Morgunblaðið - 12.10.1991, Side 10

Morgunblaðið - 12.10.1991, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991 10 Styrktarsýning _______Myndlist Bragi Asgeirsson í Fím-salnum í Garðarstræti 6 stendur um þessar mundir og fram yfir helgi yfir eins konar styrktarsýning meðlima samtak- anna. Málið er að Félag íslenskra myndlistarmanna á í nokkru fjár- hagsbasli um þessar mundir og félagsmennimir 22, af rúmlega 100 meðlimum, sem sýna sam- tals 30 myndverk eftir sig, gefa helming andvirðis mynda sem seljast til félagsins. Ýmislegt hefur gengið á í starfsemi félagsins á undanföm- um ámm og það átt undir högg að sækja vegna stofnunar Sam- bands íslenskra myndlistar- manna, þar sem menn virðast hafa misskilið hlutverk sitt, sem á vitaskuld einungis að vera al- menn hagsmuna- og réttindabar- átta, en ekkert fram yfir það, enda er það verkefni eitt yfrið nóg eins og málum er háttað. Mikill hugur er í mönnum að gera veg FÍM sem mestan á næstu ámm og er m.a. brýnt verkefni að endurvekja hinar ár- vissu haustsýningar er lögðust af eftir langa raunasögu. Slík árleg uppstokkun og yfir- lit á að gefa fólki möguleika á að átta sig betur á því sem mynd- listarmenn era að aðhafast hverju sinni og veita um leið ungu hæfileikafólki tækifæri til að sanna styrk sinn í hópi hinna eldri og reyndari. Þetta tíðkast allstaðar í einhveju formi í grón- um menningarsamfélögum og sums staðar em bæði vor- og haustsýningar og er sums staðar um meira en aldarlanga hefð að ræða. Eins og ýmsum mun kunnugt, þá kemur hinn rétti styrkur margra einstaklinga öðm fremur fram á stómm samsýningum, og er það illt að þetta atriði skuli vera jafn vanrækt hér á landi og raun er á og verður að teljast mikil glompa á annars um- fangsmiklu sýningahaldi á höf- uðborgarsvæðinu. Þetta skapar ragling og menn eiga erfitt með að átta sig á stöðu íslenskrar mjmdlistar í dag, því að fæstir ná að skoða nema hluta allra þeirra smásýninga sem í gangi em að jafnaði. Vonandi tekst að endurreisa FÍM með miklum myndarbrag, en til þess þarf félagið traustari fjárhagslegan gmndvöll en fyrir er, og því er þessari sýningu hleypt af stokkunum til að gefa áhugamönnum um myndlist tæk- ifæri til að leggja sitt fram til aukningar vexti og viðgangi hennar og heilbrigðri framþróun. A sýningunni er fjölbreytilegt úrval myndverka og eru höfundar þeirra flestir nafnkenndir mynd- listarmenn, sem eiga að baki langan feril og sýningar heima sem erlendis, svo og þátttöku í ótal fjölþjóðlegum samsýningum. Má vera ljóst að hér er ein- stakt tækifæri fyrir einstaklinga sem fyrirtæki til að gerast virkir þátttakendur í mótun íslenskrar myndlistar. Vil ég að lokum minna á, að fram að þessu hefur það öðru fremur verið almenningur sem hefur haldið uppi listastarfsemi hérlendis, sem er einsdæmi í ver- öldinni og vakið hefur óskipta undrun og aðdáun erlendra list- frömuða. Listin hefur þannig ekki verið séreign fárra útvaldra og hér á landi em ekki til auðjöfr- ar sem styrkja list og halda uppi listastarfsemi auk þess sem sár- afáir einstaklingar safna mynd- listarverkum skipulega.. Er mikilvægt að áfram verði haldið í þessi sérkenni, því að þau eru styrkur þjóðarinnar, en það verður einungis gert með því að réttir aðilar taki höndum saman við starfandi myndlistarmenn. ■ NORSKI fjölskylduráðgjafinn Eivind Fröen mun dvelja hér á landi dagana 12.-23. október og kenna á námskeiðum um hjóna- bandið á vegum Fjölskyldufræðsl- unnar. Eivind Fröen hefur komið margoft til íslands og m.a. kennt á slíkum námskeiðum, bæði í Reykjavík og úti á landi. Alls hafa á sjöunda hundrað manns sótt nám- skeiðin. Hér er um tveggja kvölda námskeið að ræða, þijá fyrirlestra hvort kvöld. Aðalefnið er um sam- skipti hjóna og er í því sambandi fjallað um góð tjáskipti, að mæta þörfum hvors annars, kynlífíð o.fl. Að þessu sinni verða námskeiðin haldin á eftirtöldum stöðum og dög- um í október: 12.