Morgunblaðið - 12.10.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
Vill ráða sextíu er-
lenda leiðsögumenn
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval-Útsýn hefur sótt um leyfi til þess að
ráða 63 útlendinga til leiðsögustarfa hérlendis næsta sumar. Kom þetta
fram á ráðstefnu Ferðamálaráðs í Hveragerði í gær. Forráðamenn
ferðskrifstofunnar segjast vera knúnir til að sækja um slíkt leyfi vegna
þess að erlendar ferðaskrifstofur komist upp með að borga sínum farar-
stjórum mun lægri laun en innlendar. Undanþágunefnd Ferðamálaráðs
fer með leyfisveitingar i þessum málum.
„Við erum einungis að fara fram
á það að sitja við sama borð og
erlendar ferðaskrifstofur sem bjóða
skoðunarferðir hingað til lands,”
sagði Halldór Bjarnason hjá Úrvali-
Útsýn í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Þessar ferðaskrifstofur hafa
stundað það á undanförnum árum
að ráða til sín erlenda leiðsögumenn
sem þiggja lág laun eða jafnvel
engin fyrir störf sín. Mér er kunn-
ugt um að erlendur fararstjóri, sem
starfaði hér á landi í sumar, fékk
2.500 krónur í laun á dag á meðan
við borguðum íslenskum leiðsögu-
mönnum 12.500 kr. þegar launa-
tengd gjöld eru talin með.
Með þessari umsókn er Úrval-
Útsýn einfaldlega að fara fram á,
að það fái að ráða erlenda farar-
stjóra til starfa og borga þeim lág
laun eða þá að erlendar ferðaskrif-
stofur verði skikkaðar til að borga
sínum fararstjórum þau lágmarks-
laun sem tíðkast hérlendis. Eins og
Heimsbikarmótið:
Salov vann
biðskákina
SALOV vann biðskák sína
úr 13. umferð við Chandler
á heimsbikarmótinu í skák
í gær og færðist við það upp
í 9.-11. sæti á mótinu. Staðan
á toppnum hefur ekki
breyst. Karpov og Ivantsjúk
eru sem fyrr efstir og jafnir
á mótinu með 10 vinninga,
1,5 vinninga forskot á næstu
menn, sem eru Júgóslavarn-
ir Ljubojevic og Nikolic.
Jóhann Hjartarson er í 12.
sæti með 6 vinninga.
Síðasta umferð heimsbikar-
mótsins verður tefld í dag á
Hótel Loftleiðum og hefst
klukkan 17.10. Þá tefla saman
Anderson og Jóhann, Chandl-
er og Karpov, Seirawan og
Ivantsjúk, Nikolic og
Ljubojevic, Timman og Gulko,
Ehlvest og Khalifman, Speel-
man og Beljavskí og Portisch
og Salov.
ástandið er nú, eru þeir í yfírburða-
stöðu og geta boðið íslandsferðir á
mun lægra verði en við,” sagði
Halldór.
Bima G. Bjamleifsdóttir, for-
stöðumaður Leiðsöguskólans, segir
að á undanförnum árum hafí sifellt
fleiri erlendum fararstjórum verið
leyft að starfa hérlendis og íslensk-
ir leiðsögumenn hljóti að líta það
mjög alvarlegum augum. Umsókn
Úrvals-Útsýnar sé aðeins hluti af
þeirri þróun og verði ekkert að gert,
Ííði ekki á löngu uns útlendingar
hafi þessa starfsgrein í sínum hönd-
um. „Sú stefna var mörkuð fyrir
nokkmm ámm að heimila útlend-
ingum að vinna sem leiðsögumenn
hérlendis ef þeir fengju laun sín frá
erlendum aðilum enda væri einung-
is um örfá tilvik að ræða. í fyrra
unnu 46 útlendingar 1.300 dags-
verk hér á landi sem leiðsögumenn
en í sumar var um 71 einstakling
að ræða sem vann samtals 2.600
dagsverk. Eg vil einnig benda á að
málið snýst að nokkru leyti um
náttúmvernd. Það em mjög nýleg
dæmi um það að erlendir hópar
hafi valdið spjöllum á íslenskri
náttúm undir stjóm erlendra leið-
sögumanna,” sagði Bima að lokum.
Sjá fréttir af ferðamálaráð -
stefnu á bls. 4 og 12.
