Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991
HANDBOLTI
Júlíus Jónasson
cA'
PARIS
ISNIERES
Júlíus
haffði
betur
gegn
Geir
BIDASOA, lið Júlíusar Jónas-
sonar, sigraði Avidesa, lið
Geirs Sveinssonar, í spænsku
deildinni í Valencia, 23:27, í
fyrrakvöld. Július gerði fimm
mörk fyrir Bidasoa og Geir tvö
fyrir Avidesa.
Júlíus sagði að leikurinn hafi ver-
ið jafn lengst af og í hálfleik
var staðan 13:13. í síðari hálfleik
var það markvarslan og hraðaupp-
hlaup Bidasoa sem gerði gæfumun-
inn. „Við tókum Alemany úr um-
ferð allan leikinn með þeim árangri
að hann gerði aðeins þijú mörk, en
hann er tíu marka maður. Við erum
mjög ánægðir með gang mála hjá
okkur það sem af er deildarkeppn-
inni,” sagði Júlíus.
Rúmeninn Vasile Stinga lék ekki
með Avidesa vegna meiðsla sem
hann hlaut í Evrópuleiknum gegn
'•‘Víkingi. Hann er með slit í lær-
vöðva og veður frá í tvær til þijár
vikur. Voinea var markahæstur í
liði Avidesa með 4 mörk. Bogdan
Wenta var markahæstur í liði Bid-
asoa með 8 mörk.
Bidasoa er með 13 stig, tveimur
stigum á eftir Barcelona og Granoil-
ers, sem eru í efsta sæti. Avidesa
er í fjórða sæti með 11 stig.
Júlíus átti að fara með íslenska
landsliðinu til Ungveijalands, en
fékk ekki leyfi frá félaginu á síð-
► ustu stundu vegna þess að einn leik-
manna liðsins handarbrotnaði í Evr-
ópuleik um síðustu helgi. „Ég var
búinn að fá frí til að fara til Ung-
__^v’erjalands. en þar sem við eigum
að leika á laugardag var það aftur-
kallað. Ég er að sjálfsögðu mjög
óhress með það en ég er nú einu
sinni samningsbundinn liðinu og því
ekkert við því að gera,” sagði Júlíus.
Ikvöld
BLAK
1. deild karla kl. 20:
KA-hús, Akureyri.....KA - ÍS
Kvennaflokkur kl. 20:
Digranes....UBK - Þróttur Nesk.
Kvcnnafiokkur kl. 21.15:
KA-hús, Akureyri.....KA - ÍS
KÖRFUKNÁTTLEIKUR
Stjömuleikur í körfuknattleik verður
í kvöld í íþróttahúsinu í Keflavík og
hefst kl. 19.30. Þar mætir Suður-
nesjaúrval liði skipuðu erlendu leik-
mönnunum sem leika með íslensku
félögunum í vetur.
SUND
Bikarkeppnin í sundi, 2. deild, fer
fram um helgina i Sundhöll Reykja-
> víkur. Keppni hefst í kvöld kl. 20.
OLYMPINEFND
Ólympíunefnd íslands breyt-
ir ÓL-lágmarkinu í júdó
FRÍvill að lágmarkið í kúluvarpi verði lækkað úr 20,10 m í 19,85 metra
ÓLYMPÍUNEFND íslands hefur ákveðið að breyta ólympíulág-
markinu í júdó að beiðni Júdósambands íslands. Mikil óánægja
var með það lágmark sem Ólympíunefndin hafði sett fyrir leikana
i Barcelona. Einnig hefur Ólympíunefndinni borist beiðni frá
Frjálsíþróttasambandi íslands um að lækka lágmarkið íkúlu-
varpi karia úr 20,10 m niður í 19,85 metra.
