Morgunblaðið - 18.09.1991, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
tónlistarkennari,
lést á öldrunardeild Borgarspítalans 16. september.
Einar Kárason,
Þórunn Kristinsdóttir,
Kristinn Jón Einarsson,
Ingibjörg Einarsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
HELGU FINNBOGADÓTTUR,
Eskifirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Böðvar Jónasson.
+
Móðir okkar,
RÓSA STEINUNN GUÐNADÓTTIR,
áður til heimilis í Furugerði 1,
lést 15. september á Hvítabandinu.
Börn hinnar látnu.
+
Ástkær eiginmaður minn,
KARL ANDRÉSSON,
Hagalandi 4,
Mosfellsbæ,
lést á Reykjalundi þriðjudaginn 17. september.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda,
Hulda Sigurjónsdóttir.
+
Maðurinn minn og sonur,
ÞÓRHALLUR MÁR SIGMUNDSSON
prentari,
Dvergabakka 20, Reykjavík,
er látinn.
Fyrir hönd barna, tengdasonar og systra hins látna,
Sigrún Elfa Ingvarsdóttir,
Sigríður Sigmundsdóttir,
Alfred H. Einarsson.
+
Ástkaer eiginmaður minn, faðir og afi,
SVAVAR HJALTESTED,
Reynimel 44,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. september
kl. 10.30.
Lára Hjaltested,
Erla Hjaltested
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON,
Bjarkarholti 3,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju fimmtudaginn 19. septem-
ber kl. 14.
Lilja Guðjónsdóttir,
Bryndís Sigurðardóttir, Kristin Karlsson,
Ásdis Sigurðardóttir, Valgeir Sveinbjörsson,
Svanhildur Sigurðardóttir, Haraldur Erlendsson,
Vilhjálmur Sigurðsson, Guðrún Sverrisdóttir,
Lilja Huld Sigurðardóttir, Hreinn Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar, fósturfarðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
Holtsgötu 19,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn
19. september kl. 13.30.
Elín Ása Guðmundsdóttir,
Hörður Guðmundsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Ólafur K. Guðmundsson, Sigurlaug J. Jónsdóttir,
Bragi Þorbergsson, Edda Þráinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Fríða Hallgríms-
dóttir Austmann
Fædd 21. maí 1906
Dáin 10. september 1991
Fríða Hallgrímsdóttir Austmann
fæddist í Reykjavík 21. maí 1906.
Foreldrar hennar voru Helga Aust-
mann Guttormsdóttir prests Vig-
fússonar í Stöð, ög Hallgrímur Jón-
asson kennari. Helga og Hallgrímur
áttu þá heima á Akureyri, þar sem
þau ráku vertshús og Helga kenndi
hljóðfæraleik og söng. Helga var
tvígift og átti dóttur frá fyrra hjóna-
bandi, Ónnu Stefánsdóttur, sem um
þessar mundir dvaldi hjá ömmu
sinni á Seyðisfirði. Foreldrar Fríðu
voru í góðum efnum, vel gefin og
menntuð, svo framtíðin virtist blasa
'við litlu stúlkunni, björt og hlý. En
innan skamms dró ský fyrir sólu.
Foreldrarnir slitu samvistir, faðir
hennar hvarf af landi brott.
Skömmu síðar kom móðir hennar
henni fyrir á Sílastöðum við Eyja-
fjörð hjá mágkonu sinni, systur
Hallgríms, og ætlaði að skreppa
austur á land að vitja dóttur sinn-
ar, föður og systkina. I þeirri ferð
veiktist Helga og gat ekki upp frá
þvi haft afskipti af litlu stúlkunni.
En frænka hennar lét hana ekki frá
sér fara. Kornung stóð hún því
uppi foreldralaus og systur sína
missti hún af slysförum 1912.
Fríða átti heima á Sílastöðum til
ársins 1927. Þá ákvað hún að hitta
frændfólkið á Austurlandi, og réðst
að Stöð um haustið. En þar voru
örlög hennar ráðin. I Stöð kynntist
hún mannsefninu Benedikt Gutt-
ormssyni og giftust þau 28. mars
1928.
Benedikt lést 1983. Þau hjónin
eignuðust tvo syni: Hrein, prófessor
við Háskóla íslands, og ári síðar
dreng sem lést í fæðingu. Hreinn á
einn son, Egil Benedikt, sem kvænt-
ur er Ernu Árnadóttur, og eiga þau
fjögur börn á lífi. Auk Hreins ólu
þau Fríða og Benedikt upp tvö börn:
Sólmund, sem lést af slysförum
rétt innan við fermingaraldur, og
Guðlaugu, hjúkrunarfræðing, sem
gift er Sigurði Jónssyni viðskipta-
fræðingi. Þau eiga tvö börn og þrjú
bamabörn og eru búsett í Banda-
ríkjunum.
