Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 6
-6 € MOIÍGUNBIAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBBR1991 eftir Ron Laytner í Bandaríkjunum er nú deilt um svokallaðar greindartöflur („Smart PiIIs“), þ.e. lyfjatöflur með efni, sem ýmsir fullyrða, að skerpi hugsunina, orsaki betri nýtingu á meðfæddri greind manna, treysti minnið og geri menn almennt skýrari og klárari í kollinum. Einkum hefur það valdið uppnámi, að sumir læknar eru famir að skrifa lyfseðla handa fólki fyrir þessi nýju lyf í því skyni að breyta starfsemi hugarins hjá því. Þessar tegundir lyfja hafa verið framleiddar af ýmsum aðiljum í Evrópu og Japan, (viðurkenning á þeim hefur ekki fengizt í Bandaríkjunum), svo að lítið hefur borið á. Þær hafa verið notaðar víða um heim til þess að hamla gegn Alzheimersveiki og öðrum sjúkdómum, sem skerða minni manna. Ymsir læknar í Bandaríkjunum hafa talið sig verða vara við verulega bót til batnaðar hjá gömlu fólki, sem farið var að tapa minni. Trú þeirra á hinum nýju lyfjum hefur orðið til þess, að þeir eru einnig famir að gefa þau hveijum, sem hafa vilh Eitt af fjölmörgum félögum, sem læknar í Bandaríkj- unum hafa með sér, nefn- ist „Bandaríska lyfja- og lækningaframfarafélag- ið“. í því eru um 500 læknar, sem beita sér fyrir „útbreiðslu á nýrri þekkingu í lyfja- og lækn- isfræði". Það á sér samastað í Lag- una Hills í Kalifomíu. Margir lækn- anna, sem gefa út lyfseðla á greind- artöflurnar, eru félagsmenn í því. Þeir segja árangur af notkun þessara lyfja (utan notkunar við ákveðna sjúkdóma) undraverðan. Nemendur fái hærri einkunnir; kaupmenn nái betri samningum við heildsala; gjaldkerar og barþjónar geri færri místök í erilsömu starfi sínu. Flestir segjast vera minnisbetri en áður. Þeir hugsi skýrar, gleymi sjaldnar og líði almennt betur. Marg- ir þessara lækna taka greindartöflur reglulega ásamt fjölskyldu sinni. Jim Warshauer, þekktur saxófón- leikari, tekur greinartöflur daglega. Hann kemst svo að orði: „Ég nota heilann eins ogtölvu af fullum krafti,- — á fullu blússi! Ég er frjórri í hugs- un og meira skapandi í verki. Ég tek greindartöflur áður en ég kem fram á hljómleikum. Ég er áhugasamari og nýt mín betur en áður. Minnið hefur skánað stórlega og nú get ég leikið langa kafla án þess að líta á nóturnar." í San José í Kalifomíu hafa nokkr- ir menn tekið sig saman og stofnað fyrirtækið „Think Drinks, Inc.“. Þeir mylja greindartöflur með stauti í mortéli, blanda mulninginn legi og selja þennan elixír á pelum. Salan eykst hratt um þessar mundir. Þeir vilja hvorki auglýsa vöru sína né veita blaðamönnum viðtal, því að þeir óttast hugsanlega samkeppni manna, sem myndu vilja herma eftir þeim. Þess vegna láta þeir sér nægja að selja löginn þeim, sem frétta af honum hjá kunningjum, en láta ann- ars lítið fyrir sér fara. Nancy Frank er 27 ára gþmul, ráðgjafl um upplýsingastarfeemi í New York. Hún segir: „Ég nota greindartöflur til þess að fínstilla huga minn. Ég er undir miklu álagi í starfi, sem krefst ýtrustu einbeife ingar, mikillar hugarorku og er því ákaflega lýjandi. Greindartöflurnar skerpa athyglisgáfu mína, lengja tímann, þegar hún getur verið í há- marki og veita hugsuninni aukinn kraft. b r etta eru engar töfratöflur. Eg finn áhrifin af þeim, en það tekur tíma. Fólk verður að læra, hvernig á að nota þær.