Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 16
-16 C MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGÚR 22; SEPTEMBER 1991 Bandaríkin Fréttastofur fá makleg málagjöld AYFIRSTANDANDI samdrátt- arskeiði hafa bandarískir blaðamenn komist að raun um að þeir eru hvorki heilagir né ómiss- andi. Fjölmiðlun er litlu betri en þær starfsgreinar sem þeir hafa gagnrýnt hvað harðast. Heiðar- leikinn er ekki meiri en hjá stjórn- málamönnum og starfsöryggi blaðamanna er svipað því sem gerist í vefjariðnaði. Þetta segir Richard Harwood blaðamaður The Washington Post. Watergate magnaði hroka bandarískra blaðamanna. í kjöl- farið tókst að fletta ofan af mörg- um raunverulegum og tilbúnum hneykslismálum og blaðamenn fylltust falskri öryggiskennd. Hlið- hollir dómstólar og færir lögfræð- ingar efldu vamimar. Blaðamenn höfðu til dæmis ýmislegt út á græðgi og efnis- hyggju níunda áratugarins að setja. Svimandi háar þóknanir margra stjómenda fyrirtækja þóttu siðlausar. En á síðasta ári var Steven J. Ross, stjómarform- aður fjölmiðlasamsteypunnar Time-Warner, langtekjuhæstur allra bandarískra stjómenda. Tekjur hans námu 78,3 milljónum Bandaríkjadala (4,7 milljörðum ' ÍSK) á sama tíma og fjárhagsörð- ugleikar samsteypunnar margföl- duðust. Framtíð margra bandarískra fjölmiðla er óvisss. A síðustu 18 mánuðum hafa fjölmiðlar skipt svo ört um eigendur og æðstu stjóm- endur að starfsmenn vita ekki einu sinni hveijir hafa verið að lækka launin þeirra og stytta vinnuvik- una. Aðrir hafa ekki hugmynd um hvaðan þeir voru reknir. Útbreiðsla dagblaða stendur í stað og áhorfendum sjónvarps- stöðvanna fækkar. Samkeppnin hefur harðnað enn frekar með til- komu nýrra keppinauta, svo sem kapalsjónvarps og símaþjónustu. Baráttan um auglýsendur og at- hygli fjöldans er ekki upp á neitt minna en líf og dauða. Sérfræðingar vara við því að blómaskeið auglýsinga í fjölmiðl- um kunni að vera á enda. Seljend- ur hafa fundið aðrar leiðir til að ná athygli neytenda. Þetta gæti haft í för með sér ógnvænlegar afleiðingar fyrir alla þá sem afla og miðla fréttum í Bandaríkjun- um. Auglýsingar em súrefni bandarískra blaðamanna. Þær em eina uppistaða flestra sjónvarps- stöðva. Auglýsendur greiða líka um 70 prósent af útgáfukostnaði dagblaða og tímarit hafa rúmlega helming tekna sinna af auglýsing- um. Það eru einkum smásalar sem auglýsa í dagblöðum. Á undanf- ömum mánuðum hafa margir þeirra farið undir hamarinn og aðrir hafa þurft að skera niður auglýsingar. Auglýsingum í tíma- ritum heldur áfram að fækka. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs varð mesti samdráttur í 20 ár. Auglýsingum í vinsælustu tímarit- unum hefur fækkað um að minnsta kosti fjórðung það sem af er árinu. Afleiðingin er sú að auglýsingaverð fjölmiðla fer lækkandi. Haft er eftir starfs- manni á auglýsingastofu að ekki þurfi einu sinni að taka upp símtó- lið til að fá helmings afslátt. Við þessar erfiðu aðstæður er siðferði fjölmiðla í hættu. The Wall Street Journal segir að virtir fjölmiðlar bjóði nú framleiðendum jákvæða umQöllun í skiptum fyrir