Þegar Fríða frænka mín kom að
Stöð, var ég innan við fermingu og
átti heima á næsta bæ. Fárra mín-
útna gangur var milli bæjanna og
dagleg samskipti. Það var ekki svo
lítill viðburður í fásinninu, að fá
þessa ungu og fallegu frænku í
nágrennið, flytjandi með sér fersk-
an blæ úr fjarlægum landshluta.
Það var glatt á hjalla, þegar hún
kom í heimsókn, spilaði við okkur
krakkana og hló sínum innilega,
smitandi hlátri. Þegar svell var og
tunglsljós, var farið út á skauta. I
tómstundum lærði ég að hekla og
sauma hjá þessari indælu frænku
minni. Svo kom að því að hún fékk
sendan hestinn sinn, Neista, sem
var ótaminn og kastaði af baki sér
hverjum knapanum á fætur öðrum,
en Fríða gat setið hann, og að end-
ingu varð hann tarninn. Mér er í
minni hvað við urðum hrædd einu
sinni þegar Fríða kom á Neista, sem
stefndi beint á túngirðinguna og
vatt sér yfir eins og ekkert væri,
en Fríða sat sem fastast og var
ekkert á því að detta af baki.
Þessai- minningar hafa þotið
gegnum huga minn þegar ég á síð-
ustu árum, hefí litið inn til frænku
minnar þar sem hún hefur dvalið á
sjúkrahúsi, ósjálfbjarga, haldin erf-
iðum sjúkdómi. Fríða hafði líka lifað
sín manndómsár. Stjórnað stóru og
gestkvæmu heimili af myndarskap,
reglusemi og festu. Auk barnanna
þriggja dvöldu tengdaforeldrar
hennar á heimili þeirra hjóna um
árabil, uns yfir lauk. Fríða hafði
unun af að umgangast börn og
ungmenni. Á heimilinu, í umgengni
við börn og bamabörn, átti Fríða
sína hamingjudaga, en eins og að
var vikið, sótti sorgin hana líka
heim. En þrátt fyrir viðkvæma lund
og innibyrgðan harm, var henni
tamara að horfa á sólskinsblettina
og rifja þá upp. Það mundi hún líka
vilja að ég gerði, þegar ég nú hugsa
til hennar og kveð hana með þakk-
læti fyrir sameiginlegar sólskins-
stundir og sendi ástvinum hennar
innilegar samúðarkveðjur.
Anna Þorsteinsdóttir
í gær var gerð frá Fossvogs-
kirkju útför Fríðu Hallgrímsdóttur
Austmann, Aragötu 10, Reykjavík,
en hún andaðist á sjúkrahúsi hinn
10. þ.m. eftir langvinn veikindi.
Fríða fæddist í Reykjavík 21. maí
1906. Foreldrar hennar voru Helga
Austmann og Hallgrímur Jónasson.
Vegna skilnaðar foreldranna var
hún tveggja ára gömul tekin í fóst-
ur hjá föðursystur sinni Guðrúnu
Jónasdóttur og manni hennar Ág-
ústi Jónassyni, bónda á Sílastöðum
skammt fyrir utan Akureyri. Á þeim
fagra stað ólst Fríða upp við gott
atlæti og reglusemi í hvívetna.
Eftir að tilskildum barna- og
unglingalærdómi lauk á Norður-
landi talaðist svo til að hún heim-
sækti frændfólk sitt að Stöð í Stöðv-
arfirði. En með þeirri ákvörðun var
teningnum kastað í lífi hennar því
að þar kynntist hún náfrænda sín-
um, Benedikt Guttormssyni bónda
í Stöð. Þau gengu í hjónaband árið
1928 og tók Fríða við húsmóður-
störfum á víðþekktum kirkjustað
sem nýlega hafði verið lagður af
sem prestsetur og sóknin sameinuð
Heydalaprestakalli.
Engan skal undra þótt frænka
mín stæðist ekki bónorð bóndans
og prestsonarins glæsilega, sem
menntast hafði bæði hér og erlend-
is, þótt það gengi eilítið á svig við
upphaflega áætlun hennar að
skreppa á vit frændfólks á þessum
stað en búa sig síðan undir frekara
nám. Á fyrsta búskaparári Fríðu
og Benedikts fór ég sem þessi orð
rita í heimsókn að Stöð sem fylgdar-
maður Sigrúnar Blöndal föðursyst-
ur minnar. Þau fyrstu kynni við
Fríðu urðu upphaf ógleymanlegra
samskipta og samverustunda með-
an báðum entist líf og heilsa.
