Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991
nmmm
1991 Jim Unger/Distributed by Universal Press Syndicale
,, þú þarft aubaitad ekJci að borya- fyp'r
ótÁnx piz--u), ctþá hektrbara pantaá mióUings.
Ást er ..
6-ZO
... aðtaka við uppgjöf henn-
ar.
TM Reg. U.S. Pat Off. —all rights reserved
® 1991 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgimkaffmu
POLLUX 1UO c=p
Við verðum að fara að kaupa
nokkra hreina diska.
'*
HOGNI HREKKVISI
Biskup og ný trú
Kæri Velvakandi!
Biskup íslands virðist óttast ný
trúarbrögð. Hann nefnir villutrú.
Ég vil segja: Ekki ný trú, heldur
nýr skilningur. Meðal almennings
hefur verið áhugi á nýju og betra
lífi. Fólk sér og finnur að það eru
nýjar leiðir sem vekja hjá því meiri
vellíðan og fróðleik_ en það sem
áður hefur verið til. Ég hef einbeitt
mér að því að kynna og kenna að-
ferðir sem ég hef lært eða haft
kynni af og leiða til góðs. Sumar
þeirra eru innan nýaldar, sumar
góðar og gildar.
Þjóðarhagur eykst þegar við öll
sem þjóð einbeitum okkur að því
að finna leiðir til bóta, sem auka
okkar andlegu og líkamlegu vellíð-
an sameiginlega.
Nudd er mjög skýrt dæmi. Slök-
unarnudd mýkir vöðva líkamans,
en veitir einnig andlega vellíðan í
gegnum það að sinna snertinemum
líkamans. Nudd getur bæði verið
ódýrt og dýrt. Það er ódýrt þegar
einstaklingar beita því á hvorn ann-
an í heimahúsum, það er dýrt þegar
farið er til fagmanns sem hefur á
bak við sig sérþekkingu. Góð blanda
af báðu er holl.
Jóga er annað dæmi. í hinum
nýju aðferðum eru líkamsstellingar
mýktar upp, svo þær séu aðgengi-
legri og þægilegri fyrir byijendur.
Jóga liðkar líkamann, en það róar
einnig hugann. Sá sem lærir það
getur gert það ókeypis heima við.
Einnig er hægt að fara í sérstaka
tíma. Bæði er hollt.
Heilsufæði er þriðja dæmið. Hollt
fæði sinnir líkamanum, en veitir
einnig andlega vellíðan. Það er
bæði hægt að finna mjög ódýrt
fæði, eins og korn og baunir, en
einnig dýrar máltíðir með allskyns
kryddum, hnetum og unnum vörum.
Einu sinni enn, blanda af báðu er
holl. Ég minntist á það í einni grein-
inni að náttúran hér kringum okk-
ur, sjálfur móinn, er matarkista.
Nánast í gríni, en samt í alvöru,
venjulegur arfi er ætur og má nota
í salat. Allt í einu er illgresi orðið
að hollustufæði. Við búum á gull-
kistu, án þess að taka eftir því. Við
óttumst þjóðargjaldþrot, en sjáum
ekki að það er aðeins gjaldþrot á
gömlu lausnunum. Nýjar lausnir
eru til, stundum með því aðendur-
heimta gömul bjargráð, stundum
með því að kveikja á perunni. Þetta
er kallað að „leggja hausinn í
bleyti”.
Ný trú: Hin nýja trú er trúin á
lífið sjálft, að það hafi gildi og að
til séu leiðir sem leiða til góðs.
Geti biskup veitt góð ráð til þjóðar,
þá er það vel. Gangi honum vel.
Ég þakka.
Rafn Geirdal
Ellilífeyrisþegar í Reykja-
vík silja ekki við sama borð
Hvernig stendur á því að fólki
sem kaupir svokallaðar þjónustu-
ibúðir stendur til boða alls konar
þjónusta frá borginni sem öðrum
öldruðum sem búa í húsum sínum
og íbúðum víðsvegar um borgina
er ekki heimil?
Nýlega hafa verið auglýsir þjón-
ustuíbúðir í stórri blokk í Fossvogi
á vegum söluaðiia eða félags, sem
heitir Sólvogur. Stærstu íbúðirnar
í húsinu eru tæpir 140 fermetrar
og eftir þeim upplýsingum sem birst
hafa í blöðum um verðið, er ferm.
reiknaður á kr. 115.000, eða 40.000
krónum meira en fermetrinn hjá
Félagi eldri borgara.
I auglýsingunni segir svo m.a.
„í húsinu verður íbúð fyrir húsvörð,
salur þar sem verður ýmis þjónusta
af hálfu Reykjavíkurborgar, gufu-
böð, sturtur, búningsklefar, heitir
pottar o.fl.
Getur fólk sem býr í gömlum
húsum í borginni fengið sett upp
hjá sér gufubað, sturtur og heita
potta á kostnað þess opinbera?
Hvers vegna er fólki mismunað
með þessum hætti?
Þeir sem búa í þjónustuíbúðum
sem eru staðsettar í sama húsi og
þjónustu- og félagsmiðstöðvar fyrir
hverfið eru reknar í, fá ókeypis
afnot af salarkynnum með öllum
búnaði fyrir allt að hundrað manna
afmælisveislur, en þegar ellilífeyris-
þegar sem búa í hverfinu óska eftir
sömu fyrirgreiðslu er þeim sagt að
þeir geti ekki fengið salinn lánaðan
nema þeir taki þátt í föndri, leik-
fimi, eða annarri starfsemi sem
rekin var í húsinu. Þetta gengur
svo langt að íbúar þjónustuíbúða
verða fyrir allskonar skætingi af
hálfu hinna, sem fínnst þeir bera
skarðan hlut frá borði vegna þess
að þeir kjósa að vera áfram í húsum
sínum í stað þess að kaupa sér þjón-
ustuíbúðir.
