Morgunblaðið - 12.10.1991, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Þekktur leikstjóri á kvikmyndahátíð
Keflavík.
Margarethe von Trotta, hinn kunni þýski kvikmyndaleikstjóri, kom til
landsins í gærkvöidi. Kom hún gagngert til að vera viðstödd frumsýningu
á nýjustu mynd sinni, Heimkomunni, sem sýnd verður á kvikmyndahátíð-
inni í Regnboganum í dag kl. 17 og verður þetta jafnframt eina sýningin
á myndinni. Margarethe von Trotta kom til íslands árið 1985 í tengslum
við kvikmyndahátíð kvenna sem þá var haldin og sagðist hún við kom-
una til landsins í gær vel muna eftir þeirri ferð, sem hefði verið einstak-
lega ánægjuleg. Nefndi hún heimsókn til forseta íslands, Vigdísar Finn-
bogadóttur, sem hefði verið ákaflega skemmtileg og einnig hefði landslag-
ið heillað sig. Margarethe von Trotta hefur fengið fjölda viðurkenninga
fýrir leikstjórn og af myndum hennar má nefna Systumar og Rósu Lux-
embourg, sem hér hafa verið sýndar við góða aðsókn.
Landbúnaðarmál:
Afnám sérstakra sölusvæða
og frjálsari verðlagning
í STEFNUÁÆTLUN ríkisstjórnarinnar í landbúnaðarmálum segir að
í athugun sé að gefa heildsöluverð á kindakjöti frjálst haustið 1992,
en verðlagning til bænda verði endurskoðuð 1993 í samræmi við búvöru-
samninginn. „Þá verður ávallt tryggt að bændur eigi val um slátrun
eins og heilbrigðiskröfur leyfa. Opinbpr stuðningur við mjólkurfram-
leiðslu verður einskorðaður við innanlandsmarkað. Ríkisstjórnin leggur
áherslu á meira frelsi í greininni, endurskoðun verðmiðlunar, afnám
sérstakra sölusvæða og fijálsari verðlagningu en nú tíðkast,” segir í
textanum.
í stefnuáætluninni segir að vegna
kaupa á framleiðslurétti og skörunar
beinna greiðslna og niðurgreiðslna
skv. búvörusamningnum sé óhjá-
kvæmilegt að útgjöld ríkissjóðs vaxi
á næsta ári en sparnaður muni koma
fram þaðan í frá.
„Endurskoðun búvörulaga er hafín
með það að markmiði að hagræða í
framleiðslu, vinnslu og sölu búvara.
Reiknað er með að endurskoðuninni
ljúki fyrir haustþing 1992. Stefnt er
að því að draga úr sjáifvirkni í út-
gjöldum ríkissjóðs. í tengslum við
upptöku beinna greiðslna til bænda
mun ríkisstjómin endurskoða fram-
kvæmd niðurgreiðslna á búvöru-
verði, m.a. vegna vaxta, geymslu-
VEÐUR
ÍDAGkt. 12.00 V
Heimifd: Veöurstofa ísfands
(Byöðt á veöurspá kl. 16.15 (gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 12. OKTOBER
YFIRLIT: Um 500 km suðsuðvestur af Reykjanesi er 997 mb lægð
sem hreyfist austnorðaustur. Yfir Grænlandi er 1.015 mb hæð.
Skammt austur af Hornafirði er 1.003 mb lægð sem hreyfist norð-
austur. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: Vestan- og norðvestanátt, fremur hæg með skúrum sunnan-
og vestanlands og einnig á sunnanverðu Austurlandi en annars
staðar að mestu úrkomulaust.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg austan- og norðaustanátt,
lítilsháttar súld eða slydda austan til á landinu en annars staðar
að mestu úrkomulaust. Hiti 2-4 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Allhvöss norðan- og norðaustanátt, eink-
um vestantil á landinu. Norðan- og vestanlands verða él eða slyddu-
él en úrkomulaust í öðrum landshlutum. Hiti 1-2 stig.
Svarsfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 980600.
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r * r * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celslus
ý Skúrir
*
v El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
r VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri 12 skýjað Reykjavik 6 súld
Bergen vantar
Helsinki 13 þokumóða
Kaupmannahöfn 15 þokumóða
Narssarssuaq 2 léttskýjað
Nuuk 0 siydduél
Ósló 12 alskýjað
Stokkhólmur 11 þokumóða
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 18 mistur
Barcelona 25 mistur
Berlín 21 mistur
Chicago 6 léttskýjað
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 14 þokumóða
Glasgow 13 mistur
Hamborg 20 heiðskírt
London 18 mistur
LosAngeles 23 heiðskírt
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 12 rigning
Malaga 18 rigning
Mallorca 26 léttskýjað
Montreal 10 skýjað
NewYork 14 skýjað
Orlando 21 alskýjað
Paris 23 skýjað
Madeira 19 skúr
Róm 25 léttskýjað
Vín 15 mistur
Washington 13 þokumóða
Winnipeg 6 alskýjað
gjalda og niðurgreiðslna á ull og
þurrmjólk,” segir í stefnuáætluninni.
Fram kemur að lög um sjóði land-
búnaðarins varða endurskoðuð, m.a.