Morgunblaöið/RA^
Systkinin ásamt foreldrum sínum og litla bróður við afhendingu viðurkenninganna hjá SVFÍ í
gær. Talið frá vinstri: Trausti Ingvarsson, Helga B. Björnsdóttir, Óskar Þórmundsson, með Óskar
Björn í fanginu, og Birna Mjöll.
Systkini heiðruð fyrir björgun
Slysavarnafélag íslands heiðraði í gær tvö systkini, Birnu Mjöll
Ingvarsdóttur og Trausta Ingvarsson, sem í vor björguðu með
snarræði tæplega tveggja ára gömlum bróður sínum frá köfnun
er hnetur stóðu í honum. Systkinin voru við þetta tækifæri gerð
að ævifélögum í SVFI og afhent björgunarverðlaun unglinga.
„Við vomm að passa Óskar ur og var allur biár í framan. Ég
Bjöm þegar þetta gerðist. Ég var
að baka og sá allt í einu að Oskar
Björn lá í ganginum fyrir framan
eldhúsið. Hann hafði fengið hnet-
og Trausti hjálpuðumst að við að
slá í bakið á honum þangað til
hnetan iosnaði svo það var okkur
báðum að þakka að hann bjargað-
ist,” sagði Bima Mjöll í samtali
við Morgunblaðið, og Trausti
bætti við: „Svo hringdum við í
vinafólk af því við mundum ekki
símann hjá sjúkraliði.”
Bömin þökkuðu móður sinni
góðan árangur björgunarinnar en
hún hafði kennt þeim hvernig
bregðast ætti við ef slíkar aðstæð-
ur kæmu upp.
Undirmenn á kaupskipum boða verkfall:
Yfirvinnubaimið hefur ekki
borið tilætlaðan árangur
- segir Jónas Garðarsson framkvæmdastjóri Sjómannafélags Reykjavíkur
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavík-
ur hefur boðað til verkfalls und-
irmanna á kaupskipum 1S.-25.
október og 11.-15. nóvember að
öllum dögum meðtöldum. Undir-
menn á kaupskipum krefjast þess
að kjarasamningur þeirra frá
júlí 1989 taki gildi að nýju og
gildi fram að áramótum. Þorkell
Sigurlaugsson, framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs Eimskipa,
segir að verkfallið muni hafa í
för með sér töluverða röskun á
rekstri fyrirtækisins og kostnað-
arauka. Hann segir að reynt
verði að koma á samningavið-
ræðum. Yfirvinnubann frá 16.
september heldur áfram.
Á ekki von á að verðtrygging
hverfi ór sögunni á næstunni
- segir Valur Valsson formaður Sambands viðskiptabanka
RIKISSTJÓRNIN hyggst afnema lögbundna verðtryggingu fjár-
skuldbindinga frá ársbyrjun 1993. Menn á peningamarkaðinum hér
telja að eftir sem áður verði inn- og útlán að meira eða minna leyti
verðtryggð áfram.
„Við tökum undir þessar aðgerð-
ir sem eru í rauninni staðfesting á
stefnu fyrrverandi ríkisstjórnar og
þessarar. Við höfum reyndar óskað
eftirþví að gildistímanum verði flýtt
þannig að þetta taki gildi núna um
áramótin,” sagði Valur Valsson for-
maður Sambands viðskiptabanka.
„Ég á ekki von á því að grund-
völlur skapist til að afnema verð-
tiyggingu á lánum, sérstaklega til
lengri tíma. Verðtryggingin hefur
reynst það haldreipi .sem sparifjár-
eigendur hafa reitt sig á og ég
held að ekki sé enn kominn sá tími
að hægt sé að kasta henni í burtu.
Við munum því enn um sinn búa
við verðtryggingu á hluta okkar
inn- og útlána,” sagði Valur.
Hann sagðist telja heppilegra að
lán til langs tíma bæru fasta vexti,
bæði væri það betra fyrir þá sem
væru að fjárfesta og einnig til að
stýra fjárfestingaráformum. Vextir
gætu verið háir þegar þensla er í
þjóðfélaginu og öfugt þegar þenslan
minnkar.