Borgaryfii-völd geta ekki leyft sér
að nota skattpeninga almennings
með þessum hætti.
Skattborgari
Þessir hringdu . .
Karlmannsgleraugu tapast
Karlmannsgleraugu í brúnni
umgjörð töpuðust föstudaginn
8. nóv. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 691209.
Meira um kennitöluna
Jóna hringdi og vildi taka
undir með ensku konunni sem
var að mótmæla notkun kenni-
tölunnar. Jóna sagði það fyrir
neðan allar hellur að geta hvergi
farið án þess að gefa upp kenni-
töluna og þar með hvenær mað-
ur væri fæddur. Aldurinn væri
einkamál hvers og eins. Jóna
sagðist ekki lengur fara með
visa-kortið í hverfisbúðina eða á
hárgreiðslustofuna því hún vildi
ekki láta fólk vita hvenær hún
væri fædd. Hún vildi kenni-
töluna í burtu og taka ætti
gamla nafnnúmerakerfið upp á
ný-
Jólafötin týnd
Poki með fatnaði tapaðist í
strætóleið 3 frá Seltjarnarnesi
og niður í miðbæ föstudaginn
8.-nóv. Hér er um mjög tilfinn-
ingalegt tap að ræða þar sem í
pokanum var allur jólafatnaður
14 ára stúlku; jakki, skór og
tvennar buxur. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 611634
eða 76298. Fundarlaur í boði.
Týndur köttur
Köttur úr Kópavoginum hef-
ur verið týndur í tæpar tvær
vikur. Um er að ræða flekkóttan
kött sem er svartur á baki, hvít-
ur á háls og kviði með gráa
flekki. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 42599.
Ógeðfelldur bókarkafli
S.H. vildi koma eftirfarandi
orðsendingu á framfæri: „Laug-
ardaginn 2. nóv. birtist í DV
pistill úr viðtalsbók sem mun
korna út fyrir jólin eftir Súsönnu
Svavarsdóttur. Ég var ákaflega
hneyskluð á þessum kafla úr
bókinni og fannst hann dónaleg-
ur og manni misboðið með þess-
ari birtingu og ég vona að ung-
ar stúlkur hafi ekki lesið hann.
Að mínu mati var hann ekki
hollur. Vonandi skilar bókin
betra efni en þessi kafli mætti
missa sín.”
Víkverji skrifar
Það hefur vart farið framhjá
fólki að íslendingar voru í
fararbroddi þeirra sem studdu við
bakið á þjóðum Eystrasaltsríkjanna
í sjálfstæðisbaráttu þeirra. Frétta-
stofa ríkissjónvarpsins hefur und-
anfarnar vikur a.m.k. tvisvar notað
kort af Sovétríkjunum þar sem
landamærin eru óbreytt og Eystra-
saltsríkin því enn með sovéskum
lit. Öllum getur orðið á en endurtek-
inn trassaháttur af þessu tagi er
ólíðandi og ekki virðist Sjónvarpið
sjá ástæðu til að biðja afsökunar á
svona mistökum. Hvað veldur því?
Sá Víkverji sem hér skrifar ótt-
ast að margir landsmenn fái aðal-
lega innsýn í alþjóðamál með því
að fylgjast með sjónvarpsfréttum,
gefa sér of sjaldan tíma til að lesa
ítarlegri fréttir dagblaða og tíma-
rita. Éinmitt vegna þessa er það
mikilvægt að ríkissjónvarpið sýni
metnað og gæti þess. ,að æinföld
undírstöðuatriði séu í lagi.
Fyrst Víkveiji er byijaður að
nöldra er eins gott að minnast
á annað atriði. Oft kemur það fyrir
að erlendar fréttir verða „innlyksa”
hjá sjónvarpsstöðvunum eins og
eðlilegt er; önnur mál koma óvænt
upp, eins er vafalaust reynt að safna
í sarpinn og sumar fréttir þola vel
nokkra bið. En þegar þetta gerist
finnst Víkveija jafn eðlilegt og sjálf-
sagt að lesnum/rituðum texta sé
annaðhvort breytt eða reynt með
einhverjum hætti að lagfæra rangar
dagsetningar á fréttunum. Dæmin
um hið gagnstæða eru allt of mörg;
sagt er „í dag” eða „í gær” þótt
þeim sem betur vita sé Ijóst að
lengra er liðið frá umræddum at-
burðum.
Mikil lægð hefur verið á mörg-
um sviðuip þjóðfélagsins
undanfarna tvo mánuði. Sem dæmi
má nefna að mikið hefur borið á
þessu í verslun og sölu gamalla bíla.
Seljendur gamalla bíla sögðu skrif-
ara að þeir myndu varla svo langan
tíma þar sem sala hefur verið í
lágmarki.
Annað athyglisvert á þessum erf-
iðu tímum eru hinar svokölluðu
verslunarferðir sem seljast á þessa
mánuðina eins og heitar lummur.
Ferðaskrifstofurnar auglýsa þessar
ferðir á mjög lágu verði hafa þær
lítið hækkað frá því í fyrra. Vík-
veiji dagsins fór í ferð til írlands í
fyrra og greiddi þá í grunnverð
23.655 krónur á fimm stjörnu hót-
eli. Samsvarandi ferð kostar nú
23.900 krónur sem er „hræbillegt”
og eðlilegt að landinn sæki sér upp-
lyftingu út fyrir landsteinana á tím-
um álþrenginga og minnkandi
kaupmáttar.