Gísli Halldórsson, formaður
Ólymplunefndar íslands,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að ákveðið hafi verið að breyta lág-
mörkunum í júdó. Hann sagði að
fyrra lágmark hafi verið of stangt,
það strangt að okkar besti júdómað-
ur, Bjarni Friðriksson, hefði varla
átt möguleika að ná því. „Bjarni
Friðriksson er okkar fyrsti maður
inn á Ólympíuleikana ef hann verð-
ur búinn að ná sér af meiðslunum
ÞRJÚ skautafélög hafa samein-
ast um að halda Islandsmót í
íshokkí- þaðfyrsta á íslandi
og verður mótið nefnt „Bauer
deildin”. Fyrsti leikurinn í deild-
inni verður á Akureyri 30. nóv-
ember milli Skautafélags Akur-
eyrar og Skautafélags Reykja-
víkur. Þriðja félagið sem tekur
þátt í mótinu er ísknattleiks-
félagið Björninn.
Skautíþróttinni hefur vaxið fisk-
ur um hrygg og er orðin mjög
vinsæl í Reykjavík eftir að vélfrysta
skautasvellið í Laugardal var tekið
og sýni fram á fyrri getu,” sagði
Gísli.
Viðmiðunarnefnd Ólympíunefnd-
ar Islands hefur komist að sam-
komulagi við Júdósambandið um
breytingar á ÓL-lágmarkinu. Lág-
markskröfurnar eru eftirfarandi:
1. Að ná 1. - 12. sæti á EM 1992,
eða að vinna tvær glímur.
2. Að ná 1. - 7. sæti á svonefndum
A-mótum alþjóðajúdósambands-
ins á ólympíuárinu.
í notkun. Þangað hafa komið yfir
1.100 gestir á einum degi. Akur-
eyringar hafa einnig haft vélfryst
skautasvell síðan 1987. í „Bauer”-
deildinni verða leiknar fjórar um-
ferðir, eða 12 leikir. Leikið verður
bæði heima og að heiman. Íshokkí-
deildin er nefnd eftir „Bauer”
skautunum kanadísku, sem eru
mest notuðu skautarnir í NHL
deildinni í Kanada og Bandaríkjun-
um.
Á miðvikudag gerði Macom hf.,
sem er umboðsaðili „Bauer” skauta
á íslandi, auglýsingasamning við
Skautafélag Akureyrar, Skautafé-
3. Að hafna í 1. eða 2. sæti á Norð-
urlandamótinu 1992.
4. Að ná 70 keppnispunktum sam-
anlagt á tímabilinu frá 1989 til
15. júní 1992.
Alþjóða Ólympíunefndin hefur
einnig sett það sem skilyrði að
keppendur nái lágmarki fyrir Evr-
ópumeistaramótið 1992 og taki
þátt í minnst tveimur A-mótum og
sanni getu sína, aðrir koma ekki
til greina. Eins gerir nefndin það
að skilyrði að keppendur hafi að
minnsta kosti 1. dan.
Eins og staðan er í dag eru það
fimm júdómenn _sem eygja von um
að taka þátt í Ólympíuleikunum í
Barcelona. Það eru þeir Bjarni Frið-
riksson (5. dan), Sigurður Berg-
mann (1. dan), Halldór Hafsteins-
lag Reykjavíkur og ísknattleiksfé-
lagið Björninn. Samningurinn er að
verðgildi um 800 þúsund krónur.
Skautafélögin eru öll með er-
lenda þjálfara á sínum snærum.
Sovéskur þjálfari er hjá Skautafé-
lagi Reykjavíkur, bandarískur hjá
Birninum og von er á finnskum
þjálfara til Skautafélags Akureyrar.
Forráðamenn félaganna þriggja
hyggjast stofna Skautasamband
Islands í framtíðinni. Fróðlegt verð-
ur að fylgjast með framgangi
skautaíþróttarinnar á íslandi á
næstu misserum - áhuginn á íþrótt-
inni virðist að minnsta kosti vera
fyrir hendi.
son (2. dan), Freyr Gauti Sigmunds-
son (1. dan) og Eiríkur Ingi Krist-
insson (2. dan).
Staða þeirra varðandi keppnis-
punkta er þannig:
Bjarni Friðriksson............172
Sigurður Bergmann..............56
Halldór Hafsteinsson...........47
Freyr Gauti Sigmundsson........31
Einkur Ingi Kristinsson........15
Ólympíunefnd íslands hefur
einnig borist beiðni frá Fijáls-
íþróttasambandi Islands um að
nefndin lækki lágmarkið í kúluvarpi
karla úr 20,10 metrum í 19,85
metra. Og eins að nokkur mót hér
innanlands verði tekin gild til ÓL-
lágmarks. Nefndin á eftir að fjalla
um þessa beiðni FRÍ.