“ Nú getur hver sem er í Bandaríkj- unum orðið sér úti um þessar töflur, þótt bandaríska fæðu- og lyfjamála- ráðuneytið hafi ekki viðurkennt þær. Löggjöf um innflutning lyfja hefur nýlega verið rýmkuð í Banda- ríkjunum. Nú er leyft að flytja inn lyf, sem hlotið hafa viðurkenningu í öðrum löndum, finnist þau ekki á skrá bandarískra yfirvalda um óleyf- ilegar lyfjablöndur og ólögleg lyf til sölu á almennum markaði. Þótt enginn hafí getað lagt fram sannanir um óheppileg áhrif af al- varlegra taginu eftir neyzlu þessara taflna hefur öll hin mikla bandaríska „læknastofnun" (stóru læknafélög- in, háskóladeildir, landlæknis- embættið, lyfjarannsóknadeildir neytendasamtaka og heilbrigðisyfir- völd) haft uppi sannkölluð hróp og köll andmæla og viðvarana, þegar neyzlu þeirra ber opinberlega á góma. Hin opinbera læknastofnun þolir illa, að almenningur skuli neyta lyfja, sem ekki hafa hlotið formlega viðurkenningu á því að vera til bóta eða að minnsta kosti skaðlaus. Gagnrýnendur hafa uppi alls kon- ar mótbárur. Sumum finnst eitthvað athugavert eða jafnvel rangt við það að ætla sér að bæta minnið og efla greindina með því að taka inn töfl- ur, sem eigi að innihalda undursam- leg efni, áður óþekkt í sögu mann- kyns. Það sé siðferðilega rangt, ósiðlegt, að halda slíku fram, áður en „viðurkenndar, vísindalegar" Geta menn aukið greind sína með nýjum töflum? Þeir segja árangur af notkun þessara lyfja undraverðan. Nemendur fái hærri einkunnir; kaupmenn nái betri samningum við heild- sala; gjaldkerar og bar- þjónar geri færri mistök í erilsömu starfi sínu. Gagnrýnendur segja, að sömu áhrifum og greindartöfluneytendur kveðast verða fyrir hafi innflytjendur af skand- inavískum stofni í norðurríkjum Bandaríkj- anna á síðustu öld sagzt ná með því að drekka sterkt kaffi og taka tó- bak í nef og vör. rannsóknir hafi verið gerðar, og það sér ómerkilegt, óheiðarlegt, að selja almenningi töflur, sem sagðar eru gerðar úr slíkum efnum. Þeir segja þetta minna á hin óhugnanlegu áhrif, sem Timothy Leary hafi haft á fólk um allan heim á sínum tíma og enginn „skyni gæddur maður“ geti skilið nú eftir á. Þessi spámann- legi rugludallur, sem reyndist síðar vera handbendi eiturlyijasala og annarra glæpamanna, hafi boðað heiminum trú á ofskynjunar- yg hughrifalyf með hræðilegum árangri, þótt augljóst hefði átt að vera, segja þessir gagnrýnendur, að hann hafí annaðhvort verið bilaður á geði- eða sífellt undir áhrifum þeirra undralyíja, sem hann boðaði æskulýðnum, eins og t.d. LSD-sýru. Aðrir gagnrýnendur segja, að sömu áhrifum og greindartöfluneyt- endur kveðast verða fyrir hafi inn- flytjendur af skandinavískum stofni í norðurríkjum Bandaríkjanna á síð- ustu öld sagzt ná með því að drekka sterkt kaffi og taka tóbak í nef og vör. Rannsóknir á þessum staðhæf- ingum hafi svo ekki leitt til neins. Fáfróðir bændur í ýmsum sveitum í Austur-Asíu (Mansjúríu og á Kóreu- skaga) hafí líka lengi sagzt ná svip- uðum áhrifum með því að éta rótina af ginseng-jurtinni, en „vísindalega" hafí aldrei tekizt að sanna nein áhrif af þessu áti. Duglegir kaupmenn hafi þó komið þessari jurt á markað á Vesturlöndum með góðum árangri. Þessir gagnrýnendur segja mæðu- lega, að heimurinn vilji blekkjast, og því skuli hann blekktur verða. Það verði alltaf sama sagan. Ekki sé hægt að amast við því vilji fólk eyða fé sínu í ný og ný undralyf, þótt það jaðri við ólögmæta verzíun- arhætti, en stöðva verði sölu lyija, sem geti haft skaðlegar verkanir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.