Morgunblaðið - 01.12.1991, Page 6

Morgunblaðið - 01.12.1991, Page 6
6 FRETTiR/INNLENT 1 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991 Norræn fegurð til Purto Rico Fegurðardrottningar flykkjast nú til Puerto Rico til þess að taka þátt í keppninni um Ungfrú heim. Svava Haraldsdóttir, fegurðardrottning íslands 1991, sést hér ásamt fjórum norrænum stöllum sínum er þær höfðu viðdvöl í London á föstudag. Næst henni í fremri röð er Sharon Givskav, ungfrú Danmörk, og Nina Autio, ungfrú Finnland. í aftari röð eru frá vinstri Catrin Olsson, ungfrú Svipjóð, og Anne-Britt Ro- vik, ungfrú Noregur. Flugleiðir: Flugafgreiðsla áfram rekin með líkum hætti Flugafgreiðsla Flugleiða í Leifsstöð verður áfram rekin með svip- uðum hætti og hingað íil. Kannaðir hafa verið aðrir rekstrarmögu- leikar en sparnaður af slíkum breytingum þykir ekki svara kostnaði. Aðeins verður gerð sú breyting að ákveðin verkefni verða færð til annarra deilda en með því móti næst nokkur hagræðing samkvæmt frétt frá flugfélaginu. Þar segir að kannaðir hafl verið aðrir rekstrar- möguleikar fyrir farðþegaafgreiðsl- Sýningn Gunn- ars lýkur í dag I myndlistargagnrýni í blaðinu í gær sagði að sýning Gunnars S. Magn- ússonar í Gunnarssal í Þemunesi 4, Arnarnesi, stæði fram að heigi. Hið rétta er að sýningin hefur að- eins verið opin undanfamar helgar og er síðasti sýningardagur í dag, sunnudag. una og hafi þar á meðal verið út- boð. Rekstarspamaður af slíkum breytingum þykir hins vegar ekki nægur til þess að þær svari kostn- aði. Fram kemur að þegar ákvörðun hafí verið tekin um að halda starf- seminni áfram undir merkjum Flug- leiða hafí einnig verið haft til hlið- sjónar að tekið yrði í notkun nýtt og fullkomið tölvuinnritunarkerfí á næstunni. í fréttinni segir að nýja kerfíð gefí færi á mun meiri hag- ræðingu í rekstri og betri þjónustu við farþega. Þijátíu og fjórum þeirra þijátíu og átta starfsmanna í flugaf- greiðslu og söluskrifstofu sem fengu uppsagnarbréf um síðustu mánaðamót hefur verið boðin end- urráðning. Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, við píanó Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, tónskálds. Fullveldistónleikar í Þjóðminjasafninu ÍSLENSKA hljómsveitin heldur fullveldisdaginn 1. desember hátíð- legan með kammertónleikum í Þjóðminjasafni íslands. Tónleikarnir eru helgaðir Sveinbirni Sveinbjörnssyni, en hann var fyrsta mennt- aða íslenska tónskáldið. Tónleikunum verður útvarpað beint á Rás 1 og hefst útsending klukkan 16.30. Þorkell Sigurbjömsson, tónskáld, flytur inngangsorð. Jón Þórarins- son, tónskáld, kynnir verk Svein- bjöms og rekur helstu æviatriði hans. Karlakórinn Fóstbræður syngur kórlög eftir Sveinbjöm und- ir stjórn Arna Harðarsonar, auk þjóðsöngsins. Sum þessara verka hafa ekki heyrst á tónleikum um langan aldur. Flytjendur auk karlakórsins eru þau Anna Guðný Guðmundsdóttir, Ema Guðmundsdóttir, Þóra Fríða Sæmundsdóttir, John Speightj Richard Talkovskíj, Sean Bradley og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir. Stutt verk veröur leikið á píanó Svein- bjöms, en hljóðfærið er í vörslu Þjóðminjasafnsins. Tekið er á móti miðapöntunum í síma Þjóðminja- safnsins frá klukkan 14 í dag og miðasala hefst síðan við innganginn klukkan 16. Föstudaginn 6. desember verður opnuð sýning í Þjóðminjasafninu á ýmsum tónminjum í vörslu þess, er tengjast söngiðkun þjóðarinnar. (Ur fréttatilkynningu) Þyrlukaup eða samstarf við varnarliðið: Fullkomin bj örgunarþyrla í okkar höndum betri kostur fyrir þá sem lenda í nauð - segja flugstjórar Landhelgisgæslunnar „ÞAÐ er okkar bjargfasta trú að ný og fullkomin björgunarþyrla í höndum okkar íslendinga sé miklu betri kostur fyrir þá sem lenda í nauð en einungis aukið samstarf við varnarliðið,” sagði Benóný Ás- grímsson flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni þegar rætt var við hann og Pál Halldórsson yfirflugstjóra gæslunnar um hugmyndir Alberts Jónssonar stjórnmálafræðings og „þyrlukaupanefndar” um