Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 Gengið í hús með hljómplötu Landgræðslunnar: Stærsta pöntun á hljómplötu til þessa Á MORGUN, laugardag, munu grunnskólabörn á Reykjavíkursvæðinu og Suðurnesjum og Lionsmcnn um land allt ganga í hús og selja hljóm- plötuna „Landið fýkur burt” sem Landgræðslan gefur út til styrktar starfsemi sinni. Félagarnir Ájgúst Atlason, Helgi Fétursson, Jónas Frið- rik, Gunnar Þórðarson og Olafur Þórðarson i Rió gáfu Landgræðsl- unni útgáfurétt á hljómplötunni og rennur allur ágóði af sölunni til starfsemi stofnunarinnar. Lionshreyfingin hefur tekið málið upp á sína arma og hafa félagar hennar selt hljómplötuna um land allt undanfarnar vikur. Aðalsölu- átakið á höfuðborgarsvæðinu verður á morgun. Böm úr flestum grunn- skólum borgarinnar munu þá ganga í hús undir stjórn Lionsmanna. Frá mánudeginum verður hljómplatan til sölu í hljómplötuverslunum. Að sögn Landgræðslumanna hefur þessu átaki verið mjög vel tekið og margir lagt hönd á plóginn. Þeir væru fullir bjartsýni og hefðu pantað 20 þúsund eintök af plötunni í fyrstu pöntun sem mun vera stærsta pöntun á hljómplötu hingað til. Margir aðilar aðstoða Landgræðsluna við útgáf- íslenska málfræðifélagið: una. Kaupþing hf. lagði til fjármagn fyrir útgáfukostnaði og hefði það skipt miklu máli, því hagstæðir samningar hefðu náðst við hljóðver, hljóðfæraleikara og ekki síst erlenda framleiðsluaðila með staðgreiðslu. Auglýsingastofan Nýr Dagur vann hljómplötuumslagið og veggspjald. Útvarpsstöðvamar hafa fylgt mál- inu vel eftir og á morgun munu Ríó- menn verða á þönum á milli stöðva. Þá hefur Saga Film gefíð alla vinnu við gerð myndbands við titillag plötunnar. Á laugardaginn kemur mun Sjónvarpið sýna beint frá dag- skrá í Perlunni í Reykjavík þar sem talað verður við landgræðslumenn, flugmenn og fleiri áhugamenn um landgræðslu auk þess sem Ríó mun leika lög af nýju hljómplötunni. Kvöldstund með Mozart á Höfn KAMMERSVEIT Reykjavíkur heldur til Hornafjarðar sunnudaginn 17. nóvember þar sem hún flytur tónlistar- og skemmtidagskrá í samvinnu við Tónskóla A-Skaftafellssýslu. Tónleikarnir verða í Hafnarkirkju kl. 16.00. Nefnist dagskráin „Kvöldstund með Mozart” og er helguð 200 ára ártíð tónskáldsins. Á efnisskránni verða þrjú verk: Flautukvartett í C-dúr, Óbókvartett í F-dúr og hið alþekkta næturljóð „Eine kleine Nachtmusik”. Á milli verka verða verkin kynnt og m.a. lesið úr bréf- um Mozarts. Hljóðfæraleikaramir sem fram koma á þessum tónleik- um eru Martial Nardeau, flautu- leikari, Kristján Þ. Stephensen, óbóleikari, og Reykjavíkurkvartett- inn, þau Rut Ingólfsdóttir, fíðla, Zbigniew Dubik, fiðla, Guðmundur Kristmundsson, víóla, og Inga Rós Ingólfsdóttir, selló. Tónleikamir eru Iiður í tveggja vikna tónlistar- veislu á vegum Tónskóla A-Skafta- fellssýslu í samvinnu við grunn- skóla bæjarins. í næstu viku verður Bandaríkja- maðurinn Paul Weeden með nám- skeið fyrir jazzáhugamenn og hljómsveitir Tónskólans sem lýkur með tónleikum þ. 21. nóv. þar sem hann mun koma fram ásamt ís- lenskum jazzleikurum. Félag ís- lenskra tónlistarmanna styrkir Kammerveit Reykjavíkur til farar- innar. (Fréttatiikynning) Endurskoðuð fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar: Nettóútgjöld verða um 144 