Morgunblaðið - 01.12.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 01.12.1991, Síða 4
4 FRETTIR/YFIRLIT ERLEIUT INNLENT EB vill fá fullan karfakvóta Evrópubandalagið rnun ekki fallast á þær hugmyndir íslending- ar að veiðiheimildir EB í íslenskri landhelgi á 3.000 tonna karfaígild- um samkvæmt samningi um evr- ópskt efnahagssvæði skiptist þannig að 70% verði til veiða á langhala og 30% á karfa. Gerir EB kröfu um að fá að veiða karfa upp í allan kvótann. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir líklegt að íslendingar geri tvíhliða samning við EB sem feli í sér að EB fái að veiða 3.000 tonn af karfa á fyrsta ári þess samn- ings. Samstarfsnefnd atvinnurek- enda í sjávarútvegi hefur fallið frá stuðningi við EES-samning þar til allar upplýsingar um einstök samningsatriði liggi fyrir í rituðu máli. Erfiðleikar á Austfjörðum Síldar- og loðnuleysið það sem af er þessari vertíð hefur komið iila niður á mörgum plássum á Austfjörðum. Erfiðleikar eru þar víða í sjávarútvegi og er atvinnu- leysi margfalt meira miðað við sama tíma á síðustu árum. Frumvarp um þyrlukaup Átta þingmenn úr ölium fiokk- um hafa lagt fram frumvarp til laga á Alþingi þess efnis að ríkis- stjórnin skuli á næsta ári gera samning um kaup á björgunar- þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Viðræður við bandarísk stjórnvöld ERLENT Israelar vilja fresta friðar- viðræðum Stjórnvöld í ísrael neituðu í vikunni að taka þátt í friðarvið- ræðum við araba sem áttu að fara fram í Washington þann 4. desember og kröfðust þess að þær færu fram fimm dögum síð- ar. Stjórn Israels hefur einnig lýst sig andsnúna tillögum Bandaríkjamanna um efni frið- arviðræðnanna. Þar er m.a. gert ráð fyrir að ísraelar hverfí á brott frá Gólanhæðum sem þeir hert- óku af Sýrlendingum í sexdaga- stríðinu árið 1967. Fulltrúar alla arabaríkja, sem þátt taka í við- ræðunum, hafa lýst sig reiðu- búna að mæta á fundinn í Was- hington og Bandaríkjastjóm seg- ist ekki geta breytt fundarboð- inu. Ekki samkomulag um sambandssáttmála Leiðtogar sjö Sovétlýðvelda náðu ekki samkomulagi um nýj- an sambandssáttmála, þar sem m.a. er gert ráð fyrir þjóðkjöm- um forseta og takmörkuðu mið- stjórnarvaldi, á fundi sínum á mánudag. Var undirritun sátt- máians frestað þar til þing lýð- veldanna hafa fjallað um drög að honum. Engin skýring var gefín á frestuninni en hún þykir mikið áfall fyrir Míkhaíl Gorb- atsjov forseta. Friðargæslusveitir til Júgóslavíu? Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna samþykkti á miðvikudag að senda Cyrus Vance, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sem sérlegan fulltrúa sinn til Júgóslavíu til að undirbúa hugsanlega komu friðargæslu- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991 Alþjóðafundur um losun úrgangsefna í hafið: Sömiunarbyrðinni snúið við um samstarf íslenskra aðila við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli um björgunarþjónustu hófust í vik- unni, en Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra segir að þær viðræð- ur gætu haft áhrif á val á þyrlum. Margir á faraldsfæti Útlit er fyrir að nóvember verði einn mesti ferðamánuður ársins hjá íslendingum, og ef svo fer sem horfir hafa 30% fleiri íslendingar farið til útlanda í mánuðinum en í sama mánuði í fyrra. Bankar lækka vexti Landsbanki íslands iækkar nafnvexti á óverðtryggðum innlán- um um 0,5% um þessi mánaðamót og nafnvextir óverðtryggðra útl- ána bankans lækka um 0,50-0,75%. Þá lækkar íslandsbanki forvexti víxla um 0,50% og vexti yfírdráttarlána um 0,75%, en auk þess tekur gildi 1% lækkun vaxta á almennum óverðtryggðum skuldabréfum. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra segja að nafnvextir verði að lækka hratt á næstunni, og segir viðskiptaráð- herra að ákvæðum Seðlabanka- laga til að grípa inn í vaxtaákvarð- anir banka verði beitt ef tilefni þykir gefast til. sveita. Talið er að gæsluliðið verði skipað allt að tíu þúsund mönn- um. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, og Giuilo Andre- otti, forsætisráðherra Ítalíu, áttu fund á fímmtudag, og skoruðu þeir að honum loknum á sem flest Evrópuríki að viðurkenna sjálf- stæði Króatíu og Slóveníu fyrir jól. Krefjast framsals Líbýumanna Stjórnir Bretlans og Bandaríkj- anna hafa farið þess á leit við Líbýumenn að þeir framselji tvo leyniþjónustuménn sem sakaðir eru um að hafa komið fyrir sprengju um borð í júmbóþotu Pan Am-flugfélagsins sem sprakk á flugi yfir bænum Loc- kerbie í Skotlandi í desember 1988. Líbýumenn hafa lýst því yfir að þeir hyggist ekki ganga að þessari kröfu en harðar að- gerðir hafa verið boðaðar af hálfu Vesturlanda geri þeir það ekki. Ráðist að leiðtoga Rauðu khmeranna Ákveðið hefur verið að sátta- nefnd deiluaðila í málefnum Kambodfu komi saman í Pattaya á Tælandi en ekki Phnom Penh, höfuðborg Kamhodíu, eins og ráðgert hafði verið. Var þessi ákvörðun tekin eftir að þúsundir manna réðust að Khieu Samp- an, leiðtoga Rauðu khmeranna, skömmu eftir að hann kom til borgarinnar. Segjast yfirvöld í Kambodíu ekki geta tryggt ör- yggi Ieiðtoga Rauðu khmeranna í landinu. ÁRLEGUM alþjóðafundi um los- un úrgangsefna í hafið, sem haldinn er á grundvelli sáttmála um það efni, lauk í London á föstudag. Davíð Egilsson, full- trúi Islendinga á fundinum, sagði í samtali við Morgunblaðið að samþykkt hefði verið að stefna að því að minnka úrgang úr framleiðslu eins mikið og unnt væri og einnig að menn gætu ekki lengur skýlt sér á bak við þá röksemd að þeir hefðu ónóga vitneskju um mengunar- afleiðingar. „Nú verður sá sem er líklegur til að valda mengun að sýna fram á að hann mengi ekki. Það er búið að snúa sönnunarbyrðinni við. Menn þurfa ekki lengur að sýna fram á að tiltekin athöfn valdi sannanlegri mengun heldur nægir að benda á að hún sé líkleg til þess,” sagði Davíð. Þá sagði hann íslendinga hafa lagt fram yfirlýsingu, ásamt hin- um Norðurlandaþjóðunum, um að engri þjóð væri heimilt að skýla sér á bak við hernaðarleynd við losun geislavirkra efna í hafið. Ukraína: Yfirgnæfandi meirihluti talinn vilja sjálfstæði Úkraínumenn rökræða á Byltingartorginu í Kiev skömmu áður en íbúar lýðveldisins ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem búist er við að lýst verði yfir sjálfstæði Úkraínu. ÍBÚAR sovétlýðveldisins Úkraínu ganga í dag til fyrri umferðar forsetakosninga Iýð- veldisins. Undir venjulegum kringumstæðum myndu slíkar kosningar ekki vekja mikla athygli, hvorki meðal úkraín- skra kjósenda né umheimsins. Ef einvörðungu væri verið að kjósa forseta mætti búast við að um fimmtungur kjósenda léti sjá sig á kjörstað. Svo er hins vegar ekki. Úkraínumenn lyósa í dag einnig um framtíð Úkraínu, hvort lýðveldið eigi áfram að vera í lögum við Sov- étríkin eða lýsa yfir sjálfstæði. Búist er við mikilli kosninga- þátttöku og yfirgnæfandi meirihluta fyrir sjálfstæði. Þar með lyki þijú hundruð ára drottnun Rússlands yfir Úkra- ínu. Ef svo fer er það gífurlegt áfall fyrir miðstjórnarvaldið í Moskvu og Míkhail Gorbatsjov Sovétforseta. í Úkraínu búa 52 milljónir manna á lands- svæði áþekku að stærð og Frakkland og lýðveldið hefur verið eitt mikilvægasta land- búnaðar- og iðnaðarhérað Sov- étrílqanna í gegnum tíðina. Úkraína var heimili „fyrir- myndarverkamannsins” Alexej Stakhanov og þaðan hafa allt að 70% yfirmanna Rauða hersins komið. Sex eru í framboði ýil forseta og ef enginn þeirra fær meira en helming atkvæða munu þeir tveir efstu takast á í annari umferð tveimur vikum síðar. Sá sigurstranglegasti er af öllum talinn vera Leóníd Kravtsjúk, fyrrum yfírmaður Kommúnista- flokksins í Kiev og núverandi forseti úkraínska þingsins. Hon- um hefur verið spáð allt að rúm- lega þriðjungi atkvæða sam- kvæmt nýleg- um skoðana- könnunum. Kravtsjúk var til skamms tíma sann- færður kommúnisti en eftir að valdaránstilraunin mistókst í ág- úst tók hann niður Lenín-mynd- ina sem hafði prýtt skrifstofuna hans og gaf út tilskipun þar sem kommúnistaflokkur