Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
Guðmundur Stefánsson framkvæmdastj óri Laxár:
Fullyrðingar um undirboð
eru úr lausu lofti gripnar
GUÐMUNDUR Stefánsson framkvæmdaslgóri Fóðurverksmiðjunnar
Laxár hf. á Akureyri segir fóðurverð það sem Laxá býður viðskipta-
vinum sínum ekki óeðlilega lágt og fráleitt sé að tala um undirboð í
j,.því sambandi. Guðmundur hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna
ummæla Arna Gunnarssonar framkvæmdastjóra Ewos hf. i fjölmiðlum
að undanförnu, m.a. í viðskiptablaði Morgunblaðsins á fimmtudag þar
sem þessu er haldið fram.
„Það fóðurverð sem Laxá hf. býð-
ur viðskiptavinum sínum er ekki
óeðlilegt m.v. kostnað félagsins. Sé
verð hjá Laxá hf. lægra en hjá
Ewos hf. er það vegna þess að vel
hefur tekist til við þá hagræðingu
sem gerð hefur verið í ölium rekstri
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Valgarður Stefánsson opnar sýn-
ingu í Gamla Lundi á laugardag.
Valgarður
meðsýninguí
Gamla Lundi
Valgarður Stefánsson opnar mál-
verkasýningu í Gamla Lundi við
Eiðsvöll á Akureyri á morgun,
laugardaginn 12. október.
Þetta er 10. einkasýning Val-
garðs, en hann hélt sína fyrstu sýn-
ingu árið 1972. Hann hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga víða um
land. í sumar hélt Valgarður einka-
sýningu í Lathi í Finnlandi í boði
menningarmálanefndar Lathiborg-
; ar.
Auk myndlistar hefur Valgarður
einnig unnið að ritstörfum og þátta-
gerð fyrir útvarp.
Sýningin verður opin frá ki. 14
til 19 um helgar og frá 20 til 22
virka daga, en henni lýkur sunnu-
daginn 20. október.
Laxár hf. og eðliiegt er að skili sér
til viðskiptavina þess. Það er hins
vegar rétt að hjá Laxá hf. ekki síður
en hjá Ewos hf. eru takmörk fyrir
því hve mikinn samdrátt í sölu félag-
ið getur þolað.
Sú fullyrðing að Laxá hf. undir-
bjóði samkeppnisaðila sína er úr
lausu lofti gripin. Hið rétta er, að
vera má að Laxá hf. bjóði lægra
verð, sem er allt annað en undirboð,
enda Ewos hf. engin opinber viðmið-
un, hvorki hér heima né annars stað-
ar. Á það má þó benda, að á sínum
tíma tapaði Istess hf. mikilvægum
viðskiptavinum til Ewos hf. vegna
þess að Ewos hf. bauð mun lægra
verð en tíðkaðist almennt. Skv. skil-
greiningu framkvæmdastjóra Ewos
hf. mun hér hafa verið um undirboð
og óeðlilega viðskiptahætti að ræða.
Vegna þeirra ummæla sem fram-
kvæmdastjóri Ewos hf. viðhefur um
hluthafa Laxár hf. skal það undir-
strikað að Laxá hf. er hlutafélag og
hvort Akureyrarbær, Byggðastofn-
un eða aðrir eru hluthafar gefur
ekki sérstaklega tilefni til lægra
verðs á vörum félagsins. Á það má
benda að einmitt þessir fyrrnefndu
aðilar voru hluthafar Istess hf. og
að Ewos hf. bauð þá lægra verð en
Istess hf. gerði.
Laxá hf. leigir fóðurverksmiðjuna
af þrotabúi ístess hf. Sú fullyrðing
að hluthafar í Laxá lif. leigi verk-
Mývatnssveit:
Björk, Mývatnssveit.
ÞAÐ virðist vera samdóma álit
margra hér um slóðir, að menn
muna vart aðra eins rjúpnafæð
sem nú. Þó farið hafi verið víða
um sést ekki rjúpa.
Fyrr á árum var hér oft mikill
fjöldi rjúpna, en síðustu ár virðist
henni hafa farið jafnt og þétt fækk-
andi. Hér er vissulega um áhyggju-
smiðjuna af sjálfum sér er því röng.
