Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991 BÓKMENNTIR/Svipmynd afsagnaritaranum mikla á 750. ártíö hans _____ Snorrí Sturíuson - einfarí á Sturíungaöld I. MARGT er tilviljunum undir- orpið. Það er einungis tilviljun að við þekkjum Snorra Sturlu- son sem höfund Heimskringlu og Eddu. Einber tilviljun að við getum tengt þá meistarasmíð, sem augljós er í samsetningu þeirra bóka, við þann marg- lynda og tortryggna höfðingja sem lýst er í íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar, bróðurson- ar hans. En einmitt þessi tilvilj- un hefur orðið til þess að við hljótum að horfa í senn á hinn margslungna valdsmann og hið djúphygla skáld; að við freist- umst til þess að bera lærdóm Snorra og bókagerð saman við ásælni hans og höfðingsskap. Við sjáum bregða fyrir einum og sama manninum — margræð- um og torskýranlegum — bak við þessi ólíku lífsverk. Hvort sem við horfum til ársins 1181, þegar Snorri, tveggja ára drengstauli hvarf úr móður- faðmi og fór ríðandi frá Hvammi í Dölum suður í Rangárþing í fóst- _______ ur í Odda, þar sem Jón Loftsson réð ríkjum — eða hvort við nemum staðar að leiðar- lokum aðfaranótt 23. september 1241, er hann varnarlaus var höggvinn að und- eftir Guðrúnu Nordal irlagi Gissurar Þorvaldssonar, verður fyrir okkur maðurinn einn og óvarinn. Þannig stendur Snorri okkur fyrir hugskotssjónum, því bæði vegna veraldlegra umsvifa hans og fjölbreyttra ritstarfa kem- ur hann okkur að sumu leyti fyrir sjónir sem einfari í sanitíð sinni á Sturlungaöld. Snorri er einn örfárra sagnarit- ara íslenskra miðalda sem við þekkjum ekki aðeins með nafni heldur eru varðveittar sagnir um líf hans og viðfangsefni. íslending- asaga er orðfá um andleg yrk- isefni hans, en þau verk sem eftir hann standa eru litríkir minnis- varðar um hæfileika hans og áhugamál. Hann rakst illa í sam- tíð sinni, sérgóður og tortrygginn, lynti illa við suma frændur sína og leit ekki síst austur um haf — til Skúla jarls í Noregi — þegar honum var hugsað til vina sinna. Og þegar dauðastundin rann upp kom honum enginn til varnar. Á 750. ártíð Snorra Sturlusonar skulum við lesa frásögn Sturlu Þórðarsonar af heimsókn Gissurar Þorvaldssonar og liðsmanna hans hina örlagaríku septembernótt ár- ið 1241. Frændi Snorra hylur ekki nekt og hrylling atburðarins í orð- gnótt o g vífílengjum, heldur bregður upp beinskeyttri mynd af morðinu með fáum nístandi orð- um: „Gissur kom í Reykjaholt um nóttina eftir Máritíusmessu. Brutu þeir upp skemmuna er Snorri svaf í. En hann hljóp upp og úr skem- munni og í hin litlu húsin við skem- muna. Fann hann þar Arnbjörn prest og talaði við hann. Réðu þeir það að Snorri gekk í kjallar- ann er var undir loftinu þar í hús- unum. Þeir Gissur fóru að leita Snorra um húsin. Þá fann Gissur Am- björn prest og spurði hvar Snorri væri. Hann kvaðst eigi vita. Gissur kvað þá eigi sættast mega ef þeir fyndust eigi. Prestur kvað vera mega að hann fyndist ef honum væri griðum heitið. Eftir það urðu þeir varir við hvar Snorri var. Og gengu þeir í kjallarann Markús Marðarson, Símon knútur, Árni beiskur, Þor- steinn Guðinason, Þórarinn Ás- grímsson. Símon knútur bað Áma höggva hann. „Eigi skal höggva,“ sagði Snor- ri. „Högg þú,“ sagði Símon. „Eigi skal höggva,“ sagði Snor- ri. Eftir það veitti Árni honum banasár og báðir þeir Þorsteinn unnu á honum.