Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.09.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 15 íslenskan og skólarnir eftir Jón Hafstein Jónsson Fyrir nokkrum tugum ára þótti sjálfgefið að stúdentsprófsskírteinið væri vitnisburður um að handhafi þess gæti fundið einhveija náms- grein í Háskóla íslands, sem hann hefði næga þekkingu til að leggja stund á. Engum datt þó í hug að sérhver stúdent réði við sérhvetja námsgrein háskólans. Til þess að fá inngöngu í verkfræðideild nægði t.d. ekki að vera úr stærðfræðideild ein- hvers hinna þriggja menntaskóla landsins, heldur þurftu einkunnir nemandans einnig að standast próf hinnar svokölluðu Leifsformúlu og þá raun stóðust aðeins fáir. Aðrar deildir stóðu stúdentum opnar, en háskólinn treysti dóm- greind og sjálfsgagnrýni nemend- anna til að takmarka aðsóknina, auk þess sem próf snemma á námsferlin- um leiðréttu hugsanleg mistök, og það var ekkert tiltökumál þó að þessi mistök væru á stundum nokkuð mörg. Fall í Háskóla íslands var (eins og raunar í menntaskólunum) skrifað á reikning nemandans. Nú er öldin önnur. Allar tegundir stúdentsskírteina — og þær eru margar og misjafnar — gilda sem aðgöngumiðar að Háskóla Islands og þau viðhorf verða ríkjandi að honum beri að afgreiða hópinn, sem inn í hann ritast, áfallalítið gegnum deildir sínar. Umbætur í íslenskukennslu Sennilega hefur engin námsgrein á framhaldsskólastigi fengið eins rækilega endurskoðun og umfjöllun og einmitt móðurmálið. Það varð því mörgum undrunarefni þegar háskól- akennarar kvörtuðu nú nýverið vegna lélegrar kunnáttu í íslensku hjá nýstúdentum. Umbótaviðleitnin í framhaldsskólanum varð að sjálf- sögðu tortryggileg og það í þeim mæli, að ráðherra menntamála fann sig knúinn til að hefta frelsi þeirra MH-inga við hið göfuga sköpunar- starf þar á bæ — og umræðan um móðurmálskennslu í skólum tók fjör- kipp. Þá er ég kominn að þættinum „Mál til umræðu" í ríkisútvarpinu þ. 6. sept. sl. en hann — og raunar aðeins eitt orð í honum — er tilefni þessara skrifa. í þættinum kom fram að það átti síður en svo að draga úr íslensku- kennslu við MH, slíkt var bara regin- misskilningur, því að nemendunum átti að gefast kostur á enn fleiri áföngum í móðurmálinu, og áfangar í íslensku eru vinsælir og nemendur safna þeim eins og frímerkjum á lok- askírteinin sín. Til sannindamerkis voru áfangarnir nefndir með nafni, bókmenntaþetta og bókmenntahitt. Það var ekki fyrr en spurt var um málfræðina að hennar var getið og þá á þann veg að ég get ekki orða bundist. Jú, það er sannarlega boðið upp á áfanga í málfræði, en áhuginn er ekki mikill á „málfræðistaglinu". Þetta orðalag segir meira en langt mál um viðhorf (fordóma) og vænt- anlega störf þess kennara, sem nefn- ir einn meginþátt kennslugreinar sinnar stagl! En málið er alvarlegt vegna þess að þeir eru langtum fleiri, móðurmálskennaramir, sem svona hugsa. Því til staðfestingar vil ég nefna eftirfarandi. Aðförin að málfræðinni Einn aðsópsmesti móðurmáls- kennari landsins ritaði fyrir rúmum tveim árum greinaflokk í Morgun- blaðið, og þar stóð m.a. þetta: „Við þetta bætist svo það að vafa- samt er að þorri nemenda á grunn- skólaaldri geti tileinkað sér svo flók- ið hugtakalíkan sem málfræði móð- urmálsins er. Auðvitað geta allir lært að þekkja algengustu orðflokka — mikið vafamál hvort þeir skilja hvers vegna hvert orð tilheyri hvaða flokki, en það leiði ég hjá mér. Hitt skiptir að mínu mati meira máli að fyrir móðurmálsskilning og móður- málsnotkun unglinga hefur mál- fræðiþekking afar lítinn tilgang. í raun og veru er afar lítið hægt að nota hana í þeirri umfjöilun um móð- umál sem skólinn telur brýnasta nú og jafnan, þ.e.a.s. viðleitninni við að efla málþroska, vitund og samvisku- semi nemenda í öllu sem varðar notk- un móðumálsins." Mér sýnist að skipulega hafí verið unnið að því að losa skólaæskuna undan því „fargi", sem málfræðin var minni kynslóð. En stafar nokkur háski af hnignun eða brottfalli henn- ar úr skólakerfinu? Mín skoðun er að meinið, sem allir ræða um, sé að skólamir eru hættir að veita æsk- unni þá vitsmunalegu ögun og rækta hjá henni þau vinnubrögð og þann Jón Hafsteinn Jónsson „Mér sýnist að skipu- lega hafi verið unnið að því að losa skólaæsk- una undan því „fargi“, sem málfræðin var minni kynslóð.