Morgunblaðið - 12.10.1991, Page 20

Morgunblaðið - 12.10.1991, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 Friðarráðstefna í Miðausturlöndum: „Hætta á að öfgamenn grípi til örþrifaráða” - segir James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna Washington. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, varaði við því á fimmtudagskvöld að öfga- menn kynnu að grípa til örþrifa- ráða til að koma í veg fyrir að ■ STOKKHÓLMI - Níkolaj Úspenski, sendiherra Sovétríkj- anna í Svíþjóð, hefur verið gert að láta af störfum. Skýrði blaða- fulltrúi sendiráðsins í Stokkhólmi frá þessu á fimmtudag. Ástæðan er talin sú að Úspenskí studdi ekki við bakið á Míkhaíl Gor- batsjov, forseta Sovétríkjanna, á meðan á valdaráninu stóð í ágúst. Fjölmargir sovéskir sendiherrar voru kallaðir til Moskvu til skrafs og ráðagerða eftir valdaránið. Fyrstu yfirlýsingar Úspenskís eftir að valdaránið varð kunnugt bentu til þess að hann styddi það. ■ HAMBORG - Stjómvöld í Þýskalandi og Sovétríkjunum hafa komist að samkomulagi um að Erich Honecker, fyrrverandi leið- togi Austur-Þýskalands, skuli dveljast áfram í Sovétríkjunum um sinn, að sögn þýska dagblaðsins Bild. Sjálfur kveðst Honecker í sjónvarpsviðtali ekki vilja snúa aftur til Þýskalands fyrr en ákær- ur á hendur honum verði látnar niður falla. Bild segir að fulltrúar þýskra stjómvalda fái að yfirheyra Honecker í Moskvu vegna ásakana á hendur honum í tengslum við dráp landamæravarða á flótta- mönnum sem reyndu að komast yfir Berlínarmúrinn. haldin yrði ráðstefna um frið í Miðausturlöndum. Baker fer í áttundu friðarför sína til Miðausturlanda á sunnu- dag. Hann ræddi á fimmtudag við fjóra palestínska fulltrúa um hveijir skyldu taka þátt í ráðstefn- unni fyrir hönd Palestínumanna. Hann hvatti Palestínumenn til að fallast á aðild að ráðstefnunni og áréttaði að stjórnvöld í Bandaríkj- unum og Sovétríkjunum væm staðráðin í að efna til hennar í lok mánaðarins. Eftir fimm stunda viðræður sögðust Palestínumenn- imir ekki enn vera reiðubúnir að tilkynna þátttöku. Ottast var í gær að upp úr kynni að sjóða á hemumdu svæðunum í Israel eftir að Palestínumaður banaði tveimur ísraelskum her- mönnum með því að aka á hóp hermanna, sem var að bíða eftir rútu. Ellefu hermenn urðu fyrir meiðslum og nokkrir alvarlegum. Maðurinn kvaðst hafa viljað hefna drápa á 18 aröbum í Jerúsalem fyrir ári. Einnig hefur það valdið áhyggjum að lögreglan hefur leyft hópi ísraelskra öfgamanna að setj- ast að í byggingu í arabahverfí í Austur-Jérúsalem. Bandaríska dagblaðið New York Times skýrði frá því í gær að Hafez al-Assad, forseti Sýr- lands, hefði sagt við Baker í síð- asta mánuði að hann teldi vand- kvæði á því að Sýrlendingar gætu tekið þátt í friðarráðstefnunni. Embættismaður í bandaríska ut- anríkisráðuneytinu staðfesti þessa frétt að hluta og sagði að Ássad liti svo á að erfítt væri fyrir Sýr- lendinga að fallast á ráðstefnuna á meðan þeir ættu enn formlega í stríði við ísraela. Flokksþing kommúnista á Kúbu: Reuter Major hyggst stjórna í anda „ byltingarinnar ” John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær á flokksþingi breskra íhaldsmanna, því fyrsta frá því hann tók við embættinu, að stjóm íhaldsflokksins myndi halda áfram að stjóma í anda „bylt- ingar síðasta áratugar”; standa vörð um einkaeignarstefnuna, hlúa að einkaframtakinu og bæta þjónustu hins opinbera. Hann sagði að