“ Gissur Þorvaldsson, fyrrverandi tengdasonur Snorra, lét vinna verkið í nafni Hákonar konungs Hákonarsonar. Hákon gamli hafði falið Gissuri að senda Snorra utan eða drepa hann ella. Gissur tre- ysti sér ekki til að standa auglitis til auglitis við hinn aldna sagnarit- ara né til að gefa Snorra færi á að svara: „utan skal eg“. Hann kaus að bíða í húsinu meðan liðs- menn hans leituðu Snorra í kjallar- anum og frömdu ódæðisverkið. II Snorra var ekki sýnt um að bera vopn og skar sig þannig úr hópi flestra þeirra höfðingja sem hugðu á landsyfirráð. En honum dugði þó ráðkænska, ekki síður en vopnfimi, til að skapa veldi sitt og komast til mannaforráða. Hann átti þingmenn ekki aðeins í heima- héraði sínu á Vesturlandi, heldur teygði hann ríki sitt allt til Norður- lands. En þingmanni var ekki að- eins skylt að þjóna goðanum, held- ur bar goðanum ennfremur að duga þingmanni í nauðum. Atvik frá árinu 1216 bregður upp mynd af klaufaskap og áhugaleysi Snorra þegar hans var þörf á víg- vellinum. Þingmenn hans á Norðurlandi kölluðu Snorra til að sætta ágrein- ing milli Miðfirðinga og Víðdæla. Á sáttarfundi sló brátt í bardaga með óvinaflokkunum, þrátt fyrir aðvörunarorð Snorra: „Snorri hét á þá að þeir skyldu eigi beijast. Engi hirti hvað er hann sagði. Þá gekk Þorljótur frá Bretalæk til Snorra og bað hann miðil ganga. Snorri kveðst eigi hafa lið til þess við heimsku þeirra og ákafa. Þor- ljótur veitti Snorra hörð orð. Síðan hljóp Þorljótur millum hrossanna og leysti og rak millum þeirra.“ Snorri var ekki á heimavelli þegar grjóthnullungar flugu milli stríðandi fylkinga eða þegar spjót- um var beint gegn óvinum. Kannski átti fóstur hans meðal Rangæinga einhveija sök á því hve fráhverfur hann var vopna- braki. Við vitum auðvitað lítið með vissu hvað fram fór í Odda á tólftu öld, en þó bendir margt til þess að þetta höfðingjaból hafí verið mikið menningarsetur í tíð Jóns Loftssonar. Þar hefur Snorri vafa- laust komist í kynni við verk hinna fróðu Sunnlendinga, Sæmundar og Ara, og hrifist af sögnum af konungum þeim sem Jón Loftsson taldi með stolti til forfeðra sinna. III Þessi snemmfengnu kynni Snorra Sturlusonar af norskum konungum og hirðkveðskap báru ekki aðeins ávöxt sinn í þroskuð- ustu verkum hans, Heimskringlu og bragfræði Eddu, heldur ekki síður í kveðskap hans. Hann menntaðist sem skáld og steig sín fyrstu spor í gervi hofgoða Óðins, ljóðsmiðsins. Hann hefur trúlega verið enn í Odda, bráðger og ólof- aður, þegar hann sendi hinum orð- snjalla Sverri konungi kvæði um haf. Snorra er getið meðal skálda hans. En þetta kvæði er glatað — eins og öll kvæði Snorra ort til norskra höfðingja — að undan- skildu Háttatali, þriðja hluta Eddu. En kvæðið um Sverri var ekki bara einangraður kvistur í sköpun hans, heldur vísir að því sem koma skyldi. Þegar Snorri fullorðinn sneri aftur til átthaga sinna árið 1202 og settist að á Borg á Mýrum með konu sinni Herdísi Bersadótt- ur, flutti hann með sér áhugann á kveðskap og fomum sögnum. Upp frá því urðu Sturlungar nafn- toguðustu sagnaritarar þrettándu aldar. Þó að heimildir séu tilviljan- akenndar um sagnaritun Snorra, segir Sturla Þórðarson skýrum orðum frá kveðskap