millj. kr. hærri en áætlað var Rask-ráð- stefna í Odda SJÖTTA ráðstefna íslenska mál- fræðifélagsins, Rask-ráðstefnan, verður haldin í stofu 201 í Odda laugardaginn 16. nóvember, og hefst hún kl. 10.25. Átta erindi verða flutt á Rask-ráð- stefnunni. Svavar Sigmundsson fjall- ar um orðabækur ogtökuorð, Vetúrl- iði Óskarsson um tökuorð á ensku öldinni, Magnús Fjalldal um ímynduð samskipti Gunnlaugs skálds ormst- ungu og Aðalráðs konungs ráðlausa, Eiríkur Rögnvaldsson um samtíning um samtengingar, Pétur Helgason um áherslulaus sérhljóð í íslensku, Margrét Jónsdóttir um breytingár- sagnir í íslensku, Pétur Knútsson um eftirritun, umritun og alritun og Guðrún Þórhallsdóttir flytur erindi um þýska sáðmenn að fornu og nýju. NETTÓÚTGJÖLD Hafnarfjarðar- bæjar verða um 144 milljónum króna hærri á þessu ári en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun, en það þýðir um 7% breytingu á fjár- hagsáætlunni, að sögn Guðmund- ar Árna Stefánssonar bæjarstjóra. í endurskoðaðri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 250 milljóna króna nýrri lántöku á þessu ári, og að sögn Jóhanns G. Bergþórs- sonar, oddvita Sjálfstæðismanna í bæjarstórn, segir að verði ekki stigið á bremsurnar og horfst í augu við þann veruleika að ekki sé endalaust hægt að taka ný Ián í bæjarreksturinn, þá stefni í það ástand sem nú ríkir í fjármálum Kópavogs. Endurskoðuð fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar var afgreidd á auka- fundi í bæjarstjórn Hafnarfjarðar síðastliðinn þriðjudag. Á fundinum lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins fram bækling með athuga- semdum við þær breytingartillögur sem fyrir lágu. í bæklingnum er áréttuð bókun sjálfstæðismanna, sem lögð var fram við afgreiðslu fjár- hagsáætlunar í febrúar, og hún bor- in saman við þann raunveruleika sem þeir telja blasa við í fjármálum bæjar- sjóðs Hafnarfiarðar. „Staðfestir bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins” Jóhann G. Bergþórsson sagði í samtali við Morgunblaðið að breyt- ingartillagan við fjárhagsáætlun staðfesti í einu og öllu það sem fram hafi komið í bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. „Meginatriðin eru þau að í breyt- ingartillögu meirihlutans er enn gert ráð fyrir því að greiða niður 302 milljónir af skuldum, en í stað þess að engin ný lántaka átti að verða er nú gert ráð fyrir 250 milljóna króna nýrri lántöku. Miðað við allt árið 1991 var áætlaður rekstraraf- gangur 302 milljónir, en nýja áætlun- in gerir ráð fyrir að hann verði 171 milljón. Hins vegar sýnir níu mánaða uppgjör 44 milljóna króna halla. Sem lið í því að laga stöðuna var gert ráð fyrir 40 milljóná króna auknum tekj- Um vegna gatnagerðargjalda, en á upprunalegu áætlunipni var reiknað með 151 milljón í gatnagerðargjöld. Á níu mánaða uppgjörinu hafði að- eins verið innheimt og tekjufærð 29,5 milljón, en það þýðir að eftir á að innheimta 162 milljónir í gatna- gerðargjöld síðustu þijá mánuði árs- ins. Við teljum að það sé óraunhæft, og þá ekki síst í ljósi síðustu fregna um að ekkert álver rísi. Nú þegar eru óseldir tugir íbúða sem byggðar hafa verið á Hvaleyrarholti og ekki sjáanlegt að menn muni fara í frek- ari framkvæmdir, enda bankarnir búnir að segja stopp. Við teljum því að