Morgunblaðið - 18.09.1991, Qupperneq 35
[•eei aaaMaT^ag .sr HUOAqu?HvgiM (HGAJSvpjoaoM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991
Gísli R. Einars-
son - Kveðjuorð
RICOH er styrktaraðili
Ólympíuleikanna 1992
Þetta er tækið
RICOH FAX 06
Faxtæki fyrir heimilið
og fyrirtækið
Nú er röðin komin að faxtækjunum að verða heimilistæki og með
tilkomu RICOH FAX 06 getur þú látið drauminn rætast.
RICOH FAX 06 er lítiö og nett en býr samt yfir ótrúlega mörgum
kostum stærri tækja:
SKIPHOLT 17 105 REYKJAVlK
n>o
Traustari tengsl
LXi,
SlMI: 91-627333 • FAX 91-628622
aco
Fæddur 29. ág[úst 1969
Dáinn 16. ágúst 1991
Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn.
Drottinn, bjarg mitt og vígi og frelsari minn
Guð rninn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita
hælis,
skjöldur minn og horn hjálpræðis míns,
háborg mín!
Lofaður sé Drottinn, hrópa ég,
og ég frelsast frá óvinum mínum.
Brimöldur dauðans umkringdu mig,
elfur glötunarinnar skelfdu mig,
snörur Heljar luktu um mig,
möskvar dauðans féllu yfir mig.
I angist minni kallaði ég á Drottin,
og til Guðs rníns hrópaði ég.
Hann heyrði raust mína í helgidómi sínum,
og óp mitt barst til eyrna honum.
(Sálm. 18)
Drottinn hefur nú tekið hann
Gísla Ragnar til sín. Op. 2.9. „Ég
þekki þrengingu þína og fátækt en
þú ert samt auðugur.“ Mitt í veik-
indum sínum tók Gísli á móti Jesú
Kristi sem frelsara sínum. Það besta
sem getur gerst í lífi nokkurs
manns, er að Guð endurfæði anda
hans og gefi honum eilíft líf í Jesú
Kristi. Gísli tók við þeirri gjöf. Sum-
ir lifa langa ævi en taka aldrei þetta
örlagaríka skref. Gísli þoldi þreng-
ingu og neyð en samt er hann auð-
ugur og ríkur. Hann valdi góða hlut-
skiptið að sitja við fætur Jesú og
hlýða á hann. Sálm. 73.26. „Þótt
m/vsk
Einstaklega
hagstætt verð:
55.000.-
44.000.-f,grvsk
• auðvelt í notkun
• hraðvirkara en sambærileg tæki
• hágæðasending á ljósmyndum
• sjálfvirk endurhringing
• talmöguleiki við móttakenda
• sendiralltaðfimmsíðursjálfvirkt
• þarf ekki aukalínu, tengist beint við
símann þinn
, er þín eigin ljósritunarvél o.fl. o.fl.
hold mitt og hjarta tærist er Guð
bjarg hjarta mi'ns og hlutskipti mitt
um eilífð.“
Við vitum að við fáum að hittast
brátt hjá okkar elskaða föður á
himnum.
Allri fjölskyldu Gísla vottum við
innilega samúð. Guð einn þekkir
þann sársauka og harm sem þau
bera. Við biðjum Hann að mæta
þeim mitt í tómleika og sorg og
þerra hvert tár.
Guðbjörg og Þóra
Kveðjuorð:
Jón Guðmundsson,
Neskaupstað
Fæddur 13. janúar 1905
Dáinn 14. júní 1991
Og dauðinn þig leiddi í höll sína heim
þar sem hvelfingin víð og blá
reis úr húmi hnígandi nætur
með hækkandi.dag yfír brá.
Þar stigu draumar þíns liðna lífs
í loftinu mjúkan dans.
Og drottinn brosti, hver bæn þín var orðin
að blómum við. fótskör hans.
Hann tók þig fang sér og himnamir hófu
í hjarta þér fagnandi söng.
