Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 URSLIT Knattspyrna EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA -Eyrri leikir í 1. umferð: Rauða Stjarnan (Júg.)-Portadown (frl.) ...................................4:0 Miroslav Tanjga (15.), Vlada Stosic (37.), Sinisa Mihajlovic (77., 85.) — Áhorfendur: 7.000 Kaisersl. (Þýskal.)-Veliko (Búlg.).2:0 Wolfgang Funkel (38. vsp., 73.) — Áhorfendur: 24.714 EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA Hajduk Split (Júg.)-Tottenham.......1:0 Mario Novakovic (51.) — Áhorfendur: 7.000 Valur-Sion (Sviss)...............0:1 — Alexandre Rey (80.) Áhorfendur: 761. Glenavon (N-írlandi)-Ilves (Finnlandi)3:2 ^Ferguson (32.), McBride (60. vsp.), Con- ville (80.) — Áaltonen (12.), Dziadulewicz (78.) Áhorfendur: 3.000 Swansea (Wales)-Mónakó (Frakkl.).1:2 Andrew Clegg (71.) — Gerald Passi (8. vsp.), Rui Gill Barros (27.) Áhorfendur: 6.208 EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA HASK (Júg.)-Trabzonspor (Tyrkl.)...2:3 Petrovic — Cyzio, Hami, Unal. Áhorfendur: 1.500 Ikast (Danmörku)-Auxerre (Frakkl.) .0:1 — Pascal Vahirua (67.) Áhorfendur: 12.000 HSV (Þýskal.)-Gornik Zabrze (Pól.) ....1:1 Uwe Eckel (80.) — Pjotr Jegor (50.) Áhorfendur: 5.800 Anorthosis (Kýpur)-Steaua (Rúmeníu)l:2 Ombikou — Stan, Dumitrescu. Ghent (Belgíu)-Lausanne (Sviss)...0:1 — Dominique Cina (40.) ~ Jfnmax (Sviss)-Floriana (Möltu)..2:0 Patrice Mottiez (43.), Ibrahim Hassan (60.) Slavia (Búlgaríu)-Osasuna (Spáni).1:0 Tzvetozar Dermendjiev (52.) — ENGLAND 1. deild: Crystal Palace - West Ham..........2:3 Salako (12.), Wright (61.) - Thomas (53.), Morley (57.), Smali (77.) Áhorfendur: 21.363 Luton - Queen’s Park Rangers.....0:1 — Barker (47.). 9.985. Manchester City - Everton........0:1 Beardsley (67.). 27.509 Sheffield United - Notts County.....1:3 Agana (69.) — Bartlett (73., 77.), Rideout ■ífc.). 19.375 2. deild: Bamsley - Leicester..............3:1 Blackburn - Watford.................1:0 Bristol City - Millwall............2:2 Cambridge - Wolverhampton........2:1 Charlton - Sunderiand..............1:4 Grimsby - Portsmouth.............1:1 Middlesbrough - Tranmere............1:0 Newcastle - Ipswich.................1:1 Southend - Plymouth..............2:1 Swindon - Bristol Rovers............1:0 AKUREYRARMÓTIÐ KA-Þór.............................5:3 0:0 eftir framlengingu og því gripið til víta- spyrnukeppni. KNATTSPYRNA Stefán Arnarson, markvörður FH, kom skemmtilega á óvart í 1. deildinni í sumar. Hann fékk nítján M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Leikmaðurársins: Stefán Arnarson jafnPétrl Þeirfengu báður 19 Jfil hjá Morgunblaðinu Stefán Arnarson, sem átti skemmtilega endurkomu í 1. deildina í sumar, þegar hann ákvað að veija mark FH-inga, fékk nítján M í einkunn hjá Morgunblaðinu, en ekki sautján eins og var sagt frá í gær. Það láðist að færa inn tvö M, sem hann fékk í leik með FH á Akureyri í 16. umferð. Markakóngar ENN eitt árið er runnið upp þar sem á að fara að rugla með afhentingu gull-, silfur og bronsskó Adidas, sem leikmenn hafa fengið fyrir að skora flest mörk í 1. deildar- keppninni. Úthlutunin hefur oft valdið óánægju þegar gera hefur verið upp á milli leikmanna, sem hafa skorað jafn mörg mörk. Tveir leikmenn 1. deildar standa uppi sem Markakóng- ar 1991 - Hörður Magnússon, '"»FH og Guðmundur Steinsson, af Víkingi, sem skor- INNLENDUM uðu þrettán mörk. VETTVANGI Þeir hafa því báðir jA ^ , unnið það afrek að ZjMgÉL tryggja sér gullskó fyrir afrek sitt. Ekki er allt sem sýnist, því að allt bendir til að Hörð- ur eigi ekki að fá gullskó þriðja árið í röð. Ástæðan? Að hanr. hafi leik- ið fleiri leiki en Guðmundur. Með öðru orðum; það á að refsa