Morgunblaðið - 18.09.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.09.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991 Grenivík: Lokið við að setja stálþil í höfnina LOKIÖ verður við að setja niður 50 metra langt stálþil við höfnina á Grenivík í vikunni, en byrjað var á verkinu í byrjun sumars. ,Þá eru framkvæmdir við undir- búning að malbikun Hafnargötu einnig á lokaspretti. Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi sagði að menn væru ánægðir með hafnarfram- kvæmdir á staðnum, en í kjölfar þeirra mun verða pláss fyrir GrenL víkurflotann allan í höfninni. Á næsta ári er stefnt að því að leggja þekju á stálþilið. Kostnaður við gerð stálþilsins er tæplega 30 milljónir króna og er hlutur Grýtubakkahrepps við verkið 25%. Samhliða framkvæmdum við höfnina hefur í sumar verið unnið að undirbúningi þess að malbika Hafnargötu, sem liggur úr þorpinu og niður að höfninni, en áætlað er að malbika götuna á næsta ári. Lóöir undir atvinnustarf- semi lausar Stúdenta- garðar byggðir FRAMKVÆMDItt eru hafnar við byggingu stúdentagarða við Klettastíg, en stefnt er að því að taka fyrsta fjölbýlishúsið af þremur í notkun að ári. í tveimur húsanna verða níu tveggja og þriggja herbegja íbúðir, en einstaklingsherbergi, alls tólf í hinu þriðja. Áætlaður kostnaður við byggingu fyrsta hússins er 54 millj- ónir, en kostnaðaráætlun húsanna allra er upp á 138 milljónir króna. Stúdentagarðarnir eru byggðir á vegum Félagsstofnunar stúdenta, en verktaki er Fjölnir hf. Réttað var í Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit síðastliðinn sunnudag, en fé mun fækka mjög í sveitinni í haust. Morgunblaðið/Benjamín Sauðfé stórfækkar í Ejjafjarðarsveit Sala fullvirðisréttar gefur bændum sem komnir eru á efri ár tækifæri til að hætta Ytri-Tjörnum. SAUÐFÉ mun stórfækka hér í Eyjafjarðarsveit í haust. Að sögn Olafs Vagnssonar hjá Búnaðarsambandinu er fækkunin allt að 20%. Nokkuð margir bændur hætta rétt fyrir heimilið, eins og menn allri sauðfjárframleiðslu, en aðrir orða þ'að. Sumir af þessum verða með örfáar kindur, svona bændum er komnir á efri ár og grípa það tækifæri sem nú gefst með sölu á fullvirðisrétti. Göngur hér um slóðir taka aðeins einn dag. Gengið var síð- astliðinn laugardag og hreppti gangnafólk leiðindaveður, all- hvasst að norðan og úrhellisrign- ingu. Gafst frekar lítið næði til að lyfta fleygum og taka lagið og voru menn óvenjufljótir að hverfa til síns heima að göngum loknum. - — Benjamín ÞRJÁR lóðir undir atvinnustarf- semi við Viðjulund og tvær við Undirhlíð verða auglýstar lausar til umsóknar innan skamms, en bygginganefnd Akureyrarbæjar mun úthluta lóðunum. Heimir Ingimarsson formaður bæjarráðs sagði á fundi bæjarstjórn- ar í gær, að ákveðið hefði verið að auglýsa umræddar lóðir þar sem fram hefðu komið óskir um að byggja á þessum svæðum frá nokkr- um aðilum. Hann sagði að mönnum væri umhugað.um að hefja hið fyrsta framkvæmdir þannig að ákveðið hefði verið að flýta afgreiðslu í bæj- arkerfinu sem unnt væri. Lóðirnar þtjár við Viðjulund eru á svæðinu ofan við Lund og upp að Mjólkursamlagi KEA annars vegar 'og hins vegar við Undirhlíð. Þar er um tvær lóðir að ræða. Hvað aðra þeirra varðar hafa komið fram óskir um að byggja þar undir hjólbarða- þjónustu og verslunarhús, en á hinni, sem er á mótum Undirhlíðar og Langholts, hefur verið sótt um að