Mm
FOLK
■ KARA TESAMBAND íslands
hefur hætt við þátttöku í lands,-
keppni í Norður-Irlandi sem fram
átti að fara um helgina. Ástæðan:
Halldór Svavarsson meiddist á
fæti og Karl Viggó Vigfússon
komst ekki vegna vinnu.
■ MICHAL Tonar, leikmaður
HK og Petr Baumruk, leikmaður
Hauka, fóru í gær til Þýskalands
þar sem þeir leika með tékkneska
landsliðinu í handknattleik í Risa-
mótinu [Super-Cup] sem fram fer
um helgina.
■ BAYERN Miinchen, sem er í
13. sæti í þýsku úrvalsdeildinni,
keypti í gær varnarmanninn Alois
Reinhardt frá Bayer Leverkusen
fyrir rúmlega 30 milljónir ÍSK.
Reinhardt, sem hefur leikið fjóra
landsleiki fyrir Þýskaland, er
keyptur til að þétta vöm Bayern
sem hefur fengið á sig 25 mörk í
17 leikjum.
■ FRANZ Beckenbauer, fyrrum
fyrirliði Bayern Miinchen og
landsliðsþjálfari Þýskalands, er
kominn til hjálpar hjá Bayern og
hefur verið gerður af sérstökum
ráðgjafa'og verður væntalega sett-
ur aðstoðar framkvæmdastjóra í
næstuviku.
■ SÖREN Lerby, danski þjálfar-
inn hjá Bayern, meiddist á æfingu
í vikunni og verður að fara í minni-
háttar aðgerð vegna hnémeiðsla.
Það má því segja með sanni að allt
gangi á afturfótunum hjá þessu rík-
asta félagi þýskalands um þessar
mundir!
■ KENNY Dalglish, nýráðinn
framkvæmdastjóri Blackburn Ro-
vers, hefur boðið 1,1 milljón punda
(117 milljónir ISK) í miðherjann
Mike Newell hjá Everton. Leik-
maðurinn hefur samþykkt félaga-
skiptin, fer í læknisskoðun í dag
og talið er líklegt að Newell skrifi
undir samning strax að henni lok-
inni.
- . . Morgunblaðið/KGA
Edda Jónsdóttir, starfsmaður ISI, dregur hér um það hvaða lið eiga leika fyrsta leikinn í ísþokkídeildinni. Aðrir á
myndinni eru: (f.v) Magnús Finnsson, frá SA, Magnús Jónasson, framkvæmdastjóri Macom hf., Sigurður Magnússon,
framkvæmdastjóri ÍSÍ, Sigurjón P. Sigurðsson, Birninum, Edda Jónsdóttir, Haraldur Haraldsson og Hannes Siguijóns-
son, SR.
Fyrsta íslands-
mótið í íshokkí
BADMINTON
Broddi og Ámi Þór í 2. umferð
- í tvíliðaleik á opna norska meistaramótinu um síðustu helgi
Broddi Kristjánsson og Árni Þór
Hallgrímsson voru slegnir út
í 1. umferð á opna norska meistara-
mótinu í badminton um síðustu
helgi. Broddi tapaði fyrir Jonas
Herrgardh frá Svíþjóð, 18:14, 6:15
og 5:15. Árni Þór tapaði fyrir Jim
Laugesen frá Danmörku, 4:15 og
2:15.
í tvíliðaleik unnu Broddi og Árni
Þór Svíana Lundström og Hansson,
1.5:11 og 15:7, í 1. umferð. í 2.
umferð töpuðu þeir fyrir Jacobsen
og Hansen frá Danmörku, 13:15
og 15:18. Broddi og Árni Þór höfðu
forystuna nær allan tímann í báðum
lotunum. Þetta danska par komst
svo í úrslit og tapaði þar fyrir
sænsku pari, J. E. Antonsson og
S. Österberg.
Broddi og Árni Þór taka þátt í
opna skoska meistaramótinu í Glas-
gow sem hefst í næstu viku.