Morgunblaðið - 01.12.1991, Síða 15
MORGUNBLAÖIÐ SUNNUDAGUR1DESEMBER'MI
„Mín stærs
ógæfa vard
mínmesta
gæfa"
Á unglingsárum dvaldist hún á berklahælum
í félagsskap annarra ungmenna sem tóku
þar út þroska sinn, fundu sorg, gleði og ást
í skugga dauðans. En þegar hinn ytri heim
ur lokast, þá fer sálin á kréik. Sigurveig
kynntist kaþólskri trú og lét skírast til hennar,
íslenskur skáldskapur varð henni uppspretta
gleði og leiddi hana í ógleymanlega heimsókn tili
Einars Benediktssonar í Herdísarvik. Hún vaknaði til
vitundar um stöðu kvenna og hefur síðan hrærst
af lífi og sál í þeim straumum sem mótuðu
andlegt líf á okkar öld.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skráir sögu
Sigurveigar Guðmundsdóftur. Þetta er djarf-
leg og fjörug frásögn konu sem ætíð fylgdi
sannfæringu sinni, saga sem engan lætur
ósnortinn.
0
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI 18
SlMI 2 51 88
„EG NYT ÞESS
AÐSTORKA
ÓTTANUM
SEMBÝRÍ
SJÁLFUM MÉR‘
Hann er tilfinningaríkur fagurkeri, skapríkur
nautnamaður, hörkutól sem sífellt storkar sjálf-
um sér og heiminum. Um hann hefur blásið
hressilega og oft hefur hann orðið efni í
beittar sögur sem særðu djúpt. Hann háði
erfiða baráttu á vígvelli alkohólismans og
hrósaði sigri að lokum. Oftar en einu sinni
í hefur hann horfst í augu við dauðann og haft
með naumindum betur. Við hvert
fótmál vofir lífsháskinn yfir, lífsháski þess
manns sem leitast við að horfast í augu við
sjálfan sig og Ijá lífi sínu merkingu.
Aðrir hafa tjáð sig við hann í opinskáum
og einlægum viðtölum, en nú er komið að
Jónasi Jónassyni að segja hispurslaust frá
lífi sínu og samferðafólki. Svanhildur
Konráðsdóttir skráir sögu hans.
0
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI 18
SÍMI 2 51 88