Herði fyrir að leika knattspyrnu. Hvað hefði orðið ef báðir leikmennir hefðu leikið jafn marga leiki? Hvaða regla hefði þá verið tekin upp - hvor þeirra hefði skorað oftar með skalla, með vinstri eða hægri fæti, eða þá úr vítaspyrn- um? Hefði átt að verðlauna menn - fyrir vinstri- eða hægrifótarskot, eða refsa mönnum fyrir að þeim SigmundurÓ. Steinarsson skrifar sé treyst fyrir að taka vítaspyrnur fyrir lið sitt? Ef Hörður hefði ekki skorað gegn Val í síðustu umferð, væri hann með 12 mörk eins og Leifur Geir Hafsteinsson, ÍBV. Hvor þeirra hefði þá fengið silfurskó- inn? Leifur Geir, sem lék sautján leiki, en Hörður átján? Leifur Geir hefði þá hagnast á því að vera í leikbanni í síðustu umferð, en Herði refsað fyrir að leika. Þegar farið var að verðlauna knattspymumenn í Evrópu fyrir skoruð mörk, fengu þeir (og fá) skó fyrir skoruð mörk, en ekki hvað þeir leika marga leiki. Þeir fengu verðlaun fyrir skoruð mörk, en ekki hvað hlutfall þeirra var úr leiknum ieikjum. I keppninni um markakóngstitilinn í Evrópu, er ekki tekið inn í myndina að leikmenn í Englandi og Frakk- landi leika 38 leiki, Þýskalandi, Ítalíu og Hollandi 34 leiki, Dan- mörku 26 leiki og Búlgaríu 30 leiki. íslenskir markaskorarar eiga að standa jafnt að vígi og marka- skorarar í þeim löndum sem keppt er um hina ýmsu skó. Þar fá leik- menn skó við sitt hæfi, eða eftir því hvað mörg mörk þeir skora. .Þeir fá viðurkenningu fyrir skoruð mörk, en ekki hvað lengi þeir voru inná í hveijum leik. Þannig á það einnig að vera hér á landi. Það á gkki að refsa knattspyrnu- mönnum fyrir að leika knatt- spyrnu. Stefán hefur átt mjög góða leiki með FH og fékk t.d. þijú M í leik gegn KR, en aðeins tveir leikmenn fengu hæstu einkunn í sumar - Stefán og Björn Bjartmarz, Víkingi. FH-ingar fengu því 74 M og fóru yfir KA-menn, sem fengu 73. ÍÞR&mR FOLX ■ SARAVAKOS er án efa þekkt- asti leikmaður Panathinaikos. Hann er fyrirliði liðsins og gríska landsliðsins og mikill markaskorari, var m.a. markahæsti leikmaðurinn deildarinnar í fyrra. Hann er þrítug- ur að aldri og elsti maður liðsins en yngsti maður liðsins, Donis, 21 árs leikur með honum í framlínunni í leiknum í dag. ■ GRÍSKIR blaðamenn sem Morgunblaðið ræddi við á æfingu hjá Panathinaikos í síðustu viku voru hissa á því að enginn frá Fram hefði komið til að líta á liðið leika. ■ ELDRI maður sér um að líta eftir öllum hlutum á æfingasvæði Panathinaikos. Hann spurði blaða- mann Morgunblaðsins fyrst hvort íslendingar færu ekki á skyttirí. Ástæðan kom í Ijós síðar á æfing- unni þegar karl rauk á fætur og greip haglabyssu sem hann fretaði síðan af upp í loftið og til jarðar féllu tveir fuglar. Leikmenn brostu og voru greinilega vanir þessu og sögðu karl skjóta á allt sem hreyfð- ist, nema leikmennina. ■ LEIKURINN í dag er 33. leik- ur Fram í Evrópukeppni og verður honum sjónvarpað beint til Grikk- lands. ■ PANA THINAIKOS er fyrsta liðið frá Grikklandi sem leikur hér á landi. Landslið þeirra hefur aldrei leikið hér á landi. KR lék árið 1968 gegn Olympiakos en báðir Ieikirnir voru leiknir ytra og tapaði KR báð- um 2:0. KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI Leikum alttaf til sigurs - segja þjálfarar Fram og Panathinaikos „VIÐ leikum alltaf til sigurs og ég tel að við eigum að geta náð ágætum úrsltium hér heima,“ sagði Ásgeir Eiíasson þjálfari Fram um leik liðsins við grísku meistarana Panathinaikos en liðin reyna með sér á Laugar- dalsvelli ídag klukkan 17.30. Þetta er alvörufélag sem við leikum gegn og það verður ekki auðvelt að komast áfram í aðra umferð en það er að sjálfsögðu alltaf markmiðið hjá okkur og ef það tekst þá er næsta markmið að komast í þriðju umferð. Við munum allavega byija á að