“ smekk, sem fæst af því að greina mál sitt, vega og meta það sem sett er á blað. Ég held að ritgerðasmíðin um hitt og þetta hafi ekki tekið að sér það hlutverk að knýja nemandann til að kryfja málfar sitt. Málfræðinám krefst þess, að bar- nið beiti athygli sinni að merkingu og formi þess texta, sem um er fjall- að, og venur það á að skoða með gagnrýni í huga það mál, sem það sjálft lætur frá sér fara. Ég heyrði fyrir löngu einhvern umbótasinnann — ég man ekki hvern — tala um að málfræðin skapi málótta hjá ungling- um. Það er þetta uppeldi sem nemend- ur vantar, og fyrir því finna ailir kennarar. Fyrirmyndin Einmitt nú var ég að fá í hendur sunnudagsblað Morgunblaðsins hlað- ið móðurmálsþönkum. Að. sjálfsögðu lék mér mest forvitni á framlagi ís- lenskukennarans við Kennarahá- skóla íslands. Auk áhugaverðs fram- lags átti ég von á vönduðu málfari, sem stæðist þær kröfur, sem kenn- ari í framhaldsskóla gerir til nem- enda. Innleggið hófst með kröfu um fleiri kennslustundir og hærri laun. Auk þess benti hann á mikilvægi þess að allir kennarar tali góða ís- lensku. Allt er þetta gott og gilt en einhvem veginn hafði ég búist við öðrum og vandfundnari ábendingum úr þessari átt og vonað að finna gagnrýni á skólalágkúruna. Þeirri málfarslegu fyrirmynd, sem hér gat að líta, vil ég lýsa með tveim ívitnun- um. Sú fyrri var innan gæsalappa og hljóðar þannig: „...sjálfír kvarta margir þeirra yfír því að þegar út í kennsluna sé komið hefðu þeir viljað vera öruggari í móðumálinu“. Sú seinni var ekki innan gæsalappa (gæti að hluta skrifast á reikning blaðamannsins) og hún er svona: „Sigurður benti á að menn virtust gjarnari á að meta íslenskukunnáttu út frá tilfínningum en önnur fög og að íslenskukunnáttunni hefði ævin- lega þótt fara hrakandi". Mér kemur helst í hug að grunn- og framhaldsskólinn hefðu betur skapað háskólakennaranum (og blaðamanninum) ögn af málótta. Þetta nægir, en þó er af meiru að taka, t.d. niðurlagið, og öll er rit- smíð þessi ljóslifandi dæmi um þann vanda sem nú er í brennidepli um- ræðunnar og meistari Þórbergur nefndi ruglandi. Mér er spurn: Er virðingarleysið fyrir íslenskunni orðið slíkt — þrátt fyrir allar umhyggjuyfírlýsingarnar — að jafnvel íslenskukennari í stofn- un sem nefnir sig háskóla sjái hvorki ástæðu til að vanda mál sitt né til að ritskoða innskot blaðamanns, þeg- ar hann tjáir sig um íslenskt mál — og áminnir kennara annarra náms- greina um að vanda hversdagslegt málfar sitt. Tillögnr í lokin Er ekki æskilegt að bókmennta- áfangar á framhaldsskólastigi hefjist með lestri ritgerðar Þórbergs „Einum kennt — öðrum bent“? Er ekki við hæfí að hvetja nemendur til að mæla þau bókmenntaverk, sem talið er að eigi erindi í almenna skóla, með málfarskvarða þeim, sem Þór- Bækur sem geta opnað þér nýja framtíðarsýn BAÐAR BÆKURNAR FYRIR KR. 3.800* Bók um þróun, stöðu og framtíð hlutabréfamarkaðar I bókinni „Hlutabréfornarkaðurinn á Islandi“ er að finna umfengsmiklar upplýsingar um ungan og ört vaxitndi hlutabréfamarkað í um- fjöllun nokkiura fróðustu manna um þetta máleftii hérlendis. Auk þess er í bókinni viðauki með ítarlegu talnaefni. Verðkr. 1.480. Bók fyrir þá sem vilja hugsa um framtíðina Hér fjallar Þorkell Sigurlaugsson um stefhu- markandi áætlanagerð. I bókinni er lýst skipu- legii vinnu viö áætlanagerð sem byggir á skil- greiningu á hlutverki, stefnumörkun og mark- miðssemingu. Tímabært og aðgengilegt rit sem höfðar til allra. Verð kr. 2.850. 'Bœkumarfást adeins á tilbodsverði i afgreiðslu VIB, Arrnúla 13a og hjá Framtíðarsýn ísíma 91. 678263. - Þærfást einnig í öllum betri bókaverslunum. íKyFRAMTÍÐARSÝN HF. bergur skilgreinir í ritgerð sinni? í umræðuþættinum 6. sept. kom fram hjá móðurmáiskennara úr MH krafa um að Háskóli íslands lagi sig að þeirri breytingu, sem orðin er í framhaldsskólunum. Ég tel aftur á móti að viðbrögð háskólans við ástandinu á framhaldsskólastiginu ættu að vera þau að koma á inntöku- prófí í einstakar deildir. Hér er ég ekki aðeins að hugsa um íslenskuna, heldur einnig og ekki síður um stærð- fræðina og allt sem snertir undirbún- ing háskólanáms í raunvísindum. Slíkt myndi skapa framhaldsskólun- um aðhald sem þeim er hollt að fá og auðvelda kennurum með faglegan metnað að starfa. Höfundur er deildarstjóri í stærðfræði við Verslunarskólann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.