í því skyni að þeir verði framvegis
látnir standa straum af kostnaði við
stofnanir hans í vaxandi mæli. Lög
um Framleiðnisjóð verða endurskoð-
uð og hlutverk hans tengt rannsókn-
um og þróunarstarfi. „Aburðarverk-
smiðju ríkisins verður breytt í hluta-
félag og er undirbúningur hafínn.
Endurskoðun á starfí stofnana og
laga um þær mun miða að því að
draga úr sjálfvirkni opinberra út-
gjalda í landbúnaði,” segir í textan-
um.
„Gildandi lög um jarðir og ábúð
eru við það miðuð að hefðbundinn
búskapur sé stundaður á sem flestum
jörðum. Lögin verða endurskoðuð
vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélag-
inu og frumvörp lögð frá á Alþingi
1991-1992,” segir í kafla um endur-
skoðun jarða- og ábúðarlaga.
í kafla um landgræðslu og skóg-
rækt segir að ríkisstjórnin hyggist
fela bændum fieiri verkefni en nú á
því sviði. Verði unnið sérstaklega að
áætlunum um nytja- og landgræðslu-
skóga.
Lagt til að miðhálend-
ið verði þjóðgarður
Á ráðstefnu Ferðamálaráðs, sem haldin var í Hveragerði í gær og
fyrradag, var meðal annars samþykkt ályktun frá starfshópi um „ferða-
þjónustu og umhverfismál” þar sem lagt er til að miðhálendi landsins
verði gert að þjóðgarði. Aftur á móti fengu hugmyndir um hraðbraut-
ir um hálendið ekki hljómgrunn á ráðstefnunni.
Eiður Guðnason umhverfísráð-
herra sagði í framsöguerindi að sér
fyndist sú hugmynd „aðlaðandi” að
miðhálendið yrði gert að þjóðgarði.
Til þess að svo gæti orðið þyrfti eign-
arhald ríkisins að vera ótvírætt en
svo væri ekki nú. „Þetta ætti samt
að vera markmið okkar til lengri tíma
litið,” sagði umhverfísráðherra.
Allmiklar umræður urðu um þjóð-
garðshugmyndina en hún var sam-
þykkt að lokum, sem fýrr segir.
Höskuldur Jónsson fundarstjóri sagði
að þetta hefði verið á sveimi í æði
marga mánuði en Eiður hefði tekið
þjóðgarðshugmyndina upp á sína
arma. „Ég lagðist að nokkru leyti
gegn þessu,” sagði Höskuldur, „og
það gerðu fleiri, meðal annars vegna
þess að það hefur ekki verið gerð
grein fyrir því hvemig á að skil-
greina hvað er hálendi íslands. Er
það Vatnajökull eða nær hálendið
út á Snæfellsnes?”
Morgunblaðið selt í
52.259 eintökum á dag
MORGUNBLAÐIÐ seldist í 52.259 eintökum á dag að jafnaði I maí,
júní og júlí sl., samkvæmt skoðun trúnaðarmanns Verslunarráðs fs-
lands við upplagseftirlit dagblaða. í sömu mánuðum á síðasta ári var
dagssalan 50.767 eintök. Söluaukning á milli þessara tímabila er því
1.492 eintök að jafnaði á dag, eða 2,9%, samkvæmt fréttatilkynningu
Verslunarráðsins.
1 fréttatilkynningu ráðsins segir
einnig: „Morgunblaðið er eina ís-
lenska dagblaðið, sem nýtir sér upp-
lagseftirlit Verslunaráðsins og hefur
raunar notað sér þá þjónustu síðan
hún var tekin upp árið 1985. Fram-
kvæmd eftirlitsins er í höndum lögg-
ilts endurskoðanda, sem hefur að-
gang að bókhaldi og prentsmiðju við-
komandi blaða hverju sinni.
Staðfesting upplags prentmiðla af
óháðum aðila hefur annars vegar
þann tilgang að vera grunnur að
greiningu á markaðsstöðu þeirrafyrir
þá sjálfa, en hins vegar og sér í lagi
fyrir auglýsendur, sem nýta sér
prentmiðla til þess að kynna sig og
sitt. Á grunni staðfestra upplags-
talna eru síðan framkvæmdarles-
endkannanir, sem ætlað er að greina
notendur prentmiðlanna, hvers fyrir
sig.
Verslunarráðið hefur síðustu sex
ár boðið prentmiðlum óháð upplags-
eftirlit. Það hefur verið lagað að
þeim aðstæðum, sem íslenskir
prentmiðlar búa við, án þess að slak-
að hafí verið á kröfum um aðgang
að upplýsingum. Eftirlitinu hefur
verið skipt í tvennt. Annars vegar
gagnvart dagblöðum. Hins vegar
gagnvart tímaritum, fréttablöðum og
kynningarritum. Niðurstöðum hveiju
sinni er dreift til fjölda útgáfu- og
hagsmunaaðila.”
Morgunblaðið/S verrir
Sinfónían leikur í skólum
Sinfóníuhljómsveit íslands hefur undanfarið leikið í nokkrum grunn-
skólum á Reykjavíkursvæðinu. Myndin er tekin í gær í Selásskóla og
virðist stjórnandinn ungi skemmta sér hið bezta með Símoni Kuran
fiðluleikara. í dag leikur Sinfóníuhljómsveitin fyrir gesti og gangandi
í Kringlunni og kemur fram kl. 12.30 og 13.30.
i