Hiuthafar í Laxá hf. stjórna ekki
þrotabúinu, heldur opinber bústjóri.
Hins vegar skal á það bent, að
nokkrir hluthafar í Laxá hf. sem
einnig voru hluthafar í ístess hf.
eiga líklega stærstan hluta krafna í
þrotabúið. Ef þær kröfur fást ekki
greiddar munu þessir aðilar sitja
uppi með tapið og því í meira lagi
hæpið að fullyrða að þeir standi
ekki við skuldbindingar sínar, sér-
staklega sé miðað við hvernig gjald-
þrot ístess hf. bar að.
Það er að sjálfsögðu út í hött að
segja að þeir aðilar sem að Laxá
hf. standa séu að koma inn á fóður-
markaðinn nú í samkeppni við Ewos
hf. Flestir þessara aðila voru með í
ístess hf. sem var á þessum mark-
aði á undan Ewos hf., bæði hér
heima og í Færeyjum.
Af hálfu Laxár hf. er ekki meira
um þetta mál að segja. Laxá hf.
mun halda áfram að þjóna sínum
viðskiptavinum þannig að gagn-
kvæmur ávinningur sé af þeim sam-
skiptum. Laxá hf. býður Ewos hf.
velkomið til áframhaldandi sam-
keppni, íslensku fiskeldi og fóður-
gerð til framdráttar.”
--------*-*-»-------
■ AÐALFUNDUR Útvegs-
mannafélags Norðurlands, sem
fresta varð vegna veðurs í síðustu
viku, verður haldinn að Hótel KEA
á Akureyri næstkomandi mánudag,
14. október, og hefst hann kl. 14.
Á fundinum verður m.a. rætt um
það sem framundan er í sjávarút-
vegsmálum, afla- og tekjuskerð-
ingu, fijálst fískverð og olíuverð.
efni að ræða, mörgum finnst um-
hverfið fátæklegra en áður. Þá var
hver klettur og kambur hér í hraun-
unum fullsetin rjúpu á haustin. Nú
er allt autt og snautt.
Menn vona svo sannarlega að
stjórnvöld skerist í leikinn til bjarg-
ar ijúpnastofninum áður en það
verður um seinan. Kristján
Rjúpunni fækkar
Morgunblaðið/Benjamín
Elísabet Árnadóttir, Óttar Ketilsson, Sigrún Halldórsdóttir, Stefán
Árnason og Þorsteinn Eiríksson. Elísabet, Stefán og Þorsteinn eiga
sæti í húsnæðisnefnd Eyjafjarðarsveitar.
Eyjafjarðarsveit:
Kaupleiguíbúð afhent
Ytri-Tjörnum.
FYRSTA félagslega kaupleiguíbúðin af fjórum sem byggðar voru á
vegum Eyjafjarðarsveitar í landi Reykhúsa við Kristnesspítala var
formlega afhent við athöfn síðastliðinn sunnudag.
Það eru hjónin Sigrún Halldórs-
dóttir og Óttar Ketilsson sem fengu
fyrstu íbúðina, en ekki hefur endan-
lega verið gengið frá úthlutun ann-
arra íbúða í húsinu.
Ibúðirnar voru til sýnis fyrir íbúa
sveitarinnar þennan sama dag og
komu um 70 manns til að skoða
þær. Um er að ræða raðhús með
fjórum tveggja og þriggja herbergja
íbúðum og eru þær 66 og 87 fermetr-
ar að stærð.
Verktaki við raðhúsbygginguna
var Þorgils Jóhannesson, en Aðal-
steinn Júlíusson teiknaði húsið. Fyr-
irhugað er að byggja á þessum sama
staði þijú raðhús til viðbótar á næstu
árum. - Benjamín
Kammerhljómsveit Akureyrar:
Norrænir og suðrænir
dansar á tónleikum
FYRSTU tónleikar Kammerhljómsveitar Akureyrar á þessum vetri
verða í Akureyrarkirkju á morgun, sunnudag, 13. október, kl. 17.