-13. í Hótel Vala- skjálf á Egilsstöðum, 14.-15. í safnaðarheimili Neskaupstaðar, 16.-17. í Slysavarnahúsinu á Eskifirði, 21.-22. í safnaðarsal Bústaðakirkju í Reykjavík. Nám- skeiðagjald er 1.500 kr. á mann og em veitingar innifaldar. Skráning á námskeiðið í Reykjavík fer fram í Bústaðakirkju, á skrifstofu Kristi- legs félags heilbrigðisstétta og á skrifstofu Fjölskyldufræðslunnar, Bergstaðastræti lOa. 1 KH 01 07H L^RU® Þ' VALDI,VlARSS0N framkvæmdastjori L I Iwv hlw/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltub fasteignasali Til sölu á fasteignamarkaðinn eru að koma m.a. eigna: Á vægu verði við Hraunbæ 3ja herb. ekki stór en vel skipul. íb. á 1. hæð. Nýtt bað. Góð innr. Sérinng. Verönd. Ágæt sameign. Laus strax. Verð aðeins kr. 5,3 millj. Góð íbúð við Furugrund 2ja herb. á 1. hæð um 60 fm vel umgengin. Vestursvalir. Geymsla í kj. Ágæt nýendurbætt sameign. Laus strax. „Eldra“ sérbýli í Skerjafirði steinhús - parhús á tveimur hæðum m/4ra-5 herb. íb. Ræktuð eignar- lóð. Húsnlán kr. 3,0 millj. Eignaskipti mögul. í gamia góða vesturbænum nýl. endurbætt 2ja herb. íb. á 2. hæð í reisul. steinh. v/Ránargötu. 40 ára húsnæðislán kr. 2,7 millj. Tilboð óskast. Skammt frá Dalbraut nýendurb. 4ra herb. íb. á 2. hæð ekki stór, vel skipul. Gott risherb. fylgir m/snyrtingu. Sameign mikiö endurb. Laus strax. Sanngjarnt verð. Á góðu verði við Hrafnhóla ofarl. í lyftuh. 4ra-5 herb. stór og góð íb. m/miklu útsýni. Húsvörður. Góð sameign. Sérbýli í byggingu óskast í borginni, Kópavogi eða Garðabæ. Skipti mögul. á góðu ein- bhúsi 130 fm m/stórum bílsk. Vestarlega við Barðavog gott steinhús vel byggt og vel með farið 165 fm á einni hæð. 5 svefn- herb. Bílsk. Glæsil. lóð. Eignaskipti mögul. Húseign - tvær íbúðir Leitum að húseign m/4ra-6 herb. íb. og 2ja-3ja herb. íb. fyrir einn af okkar gömlu og góðu viðskiptavinum. Skipti mögul. á úrvalssérhæð miðsvæðis í borginni. Nánari uppl. á skrifst. Með óvenju góðar greiðslur í boði Þurfum að útvega traustum viðskiptamanna 4ra-5 herb. íb. m/sér- inng. og bílsk. Ýmsir staðir koma til greina. Má þarfn. endurn. á innr. • • • Opið ídag kl. 10.00-16.00. Leitum að góðu skrifsthúsn. miðsvæðis í borginni til eigin afnota. ALMENNA FASTEIGNtSAlAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 : *ris u&éáríLZ ^QsesDsö œböQ Umsjónarmaður Gísli Jónsson 610. þáttur Þá skal reyna við undirflokka a-stofna og hefja leikinn á va- stofnum. Þar kom fram v í beyg- ingunni á undan a og i, en margt hefur gengist í aldanna rás. Eg ætla að taka hvorugkynsorðin fyrst, því að karlkynsorðin, sem í þessum flokki eru, geta verið svolítið erfið, og umsjónarmaður hliðrar sér hjá bágindunum í lengstu lög. Þessi hvomgkynsorð voru va-stofnar: bygg, böl, fjör, fijó, fræ, högg, hræ, kjöt, lyng, læ (=svik), mjöl, smjör og öl. Tókuð þið eftir því, hvað mikið er af ö-hljóði í þessum orðum? Það er fyrir áhrif frá vaffi. Strax blasir við að sum þessara orða henta illa í fleirtölu, svo sem „tegundarheitin” kjöt og smjör. Helsta kennileiti þessara orða var vi-ending í þgf. et, en í nútíma- máli er vaffið úr henni yfirleitt horfíð. Orðið högg beygðist svo til dæmis: Eintala: högg, högg, höggvi, höggs; fleirtala högg, högg, höggum, höggva. Enn fara menn brautina á svo og svo mörgum höggum. Þar er ekki skotið inn v-hljóði, eins og t.d. í karlkynsorðmyndinni söngvum. Meira um það síðar. Vemlegur þokki finnst mér yfir máltækinu gamla: skamma stund verður hönd höggvi fegin (lat. neque manum longe ixu ehilare), og fal- legt tal þætti mér að tína ber af lyngvi, Sergja