Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 Hitt húsið opnar í Þórscafé: Frístunda o g menning- arhús fyrir ungt fólk Reykjavíkurborg hefur gert 6 mánaða leigusamning við Landsbank- ann um afnot af huseigninni Brautarholti 20 sem áður var skemmti- staðurinn Þórskafé. Þar mun íþrótta- og tómstundaráð reka alhliða frístunda og menningarhús fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára. Húsið hefur fengið vinnuheitið „Hitt húsið”. Hugmyndin að rekstrarformi hússins byggir að sögn aðstandenda þess á því að þátttakendur í starf- semi hússins líti á það sem sinn stað þar sem skipulögð er margvísleg starfsemi sem þeir hafi alla mögu- leika á að móta sjálfir. Þá segir í fréttatilkynningu að komið verði á fót hússtjórn þar sem sitji fulltrúar allra þeirra klúbba/fé- laga/starfshópa/skóla sem aðstöðu hafi í húsinu. Að öðru leyti verði tekið mið af rekstri félagsmiðstöðva ITR við rekstur hússins og treyst á vinnuframlag unglinganna enda fengju þeir hluta tekna til ráðstöfun- ar í þágu hússins. Húsið verður opnað með dansleik milli 9 og 24.30 í kvöld, föstudag, þar sem hljómsveitin Síðan skein sól mun leika fyrir dansi. Formleg starf- semi hefst á mánudaginn með opnun kaffihúss. Meðal þeirrar starfsemi sem fyrirhuguð er í húsinu , sem fengið hefur vinnuheitið „Hitt hús- ið”, er tónlistarflutningur af ýmsu tagi, leiklist, ráðgjöf og sérþjónustu við unglinga í vanda, hljóð og mynd- vinnsla og alhliða upplýsingaþjón- usta. Þá leggja aðstandendur húss- ins mikla áherslu á að þar verði hægt að bjóða ungu fólki upp á húsnæði til hvers kyns starfsemi. Má þar nefna æfingar af ýmsu tagi, námskeiðshald og klúbbastarfsemi. Gísli Arni Eggertsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi, sagði að mikill áhugþ væri á húsinu hvert sem hefði verið leitað. Starfsmenn hússins eru þrír. Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður, Sveinn M. Ottóssson, starfsmaður, og Már Guðlaugsson í hálfu starfi. Morgunblaðiö/Porkell F.v.: Sveinn M. Ottósson, starfsmaður hússins, Gísli Árni Eggerts- son, æskulýðs- og tómstundafulltrúi, og Logi Sigurfinnsson, forstöðu- maður. Ráðstefna um vímu- efnavarnir RÁÐSTEFNA um áfengis- og aðr- ar vímuefnavarnir verðurhaldin á vegpim heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins dagana 29. og 30. nóvember næstkomandi, en á vegum ráðuneytisins er unnið að gerð frumvarps til laga um þessi mál, sem lagt verður fram á yfir- standandi þingi. í frétt frá ráðuneytinu segir að á ráðstefnunni verði meðal annars rædd mótun framtíðarstefnu í vímu- efnavörnum, fyrirhugað frumvarp kynnt, og störf ýmissa opinberra aðila. Til hennar verður boðið fulltrú- um stofnana og samtaka auk ein- staklinga sem láta sig þessi mál varða. Ráðstefnan er undirbúin í samvinnu við félagsmálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, menntamála- ráðuneytið, fjármálaráðuneytið, ut- anríkisráðuneytið og landlækni. Vig- dís Finnbogadóttir forseti íslands setur ráðstefnuna sem haldin er í Borgartúni 6, og hefst kl. 13 föstu- daginn, 29. nóvember. VEÐUR IDAGkl. 12.00 Heimild: Veöurstola íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFURIDAG, 15. NOVEMBER YFIRLIT: Um 200 km suðvestur af Reykjanesi er 1002 mb lægð, sem hreyfist lítið í bili, en yfir Grænlandi er vaxandi háþrýstisvæði. SPÁ: Austan- eða norðaustan hvassviðri eða stormur suðvestan- lands, en hægari í öðrum landshlutum. Él norðanlands, einkum við ströndina en úrkomulítið í innsveitum norðvestanlands. Sumstaðar dálítil snjókoma með köflum suðvestan- og sunnanlands. Kólnandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðlæg eða breytileg átt. Smám saman minnkandi éljagangur norðanlands, en víða bjart- viðri í öðrum landshlutum. Harðnandi frost og víða allt að 17 stigum í innsveitum. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TAKN: Heiöskirt Lettskýjað Hálfskýjað Skyjað Alskyjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus \J Skúrir * V H = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður vn / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +5 skýjað Reykjavík +3 úrkoma i gr. Bergen 5 hálfskýjað Helsinki 6 súld Kaupmannahöfn 7 skýjað Narssarssuaq 4-10 hálfskýjað Nuuk 4-9 léttskýjað Osló 3 rigning Stokkhólmur S skýjað Þórshöfn 4 snjóél Algarve 18 skýjað Amsterdam 7 skýjað Barcelona 16 léttskýjað Berlín 8 skýjað Chicago 5 léttskýjað Feneyjar 14 skýjað Frankfurt 6 rigning Glasgow 8 léttskýjað Hamborg 7 skýjað London 7 skýjað Los Angeles 14 heiðskírt Lúxemborg vantar Madríd 12 skýjað Malaga 18 skýjað Mallorca 16 hálfskýjað Montreal 3 skýjað NewYork 7 léttskýjað Orlando vantar París 8 skýjað Madeira 20 skýjað Róm 14 rigníng Vln 10 skýjað Washington 3 þokumóða Winnipeg +1 léttskýjað Sambýli fatlaðra í Þverárseli: Málinu er vísað til umhverfisráðuneytis SVÆÐISSTJÓRN málefna fatlaðra í Reykjavík hefur vísað deilunni um sambýli fatlaðra í Þverárseli til umhverfisráðneytis. Fer lögmað- ur Svæðisstjórnar, Jóhann Pétur Sveinsson, fram á beiðni um úr- skurð um túlkun byggingarlöggjafar í málinu, þ.e. hvort það stand- ist að mati ráðuneytisins sú túlkun byggingarnefndar í Reykjavík að sambýlið brjóti í bága við skipulag fyrir Þverársel. I greinargerð sem Jóhann Pétur Sveinsson sendi umhverfísráðu- neytinu með beiðni sinni síðdegis í gær kemur m.a. fram að það sé túlkun umbjóðenda síns að fyrr- greint sambýli í Þverárseli feli ekki í sér breytta notkun á íbúðahúsi því sem ætlað er undir starfsemi þess. Síðan segir í greinargerðinni: „Til viðbótar framanrituðu verður einnig að telja að sú túlkun bygg- ingarlöggjafarinnar að ekki beri að sækja um „breytta notkun” húsa til bygginganefnda þegar „sambýl- um” er komið á fót í þeim sé löngu venjuhelguð. Allt frá því núverandi byggingarlöggjöf tók gildi hefur fjöldi sambýla verið settur upp, þ. á m. í Reykjavík. í engu þeirra tilfella hefur verið talið að sækja þyrfti um leyfi til byggingarnefndar fyrir „breytta notkun” og við það hafa ekki verið gerðar neinar at- hugasemdir. Þessi sambýli eru að sjálfsögðu öll í íbúðahverfum.” I lok greinargerðar sinnar segir Jóhann Pétur svo: „íslenskt samfé- lag hefur með lögum um málefni fatlaðra, með aðild að mannrétt- indasáttmála Sameinuðu þjóðanna og með þeim óskráðu reglum sann- girnis og réttlætis sem við teljum gilda skuldbundið sig til að tryggja Norsk einingahús fötluðum jafnrétti, tryggja þeim möguleika á fullri þátttöku í samfé- laginu. Starfræksla sambýla sem heimila er einn þátturinn í því að tryggja fötluðum þennan samfé- lagslega rétt sinn.” Kepptust við að skera sjálfa sig TVEIR MENN um tvítugt voru fluttir á sjúkrahús um miðnætti í fyrrakvöld eftir að þeir höfðu keppst um hvor þeirra þyldi betur að láta skera sig. Annar hafði skorið sig með hníf í kviðinn. Hinn hafði skorið sig með gler- brotum í handlegg. Kalla þurfti úr sérfræðing til að gera að sári hans en hinn sem rispað hafði á sér kviðinn fékk að fara heim eftir skamma dvöl á slysadeild. Meðan á þeirri dvöl stóð þurfti lögregla þó að vakta mennina þar sem þeir létu ófriðlega. boðin til sölu: Tekið á móti húsbréfum og boðið upp á erlend lán ISLENSKT innflutningsfyrirtæki mun a næstunni setja á markaðinn norsk einingahús sem að hluta til verður hægt að greiða með húsbréf- um án affalla eða erlendu láni sem boðið verðuð upp á með 12-13% vöxtum til 30 ára. Einn eiganda fyrirtækisins sagði í gær að viðskiptin færu fram með þeim hætti að eftir að búið væri að ganga frá því um hvaða verkþætti væri að ræða festi kaupandi hússins 'h söluverðsins á bók þar til húsið yrði afhent og kaupin gengju í gegn. Þá fengi eigandinn afsal og húsbréf- um væri þinglýst. Tekið verður við húsbréfum án affalla eða með 6% vöxtum. Bréfin fara til norsku framleiðend- anna en eru geymd í íslenskum banka þar til lög heimija að þau verði flutt úr landi eftir áramót. Einnig verður boðið upp á grlend lán með 12-13% vöxtum til 30 ára að verðmæti allt að 7 milljónum króna. Einingahúsin eru hönnuð af Ein- ari Tryggvasyni fyrir íslenskar að- stæður. Hægt verður að fá þrjár teg- undir af húsum, um það bil 327 fm af stærð. Meðalverð á fullfrágengnu húsi er 16-17 milljónir. .......

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.