Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 15

Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 15
MORGUNBLAÖIÐ SUNNUDAGUR1DESEMBER'MI „Mín stærs ógæfa vard mínmesta gæfa" Á unglingsárum dvaldist hún á berklahælum í félagsskap annarra ungmenna sem tóku þar út þroska sinn, fundu sorg, gleði og ást í skugga dauðans. En þegar hinn ytri heim ur lokast, þá fer sálin á kréik. Sigurveig kynntist kaþólskri trú og lét skírast til hennar, íslenskur skáldskapur varð henni uppspretta gleði og leiddi hana í ógleymanlega heimsókn tili Einars Benediktssonar í Herdísarvik. Hún vaknaði til vitundar um stöðu kvenna og hefur síðan hrærst af lífi og sál í þeim straumum sem mótuðu andlegt líf á okkar öld. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skráir sögu Sigurveigar Guðmundsdóftur. Þetta er djarf- leg og fjörug frásögn konu sem ætíð fylgdi sannfæringu sinni, saga sem engan lætur ósnortinn. 0 FORLAGIÐ LAUGAVEGI 18 SlMI 2 51 88 „EG NYT ÞESS AÐSTORKA ÓTTANUM SEMBÝRÍ SJÁLFUM MÉR‘ Hann er tilfinningaríkur fagurkeri, skapríkur nautnamaður, hörkutól sem sífellt storkar sjálf- um sér og heiminum. Um hann hefur blásið hressilega og oft hefur hann orðið efni í beittar sögur sem særðu djúpt. Hann háði erfiða baráttu á vígvelli alkohólismans og hrósaði sigri að lokum. Oftar en einu sinni í hefur hann horfst í augu við dauðann og haft með naumindum betur. Við hvert fótmál vofir lífsháskinn yfir, lífsháski þess manns sem leitast við að horfast í augu við sjálfan sig og Ijá lífi sínu merkingu. Aðrir hafa tjáð sig við hann í opinskáum og einlægum viðtölum, en nú er komið að Jónasi Jónassyni að segja hispurslaust frá lífi sínu og samferðafólki. Svanhildur Konráðsdóttir skráir sögu hans. 0 FORLAGIÐ LAUGAVEGI 18 SÍMI 2 51 88

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.