Fluttir verða norrænir og suðrænir hljómsveitardansar undir stjórn
Roar Kvam.
Á efnisskránni verður lífleg fant-
asía um spænska þjóðdansa fyrir
einleiksgítar og hljómsveit eftir
Spánveijann Rodrigo og verður Ein-
ar K. Einarsson einleikari í verkinu.
Tónlist spænska tónskáldsins De
Falla hefur marga glatt og ætti bal-
lettsvíta hans „E1 amor brujo” að
gera það líka á tónleikunum með
sínum þekkta eiddansþætti. Þá verða
fluttir rímnadansar Jóns Leifs og
balletttónlist Erland van Koch sem
hann samdi við leikritið um Palla
rófulausa.
Einar Kristján Einarsson hóf nám
við Tónlistarskólann á Akureyri og
síðan við Tónskóla Sigursveins það-
an sem hann lauk einleikaraprófi.
Þá hélt hann til framhaldsnáms við
tónlistarháskólann í Manchester.
Hann hefur haldið fjölmarga tón-
leika heima og erlendis, en þetta
verða fyrstu tónleikar hans með
Kammerhijómsveit Akureyrar.
Hljómsveitin verður skipuð 30 hljóð-
færaleikurum að þessu sinni.
(Fréttatilkynning)
stórstjörnu og má geta þess að sá
litli fær 60 milljónir íkr. fyrir sína
næstu mynd, og er hann nú byijað-
ur að leika í „Home Alone, Again”,
segir í fréttatilkynningu frá Bíó-
hölllinni. I tilefni þess að myndin
hefur verið sýnd í Bíóhöllinni síðan
um áramót verður afmælisafsláttur
á sýningu myndarinnar um helgina.
Clé Douglas.
■ DANSARINN Clé Douglas
heldur danssýningu í Kramhúsinu
við Bergstaðastræti í kvöld, laug-
ardaginn 12. október, kl. 21.00, sem
hann nefnir „My shades of the Blu-
es”. Miðaverð er kr. 400.
■ HIN árlega kaffisala Kvenfé-
lags Laugarnessóknar verður sunnu-
daginn 13. október í safnaðarheimili
kirkjunnar strax að lokinni guðs-
þjónustu. Þennan dag verða tvær
guðsþjónustur, þ.e. kl. 11 árdegis
verður guðsþjónusta þar sem
Drengjakór Laugarneskirkju syngur
og barnastarfið verður á sama tíma.
Kl. 14 verður hátíðarguðsþjónusta
með fjölbreyttum söng Kórs Laugar-
neskirkju. Sr. Sigrún Óskarsdóttir
aðstoðarprestur, prédikar, en sr. Jón
D. Hróbjartsson þjónar fyrir altari.
Til að auðvelda fólki að koma til
kirkju þennan dag verður rúta kl.
13.30 frá Hátúni 10 og við Dalbraut
18-20 kl. 13.45. Einsogí fyrraverða
guðsþjónustur að jafnaði einu sinni
í mánuði eftir hádegi til að koma til
móts við þá sem vilja heldur koma
til kirkju á þeim tíma. Þá verður
einnig boðið upp á kaffi og stutta
dagskrá til ánægjuauka. Verða þess-
ar guðsþjónustur aðallega miðaðar
við þarfir eldri borgara, þótt allir séu
að sjálfsögðu velkomnir.
Jón D. Hróbjartsson,
sóknarprestur.
Atnði úr myndinni Aleinn heiina.
■ BÍÓHÖLLIN heldur nú um
helgina upp á 10 mánaða afmæli
myndarinnar „Aleinn heima” eða
„Home alone”. Hér er á ferðinni
aðsóknarmesta mynd ársins á ís-
landi og í heiminum á þessu ári.
Aleinn heima er vinsælasta grín-
mynd allra tíma og hefur get hinn
10 ára snáða Macauley Culkin að
Tannlæknir
Hef hafið störf við almennar tannlækningar
á tannlæknastofu Þórarins Sigurðssonar,
Glerárgötu 34, Akureyri.
Tímapantanir í síma 24230.
Úlfur Guðmundsson,
tannlæknir.
Laugarneskirkja.