Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 15
a:nA(TTTMVfTI? AM2\CIA^l\iy/IÍÆÍVTJI - MORGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SÉPTEMBER 1991 C 15 Verslunarráð íslands: Samstarf við FIS um skrifstofurekstur virðist úr sögunni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Versl- unarráði Islands vegna slita á samstarfi við Félags íslenskra stórkaupmanna: „Forysta Félags íslenskra stór- kaupmanna hefur nú slitið viðræð- um við Verslunarráð Islands. Harm- ar Verslunarráðið hvernig til hefur tekist í samstarfi þess við Félag íslenskra stórkaupmanna. Mark- miðið með samstarfi félaganna um rekstur Skrifstofu viðskiptalífsins var að ná fram hagræðingu í rekstri og öflugri hagsmunabaráttu fyrir atvinnulífið í landinu. Verslunarráð- ið hafði lagt fram hugmynd að nýjum samningi milli félaganna um skrifstofurekstur þar sem bæði er reynt að einfalda fjárhagslega og rekstrarlega ábyrgð á skrifstofu- rekstrinum og gera félögin mál- efnalega sjálfstæðari. Þessu hefur forysta FÍS hafnað. Virðist því sam- starf félaganna um skrifstofurekst- ur vera úr sögunni frá næstu ára- mótum. Fjölmargir stórkaupmenn hafa löngum starfað í Verslunar- ráðinu og verið meðal helstu bak- hjarla þess og svo mun áfram verða. Verslunarráðið óskar Félagi íslenskra stórkaupmanna alls hins besta í störfum sínum í framtíðinni. Verslunarráðið var stofnað 1917 og verður því 75 ára á næsta ári. Það er félag fyrirtækja úr öllum greinum atvinnulífsins og starfar á þeim grundvell að hagur atvinnu- greinanna fari saman. Nafn sitt dregur Verslunarráðið af þeirri staðreynd að kaup og sala er undir- staða í allri atvinnustarfsemi og ráðið hefur beitt sér fyrir framfara- málum í viðskiptum á öllum sviðum. Verslunarráðið verður einn helsti vettvangur umfjöllunar um aðlög- um atvinnulífsins að þróuninni í Evrópu. Verslunarráðið mun leggja sérstaka áherslu á aukna framleiðni í viðskiptum. Verslunarráðið heldur áfram að vera málsvari atvinnulífs- ins gegn óhóflegri skattheimtu og ríkisumsvifum og baráttuafl fyrir einkavæðingu. Verslunarráð ísiands vonast eftir því að félagar þess veiti því jafn öflugan stuðning og hingað til. Starf Verslunarráðsins í þágu at- vinnulífsins í landinu er nauðsynlegt og það er ákjósanlegur vettvangur fyrir umræður um nýjar hugmyndir og málefni sem snerta hag hvers einasta fyrirtækis hvort sem það er stórt eða smátt og í hvaða at- vinnugrein það starfar. Eftir því sem Verslunarráðið fær öflugri stuðning félaga sinna verður það sterkara tæki fyrir þá.“ Kork-o-Plast Hnngið eftir Ef þú býrð úti á landi þá sendum frekari upplysingum vlð þér ókeypis sýnlshorn og bœklinfl ■ Einkaumboö á íslandi: & Þ. ÞORGRÍMSSON & CO **** Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 38640 ÞAÐ VAR ANNAÐ HVORT AÐ LENGJA ERMARNAR EÐA STYTTA VETURINN Kemur upp um LACOSTE þinn góða smekk! assssia (múF Glæsibæ Gunnar Ásgeirsson hf. flytur frá Suðurlandsbraut 16 ®^^áretetri.f'VtiurnV'ð''áSUðUt NÞvL^dásfnaVika. .. ^^pámeinumv^ semhvergiasn ... áa&se\ast'. pegarviöseaumrA"13 —- -TÍAKJÖR VIOStÁOOREIOSUU AFBORGUHÁRW°K mvndbönd. 'dtí*Samstæ&ur,siónvarps- SA0°: Sgji hliómfluwmgssar tiki, o.«. o.«- ö\\ almenn gar&áhö'd óé'i GAR°ENft BWtsetó 09 BOSCH BlAUPUNKT m\/ndt)önd persor Corr»puter ÖWuga^ heirnWistöWu Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.