Bretar gætu verið stoltir af þeim árangri sem fyrirrennari hans, Margaret Thatcher, náði á ellefu ára valdatíma sínum. Hann vísaði jafnframt á bug staðhæfíngum stjómarandstæðinga um að stjómin stefndi að einkavæðingu í heilbrigðisgeiranum. Á myndinni klappa þingfulltrúar forsætisráðherranum lof í lófa. Kastró segir að hvergi verði hvikað frá kommúnismanum Havana. Reuter. FIDEL Kastró, forseti Kúbu, sagði á flokksþingi kommúnista- flokks landsins, sem hófst á fimmtudag, að Kúbverjum bæri Reuter Regnhlífaverk Christos Regnhlífaverk búlgarska listamannsins Christo varð að veruleika í fyrrdag þegar 1.760 risastórar gular „regnhlífar” opnuðust í Kalifomíu í Bandaríkjunum skömmu eftir sólarupprás. Sextán klukkustundum áður höfðu 1.340 bláar regnhlífar verið afhjúpaðar í Japan. „Þetta verkefni snýst um samanburð. Það er á margan hátt líkt og sinfonía í tveimur þáttum. Öðrum hröðum en hinum hægum,” sagði Christo sem var viðstaddur opnunina í Japan en missti af byijun athafnarinnar í Bandaríkjunum. Vegalögreglan í Kalifomíu er lítt hrifín af þessu stærsta umhverfislistaverki veraldar enda búist við miklu umferðaröng- þveiti þegar forvitnir gestir fara að streyma að í milljónatali. skylda til að halda kommúnism- anum til streitu og þeir myndu gera það án stuðnings annarra þjóða ef þörf krefði. Kommúnistaleiðtoginn lét þessi orð falla í fímm klukkustunda ræðu að viðstöddum 1.800 flokksmönn- um. „Við erum staðráðin í að Veija okkur ein, umlukin hafí kapítalism- ans,” sagði hann í tilfinningaþrung- inni ræðu sinni. „Okkur ber skylda til að halda hugsjónum kommún- ismans til streitu vegna allrar heimsbyggðarinnar. Það er skylda okkar við söguna að beijast fyrir hugsjónum okkar og þetta er bar- átta í þágu allra þeirra sem eru svangir, arðrændir og kúgaðir í heiminum.” Flokksþingið stendur í fjóra daga og ræða á hvemig bregðast eigi við vaxandi efnahagserfíðleikum og auknum þrýstingi frá öðrum ríkjum um stjórnmálaumbætur á Kúbu. Kastró ræddi einnig hfun kommún- ismans í Sovétríkjunum og Austur- Evrópulöndunum og sagði að Kúb- veijar hefðu áður getað reitt sig á stuðning þeirra. „Það er augljóst að þessir atburðir hafa áhrif á þró- unina hér, því bylting okkar var ekki sköpuð í kristalskúlu.” Hann ’bætti við að Kúbveijar myndu þó veija sig, einir eða með stuðningi ríkja, sem em þeim enn vinveitt. Heitar umræður urðu á þinginu um tillögu þess efnis að kristnu fólki yrði heimilað að ganga í flokk- inn. Hún var að lokum samþykkt í gær. Athygli vakti að tveir af helstu forystumönnum kommúnista- flokksins voru ekki viðstaddir setn- ingarathöfnina. Þeir em Raul Kastró, vararitari flokksins og bróð- ir forsetans, og Colome Ibarra, hershöfðingi og innanríkisráðherra. Embættismenn flokksins sögðu að þeir yrðu í „stjómstöðvum sínum” til að tryggja varnir Iandsins á meðan flokksþingið færi fram. Stjómarerindrekar sögðu að menn- imir tveir kynnu að vera fjarstadd- ir vegna þess að stjómarandstæð- ingar hafa hótað að efna til mót- mæla í Havana. Lögreglan hefur verið með mikinn viðbúnað í höfuð- borginni undanfama daga vegna þingsins og handtekið að minnsta kosti tólf stjórnarandstæðinga frá því á miðvikudag. Bandaríkin; Thomas vísar ásökun- um um áreitni á bug Washington. Reuter. CLARENCE Thomas, sem tilnefndur hefur verið sem dómari við hæstarétt Bandaríkjanna, vísaði í gær á bug ásökunum þess efnis að hann hefði sýnt fyrrum samstarfskonu