Úkraínu var bannaður. Sigurlíkur Kravtsjúks jukust verulega eftir að Alexander Tsjatsjenkó landbúnaðarráðherra dró framboð sitt til baka og hvatti stuðningsmenn sína til að veita Kravtsjúk atkvæði sitt. Hinn helsti frambjóðandinn er Wjatsjeslav Tsjornóvíl, blaða- maður og fyrrum andófsmaður, sem um tíma sat í fangelsi vegna skoðanna sinna. Honum er spáð tæplega fimmtungi atkvæða. Aðrir fram- bjóðendur eru ekki taldir líklegir til að hljóta meira en 3-5% at- kvæða en 36% kjósenda segjast enn ekki hafa gert upp hug sinn. Þetta gæti komið Tsjornóvíl til góða. Ellefu milljónir Rússa Hvorki Kravtsjúk né Tsjornóv- íl hafa blandað sér um of í um- ræðuna um sjálfstæði Úkraínu þó allir frambjóðendur segi þjóð- aratkvæðagreiðsluna um sjálf- stæði vera mun mikilvægari en forsetakosningarnar. Ein helsta ástæða þess er talin vera að þeir vilja ekki styggja um of rúss- neska minnihlutann í lýðveldinu sem telur um 11 milljónir manna. Þeir eru hins vegar báðir taldir eiga eftir að taka mjög harða afstöðu í sjálfstæðismálinu þegar kemur að síðari umferðinni. Úkraínubúar binda miklar vonir við sjálfstæðið, þó þeir leggi mismunandi skilning í það, og hafa miklar vonir verið vaktar meðal þeirra um að þannig geti þeir náð vestrænum iífskjörum á örskömmum tíma. Það gæti hins vegar reynst torfært. Efnahagslíf Úkraínu, líkt og annarra núver- andi og fyrr- verandi sovét- lýðvelda, er í molum og það gæti reynst erfitt að finna einhvern varning sem vestrænir neytendur væru reiðubúnir að greiða fé fyrir. Sögulega séð hefur Úkraína verið matarbúr Sovétríkjanna og enn kemur fjórðungur kornframleiðslunnar þaðan. Áratuga óstjórn, úreltar framleiðsluaðferðir, uppblástur °g Tsjernóbýl hafa hins vegar gert það að verkum að landbún- aðurinn er ekki svipur hjá sjón. Það sama má segja um hinn máttarstólpa úkraínsks efna- hagslífs, kolagröft. Nágrannaríki kappkosta góð tengsl Nánustu nágrannaríki Úkraínu hafa hins vegar áhyggjur af öðr- um málum. Þau eru flest hver mjög háð úkraínskri raforku og er því mikið í mun að halda góðum tengslum við landið og er þegar komið í gang kapphlaup um hver verði fyrstur til að viðurkenna sjálfstæði ríkisins. Sögulega séð hafa samskipti Úkraínu við ná- grannaríkin verið mjög góð, sér- staklega við Pólland og Ung- verjaland, og þessum ríkjum er það líka síður en svo á móti skapi að fá stuðpúða á milli sína og Rússlands. Það sem vestræn ríki hafa helst áhyggjur af eru áform Úkraínumanna um eigin her. Fyrr í haust knúði Kravstjúk í gegnum þingi frumvarp um stofnun 400 þúsund manna úkra- ínsks herliðs og að Úkraína fengi að vera með í ráðum varðandi þau kjarnorkuvopn sem staðsett eru í lýðveldinu. Yfirvöldum i Moskvu er mikið í mun að halda_ sem nánustum tengslum við Úkraínu áfram. Boris Jéltsínj forseti Rússlands, hefur lofað Úkraínumönnum því að afskrifa skuldar Úkraínu- manna upp á 80 milljarða rúblur ef þeir verða áfram innan ríkja- sambandsins. Annars hótar hann því að innheimta þær af fullum krafti og einnig hafa Rússa gefið í skyn að þeir muni krefjast til baka Krímskaga, sem aðallega er byggður Rússum, en hefur verið hluti af Úkraínu síðan 1954. Enn er með öllu óljóst hvort að hin sjálfstæða Úkraína verði reiðubúin að taka þátt í einhvers konar ríkjasambandi með öðrum fyrrum og núverandi sovétlýð- veldum. Forsetaframbjóðandinn Kravtsjúk hefur sagt að ekki komi til greina að undirrita sam- komulag þar sem ákvæði um miðstjórnarvald, sama hversu lít- ilvægt, sé að finna. í staðinn hefur hann lagt mikla áherslu á góð samskipti við Rúss- land og segist treysta því að hægt verði að ná góðum tvíhliða samningum milli ríkjanna ekki síst hvað varðar vöruskipti. „Ég treysti meir á samninga við Rúss- land en þetta ríkjasamband,” sagði hann nýlega. „Þá vitum við nákvæmlega hvað við fáum. 40 milljón tonn af olíu frá þeim gegn 1,15 millj- ónum tonna af sykri frá okkur. Það eru alvöru skipti.” BAKSVIÐ eftir Steingrím Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.