þessi breytingartillaga sé óraun- hæf og í henni sé ekki tekið á öllum rekstrarþáttum, -Við teljum að rekst- urinn hirði allar þessar 300 milljónir og þannig verði ekkert eftir til þess að greiða niður skuldir,” sagði Jó- hann. Hann sagði að samkvæmt níu mánaða uppgjörinu væru skuldir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar orðnar 1.388 milljónir, en þær hafí hins vegar verið 1.187 á sama tíma í fyrra, og þannig aukist um 201 millj- ón. „Þess ber þó að geta að skuldir um áramót voru bókaðar 1.435 millj-j ónir, en það er eðli þessa uppgjörs að í það vantar uppfærslu skulda, og miðað við þá breytingu sem varð á níu mánaða uppgjörinu í fyrra og til lokauppgjörs má ætlað að þarna bætist við um það bil 250 milljónir. í Ijósi þess og ofáætlaðra hugmynda um gatnagerðargjöld, þá teljum við að skuldirnar verði komnaryfir 1.600 milljónir þegar endanlegt ársuppgjör liggur fyrir. Við teljum í raun og veru að bæjarreksturinn sé kominn á það stig að venjulegar tekjur svari nánast til útgjaldanna, þannig að ekki verði um að ræða niðurgreiðslu skulda eða framkvæmda, og því stefni í þetta Kópavogsfar sem menn eru núna að upplifa. Þar er talað um að komið sé yfír það stig að almenn- ar tekjur dugi fyrir rekstri, en það þýðir gjörgæslumeðferð. Allt það sem við sjálfstæðismenn vöruðum við í febrúar hefur sannast, og það þarf því virkilega að stíga á bremsurnar og horfast í augu við þann veruleika að ekki er endalaust hægt að taka lán í bæjarreksturinn,” sagði Jóhann G. Bergþórsson. „Meginmarkmið fjárhagsáætlunar hafa staðist” Guðmundur Árni Stefánsson bæj- arstjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að öll meginmarkmið fjár- hagsáætlunarinnar um að hægja á í framkvæmdum og lækka skuldir stæðu fullkomlega. Hann sagði að skuldir yrðu lækkaðar um 170 millj- ónir á árinu, en að vísu hefðu verið uppi áform um að að fara enn hrað- ar yfir sögu í þeim efnum og lækka skuldirnar um 300 milljónir. „Við ákváðum hins vegar á miðju ári að breyta þessu eilítið að því er varðar ný verkefni, en skuldirnar lækka þó umtalsvert, og eru þær og voru raunar mjög vel viðunandi. Níu mánaða uppgjör segja nákvæmlega ekki neitt, því þá erum við að koma úr framkvæmdatímabili og síðustu þrír mánuðirnir eru þeir drýgstu í tekjulegu tilliti. Þá er miklu minna útstreymi og framkvæmdir litlar sem engar yfir hávetrarmánuðina. Þessi endurskoðun fjárhagsáætlunar stað- festir það og undirstrikar að þessi meginmarkmið nást fullkomlega. Tekjustreymið hefur óneitanlega ver- ið minna þessa fyrstu mánuði heldur en við gerðum ráð fyrir, en aftur á móti miðað við það sem er í pípunum núna, þá eigum við von á að það verði umtalsverðir fjármunir sem koma inn á þessum síðustu mánuðum ársins,” sagði Guðmundur Árni. ■, KJUKLINGAR Á K0STAB0ÐI Fjölskyldupakki fyrir 5. 10 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verb 2000 kr. Athugib abeins 400 kr. á mann. Fjöiskyldupakki fyrlr 3. 6 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verb 1300 kr. Pakkifyrir 1. 2 kjúklingabitar, franskar, sósa og satat. Verb 490 kr. Þú getur bæ&i tekib matinn meb þér heim eba borbab hann á stabnum. Sími 29117 Hraórétta vwtingastaóur ' hjarta borgarinnar Sími 16480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.