Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1991 19 Nefnd til að endurskoða LÍN: Tveir fulltrúar frá námsmönnum Knut Hamsun GENGIÐ hefur verið frá því að námsmenn fái tvo fulltrúa I nefnd þá sem menntamálaráð- herra hefur skipað til að fjalla um hugmyndir um endurskoðun á Lánasjóð íslenskra náms- manna. Nefnd þessi á að vinna að frumvarpi sem fljótlega verð- ur svo lagt fram á Alþingi. Sam- starfsnefnd námsmannahreyf- inga var boðinn einn fulltrúi í nefndinni og Vöku var boðinn einn fulltrúi. Steinunn Óskarsdóttir formaður Stúdentaráðs segir að Samstarfs- nefnd námsmannahreyfínga lýsi yfir furðu sinni á því að mennta- málaráðherra skuli leggja að jöfnu heildarsamtök námsmanna hér- lendis og erlendis og lítið pólitískt félag í Háskólanum með því að bjóða Vöku einn fulltrúa í nefndinni á móti einum frá Samstarfsnefnd- inni. „Við viljum að það komi skýrt fram að fulltrúi Vöku í þessari nefnd er á engann hátt í forsvari fyrir nemendur þar,” segir Stein- unn. Iðnnemasamband íslands hefur sent fra sér fréttatilkynningu um málið. I henni segir m.a. að fram- kvæmdastjórn Iðnnemasambands íslands mótmæli harðlega þeim vinnubrögðum menntamálaráð- herra að úthluta Vöku einum full- trúa í nefndinni á meðan heildar- sámtök námsmanna þurfi að skipta með sér einum fulltrúa. Stjórnin skorar á Vöku að félagið láti Sam- starfsnefnd námsmannahreyfing- anna eftir þann fulltrúa sem mennt- amálaráðherra ætlar félaginu að skipa. Verði það ekki gert lýsir Iðn- nemasambandið því yfir að fyrir sitt munu samtökin líta á fulltrúa Vöku innan endurskoðunarnefndar- innar sem sérstakan fulltrúa menntamálaráðherra og með því hafi Vaka rofið samstöðu náms- manna í baráttunni fyrir jafnrétti til náms. Elsa Valsdóttir formaður Vöku sagði að sér kæmi afstaða Iðnnema- sambandsins á óvart enda liti Vaka svo á að námsmenn hefðu fengið 2 fulltrúa í nefndinni. Verk Knuts Hamsuns á íslensku BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur sent frá sér skáldsöguna Leynd- ardómar eftir Knut Hamsun. Úlf- ar Hjörvar þýddi söguna á ís- lensku. I kynningu Forlagsins segir: „Leyndardómar kom út árið 1892 og er nú á tímum talin meistara- verk Knuts Hamsuns. Hér afhjúpar hann lítt meðvitaður svið sálarlífs- ins í sögu fullri af öfgum, ærslum og þversögnum, Ijóðrænum nátt- úrulýsingum og djúpum sársauka. Leyndardómar er svar Hamsuns við verkum raunsæisskálda 19. aldar sem hann kallaði sálarlausa samfé- lagsafhjúpun. í skáldskap hans er fólgin krafa um að skyggnast í sálardjúpin, með snilldarverkum sínum. I Leyndardómum, Sulti, Pan og Viktoríu vísar Hamsun leiðina fram á við til skáldsagnagerðar nútímans.” Leyndardómar er 236 bls. Grafít hf. hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. BRAEXJMKOMA^ Nú þurfa þeir að fara ab ókveba sig sem ætla ab lagfæra íbúðina fyrir jól. VIÐ VEITUM 10-50% AFSLÁTT AF INNI- OG ÚTIMÁLNINGU FRÁ HÖRPU OG SADOLIN. Vib bjóðum einnig úrvals gólfefni ó miög hagstæðu veröi. Áfram á gamla veröinu. Halldór Halldórsson Ný útgáfa af Orðtakasafni Halldórs Halldórssonar BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka- félagsins hefur sent frá sér nýja aukna og endurskoðaða útgáfu af íslensku orðtakasafni Halldórs Halldórssonar, prófessors. Þetta er 3. útgáfa bókarinnar. Orðtaka- safnið hefur áður verið í tveimur bindum en nú er það allt í einu bindi, 569 bls. að stærð. í kynningu útgefanda segir: „ís- lenskt orðtakasafn er eitt af öndveg- isritum okkar um íslenska tungu. Ritið er samið jafnt fyrir almenning og málvísindamenn, sem þýðir að öll framsetning þess er svo ljós að hver sem kann íslensku getur haft af því full not, en hvergi er hvikað frá vís- indalegri nákvæmni.” Umbrot og útlit Orðtakasafnsins sem er er 569 bls. hefur Guðjón Ingi Hauksson annast og það er prentað í Prentsmiðjunni Odda hf. BYGGINGARVELTA - Vi& lánum í allt að þrjú ár. Mikið úrval í öllum veröflokkum. Filtteppi á kr. 389 m2 Villeroy & Boch- viðurkennd qæbavara á mjög góðu verði. Ný sending. Fallegir litir og munstur. Serlega gott verð. MÁLNING - PARKET - TEPPI - FLÍSAR - GÓLFDÚKAR ■% málningarP , pjdnDstan hf akranesí 'arma HAFNARFIRÐI METRO í MJÓDD G.Á. Böðvarsson hf. SELFOSSI Gronsásvegi 11 • Reykjavik • Slmi 83500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.