Og sólkerfíð daganna svifu þar
um sál þína i tónanna þröng.
En þú varst sem bamið, er beygir kné
til bænar í fyrsta sinn.
Það á enginn orð nógu auðmjúk tO,
en andvarpar. Faðir minn.
(T.G.)
Hinn 14. júní síðastliðinn lést að
heimili sínu kær vinur okkar, Jón
Guðmundsson ættaður frá Þrasa-
stöðum í Stíflu í Skagafirði.
Foreldrar hans voru hjónin Guð-
mundur Bergsson bóndi þar og
kona hans Guðný Jóhannsdóttir.
Var Jón fimmti í röðinni af þrettán
systkinum, en átta þeirra komust
upp til fullorðinsára. Allir sem urðu
samferða þeim ágætu hjónum
fundu samheldni þeirra og var
umhyggjan fyrir börnunum í fyrir-
rúmi, var það því mikill harmur
kveðinn að Þrasastaðaheimilinu
1917, er móðir Jóns, Guðný féll
frá, þá 40 ára gömul. Þessu mikla
mótlæti tók Guðmundur með þreki
og stillingu, hélt hann börnum sín-
um hjá sér og ól þau upp í miklu
ástríki ásamt ráðskonu sinni Krist-
ínu Bjarnadóttur, er reyndist þeim
sem besta móðir. Þrasastaðaheimil-
ið var mannmargt og vöndust börn-
in því snemma mikilli vinnu, enda
vinnudagur þar oft langur og
strangur.
Þann 28. maí 1928 giftist Jón
heitkonu sinni Guðrúnu Sigurhönnu
Pétursdóttur frá Hrólfsstöðum,
Skagafirði. Stofnuðu þau heimili
sitt að Kleifum í Ólafsfirði og gerð-
ist Jón bóndi þar. Eignuðust þau
hjón fjórar dætur en þær eru:
Hólmfríður fædd 31. maí 1930
leikskólastjóri að Sólvöllum í Nes-
kaupstað gift Sigurði Jónssyni
starfsm. við loðnuverksmiðju Síld-
arvinnslunnar hf. í Neskaupstað,
eiga þau fjóra syni.
Katrín sjúkraliði fædd 6. júlí
1932 gift Magnúsi Ásmundssyni
yfirlækni við Fjórðungssjúkrahúsið
í Neskaupstað og eiga þau fimm
börn.
Jóhanna Sigríður fædd 8. apríl
1934 sjúkraþjálfari gift Stefáni
Antonssyni vélstjóra, búsett í
Bandaríkjunum. Þau eiga fjögur
börn.
Yngst er Hulda fædd 3. apríl
1937 dagmóðir gift Hilmi Jóhann-
essyni bæjarfulltrúa á Sauðárkróki,
eiga þau þijú börn.
Um 1937 fluttist fjölskyldan frá
Kleifum til Húsavíkur gerðist Jón
þá sjómaður en var jafnframt með
sauðfé. Þar bjuggu þau í nokkur
ár þar til Guðrún og Jón slitu sam-
vistir. Um tíma var Jón verkstjóri
á Suðureyri við Súgandafjörð og
víðar. Einn- son eignaðist Jón. Heit-
ir hann Hreinn fæddur 16. desem-
ber 1946 verkstjóri og fiskmats-
maður á Húsavík, á hann tvo syni.
Árið 1956 giftist Jón Helgu Bisk-
opstö ættaðri frá Klakksvík í Fær-
eyjum fæddri 12. júlí 1916. Bjuggu
þau allan sinn búskap í Neskaup-
stað en hún lést 5. nóvember 1980.