hugsanlegt samstarf við Bandaríkjamenn um rekstur björgunarþjónustu eða yfir- töku á björgunarsveit varnarliðsins. Páll telur að það sé mjög fjarlægt að íslendingar geti tekið að sér rekst- ur björgunarsveitar fyrir varnarliðið. I sveitinni séu nú fimmtíu menn og áætlað að fjölga þeim í hundrað með tilkomu nýju Sikorsky Pave Hawk- þyrlnanna. Við ættum fáa þyrluflug- menn og langan tíma tæki að þjálfa nýja menn. Auk þess þyrfti væntan- lega að þjálfa íslensku þyrluflug- mennina í vígvallarbjörgun því það væri aðalhlutverk björgunarsveitar vamarliðsins. Páll og Benóný sögðu að Bandaríkjaher hefði hvergi falið öðrum aðilum rekstur björgunar- sveita fyrir herinn, ekki einu sinni í heimalandinu sjálfu. Þar tækju björgunarsveitir hersins ekki þátt í almennum leitar- og björgunarstörf- um nema í undantekningartilvikum, til dæmis í miklum náttúruhamför- um. „Við viljum að það komi skýrt fram að öflugt björgunartæki í hönd- um íslendinga og uppbygging flug- deildar Landhelgisgæslunnar verður að vera óháð veru vamariiðsins hér á landi. Það má ekki tefja þá brýnu aðgerð að fá öfluga björgunarþyriu sem hentar íslenskum aðstæðum. Þegar það er fengið má alltaf auka samstarfíð sem reyndar er ágætt nú þegar. Þeir em bakhjarl okkar og við þeirra eftir því sem við getum,” sagði Páll. Landhelgisgæslan hefur lagt áherslu á að fá franska Super Puma- þyrlu og flugmennirnir talað mjög fyrir kaupum á henni. Þyrlukaupa- nefnd lagði til að kannað yrði ræki- lega hvort Sikorsky Pave Hawk, sem björgunarsveit varnarliðsins er að taka í notkun, eða svipaðar þyrlur gætu hentað Landhelgisgæslunni. Benóný og Páll telja að þær komi ekki til greina. „Þessi vél var upphaf- lega hönnuð til liðsflutninga á her- mönnum á vígvöll. Við endumýjun björgunarþyrlna flughersins var ósk- að eftir sérstakri þyrlutegund en vegna fjárskorts var því neitað og þeir látnir fá liðsflutningavélamar með útbúnaði fyrir þá. Þannig varð Pave Hawk til,” sagði Benóný þegar hann var spurður hvað Gæslumenn hefðu út á Pave Hawk-þyrlumar að setja. Sagði hann að í nýju varn- ariiðsþyrlunum væri að hans mati of lítið pláss. Þær tækju 8-10 menn fyrir utan áhöfn og væri það ekki nægjanlegt miðað við íslenskar að- stæður. Aðalaðfínnsluefni flugmannanna er þó tækjabúnaður þessarar þyrlu- tegundar. „Hún er ekki þeim tækjum búin sem við teljum nauðsynleg. Þar má nefna að í henni er ekki sjálfvirk- ur aðflugsbúnaður til björgunar- starfa og stendur ekki til að útbúa hana þannig. Þessi búnaður gerir þyrium kleift að „hanga” yfír skipi í myrkri án þess að flugmaðurinn þurfí að hafa viðmiðun. Hún er ekki með neyðarflot og fengjum við slíka þyrlu ekki skráða hér á landi nema með því skilyrði að hún flygi ekki yfír sjó. Neyðarflot er mikið öryggis- tæki ef eitthvað kemur fyrir í björgunarleiðangri yfír sjó sem leiðir til nauðlendingar. Það er hugsanlega hægt að útbúa þessar þyrlur með neyðarflotum en verksmiðjumar tryggja ekki að þau dugi iengur en tvær mínútur og er það allt of stutt- ur tími. Þetta tvennt, sjálfvirkur að- flugsbúnaður og neyðarflot, eru að okkar mati algert skilyrði fyrir nú- tíma björgunarþyrlu. Fleiri atriði má nefna. Þessar vélar eru með tak- markaðan afísingarbúnað sem engin flugmálastjóm hefur viðurkennt enn sem komið er,” sagði Benóný. Þeir félagar töldu að kaup á þyrlu sömu gerðar og er á Keflavíkurflug- velli gæti haft ákveðinn sparnað í för með sér, til dæmis í sambandi við varahluti og þjálfun. Það byggð- ist þó algerlega að því að Landhelgis- gæslan væri með nákvæmlega sömu tegund og herinn, en það gæti ekki komið til álita vegna búnaðar þeirra. „Við sjáum ekki eftir hverju verið er að bíða með þyrlukaup ef raunver- ulegur vilji er á bak við yfírlýsingar um að hingað eigi að kaupa öflugri björgunarþyriu. Það er nú tuttugu mánaða afgreiðslufrestur á nýjum þyrlum og skiljum við því ekki að það sé forgangsatriði í málinu að ræða við Bandaríkjaher, það er að segja ef á annað borð á að hlusta á okkur sem fagmenn,” sagði Páll