Kaflaskipti verða mismunandi
mörg í lífi einstaklinga, þó líklega
fleiri hjá þeim sem hafa næmari
tilfinningu fyrir straumum sinnar
tíðar. Benedikt og Fríða voru þeirr-
ar gerðar að þau stóðu ekki aðgerð-
alaus hjá þegar þáttaskil urðu í
verslun og viðskiptum á Stöðvar-
firði. Benedikt beitti sér fyrir því
að stofnað var Kaupfélag Stöðfírð-
inga 1931 og varð hann fyrsti kaup-
+
Móðir okkar,
ÞURÍÐUR INGIBJÖRG ÁMUNDADÓTTIR
frá Kambi í Flóa,
síðast til heimilis
í Stigahlíð 8, Reykjavík,
er látin.
Laufey Guðbrandsdóttir,
Inga Þuríður Guðbrandsdóttir,
Auðbjörg L. Guðbrandsdóttir Steinbach,
Jóhanna Guðbjörg Guðbrandsdóttir.
félagsstjórinn, 1932. Við þau tíma-
mót fluttust þau hjón út í Kirkju-
bólsþorp og var heimili þeirra og
kaupfélagið í gamla kaupmanns-
húsinu eftir að gagngerar umbætur
höfðu farið fram á því. Um það
leyti sem Benedikt færði sig um set
og tók við nýrri stöðu dvaldist ég
á heimili þeirra hjóna. Þar voru
fjögur herbergi auk gestaherbergis
á efri hæð. Heimilisfólkið var auk
þeirra hjóna sonurinn Hreinn, for-
eldrar Benedikts og ég. Þar var
mjög gestkvæmt en þó var eins og
aldrei væri neitt að gera og allt var
í röð og reglu. Er ég minntist þeirr-
ar dvalar síðar skildist mér að hlut-
ur húsmóðurinnar var stór í þessari
mynd. Það sýnir drenglyndi þeirra
hjóna að þau skyldu ala önn fyrir
foreldrum Benedikts, séra Guttormi
síðustu tíu ár ævi hans og Þórhildi
í tuttugu ár. Sumarið 1939 brugðu
Benedikt og Fríða enn búi þegar
hann varð útibússtjóri Landsbank-
ans á Eskifírði. Miklar endurbætur
þurfti að gera á bankahúsinu þar
sem þau bjuggu og byggja við það
síðar í hans tíð. Enn tóku þau sig
upp 1958 en nú í annan landshluta.
Benedikt varð fulltrúi bankastjóra
Búnaðarbankans og gegndi banka-
stjórastörfum í forföllum og sinnti
ýmsum öðrum tímabundnum störf-
um. Benedikt andaðist 1983.
Fríða og Benedikt eignuðust tvo
syni. Hinn eldri er Hreinn, prófess-
or í samanburðarmálfræði, en hinn
yngri andaðist í fæðingu. Þau tóku
tvö börn í fóstur, Sólmund, sem
fórst af slysförum á fermingar-
aldri, og Guðlaugu hjúkrunarfræð-
ing sem gift er Sigurði Jónssyni
viðskiptafræðingi.
Fríða var prýðilega skapi farin,
glaðlynd, greiðvikin, kímin og naut
sín vel í húsmóðurhlutverkinu sem
hún rækti af miklum myndarskap
enda var gestagangur mikill á heim-
ili þeirra Benedikts, einkum meðan
þau bjuggu fyrir austan. Þar var
hestamennska mikið áhugamál
hennar en í Reykjavík þótti henni
mjög gaman að eyða tómstundum
við-spilaborðið. Hún var í Bridsfé-
lagi kvenna í Reykjavík og lomber
spilaði hún líka. Sem að líkum læt-
ur leitaði hugur Fríðu oft til fyrri
heimkynna og lengi fór hún til
Akureyrar næstum árlega þar sem
hún var meira og minna unglingsár
sím
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til starfsfólks Hvítabandsins
fyrir frábæra umönnun frænku
minnar í erfíðum veikindum hennar
í meira en áratug. Hún mun lifa
áfram í minningu okkar hjóna,
barna og barnabarna. Ástvinum
hennar flyt ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Bergljót Guttormsdóttir
Gullfallegur salur
til leigu
í Fossvoginum
hentugur fyrir erfidrykkjur.
• SEM-hópurinn.
Sími 67 74 70