auglýsingar. Samtök ritstjóra bandarískra tímarita hafa áminnt tímarit fyrir að draga ekki nógu skýr mörk á milli auglýsinga og ritstjórnarefnis. Meðal þessara tímarita eru Newsweek, Esquire og Business Week. Richard Harwood vitnar að lok- um í þau orð Francis Bacons að velmegun leiði af sér lesti og mótlæti dyggðir. Sé þetta rétt ætti fagleg niðurlæging banda- rískra fjölmiðlamanna að leiða af sér umbætur. Fjárhagsleg áföll og flótti neytenda neyðir þá til að smíða betri músagildru og end- urheimta mikilvægi sitt á mark- aðnum. Er rétt að blaðamenn eigi síðasta orðið? VANESSA Redgrave, leikkonan breska, er nú sögð neita blaða- mönnum um viðtal nema þeir undirriti áður samkomulag m.a. þess efnis að hún fái að lesa viðtalið yfir áður en það birtist. Þó fáir viðmælendur fjölmiðla gangi eins langt og Redgrave og krefjist þess skilyrðislaust að fá að sjá ummæli sin áður en þau birtast, þá finnst mörgum það sanngjörn og eðlileg ósk. Mörgum blaða- mönnum finnst þetta ekki eins sjálfsagt. Þeim þykir þetta vísir að ritskoðun og takmarki frelsi þeirra til að skrifa eða greina frá því sem þeir sjá eða heyra. Kjarni þessa máls hlýtur að vera eðli þeirrar samvinnu sem viðtöl geta talist og eðli þess trausts og trúnaðar sem ríkir á milli viðmælenda og blaðamanns. Mörg viðtöl eru þeirrar náttúru að ein- ungis hluti þess sem þar kemur fram er ætlað til birtingar. Viðmælandi gefur blaðamanni ýmsar upplýs- ingar sem auðvelda honum að ná tökum á viðfangsefninu. Viðmæl- andinn ætlast ekki til þess að upp- lýsingarnar birtist og hann sýnir því blaðamanni umtalsvert traust. Hér er í raun um mjög nána samvinnu að ræða og því ekki óeðlilegt að hún nái alla leið að endanlegri gerð texta viðtalsins. Þetta er að sjálfsögðu samvinna sem báðir aðilar ganga fúsir til. Viðtöl geta einnig verið þess eðlis að viðmælandinn segi einung- is það sem hann vill að birtist eft- ir sig á prenti. Viðtalið er því líkt og undirbúin yfirlýsing. Sú sam- vinna sem á sér stað í slíku tilfelli er augljóslega allt annars eðlis en í dæminu á und- an. Engin ástæða er fyrir blaðamann að gefa viðmæl- anda tækifæri á að lesa viðtalið yfir en honum er það að sjálfsögðu í sjálfsvald sett. Einnig eru til viðtöl þar sem viðmælendur eru teknir á beinið. Þar er blaðamaðurinn beinlínis að reyna að negla viðmælandann, sem er aftur á móti við því búinn. í slíkum viðtölum er samvinna og traust líkt og hjá stríðandi aðilum. Spurningin um að bera eitthvað undir viðmælandann verður fár- ánleg við aðstæður af þessu tagi. Af þessu má ljóst vera að erfitt getur verið að halda stíft í einhveij- ar ákveðnar vinnureglur. Grund- vallarreglurnar eru fyrst og fremst þær að betra sé að hafa það sem sannara reynist og að blaðamaður- inn eða ritstjórn verður að fá að hafa síðasta orðið, því annars get- ur fjölmiðlunin ekki talist fijáls. Svo að sjálfsögðu gilda einnig hér almenn boðorð um að enginn skuli ganga á bak orða sinn eða bera ljúgvitni. Aðstæður hveiju sinni ráða því hvemig fella megi þessar gmnd- vallarreglur hveija að annarri. Oánægja viðmælenda blaða með