Halldórsson. Kammer- músíktón- leikar í Nor- ræna húsinu Kanunermúsíktónleikar verða haldnir í Norræna húsinu þriðju- daginn 3. desember kl. 20.30 á vegum Tónlistarskólans í Reykja- vík. Á efnisskránni eru hinn frægi píanókvaitett í g-moll eftir Mozart, flaututríó eftir Carl Maria von Web- er, strengjakvartett eftir Brahms og blásarakvintett eftir Reicha. Flytjendur eru nemendur í fram- haldsdeildum Tónlistarskólans í Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Edda Jónsdóttir sýn- ir 75 ný verk í París Frá Laufeyju Helgadóttur, fréttantara Morgunblaðsins í París. ÞANN 19. nóvember síðastliðinn var opnuð sýning á verkum Eddu Jónsdóttur í París. Sýningin er óvenjuleg að því leyti að hún fer ekki fram í hefðbundnu galleríi heldur í glæsilegum húsakynnum fasteigna- sala og arkitckts við Quai Voltaire á hægri bakkanum. Það er algengt hér í París að efnaðir einkaaðilar eða fyrirtæki bjóði listamönnum að sýna verk sín á skrifstofu eða fundarveggjum fyrirtækisins og sjá þá fyrirtækin yfirleitt um opnun sýningarinnar og allan kostnað. Edda sagði í stuttu viðtali við opn- ún sýningarinnar að sér hefði verið boðið að sýna þarna fyrir algjöra til- viljun og vissi varla út í hvað hún væri að fara, en sagðist vera ánægð með móttökur og hún hefði frekar viljað sýna þama heldur en í ein- hveiju óþekktu galleríi. En eins og flestir vita sem eitthvað fást við myndlist þá er ekki hlaupið að þvi að komast inn í viðurkennd gallerí í París og þurfa listamennirnir helst að vera orðnir þekkt nöfn í hinum alþjóðlega listaheimi eða vera á staðnum sjálfum svo galleríeigend- umir geti komið og fylgst með fram- vindu vinnunnar. „Það getur hver sem er keypt sig inn í slæm gallerí, en það er lítið unnið með því og þykir oft verra að hafa Iéleg gallerínöfn á sýningariist- um sínum heldur en hreinlega ekki neitt. Áftur á móti eru margir lista- menn sem vilja gjarnan sýna á veggj- um fyrirtækja vegna þess að oftast em það kunnáttumenn sem standa á bak við boðin sem vanda til vals á listamönnunum. Með vali sínu opin- bera þeir „smekk” sinn og vilja líka með því styrkja ímynd sína út á við. Síðan er aðal viðskiptavinum fyrir- tækisins auðvitað boðið á opnun sýn- ingarinnar.” Tilbrigði við vörður Edda kom með 75 splunkuný verk frá íslandi sem henni tókst að hengja upp á mjög smekklegan hátt í þess- um sérstöku salarkynnum. Verkin eru í öllum stærðum, en gegnum- gangandi þema þeirra er hið aldar- gamla fyrirbæri, varða, eða „caim” eins og Frakkar og Englendingar kalla það. Varðan er mjög einkennandi fyrir íslenskt landslag og þó flestir íslend- ingar viti við hvað er átt þegar varða er nefnd á nafn eru margir Frakkar sem vita varla hvað „cairn” þýðir. En það er augljóst að Frakkamir ráku ekki í vörðumar, þeir kunnu vel að meta þessar íslensku beina- kerlingar og fóru sumir þeirra á flug í umræðum sínum um verkin á opn- uninni eins og þeim einum er lagið. Vörðumar hennar Eddu eru ekki vörður í eiginlegri merkingu, þær eru ekki hlaðnar úr gijóti, hrauni né hijúfar áferðar heldur flatar og gegnsæar — stundum eins og fléttað- ar úr litaböndum, stundum eins og rispaðir bautasteinar. En hún styðst Edda Jónsdóttir við grunnform þeirra og spinnur út frá því, ýmist með aðstoð akríllita eða í gegnum einþrykkstæknina. Megin tilgangur vörðunnar er jú að vísa veginn. Þess vegna geta vörð- ur Eddu líka verið vegvísar til fund- ar við nýja áfanga, nýjar áhættur inn í völdunarhús sjónlistanna. • „Sum verkin em unnin í Sveaborg í Finn- landi þar sem ég dvaldi á vinnustofu í þijá mánuði síðastliðið vor, önnur em unnin á íslandi og Ítalíu stuttu fyrir sýninguna,” sagði Edda þegar hún var spurð út í verkin og hún sagðist „hafa mikla þörf fyrir að ferðast til annarra landa, sjá nýja hluti, upplifa nýjar stemmningar” og sagðist „vonast til þess að geta kom- ið meira til Parísar á næstunni”. Sýningin er við 3 Quai Voltaire í 7. hverfí Parísarborgar og henni lýk- ur 9. janúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.