Morgunblaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/I!MI\ILEI\IT
MÖRGUNBLAÐIÐ- SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991
EFNI
Karl Steinar Guðnason:
Bæta verð-
ur rekstur
ferja og
flóabáta
VERULEGUR vandi er í rekstri
ferja og flóabáta. Gera má ráð
fyrir því að í stað 173,2 milljóna
króna framlags í fjárlagafrum-
varpi 1992 verði þörfin 376,9 millj-
ónir króna. Munurinn er sam-
kvæmt þessu liðlega 200 milljónir
króna. Karl Steinar Guðnason for-
maður fjárlaganefndar telur að
margt megi bæta í rekstri feija.
Frumvarp til ijáraukalaga fyrir
árið 1991 var til umræðu á Alþingi
á föstudag. Það kom m.a. fram í
ræðu Karls Steinars að fjárlaga-
nefndin gerir tillögu um að bæta við
liðinn „flóabátar og vöruflutningar”
88 milljónum til viðbótar þeim 7
milljónum sem hefðu þcgar verið
teknar inn. En talið væri að vanskil
feija og flóabáta yrðu 95 milljónir
króna að óbreyttu.
Formaður fjárlaganefndar sagði
Ijóst að útgjöld ríkisins til feijurekstr-
ar myndu aukast verulega nema til
einhverra ráðstafana yrði gripið.
Gera mætti ráð fyrir því að í stað
173,2 milljóna króna framlags í Ijár-
lagafrumvarpi næsta árs yrði þörfin
376,9 milljónir. Árleg íjárþörf færi
síðan vaxandi þegar við bættust af-
borganir af nýja Hetjólfi og næði
hámarki árið 1995, 435,9 milljónir
króna, þar eftir yrði framlagið 400
milljónir fram til aldamóta.
Sigrún SK
dregin til
Siglufjarðar
Siglufirði.
VÉLBÁTURINN Viggó frá
Siglufirði kom með óvenjulegan
afla að landi á föstudagskvöld.
Skipverjar á Viggó voru með
trilluna Sigrúnu SK í togi og
drógu hana á hvolfi inn á Siglu-
fjarðarhöfn. Trillan sökk fyrir
tveimur vikum á Málmeyjarsundi
og var tveimur mönnum þá
bjargað af trillunni.
Skipveijar á Viggó fundu Sig-
rúnu marandi í hálfu kafi á svoköll-
uðum Flysjum norður af Skagafirði
og tóku hana með sér í land. Þegar
komið var til Siglufjarðar var trillan
rétt við og virðist hún vera lítið
skemmd.
-mj
Smiðja jólasveinanna
Morgunblaðið/KGA
Fyrsti jólasveinnninn er ekki væntanlégur til byggða fyrr en þrettán dögum fyrir jól, en víða má sjá jóla-
sveinabrúður sem stillt hefur verið upp í verslunum. í Kringlunni hefur smiðja jólasveinanna verið sett upp,
og vekur hún greinilega athygli yngstu kynslóðarinnar.
Smásöluálagning á kjötvör-
um hækkað um allt að 50%
Verðlagsstofnun vill að kjötvinnslur
endurskoði smásöluverðlagningu
ALLT að 50% hækkun hefur orðið á smásöluálagningu á sumum unn-
um kjötvörum á nokkrum undanförnum árum, en álagningin á þeim
hefur hækkað úr 20% í 30% á tímabilinu. Þetta eru niðurstöður könnun-
ar. Verðlagsstofnunár á smásöluverðlagningu, bæði á unnum og óunn-
um kjötvörum. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, yfirviðskiptafræð-
ings hjá Verðlagsstofnun, hefur stofnunin nú beint þeim tilmælum til
kjötvinnslustöðva að þær endurskoði leiðbeinandi smásöluverðlagn-
ingu á unnum kjötvörum og hætti jafnframt verðmerkingu á þeim
vörum sem seldar eru staðlaðar að þyngd.
Að sögn Guðmundar var smásölu-
álagning á unnum kjötvörum og
öðrum matvörum að mestu gefin
fijáls á árinu 1984, en þá var algeng
hámarksálagning á matvörum
30-38% og 17-20% á unnum kjötvör-
um. Frá því verðlagsákvæði voru
felld úr gildi hefði almenn álagning
á matvörum lækkað mikið, en því
væri hins vegar öfugt farið með
unnar kjötvörur. Svokölluð leiðbein-
andi smásöluálagning á þær vörur
hefði hækkað mikið á síðustu árum
jafnframt því sem afsláttur sem kjöt-
vinnslustöðvar veita hefði færst í
vöxt. Á sama tíma og smásölukostn-
aður verslana hefði minnkað vegna
unnina kjötvara hefði álagningin
hækkað úr 17% í 25% á sumum
vörum og úr 20% í 30% á öðrum,
auk áðurnefnds afsláttar.
