: Hvítt: Rice, Svart: Bix, Sikileyjarvörn, 1. e4 — c5, 2. f4 (Þessi byrjun hefur löngum verið vinsæl meðal enskra kaffíhúsaskákmanna, en er þó ekki vitiausari en svo að með henni lagði Short Gelfand að velli í áskorendaeinvígi þeirra um daginn) 2. — d5, 3. Rc3 — d4, 4. Rce2 - Rc6, 5. d3 - e5, 6. Rf3 - Bd6, 7. g3 - f5, 8. Bg2 - Rf6, 9. 0-0 - 0-0, 10. fxe5 - Rxe5, ld. Rxe5 — Bxe5, 12. exf5 - Dc7, 13. Bf4 - Rg4, 14. Rxd4? - Bxf4!, 15. Rb5 - Be3+, 16. Khl - Db6!, 17. Dxg4 - Dxb5, 18. Hael - Bd4, 19. Bd5+ - Kh8, 20. Dh5 - Bd7, 21. Hf4 - Bc6?? (22. — Hf6 var nauðsynlegt) 22. Dxh7+! og svartur gafst upp, því hann er mát í næsta leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.