sinni, Anita Hill, kynferðislega áreitni. Sagðist hann i yfirheyrslu hjá dómsmálanefnd öldungardeildar- innar vera „í uppnámi, særður og mjög sár” vegna staðhæfinga Hills. Við skiptaþ ving-anir á Haiti virka hratt Yfírheyrslan var sýnd í beinni útsendingu á öllum stærri sjónvarps- stöðvum Bandaríkjanna. Thomas gagnrýndi harðlega það sem hann hafði þurft að ganga í gegnum eftir að Hill setti ásakanir sínar fram og hvernig fjölmiðlar hefðu velt sér upp úr málinu. „Þetta em ekki Bandarík- in. Þetta er eitthvað sem minnir á atriði úr bók eftir Kafka,” sagði hann meðal annars. Hill kom einnig á fund nefndar- innar í gær og endurtók eiðsvarin ásakanimar á hendur Thomas. Önnur kona, Angela Wright, sagði í blaðaviðtali, sem birt var í gær, að þegar hún starfaði hjá hinu opin- bera fyrir nokkmm ámm, hjá stofn- un sem Thomas var í forsvari fyrir, hafí hann ítrekað gerst nærgöngull. Hafí hann m.a. beðið hana um að koma út með sér, spurt um stærð bijósta hennar og eitt sinn birst óboðinn fyrir utan íbúð hennar. Við- talið var tekið af blaðinu North Caro- lina Observer en Wright starfar nú sem einn af ritstjóram þess. Port-au-Prince. Reuter. RÁÐAMENN í viðskiptalífi á Haiti, sem upprunalega munu hafa veitt valdaránsmönnum úr röðum hersins þegjandi samþykki sitt, hafa snúið við blaðinu og vilja að Jean-Bertrand Aristide forseti taki aftur við völdum. Samtök Ameríkuríkja (OAS) ákváðu á þriðju- dag að koma á viðskiptabanni á Haiti og hvöttu aðildarríki Samein- uðu þjóðanna (SÞ) til að taka þátt í aðgerðunum. Allsherjarþing SÞ krafðist þess í gær að lýðræði yrði endurreist á Haiti. Talið er að bensín verði ef til vill upp urið í landinu eftir fáeinar vikur. „Eg held að þeir séu þegar byijaðir að finna fyrir þessu,” sagði Bemard Aronson, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og taldi að herforingjamir myndu eiga í miklum erfíðleikum með stjóm landsins. Talsmaður haítí- skra vinnuveitenda sagði að við- skiptaþvinganimar myndu valda þúsundum manna atvinnuleysi og eyðileggja á endanum efnahag landsins sem er afar bágur fyrrir. „Þetta em tveir slæmir kostir og við verðum að velja þann skárri,” sagði talsmaðurinn. Hann bætti við að Aristide fengi því aðeins að koma aftur úr útlegðinni að samið yrði um málið. OAS hefur Iagt til að Aristide fái að snúa heim gegn því að hann náði herfor- ingjana, leyfí forseta herráðsins, Raoul Cedras hershöfðingja, sem jafnframt er leiðtogi valdaráns- manna, að halda stöðu sinni og tryggi að mannréttindi verði Virt. ■ HELSINKI - FinnarogSov- étmenn hófu á mánudag viðræður um endurskoðun á sáttmála ríkj- anna um hernaðarsamvinnu. Skýrði embættismaður í fínnska utanríkisráðuneytinu frá þessu á fimmtudag. Samkvæmt núgildandi sáttmála, sem undirritaður var árið 1948 og gildir til ársins 2003, skuld- binda Finnar sig til að veija norð- vesturhluta Sovétríkjanna fyrir ár- ásum Þjóðveija eða bandamanna þeirra. Telja Finnar þennan sátt- mála úreltan í ljósi þeirra breytinga sem hafa orðið í Eyrópu. ----M-»---- Leiðrétting Sú villa slæddist inn í fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins í gær að Armenar hefðu afráðið að þjóðnýta sovésk hergögn. Hið rétta er að það em nágrannar þeirrar Azerar sem hyggjast komast yfír vopn Rauða hersins í Azerbajdzhan með þessum hætti eins og raunar kemur skýrt fram í sjálfri fréttinni. Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.