byggja stórt gróðurhús þar sem einnig yrði blómaverslun. Á milli 15 og 20 geit- ungabúum veríð eytt Héraðsnefnd Eyjafjarðar: Stefnt að byggingu viöbót- arhúsnæðis við VMA og MA GEITUNGAR hafa í auknum mæli gert sér bú í görðum á Akur- eyri í sumar og hefur meindýraeyðir bæjarins eytt á milli 15 og 20 geitungabúum. Látlaust var hringt á skrifstofu umhverfisdeild- ar í gær, þar sem meindýraeyðir hefur aðsetur og kvartað yfir geitungum á sveimi. BYGGING D-álmu við Verkmenntaskólann á Akureyri og viðbótar- húsnæðis við Menntaskólann á Akureyri, sem gætu orðið allt að eitt þúsund fermetrar að stærð koma næst á eftir því að ljúka 5. og 6. áfanga VMA í forgangsröð vegna framkvæmdaáætlunar við fram- haldsskólanna á Akureyri. Um þá áætlun var fjalla á fundi Héraðs- nefndar Eyjafjarðar í fyrradag. Guðný Sverrisdóttir formaður Héraðsnefndar Eyjafjarðar sagði að á fundi nefndarinnar hefði verið samþykkt að vinna áfram að fram- kvæmdaáætlun sem starfshópur á vegum nefndarinnar hefði lagt, en samkvæmt henni er gert ráð fyrir að ljúka 5. og 6. áfanga við Verk- menntaskólann á Akureyri ásamt lágmarksframkvæmdum við lóð skólans. Þá er og gert ráð fyrir að hefj- ast handa við byggingu D-álmu við Verkmenntaskólann, sem reiknað er með að verði á bilinu 800—1.000 fermetrar að stærð, og einnig er áformað að byggja viðbótarhúsnæði við Menntaskólann á Akureyri sem yrði svipað að stærð. Samkvæmt framkvæmdaáætluninni er stefnt að því að þessum byggingum verði lokið fyrir 1. ágúst 1995. Reiknað er með að kostnaður við þessar framkvæmdir nemi um 100 milljón- um króna á ári. í hlut ríkis kemur að greiða 60% af byggingarkostn- aði, en þau sveitarfélög sem aðilar eru að rekstri framhaldsskólanna á Akureyri munu greiða 40%, en heimabærinn, þ.e. Akureyri greiðir helming af hlut sveitarféiaganna og afgangurinn jafnast niður á sveitarfélögin eftir höfðatölu. Á fundi Héraðsnefndar í fýrra- dag var einnig samþykkt að fela héraðsráði að skipa þriggja manna starfshóp til að fara í saumana á skólaskipan í Eyjafirði. Svanberg Þórðarson meindýra- eyðir sagði að geitungarnir væru nú að yfirgefa búin og leita sér skjóls fyrir veturinn og því bæri svo mikið á þeim. Ástæðulaust væri hins vegar fyrir fólk að ótt- ast þá; að öllu jöfnu létu þeir fólk afskiptalaust væru þeir ekki áreittir. Mest hefur borið á geitungabú- um á Suðurbrekku og Oddeyri, þar sem gróður er hvað mestur, en búin hanga oftast í trjám. Eitt bú fannst þó uppi á háalofti í húsi og í gær eyddi Svanberg geitungabúi sem komið hafði ver- ið fyrir í moldarbarði í garði ein- um. Mun meira hefur borið á geit- ungum í sumar en áður og hefur tæplega 20 búum verið eytt, en voru örfá síðasta sumar. Svanberg sagði að eflaust skipti máli hversu góður síðasti vetur var, en hann var snjóléttur og fremur lítið frost, þannig að flugurnar lifðu frekar af. „Eg hef bara orðið var við eina teguna geitunga, en þær er nokkuð margar til. Ég trúi ekki öðru en við getum lært að lifa með þessum flugum eins og aðrar þjóðir,“ sagði Svanberg. Morgunblaðið/Rúnar Þór Svanberg Þórðarson meindýra- eyðir hefur eytt tæplega 20 geitungabúum á Akureyri í sumar, sem er óvenjumikið, en í fyrrasumar eyddi hann örfá- um búum. Á myndinni má sjá geitungabú sem Svanberg eyddi í gær, en því var komið fyrir í moldarbarði í garði ein- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.