á ölvi, safna birgð- um af kjötvi, rnjölvi og smjörvi, og auðvitað segjum við enn áð loft sé lævi blandið. Nú kemur útúrdúr: Menn draga dám af sessunaut sínum, einn apar eftir öðrum, og kallast tíska. Orðin hafa þegið þessa öpunar- hneigð í arf frá sköpurum sínum og skipta stundum um ham að einhveiju eða öllu leyti til þess að líkja eftir öðrum orðum. Það er kallað áhrifsbreyting (ana- logia). Þetta má segja að sé fínt orð („skrauthvörF’, euphemism) yfir það sem daglega væri nefnt málvilla. Með öðrum orðum: Þeg- ar ein orðmynd lagar sig eftir annarri, án þess að um „eiginlega hljóðbreytingu” sé að ræða, kall- ast það áhrifsbreyting, þegar • nógu margir hafa tekið breyting- una upp, er hún „viðurkennd”. Annars er þetta bara málvilla. Dæmi fræ, sem ég sagði að verið hefði va-stofn; er nú farið að beygjast sem ja-stofn, sjá síðar. Svipað er að segja um frjó, nema hvað joðið í þeirri orðmynd ber ábyrgð á því, að fijó hefur ekki breyst í ja-stofn, heldur hagar sér nú eins og hreinn a-stofn. En Jón Thoroddsen kvað eftir eldra laginu: Þú fóstuijörðin frið og kær, sem feðra hlúar beinum, og lífið ungu fijóvi fær hjá fomum bautasteinum. Verður nú staðar numið við beygingafræðina í dag, nóg af henni komið, en gaman er þetta, maður minn. ★ Um uppruna orðsins víkingur (kappi á sjó, sjóræningi) em skipt- ar skoðanir. Flestir telja þó að það sé leitt af vík og sé þá sá „sem hefst við í víkum” (vogum) eða sé frá Víkinni í Noregi (fornt heiti Oslóar eða Oslóarfjarðar). Vík- ingur var mannsnafn í Noregi í fornöld, en dæmi fínnast ekki frá íslandi. Faðir tveggja landnáms- manna hét þó Víkingur, og þess gætu sést merki í örnefnum eins og Víkingslækur. Enginn Vík- ingur er í aðalmannatölum 1703, 1801, 1845, 1855 og 1870, en 1910 era þeir tveir, báðir fæddir í Þingeyjarsýslu; sennilega er nafnið þá komið frá Víkingavalni í Kelduhverfi. Árin 1921-1950 voru 22 sveinar skírðir Víkingur á landinu öllu, árið 1960 tveirj einnig tveir 1982, enginn 1985. I þjóðskránni 1982 heita 26 menn Víkingur einu nafni eða fyrra af tveimur (fyrsta af þremur). í nú- tímamáli hefur víkingur fengið nýja merkingu, dugnaðarforkur. Þórður Öm Sigurðsson í Kópa- vogi skrifar mér þetta skemmti- lega bréf sem ég þakka honum: „Kæri Gísli. Kollega okkar beggja, Ólafur heitinn Hansson, lagði eitt sinn sem oftar orð í belg á kennarastof- unni um óútreiknanlega vegi mál- breytina. Maður að nafni Guð- mundur Fífill átti í útistöðum við náunga sinn og rak málið fyrir hæstarétti. Andskoti hans tók oft fram að hann hefði sagt Guð- mundi Fífli þetta eða hitt. Guð- mundi leiddist þetta og fékk dóm- ara til að úrskurða að þágufall af Fífli skyldi vera Fífjl. Menn kímdu að þessu með Ólafí, og hefur áreiðanlega engan gmnað að þú, Gísli Jónsson, útvörður tungunnar í fásinninu norður, mundir aðeins aldarfjórðungi síð- ar opinberlega neita að ríða á drasli og ýja að, já mæla með, barnamálsbeygingu á rafsegli! „Interdum dormitat ipse Homer- us.”[Þýðing umsjónarmanns: Stundum dottar (sefur á verðin- um) sjálfur Hómer] Mig langar annars að þakka þér góða varðstöðu. Oft hefur mér dottið í hug að skrifa þér þótt ekki yrði af. Ekkert sérstakt man ég núna nema hvað að gott væri að þú gengir þannig frá ákvarð- anatöku að hún stæði ekki upp aftur. Bestu kveðjur.” Tilefni bréfs þessa er að sjálf- sögðu beygingarfræðikaflinn í 607. þætti. ★ Dithmar dári vottast, Dithmar lygapyttur, Dithmar dreggjapottur, Dithmar fijósi og svitni. Dithmar drussi réttur, Dithmar innan slitni, Dithmar drafni og rotni, Dithmar eigi rythmum. (Um Dithmar Blefken, vondan höfupd, óvíst hver orti; rythmum er latínuþolfall af orði sem merkir sálmur eða kviðlingur.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.