hans. Snorri sendi kvæði utan til Há- konar galins jarls og þáði laun fyrir. Hann sigldi utan árið 1218, dvaldi með Skúla jarli og orti tvö kvæði honum til heiðurs. Og þegar hann kom heim frá Noregi árið 1220 hefur hann líklega tekið til við að setja saman hið torræða Háttatal, ort til heiðurs Hákoni konungi og Skúlajarli. Iþví kvæði skirrist hann ekki við að yrkja svo opinskátt og tilfínningaríkt lof til vinar síns Skúla jarls, að vísumar til Hákonar verða næsta fábrotnar við hlið þess. Snorri var vinur Skúla og jafnaldri, og tók afstöðu með honum í baráttu þeirra Há- konar. Konungur hafði því ríka ástæðu til að vera í nöp við Snorra. Snorri dvaldi með Skúla, sem hafði hlptið nafnbótina hertogi, þegar Örlygsstaðabardagi var háður árið 1238. Hákon konungur sendi þau orð til Skúla vorið eftir að engir íslendingar skyldu fara út til Islands fyrr en þeir hefðu gert grein fyrir erindum sínum. Deilur Hákonar konungs og Skúla hertoga fóm harðnandi um þessar mundir, svo Skúli veigraði sér ekki við að virða orð konungs að vettugi og leyfði útför þeirra ís- lendinga sem með honum dvöldu. Og Snorri tók undir með hinum fleygu orðum: „Út vil eg.“ Og lét í haf. Snorri kynntist hirðlífi og lifnaðarháttum konunga og jarla því ekki einungis af gömlum sögn- um og hirðkvæðum, heldur af eig- in raun. Hann var óhræddur við að taka afstöðu gegn konungi og sú fífldirfska kostaði hann lífið. En góðvinur hans Skúli hertogi átti einnig undir högg að sækja og var veginn af konungsmönnum ári áður en Snorri fékk hina örlag- aríku næturheimsókn. Orð Skúla við aftökumenn sína: „Höggið eigi í andlit mér því að það er engi siður við höfðingja að gera,“ hafa orðið sumum til að hugsa til síð- ustu orða Snórra: „Eigi skal höggva." IV Menn geta borið önnur vopn en sverð og skildi. Friðsemi og óbeit á vopnaburði þurfa ekki ætíð að haldast í hendur. Svo var um Snorra Sturluson. Hann mundaði ekki sverð eða kastaði gijóti mót andstæðingum sínum, heldur sendi þeim óvægna og háðska kviðlinga. Hann svaraði ekki árás- um með því að bijóta upp bæi, heldur læddi dylgjum og frýjunar- orðum inn í skálann, sem ráku menn til voðaverka. Hann kunni að beita fyrir sig orðum. Það er bersýnilegt af frásögn Islendingasögu að samtímamenn hans kenndu kviðlingum og eggjunarorðum Snorra um eina grimmilegustu árás Sturlungaald- ar, Sauðafellsför. Deila Snorra Sturlusonar og bróðursonar hans Sturlu Sighvats- sonar átti m.a. rætur sínar í því að báðir gimtust sömu konuna, Solveigu Sæmundardóttur frá Odda, sem Sturla eignaðist. Þeir voru í andstæðum fylkingum, þeg- ar synir Hrafns Sveinbjamasonar, sem vom undir handaijaðri Sturlu, brenndu inni drápsmann föður þeirra og tengdason Snorra, Þor- vald Vatnsfírðing. Synir Þorvalds, Þórður og Snorri, kenndu Sturlu og föður hans Sighvati um morðið. Snorri réð fyrir bræðrunum. Þórður og Snorri hefndu dráps föður síns með því að bijóta upp bæ Sturlu Sighvatssonar um miðja nótt og „huggu þá allt það er fyr- ir varð“. Sturla var fjarri, en kona hans nýstigin af sæng og annað heimilisfólk varð fyrir vægðar- lausri árás, svo að „flaut blóð um öll hús“. Snorra vom kennd fjörr- áðin. Ýmis skáld sendu honum tóninn, en frændi hans, Svertingur Þorleifsson, tók dýpst í árinni í vísu sem hann sendi