„Til að þetta sé hægt þarf spar-
endur sem eru tilbúnir að festa sitt
fé með þessum hætti. Efnahags-
ástandið og verðlagsþróun hér hef-
ur verið með þeim hætti undanfarna
áratugi að það er erfítt að fá slíka
sparendur á allra næstu mánuðum
og árum því þessu fylgir ákveðin
áhætta,” sagði Valur.
Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Fjárfestingarfélags íslands hf., seg-
ir sjálfsagt að afnema lögbundna
verðtryggingu fjárskuldbindinga.
„Það er alveg sjálfsagt að menn
geti samið um það sem þeim sýnist
í sínum viðskiptum. Hver og einn
á að geta samið eins og hann vill,”
sagði Friðrik og bætti því við að
eftir sem áður ætti hann von á að
lán yrðu áfram verðtryggð, að
minnsta kosti lán til lengri tíma.
Aðspurður um hvort eðlilegt
gæti talist að lán væru bæði verð-
tryggð og einnig með breytilegum
vöxtum, sagði Friðrik: „Ef það
væri fullkomlega virkur peninga-
markaður hér á landi þá gæti bank-
inn tekið verðtryggt lán með breyti-
legum vöxtum og lánað það síðan
áfram til mín og þín með verðtrygg-
ingu og breytilegum vöxtum. Bank-
inn hlýtur að stefna að því að hafa
sínar tekjur af vaxtamun en ekki
taka áhættu sem felst í því að hafa
fasta vexti öðrum megin í efnahag-
inum en breytilega vexti hinum
megin. Ég sé það fyrir mér að
menn gætu samið um þetta ef þeim
sýndist svo,” sagði Friðrik.
Jónas Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannafélags
Reykjavíkur, sagði í samtali við
Morgunblaðið að boðað hefði
verið til verkfalls 18.-25. október
að báðum dögum meðtöldum.
Gert yrði hlé í tvær vikur en
annar hluti verfallsins hæfíst
mánudaginn 11. nóvember og
stæði í fímm daga. Yfírvinnubann
héldi áfram.
Verkfallsmenn vilja að kjara-
samningur þeirra frá júlí 1989 taki
gildi að nýju og haldi fram að ára-
mótum. I honum felst 3% launa-
hækkun í þremur þrepum. Kjara-
samningamir voru teknir af með
bráðabirgðalögum en urðu lausir
15. september síðastliðinn. Strax
daginn eftir var boðað til yfirvinnu-
banns, en að sögn Jónasar hefur
það ekki borið tilætlaðan árangur.
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim-
skipa, sagði að verkfallið hefði í för
með sér verulega röskun á rekstri
fyrirtækisins og kostnaðarauka. Þó
kom fram í máli hans að ekki myndi
allur rekstur fyrirtækisins stöðvast
þar sem verkfallið næði einungis
til skipa á Reykjavíkursvæðinu.
Skip í strandsiglingu eða erlendis
myndu ekki stöðvast. Engu að síður
sagði hann að verkfallið væri afar
óheppilegt. Hann sagði ekki ákveð-
ið hvemig brugðist yrði við því á
annan hátt en reynt yrði að efna
til samningaviðræðna.
Fimm meidd-
ust í árekstri
FIMM manns voru fluttir á slysa-
deild eftir harða aftanákeyi-slu í
glerhálku á afrein Miklubrautar
inn á Reykjanesbraut um klukkan
þijú í fyrrinótt.
Fólkið var ekki talið mjög hættu-
lega slasað, að sögn lögreglu.
Óhappið varð þegar skyndilega var
dregið úr ferð fólksbíls á aðreininni.
Heimsókn forsætisráðherra til Noregs:
Brundtland vill frestun
OPINBERRI heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Nor-
egs, sem vera átti dagana 21. og 22. október verður líklega frestað
um nokkra daga.
„Það er ekki búið að ganga form-
lega frá því að heimsókninni verði
frestað, en við höfum heyrt um það
gegnum sendiráð okkar í Ósló og
sendiráð þeirra hér að Gro Harlem
Brundtland muni hafa samband og
leggja til að heimsókninni verði
frestað,” sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra í gærkvöldi.
„Það kemur sér örugglega vel
fyrir báða aðila því heimsóknin á
að vera á sama tíma og ráðgert er
að ljúka EFTA/EES-viðræðunum.
Það er ekki búið að taka ákvörðun
um hvenær af heimsókninni verð-
ur,” sagði forsætisráðherra.