leika eins og við erum vanir og reyna að ná hag- stæðum úrslitum,“ sagði Ásgeir. Pétur Ormslev fyrirliði Fram sagðist hlakka til leiksins. „Það er alltaf gaman að leika í Evrópu- keppninni og þetta eru síðustu leik- ir keppnistímabilsins þannig að menn ætla að hafa gaman af þessu. Við ætlum að leika okkar bolta en við höfum ekkert séð til þeirra og vitum því takmarkað um liðið,“ sagði Pétur. Panathinaikos leikur venjulega 3-5-2 og miðað við æfingu hjá þeim í gær þá verður þeirri leikaðferð beitt í dag. I liðinu eru ijórir grískir landsliðmenn, einn pólskur lands- liðsmaður og tveir ástralskir lands- liðsmenn auk nokkurra grískra landsliðsmanna sem eiga ekki fast sæti í liðinu en hafa leikið landsleiki. „Leikmenn mínir eru í góðu líkamlegu ásigkomulagi og við munum leika til sigurs eins og við gerum alltaf,“ sagði Vasilis Daneel þjálfari Panathinaikos eftir æfingu í gær. í hópinn vantar að vísu þijá góða leikmenn. Argentínski lands- liðmaðurinn Delgado og pólski landsliðmaðurinn Warzycha eru meiddir og komu ekki með til lands- ins og gríski landsliðmaðurinn Ge- orgakopoulos getur ekki leikið vegna meiðsla sem hann hlaut í leik liðsins um helgina. „Veðráttan hér á íslandi er tals- vert örðuvísi en heima en það á ekki að valda okkur neinum erfið- leikum. Völlurinn er góður nema vítateigarnir og ég vona bara að það rigni ekki fyrr en eftir leikinn. Fram er með gott lið og leikmenn eru metnaðarfullir og þeir hafa hug á að sanna sig til að komast í at- vinnumennsku og leikirnir gegn okkur eru tilvalið tækifæri fyrir þá til þess,“ sagði Daneel þjálfari, en hann er nú með liðið annað árið í röð og auk þess þjálfaði hann liðið árið 1987. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grikkir á æfingu. Fremstur á myndinni er Saravakos markaskorarinn mikli og fyrirliði liðsins. Lengst til hægri er Apostolakis, fyrir aftan hann pólski markvörðurinn Wandzik og aftastur er Donis, yngsti maður liðsins. Spánverjar með sterkasta lið sitt Ísland og Spánn leika seinni leik þjóðanna í riðlakeppni Evrópu- móts landsliða eftir viku og fer leik- urinn fram á Laugardalsvellinum. Þetta verður fyrsti leikur þjóðanna undir stjóm nýrra landsliðsþjálfara. Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari íslands, tilkynnir hóp sinn á sunnu- dag, en Spánveijar hafa þegar valið 16 leikmenn. Þar á meðal er Mart- in Vazquez, sem leikur með Tórínó gegn KR í Evrópukeppni félagsliða á Laugardalsvellinum á morgun, en eftirtaldir leikmenn skipa annars hópinn (landsleikir í sviga): Markverðir: Andoni Zubizarreta....Barcelona (62 BADMINTON Francisco Buyo......Real Madrid (5) Varnarmenn: Manuel Sanchis.....Real Madrid (42) Fernando Ruiz Hierro..Real Madrid (4) Roberto SolozabaL.Atlético Madrid (2) Alberto Ferrer........Barcelona (1) Abelardo Fernandez .Real Sporting (1) Alfonso Cortijo.............Sevilla Miðjumenn: Miguel Gonzales.....Real Madrid (57 Rafael Martin Vazquez....Tórínó (30 Eusebio Sacristan....Barcelona (13) Juan Vizcaino....Atlético Madrid (6) Framherjar: Emilio Butragueno....Real Madrid (62) Manolo Sanchez...Atlético Madrid (21) Juan Goicoechea.......Barcelona (6) Alvaro Cervera........Mallorca (l) TBR tekur þátt í EM Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur tekur þátt í Evrópu- keppni félagsliða í badminton sem fram fer í Antwerpen i Belgíu og hefst á morgun og lýkur á sunnudag. TBR er í riðli með félögum frá Ítalíu, Frakklandi og írlandi. Ef TBR félagslið frá Hollandi í 8-liða úrslit- um. Lið TBR er skipað eftirtöldum leik- mönnum; Brodda Kristjánssyni, Þor- steini Páli Hængssyni, Árna Þór Hallgrímssyni, Elsu Nielsen, Ásu Pálsdóttur og Guðrúnu Júlíusdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.