Snorra. Síð- ari vísuhelmingurinn hljómar svo: Víst hefír minnst hið mesta mágs brennu amgrennir, þverri þinn vegr Snorri þingríks með kviðlingum. (Vissulega hefur bardagamaður- inn (Snorri) hefnt brennu hins volduga tengdasonar síns með kviðlingum einum, — þverri þinn vegur Snorri.) Þessi vísa og fleiri sem kveðnar vom eftir aðförina skilja eftir það hugboð, að Snorri hafí með hinu alræmda vopni sínu, skáldskap og hvatvísi í orði, framið eitt blóðug- asta illvirki aldarinnar. Þannig gefur íslendingasaga Snorri Sturluson eins og hann leit út í augum Daða fróða Níelssonar (1809-57). Myndin er varðveitt í handriti Daða (Lbs 1475 8vo), sem hefur m.a. að geyma Eddu Snorra Sturluson- ar. hugboð um vægð- arleysi og hlut- drægni Snorra í eijum samtíðar sinnar þegar því var að skipta. Hann var voldugur höfðingi sem byggði ekki veldi sitt á vopnaskaki, heldur lögkænsku og ráðsnilld, og varði sig með níð- skáum kviðlingum þegar að honum var vegið. Það er því ekki að undra að hann hafí verið hörandsár þegar hent var gaman að hans eigin kveð- skap. Þegar Sunn- anmenn, með Bjöm Þorvaldsson í broddi fylkingar, drógu dár að stefí því sem fylgdi einu kvæða hans um Skúla jarl, svaraði hann ekki einungis með vísu, heldur eggjaði og studdi óvin Bjöms, Loft Pálsson, til þess að beijast við Bjöm og drepa hann. Áf þessum sökum eyðir íslend- ingasaga ef til vill færri orðum í þau verk Snorra Sturlusonar, er haldið hafa nafni hans á lofti meðal íslendinga og allra þeirra sem unna Heimskringlu, Eddu og Eglu, sem líklega er einnig rituð af Snorra. Það ber ef til vill mein- fyndni Sturlu Þórðarsonar vitni að hann nefnir aðeins sögubækur Snorra, þegar Sturla Sighvatsson, sá frændi Snorra sem var honum hinn mesti Þrándur í Götu, sat í Reykjaholti „og lagði mikinn hug á að láta rita sögubækur eftir bókum þeim er Snorri setti sam- an“. En hveijar þessar bækur vom lætur Sturla hins vegar ógetið. Öll frásögn Sturlu Þórðarsonar af Snorra í íslendingasögu hefur þótt bera skoðunum Sturlu á frænda sínum ríkulegt vitni. Hann lýsir honum sem fégráðugum höfðingja er skirrtist ekki við að etja kappi við frændur sína til að ná yfírráðum og komast yfir auðæfí. Snorri kvongaðist til fjár en auðnaðist ekki að útdeila þeim auði sómasamlega til bama sinna, sem hann gifti sjálfum sér til fram- dráttar. Hann virtist friðsamur, en var þó grimmur í orðum sínum. fyssi stutta en margþætta lýs- ing Sturlu á Snorra í Islendinga- sögu hefur átt mikinn þátt í því að höfundur Eddu og Heims- kringlu hefur orðið svo hugstæður þjóðinni. í verkum hans og lífí verða fyrir okkur fjölmargar and- stæður sem lýsa Snorra ekki að- eins sem frómum sagnaþul, heldur sem fjöllyndum veraldarmanni. Við minnumst fjölskrúðugs lífemis Snorra, bókverka og hryllir loks við hinum kaldranalega dauða hans. Þó að hin grimmilega aftaka stingi ekki í stúf við önnur kaldrify- uð hermdarverk aldarinnar, er hún í hrópandi andstöðu við þau fijóu og einstæðu verk sem fómarlamb- ið, og aðrir sagnaritarar, unnu. Aðfaranótt 23. september 1241, þegar Snorri bar hönd fyrir höfuð sér og bað sér griða — „eigi skal höggva" — var ekki aðeins verið að höggva mann, heldur að höggva eina þroskamestu grein íslenskra bókmennta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.