Jón og Helga eignuðust eina kjör-
dóttur, en er það Sólrún Hervör,
fædd 2. ágúst 1944, húsfreyja að
Eyrarlandi í Deildardal, gift Páli
Þorgilssyni bónda þar, þau eiga
fímm böm. 1949-1962 að einu ári
undanskildu var Jón yfirverkstjóri
hjá fiskvinnslustöð SÚN í Neskaup-
stað. Hann var einn af þeim er
sátu stofnfund Síldarvinnslunnar
hf. í Neskaupstað 11. desember
1957. Hann var varamaður bæði í
stjórn Síldarvinnslunnar hf. og Olíu-
samlagi útvegsmanna í Neskaup-
stað.
Einnig starfaði hann á bæjar-
skrifstofunni í Neskaupstað í tíð
Bjarna heitins Þórðarsonar bæjar-
stjóra. Seinna vann Jón á skrifstofu
og við verslunarstörf hjá SÚN eða
til 1981 er hann lét af störfum.
Alla tíð reyndist hann traustur og
samviskusamur starfskraftur, hann
var mikill félagshyggjumaður og
hafði ákveðnar skoðanir, en var
ávallt félagi, sem öllum þótti vænt
um, er honum kynntust. Alla tíð
átti Jón sauðfé og eignaðist hann
fjölda vina í kringum það. Það var
ekki ósjaldan að foreldrar hér í bæ
kæmu með böm sín til að fylgjast
með á vorin er lömbin voru að fæð-
ast, og átti hann þá stundum til
að gefa börnum nágranna sinna
lömb, þannig var Jón ávallt veit-
andi fremur en þiggjandi.
Mikill kunningsskapur var á milli
foreldra minna og Jóns Guðmunds-
sonar því að í mörg ár rak hann
sauðfé sitt ásamt öðrum fjáreigend-
um hér, frá Neskaupstað til beitar
í Mjóafjörð og var jafnan komið við
á Reykjum og var þá oft glatt á
hjalla.
Þegar ég fluttist til Neskaupstað-
ar var heimili þeirra Helgu, sem
mitt annað heimili og reyndust þau
mér og rnínum ákaflega vel.
Ræktarsemi Jóns var einstök og
skipti þá ekki máli hvort í hlut áttu
nánir ættingjar hans eða vinir og
kunningjar, vinahópur hans var
mjög stór, hann var skemmtilegur
í vinahópi, höfðingi í lund og veitti
jafnan stórmannlega.
Með þessum línum, viljum við,
þakka honum samfylgdina og alla
þá ástúð og hlýju, sem hann sýndi
okkur.
Ættingjum hans og vinum send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé niinning Jóns Guð-
mundssonar.
Sigríður Wíum og fjölskylda,
Neskaupstað.
Móðir okkar,
er látin.
KARÓLÍNA JÓSEFSDÓTTIR
frá Akureyri,
Bergrós Jóhannesdóttir,
Elsa Jóhannesdóttir.
Elskulegur bróðir minn,
ÞORMÓÐUR INGVAR JAKOBSSON,
áður búsettur á Blönduósi,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 3. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Þórhildur Jakobsdóttir
frá Árbakka.
Innilegt þakklæti sendum við ykkur öilum, sem sýnduð okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför
GUÐBRANDAR ÞÓRS BJARNASONAR
bónda i Engihlíð.
Guð blessi ykkur öll. Oddný Angantýsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför vinar
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS DANÍELSSONAR
fyrrv. skipstjóra
frá Siglufirði.
Anna Marta Guðmundsdóttir,
Sigrún Jónsdóttir,
Hartmann Jónsson, Sveinbjörg Helgadóttir,
Ásta Jónsdóttir, Páll Jónsson,
Eva Jónsdóttir,
Björk Jónsdóttir, Leifur Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát*og útför eiginmans míns, sonar, föður okkar, tengdaföö-
ur og afa,
VALS KRISTINS JÓNSSONAR
framreiðslumanns,
Asvallagötu 61.
Jóna Lóa Sigþórsdóttir, Jórunn Ólafsdóttir,
Kristin Valsdóttir, Jón Finnur Ögmundsson,
Felix Valsson, Ragnheiður Alfreðsdóttir
og barnabörn.