Guðmundur sagði að verðdreifing
á unnum kjötvörum í verslunum
væri nánast engin, en verslanir selji
vönirnar á því verði sem kjötvinnslu-
stöðvarnar merki vörumar með.
Þannig selji stórmarkaðir vörurnar
á sama verði og smærri verslanir,
þó verðstefna þeirra sé önnur þegar
aðrar vörur eigi í hlut, og leiðbein-
andi verðlagning kjötvinnslustöðv-
anna sé því í raun bindandi verðlagn-
ing.
„Bindandi verðlagning á næsta
sölustigi er óheimil samkvæmt lög-
um. Verðlagsstofnun hefur þó litið
svo á að verðmerking kjötvinnslu-
stöðva fyrir smásöluverslanir sé til
mikils hagræðis og spamaðar fyrir
verslanirnar og því ekki gert athuga-
semdir við hana, og á þetta einkum
við um vörur sem ekki eru staðlaðar
að þyngd. Hins vegar lítur stofnunin
það alvarlegum augum hve smásölu-
álagning hefur hækkað á unnum
kjötvömm á síðustu árum án þess
að nokkur orsök sé til þess önnur
en skortur á samkeppni,” sagði Guð-
mundur Sigurðsson.
Óðinshanar sjást
vart við Tjörnina
ÓÐINSHANAR eru hættir að
sjást við Tjörnina í Reykjavík
þar sem þeir voru árvissir sum-
argestir. Sumarið 1973 sáust
óðinshanar í 42% fuglataln-
inga við Tjörnina. Árið 1980
var hlutfallið komið niður í 4%
og sumarið eftir sáust óðins-
hanar aðeins tvisvar. Frá þeim
tíma hafa engir óðinshanar
sést á þessum slóðum. Ólafur
K. Nielsen, fuglafræðingur,
segir að óðinshönum virðist
einnig hafa fækkað annars
staðar á landinu og leiði menn
likur að því að skýringanna sé
að leita á úthafinu þar sem
fuglarnir haldi sig á veturna.
Olafur gerir grein fyrir niður-
stöðum 360 fuglatalninga sinna
og Jóhanns Óla Hilmarssonar í
nýjasta hefti fréttabréfs Fugla-
vemdarfélags íslands. Þar kemur
fram að hlutfall fuglatalninga við
Tjörnina á tímabilinu þar sem
óðinshanar sáust hafi minnkað
úr 42% árið
1973 í 4%
árið 1980.
Árið 1981
var kerfis-
bundinni
talningu hætt en um sumarið
sást tvisvar til óðinshana, einn
fugl í fyrra skiptið og tveir í
seinna skiptið. Síðan hefur ekki
sést til óðinshana við Tjörnina.
Meðalíjöldi óðinshana í fuglataln-
ingu hefur samkvæmt talningu
Ólafs og Jóhanns Óla lækkað úr
5 árið 1973 í um 2 árið 1980.
Aðspurður um skýringar á
þessari miklu fækkun sagði Ólaf-
ur að ýmsar vangaveltur væru í
gangi. „Menn hafa helst haldið
að skýringanna sé að leit í úthaf-
inu þar sem fuglarnir halda sig
á veturna og fækkunin endur-
spegli þá mengun sjávar eða eitt-
hvað því um líkt,” sagði Ólafur.
Fram kom að ekki væru til tölu-
legar upplýsingar um fjölda óð-
inshana annars staðar á landinu
en í Reykjavík. Aftur á móti
sagðist Ólafur hafa heyrt á stað-
kunnugum mönnum víða um land
að þar fækkaði óðinshönum einn-
ig-
Óðinshani er votlendisfugl sem
verpir í mýrum við polla og tjarn-
ir. Hann kemur til landsins seint
í maímánuði en kvenfuglinn
hugsar sér til hreyfings seint í
júní. Karlfuglinn og ungamir
fljúga suður á bóginn í júlí ágúst
og september. Talið er að íslensk-
ir óðinshanar dveljist í Indlands-
hafi á veturna. Óðinshani er út-
breiddur varpfugl í norðlægum
löndum austanhafs og vestan.