mistúlkanir, missagnir, misskiln- ing og annað misjafnt er fyllilega skiljanleg. Trúlega verða þeir að læra af biturri reynslu að blaða- menn og fjölmiðlar eru eins mis- jafnir og þeir em margir og sömu- leiðis að þeir em misvandir að virð- ingu sinni. Bregðist þeir við á sama hátt og Vanessa Redgrave þá ganga þeir of langt því þar með taka þeir síðasta orðið frá blaðamönn- um. Slíkt er undir ölllum kringum- stæðum skerðing á ritfrelsi og það geta bíaðamenn ekki sætt sig við. Ef áhrifa- og valdamenn taka upp á þessum sið þá er það mun alvarlegra því þá skerða þeir mik- ilvægt upplýsingahlutverk fijálsra fjölmiðla í nútímasamfélagi — og það sættir sig enginn við. BAKSVIÐ eftirÁsgeir Friðgeirsson Hvar endar þetta? Seint verður ofkveðið að áhrif fjölmiðla séu mikil og meiri þessi misserin en fyrir fáum árum. í umræðu um íslenskukunnáttu skóla- nema, sem á sér stað annað veifíð, hefur alltof lítil áhersla verið lögð á vaxandi hlut fjölmiðla í máluppeldi þjóðarinnar. Meginvopn múgsefjunar og heilaþvottar er endurtekning. Áhrif fjölm- iðla sem dynja á hlustendum dag og nótt, jafnvel þótt ekki sé hlustað af athygli, eru lík þessu. Það sem sagt er í einhveiju varpanna er talið rétt og því réttara sem það er oftar endurtekið. Þannig geta villur smogið inn í vitund fólks og orðið að reglum - og það á sér enga vöm. Ábyrgð fjölmiðlanna er því mikil, miklu meiri en forráðamenn þeirra virðast vilja gera sér grein fyrir. Þetta andvaraleysi fjölmiðl- unga er stórhættulegt. Mér liggur við að fullyrða að ef ekki sé hægt að koma full- nægjandi viti fyrir alla sem fjölmiðlum stýra þá þýði ekk- ert að streitast við það í öðr- um stöðum, eins og skólum eða heimilum, að halda í þá von að bjarga megi íslensku máli, íslenskri menningu, frá glötun. Löggjafinn ætti að gera sérhveijum þeim skylt, sem tekst á hendur jafnábyrgðar- mikið starf og að reka út- varp, sjónvarp eða blað handa almenningi, að hafa í þjónustu sinni hæfan, traust- an og marktækan málráðu- naut, ábyrgðarmann ís- lenskrar tungu. Sæmra væri útvarpsréttarnefnd að gæta þess að vörpin stæðu vörð um tunguua en að gefa út- varpsgreifum leyfi til að út- varpa erlendri dagskrá á út- lensku máli á íslenskum ljós- vaka. Ef ^g væri ekki eins orðvar og ég er segði ég að þetta væri hreinn og klár aumingjaháttur. Illt er það afskiptaleysi sem fjölmiðlamenn sýna ábendingum um það sem betur má fara í tali þeirra og riti. Þetta fólk verður að vakna til vitundar um að það sem það segir í útvarpi sínu eða sjónvarpi eða skrifar í blað sitt eða tímarit er ekk- ert einkamál þess, heldur varðar þolendur alla, þjóðina. En alltof margir láta aldrei segjast, taka ekki einu sinni mark á einhverri beinskeytt- ustu gagnrýni sem til er, sjálfu háðinu. Það er sorgleg staðreynd að móðurmáls- kennarar skuli nota vörpin sem gleggstu dæmi um mál- galla af flestu tagi. Þess konar fjölmiðlar ættu með réttu að vera fyrirmyndir til góðrar eftirbreytni. Þannig er það að minnsta kosti hjá flestum menningarþjóðum. Fólk hefur áhyggjur af þessu. Ekki eingöngu ís- lenskukennarar eins og ég