Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDÁGUR 22. Se’PTEMBER 1991- C 17 Þarf að ræða og rannsaka Félag áhugamanna um fjölmiðlarann- sóknir stofnað FÉLAG áhugamanna um fjölmiðlarannsóknir var stofnað síðastliðinn þriðjdag. Meðal fyrstu verkefna félagsins er að gangast fyrir fundi um þær breytingar sem eru að verða á íslenskum blaðamarkaði. í fjölmiðlum ■Umtalsverðar mannabreytingar hafa undanfarið átt sér stað hjá ís- tenska útvarpsfélaginu hf. í fréttatil- kynningu frá félaginu segir að þess- ar breytingar séu gerðar i ljósi þess að á síðastliðnum fimm árum hafi verið stigin mörg skref í þróun fijálsra útvarsstöðva á íslandi. Út- varpsfélagið vilji ekki staðna í sama farinu heldur líta fram á við og þróa næstu skref sem taka þurfí til að aðlaga íslenskt útvarp fenginni reynslu. ■Jónas R. Jónsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra dagskrár- sviðs íslenska út- varpsfélagsins. Jónas hefur gegnt stöðu dagskrár- stjóra Stöðvar 2, fyrst í upphafi og aftur frá árinu 1990 er nýir eig- endur tóku við rekstrinum. Hann stundaði nám við dagskrárstjórn útvarps og sjónvarps við UCLA- háskólann (University of California, Los Angeles). ■Hallgrímur Thorsteinsson hefur tekið við stöðu dagskrárstjóra Bylgj- unar. Hallgrímur var fréttastjóri Bylgjunnar á árun- um 1987-89. Hann hefur unnið við fjöl- miðla frá því hann útskrifaðist með BA-próf í fjölmiðl- un 1979. Hann vann á fréttastofu Ríkisútvarpsins 1978-83. Á þeim tíma sat hann meðal annars í undir- búningsnefnd um stofnun Rásar 2. Hann var ritstjórnarfulltrúi Helgar- póstsins 1983-85, og um skeið vann hann sjálfstætt við gerð útvarps- og sjónvarpsauglýsinga. Þegar Bylgjan var stofnuð sá hann um þáttinn „Reykjavík síðdegis“ og hefur verið með hléum við hljóðnemann fram á þennan dag. Nýlega lauk hann mast- ersnámi í gagnvirkri fjölmiðlun frá New York University. Hallgrímur mun áfram stýra þættinum „Reykja- vík síðdegis“. ■Snorri Sturluson hefur verið ráð- inn tónlistarstjóri Bylgjunnar. Hann hefur starfað við íjölmiðlun í rúm fimm ár, m.a. feng- ist við greinaskrif, haft umsjón með unglingaþætti hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri RÚVAK, og djassþætti á Rás 2. Hann hefur leik- ið tónlist fyrir hlustendur Hljóðbylgj- unnar á Akureyri og sama starfi gegndi hann á Stjörnunni þar til fyrir tveimur árum að hann gerðist dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni. Snorri Sturluson mun áfram stýra sínum fasta þætti á Bylgjunni milli kl. 14 og 17 á virkum dögum. ■Sigríður Beinteinsdóttir hefur hafið störf á Bylgjunni og verður hún með þátt sem nefnist „Hin hlið- in“. Sigríður verður með þátt sinn á sunnudögum milli kl. 16 til 18. Hún mun aðallega leika íslenska tónlist, bæði gamla og nýja, en einnig verður í bland tónlist frá hinum Norðurlöndurium. ■Hjörtur Hjartarson hefur verið ráðinn til aðstoðar Hallgrími Thor- steinssyni dagskrárstjóra Bylgjunn- ar við daglegan rekstur. Hjörtur var áður auglýsinga- og markaðsstjóri á Aðalstöðinni á árabilinu 1989-91. Þar áður starfaði hann í fjölda ára við tölvumál, m.a. hjá Heimilistækj- um og síðar hjá Hewlett Packard á íslandi. Stofnfundur Félags áhugamanna um fjölmiðlarannsóknir var haldinn síðastliðið þriðjudagskvöld. Á annan tug manna sótti fundinn. í stjóm vom kjörnir Páll Vilhjálmsson, formaður, Guðmundur Rúnar Áma- son, ritari, og Elías Héðinsson, gjald- keri. Á fundinum var rætt um framtíð- arhlutverk félagsins sem er að auka þekkingu og umræðu um íslenska fjölmiðla og rannsóknir á þeim. Einn- ig þarf að halda til haga, skrá og gera aðgengilegar íslenskar rann- sóknir sem gerðar hafa verið. Rædd- ar voru hugmyndir um fyrstu verk- efni félagsins. Sennilega verður fyrsta verkefnið að efna til fundar á næstunni til að ræða þær breytingar sem nú virðast vera yfirvofandi á íslenskum dagblaðamarkaði vegna versnandi stöðu „þríblöðungsins", Alþýðublaðsins, Tímans og Þjóðvilj- ans. Einnig bar væntanleg endur- skoðun útvarpslaganna á góma. Enn- fremur töldu fundarmenn þarft að ræða nánar hvort kannanir á fjöl- miðlanotkun gætu skert ritstjórnar- frelsi, hvort notendakannanir gætu orðið þess valdandi að hugmyndir og hagsmunir auglýsenda yrðu settir í slíkt öndvegi að vitræn og fagleg en e.t.v. „óarðbær" fjölmiðlun yrði ekki birt eða send út. „ \ . 7/S4S Heim fyrir helgina með SAS frá Kaupmannahöfn Það er notalegt að vita til þess að geta flogið með SAS frá Kaupmannahöfn heim til íslands á hverju föstudagskvöldi. Þú notar daginn til að Ijúka erindum þínum og ert kominn heim fyrir helgina. Við fljúgum svo einnig heim á þriðjudags- og sunnudagskvöldum. Þú átt fjölda möguleika á tengiflugi til Kaupmannahafnar, frá Skandinavíu og borgum á meginlandi Evrópu. Þjónusta SAS miðar að því að þú nýtir dýrmætan tíma þinn sem best, komist fljótt og örugglega á áfangastað og njótir fyrsta flokks þjónustu alla leið, jafnt í lofti sem á jörðu niðri. Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína. M/SAS Flugfélag athafnafólks Laugavegi 3 Sími 62 22 11 -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.