Alvarlegl
vinnuslys í
Straumsvík
ALVARLEGT vinnuslys varð í
steypuskála álversins í Straums-
vík á föstudagskvöldið, en þá varð
hálfsjötugur maður undir hjóli
flutningabifreiðar með þeim af-
leiðingum að taka þurfti af hon-
um annan fótinn.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
í Ilafnarfirði barst tilkynning um
slysið kl. 20.30. Það varð með þeim
hætti að svokölluð áltökubifreið, sem
flytur 10-11 tonna ker með bráðnu
áli, var að bakka eftir að hafa skilað
af sér farminum, og varð maðurinn
þá fyrir bifreiðinni með þeim afleið-
ingum að hægri fóturinn varð undir
framhjóli hennar. Maðurinn var flutt-
ur á slysadeild Borgarspítalans, og
að sögn rannsóknarlögreglunnar
þurfti að taka af honum fótinn um
hnéð.
Sex á slysa-
deild eft-
ir bílveltu
SEX piltar voru fluttir á slysa-
deild eftir að bíll sem þeir voru í
ók út af og valt á Reykjanesbraut-
inni skammt fyrir ofan Hafnar-
fjörð um kl. 22 á föstudagskvöld-
ið. Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar í Hafnarfirði voru meiðsli
þeirra ekki talin alvarleg.
Bíllinn var á leið til Reykjavíkur
frá Grindavík, en þar höfðu piltarnir
verið að keppa í körfubolta. Að sögn
rannsóknarlögreglunnar missti öku-
maður bílsins stjórn á honum í fram-
úrakstri, með þeim afleiðingum að
bíllinn hentist út af veginum og lenti
á ljósastaur en hvolfdi síðan. Mikil
hálka var á.Reykjanesbrautinni þeg-
ar slysið varð að sögn rannsóknarlög-
reglunnar.
Fjársjóður fólginn í
furðufiskum
►Fjöldi fisktegunda er í sjónum
umhverfis ísland sem ýmist eru
vannýttar eða ekkert nýttar. Eink-
um em það fjórar tegundir: lang-
hali, gullax, búrfiskur og litli
karfi./lO
Nálar leitað í
heystakki
►Lögreglurannsóknin á spreng-
ingunni í Pan Am-þotunni yfir
Lockerbie er sögð einhver hin
umfangsmesta í sögunni og árang-
ursríkari en nokkur þorði að
vona./14
Erum skuggar
þjóðfélagsins
►Rætt við ungt fólk með alnæm-
isveiru í tilefni alþjóðlegs Al-
næmis-dags, 1. desember./18
Munum haldafjárlaga-
hallanum í skefjum
►Rætt við Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra upp gamlan og nýjan
vanda í ríkisflármálum, lausnir á
honum og ríkisstjórnina./20
Öll ræktun hefst í
hugarfari
►Kaflar úr bókinni Bjargið jörð-
inni, sem kemur út samtímis í
mörgum löndum./22
Fólk hrifið og þakklátt
►Af íslensku óperunni í Ýdöl-
um./26
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-24
Hafa aldraðir sérþarfir
í húsnæðismálum?
►Hilmar Þór Björnsson arkitekt
skrifar um húsnæðismál aldr-
aðra./12
Bærinn vaknar
►Fimm ára starfi er að ljúka hjá
Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi
nú þegar hann er að senda frá sér
fyrra bindið af Sögu Reykjavíkur
átímabilinu 1870 til 1940. Hér
birtum við nokkra kafla úr bók-
inni./l
Þartína menn kaffi-
baunir og banana
►Fijósamt land, steikjandi hiti og
nægt vatn. Er þarna ekki ímynd
aldingarðsins Edens, draums
mannsins um sælureitinn? spyr
Elín Pálmadóttir blaðamaður
Morgunblaðsins, sem nýlega var á
ferð í Kamerún./8
Þegar sálin fer á kreik
►Brot úr bók Sigurveigar Guð-
mundsdóttur kennara./12
Einn dagur, ei meir
►Reynslusaga blaðamanns í starfi
þingfréttaritara./16
Einn meðfjaili
►Gluggað í ljósmyndabók Páls
Stefánssonar um Island./18
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Dagbók 8
Hugvekja 9
Leiðari 34
Helgispjall 34
Reykjavíkurbréf 34
Myndasögur 40
Brids 40
Stjörnuspá 40
Skák 40
Fólk! fróttum 62
Úlvarp/sjónvarp 64
Gárur
Mannlífsstr.
Fjölmiðlar
Kvikmyndir
Dægurtónlist
Minningar
Bíó/dans
A fömum vegi 32c
Velvakandi 32c
Samsafnið
34c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
N