heldur fólk úr ólíkum stétt- um með mismikla skóla- göngu að baki. Það hringir, skrifar, nefnir úti á götu eitt- hvað sem það hefur heyrt í einhveiju varpinu, ellegar séð í blaði, og hefur ofboðið málvitund þess. Oftast hefur þetta ágæta fólk lög að mæla, því miður. Þessi pistill endist ekki til að nefna nema örfá aðfengin dæmi af þessu tagi. Áður en ég gríp nokkra minnismiða með ábending- um þessa góða fólks vil ég nefna eitt mikilvægt atriði: Dagblöð á íslandi vinna skólum og almenningi mikið ógagn með þeim ósköpum að skeyta í engu um að skipta orðum milli lína sam- kvæmt reglum. Hvernig á að koma skólanemendum í skilning um að þeir eigi að fara að reglum sem þeir sjá þverbrotnar í blöðunum sem eiga að bera áreiðanleg tíð- indi daglega? Þetta er alvar- legt mál. Það er ekki gild afsökun að þetta sé tölvun- um að kenna. Tölvan á að vera þræll mannsins en ekki maðurinn þræll tölvunnar. Það er hægt að kenna tölv- um að skipta orðum milli lína. íþróttafréttir eru sérstak- ur ævintýraheimur tungunn- ar. Komi fréttamanni í hug hnyttinn orðaleikur eða góð myndlíking „er næsta víst“ að þetta sé ofnotað svo að það missi óðara marks. Iþróttafréttir eru einhver sköllóttasti texti sem sést í blöðum. Svo sköllóttur að oft skilur lesandi ekkert í frétt nema hann hafi sjálfur verið viðstaddur atburð sem lýst er. Algengt er að ekki komi fram í frétt eða frásögn af kappleik í hvaða íþrótt keppt var, hvort þetta var í karla-, kvenna- eða unglingaflokki, hvar og hvenær leikið var o.s.frv. Alltof algengt er að nefnt sé félag en fjallað um liðsmenn, ýkt dæmi er „KR unnu Þrótt, sem áttu sinn besta, leik.“ Hér er ekkert samhengi, aðeins málleysa. Sama vitleysan er algeng í útvörpum, þegar talað er um tónlist og ekki greint milli hljómsveitar, sem oft heitir eintölunafni, og hljómsveit- armanna: „The Band léku hér gamalt lag!“ Enn eru lið að „sigra leik- inn“ en ekki andstæðinga sína í leiknum. Landlæg vit- leysa í íþróttafréttum er að segja einhveijum til hróss að hann eða þeir „beri enga virðingu fyrir andstæðingi sínum". Beri maður ekki virðingu fyrir einhverjum er maður vís með að sýna hon- ’ um óvirðingu eða dónaskap. Þetta orðfæri á þó í fréttum aðeins að tákna að einhver sé óttalaus, hræðist ekki andstæðinginn. Auglýsingastofur blaða og varpa hleypa að margri vit- leysunni. Hér nefni ég aðeins þijú dæmi (ekki þijár vitleys- ur!): að nota eintöluorðið verð í fleirtölu, segja að skrifstofan opni klukkan 9 og nota orðið opnunartími. Það er rangt að segja „Taktu eftir okkar verðum". Buxur og jakkar eru á góðu verði, ekki góðum verðum. Skrif- stofur eru ekki gerendur og geta ekki opnað eða lokað neinu. Þær eru opnaðar eða þeim lokað. Opnunartími er sá tími sem tekur að opna eitthvað. Enginn er frá klukkan 9 til 5 að opna einar dyr. Nóg er að segja: Opið klukkan 9-5. Lengra kemst ég því mið- ur ekki að sinni. í næsta pistli fjalla ég meðal annars um tal í útvarpi og sjónvarpi og hugsanlega þörf á að talsetja erlendar kvikmyndir og sjón- varpsþætti. Sverrir Páll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.